Fréttablaðið - 29.03.2003, Blaðsíða 36
29. mars 2003 LAUGARDAGUR36
SPY KIDS 2 kl. 1.40, 3.45 og 5.50
DAREDEVIL b.i. 16 kl. 3, 8 og 10.20
LORD OF THE RINGS Sýnd í lúxus kl. 2 THE RING kl. 10.30 b.i. 16 ára
SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 2 og 4
TWO WEEKS NOTICE kl. 6 og 8
TRAPPED b.i. 12 ára kl. 5.50, 8, 10.10
GULLPLÁNETAN m/ísl. tali kl. 2 og 4
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 b.i. 12
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20
Sýnd í lúxus kl. 8
Sýnd kl. 5, 8 og 10.45 b.i. 14 ára
kl. 2, 4, 6, 8 og 10 NÓI ALBINÓI
kl. 5.55 og 8 8 FEMMES
kl. 3.45 og 10.10ADAPTATION
kl. 8 og 10.30NOWHERE IN AFRICA
kl. 4HOUSE OF HEARTS
kl. 2.30CATCH ME IF YOU CAN
kl. 2STELLA Í FRAMBOÐI
2, 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
kl. 2SKÓGARLÍF 2
MAN WITHOUT A PAST kl. 6
NORRÆNIR BÍÓDAGAR
Sýnd kl. 2, 4, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára
Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára
THUNDERPANTS kl. 2, 4 og 6
25th HOUR kl. 8 og 10.10
2 og 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.05
CHICAGO Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 10.30
Það er ekki amalegt að fara í bíóog einu leikararnir sem prýða
skjáinn eru 8 glæsilegar konur.
Tja, ókei, sex af átta... ekki slæmt.
Franska kvikmyndin „8 Femmes“
er farsi eins og hann gerist bestur.
Með átta athyglisverðum persón-
um og einu líki inni í herbergi lok-
uðum á einangruðu sveitasetri. Því
lengra sem líður á myndina fellur
hver gríman af fætur annarri og
allar virðast hafa ástæðu til þess að
hafa viljað manninn feigan.
En þetta er ekki bara ærslafull-
ur farsi því mér til mikillar undr-
unar bresta sögupersónurnar í
söng. Hver persóna opinberar sín
dýpstu hugarangur, eða gleði, með
söng og fær áhorfandinn þannig
aðra sýn á persónuleika þeirra.
Morðgátan er svo vel fléttuð. Ég
var t.d. handviss á minni kenningu,
og var byrjaður að hneykslast á því
hversu augljóst allt saman var. Hí á
mig! Mér hefði aldrei dottið hið
sanna í hug.
Ég skil vel að þessi mynd hafi
orðið vinsælasta mynd allra tíma í
Frakklandi. Skemmtileg saga,
skreytt með glæsilegu kvenfólki og
afbragðs leik. Frakkar eru öfunds-
verð þjóð, fundu upp fallöxina,
stúdentauppreisnir og franskar
kartöflur (hmm?). Svo er ekki nóg
með að þeir viti hvað leynist undir
pilsi Frelsisstyttunnar því þeir
gera skrambi góðar kvikmyndir
líka.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjöllunkvikmynd
Og morðinginn er...
SOLARIS b.i. 12 kl. 5.50, 8 og 10.10
■ SÖNGKEPPNI
Sönghefðin hefur verið rík á Ak-ureyri í gegnum árin. Þaðan eru
til dæmis Ingimar Eydal, Kristján
Jóhannsson, Karl Örvarsson, Gest-
ur Einar Jónasson og Vilhelm Ant-
on Jónsson, söngvari 200 þúsund
Naglbíta. Á síðustu tveimur dög-
um hefur fjölgað um 1.100 ung-
menni í bænum og ætti því að vera
mikið um lífsgleði. Í kvöld keppa
nefnilega 25 framhaldsskólar um
það hver eigi fegursta söngfugl-
inn.
Örlygur Hnefill Örlygsson,
framkvæmdastjóri Söngkeppninn-
ar í ár, segist líta á keppnina sem
byggðastefnu.
„Nú keppast pólitíkusar í því að
reka svokallaða byggðastefnu,“
segir hann og hljómar svolítið eins
og pólitíkus sjálfur. „Ég vil meina
að það að flytja þessa keppni, og
allt sem henni fylgir, hingað til Ak-
ureyrar sé engu síðri byggðar-
stefna. Þetta er hugmynd sem hef-
ur skotið upp kollinum nokkuð oft
hérna í skólanum á Akureyri síð-
ustu ár. Eftir forkeppina í Mennta-
skólanum á Akureyri á síðasta ári,
sem var mjög stór, var ákveðið að
slá til.“
Framkvæmdin er vissulega
stór og mikil. Stoltastur er Örlygur
af sjónvarpsútsendingunni, sem er
að mestu framkvæmd af nemend-
um í Menntaskólanum á Akureyri.
„Þetta er einsdæmi og meðalaldur-
inn í þessari töku er um 20 ár.
Þetta er sýnt í beinni útsendingu í
Ríkissjónvarpinu, ég myndi segja
að þetta væri frekar athyglisvert.
Allt þetta skipulag er í höndum
ungmenna. Sá sem sér um stjórn
útsendingarinnar heitir Hlynur
Þór Jensson og útskrifaðist síðasta
vor úr Menntaskólanum.“
Til þess að gestum í bænum
leiðist ekki var skipulögð menn-
ingardagskrá með leiksýningum
og öðrum uppákomum.
