Fréttablaðið - 01.04.2003, Síða 1
RÍKISEIGNIR Sementsverksmiðjan
hf. hefur á undanförnum tveimur
árum tapað sem nemur 448 millj-
ónum króna. Þetta kemur fram í
ársreikningi félagsins fyrir árið
2002. Rekstur fé-
lagsins er á brauð-
fótum, nú þegar
ákvörðunar um
sölu á verksmiðj-
unni er að vænta.
Verksmiðjan er
að fullu í eigu ís-
lenska ríkisins og var boðin til sölu
á dögunum. Fimm hópar fjárfesta
buðu í eignirnar en ekki tókst að fá
upplýsingar um upphæðir þar.
Meðal þeirra sem bjóða í Sements-
verksmiðjuna hf. er BM Vallá, sem
býður ásamt Framtak fjárfesting-
arbanka ehf. og fleiri aðilum.
Víglundur Þorsteinsson, forstjóri
BM Vallár, vildi ekkert tjá sig um
tilboðið í Sementsverksmiðjuna en
vísaði á Ásmund Stefánsson hjá
Framtaki fjárfestingarbanka, sem
fer fyrir tilboðshópnum.
Ásmundur sagði í samtali við
Fréttablaðið að Framtak fjárfest-
ingarbanki fari með meirihluta
innan tilboðshópsins þar sem að-
ilar sem eigi í innbyrðis sam-
keppni, BM Vallá og Steypustöð-
in, séu innanborðs.
„Það er full alvara hjá okkur
að tryggja áframhaldandi rekst-
ur,“ segir Ásmundur. Hann vildi
ekki tjá sig um tilboðið en sagði
að ef hans hópur yrði valinn
þyrfti að ræða nánar við eigand-
ann um nokkur atriði í rekstrin-
um.
Alls eru ábyrgðir Sements-
verksmiðjunnar utan efnahags
524 milljónir króna og hækkuðu á
milli áranna 2001 og 2002 um 47
milljónir króna. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins er
þarna um að ræða ábyrgðir
vegna skuldabréfa sem við-
skiptavinir hafa gefið út til að
greiða viðskiptaskuldir, meðal
annars BM-Vallár. Viðbúið er að
undir einhverjum kringumstæð-
um þurfi ríkið að yfirtaka þær
ábyrgðir til að losna við verk-
smiðjuna.
Í athugasemd Deloitte &
Touche vegna ársreiknings fé-
lagsins vegna ársins 2002 segir
að „veruleg óvissa sé um áfram-
haldandi rekstur félagsins“. Þá er
því lýst að líkur séu á verulegu
tapi á yfirstandandi ári og hætta
sé á því ef til stöðvunar komi að
verðmæti eigna félagsins rýrni
verulega frá því sem bókfært er.
rt@frettabladid.is
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 1. apríl 2003
Tónlist 17
Leikhús 17
Myndlist 17
Bíó 18
Íþróttir 14
Sjónvarp 20
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
MYNDLIST
Horft í gegnum
tímann
ÞRIÐJUDAGUR
77. tölublað – 3. árgangur
bls. 102
VERKFÖLL
Vonar að
stjórnvöld læri
bls. 17
SJÓNVARP
bls. 15
Fær
hlutverk
í Will &
Grace
FÓTBOLTI
Einn eða
tveir
keyptir
bls. 21
REYKJAVÍK Vestanátt 5-10
metrar á sekúndu, þykknar
upp. Frost núll til sex stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
-
-
-
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 13-18 Skýjað 4
Akureyri 8-13 Skýjað 5
Egilsstaðir 8-13 Skýjað 5
Vestmannaeyjar 10-15 Skýjað 3
➜
➜
➜
➜
Sementsverksmiðjan
á kafi í skuldafeni
Í ársreikningi Sementsverksmiðjunnar kemur fram