Örlygi líst vel á lagavalið í ár og
segir það ánægjulegt að ekkert
Celine Dion-lag skuli vera í keppn-
inni. Einnig verða „Dimmar rósir“
víðs fjarri í ár.
Í undirleikssveitinni eru Daði
Birgisson, hljómborðsleikari
Jagúar, Eiður Arnarsson, bassa-
leikari Todmobile, Axel Árnason,
fyrrum Naglbítatrymbill og
Róbert Reynisson gítarleikari.
Eftir keppnina er ball með Íra-
fári, Páli Óskari og Óla Palla sem
þeytir skífum.
Bein útsending Rásar 2 og Rík-
issjónvarpsins hefst kl. 21:05.
biggi@frettabladid.is
Engin Celine Dion,
engar Dimmar rósir
Laugavegi 32 561 0075
13.00 Verðlaunahafar úr söng-
keppni Samfés og Freestyle-keppninni
verða meðal þeirra sem koma fram á
uppskeruhátíð Samfés í Vetrargarðinum
í Smáralind. Vel á annað hundrað
krakka taka þátt og sýna rjómann af
þeim skemmtiatriðum sem hafa vakið
athygli og unnið til verðlauna í grósku-
mikilli starfsemi Samtaka félagsmið-
stöðva í vetur.
17.00 Heljarinnar rokktónleikar
verða í Miðbergi vegna afmælis vefsíð-
unnar dordingull.com, sem er fjögurra
ára. Hljómsveitirnar I adapt og Andlát
verða með hollensku hljómsveitinni In-
stil.
21.00 Sænska spunatríóið Sound
of Mucus verður með tónleika í FÍH-
salnum við Rauðagerði. Tónlist þeirra er
slímkennd og blaut eins og nafnið gefur
til kynna.
22.00 Seinni hluti afmælistónleika
vefsíðunnar dordingull.com verður hald-
inn á Grand Rokk. Hljómsveitirnar Sól-
stafir og Dark Harvest spila ásamt hol-
lensku sveitinni Instil.
Sálin hans Jóns míns er með ball
á Gauki á Stöng.
Einvígi skífuskankara verður haldið
á vegum TFA í Stúdentakjallaranum
ásamt fyrstu opinberu áskorendakeppn-
inni í takt-rappi. Öllum er frjálst að taka
áskorun og skora á aðra í þessari litlu
orrustu raddbandanna.
Le’Sing býður upp á mat og leiklist
á litla sviðnu í Broadway. Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir
dansi í Ásbyrgi.
KGB verður á Laugavegi 22 í kvöld.
Dúettinn Acoustic skemmtir á Ara í
Ögri.
DJ Master heldur uppi stuði á Café
Amsterdam.
Diskósveitin Moonboots lætur í sér
heyra á ný í Vídalín.
Hljómsveitin 3some og Garðar
Garðarsson spila á Celtic Cross.
Hljómsveitin Hunang spilar á
Champions Café.
Hljómsveitin Papar leikur á Players
í Kópavogi.
Hljómsveitin Víkingasveitin leikur á
Fjörukránni í Hafnarfirði.
Hljómsveitin Spútnik heldur uppi
fjöri fyrir Grindvíkinga í Sjávarperlunni.
8 FEMMES
Í kvöld ráðast úrslit í Söngkeppni framhaldsskólanna. Keppnin er haldin á
Akureyri í ár og senda 25 skólar fulltrúa. Athygli vekur að bein sjónvarpsútsend-
ing Ríkissjónvarpsins er að miklu leyti í höndum framhaldsskólanema.
SÖNGKEPPNI FRAMHALDSSKÓLANNA
Sú nýbreytni verður á Söngkeppninni í ár að fimmti dómarinn í dómnefndinni verður
fólkið í landinu. Kosning verður í gegnum sms-boð. Þú getur gefið hverju lagi fyrir sig
einkunn á bilinu 1 til 10 og mun meðaleinkunn ákvarða úrskurð „fimmta dómarans“.
13.00 Verðlaunahafar úr söng-
keppni Samfés og Freestyle-keppninni
verða meðal þeirra sem koma fram á
uppskeruhátíð Samfés í Vetrargarðin-
um í Smáralind. Vel á annað hundrað
krakka taka þátt og sýna rjómann af
þeim skemmtiatriðum sem hafa vakið
athygli og unnið til verðlauna í grósku-
mikilli starfsemi Samtaka félagsmið-
stöðva í vetur.
13.00 Danssmiðjan efnir til
restrasjónar á Hótel Borg í dag í tveim-
ur hlutum. Ball með samkvæmisdöns-
um, kaffi og með því til klukkan fjögur.
Dansstjóri er Jóhann Örn Ólafsson.
16.00 Seinni hluti restrasjónar-
innar á Hótel Borg. Ball með línudans,
kaffi og með því. Stendur til klukkan sjö.
Dansstjóri er Jóhann Örn Ólafsson.
hvað?hvar?hvenær?
26 27 28 29 30 31 1
MARS
Laugardagur
hvað?hvar?hvenær?
27 28 29 30 31 1 2
MARS
Sunnudagur
UTANHÚSSKLÆÐNING
Múrklæðning ehf.
22 ára reynsla
af utanhússklæðningum.
Uppl. í s. 565-8826
• Klæðum ný og gömul hús
• Einangrum utanfrá - betri kostur
Gerum föst verðtilboð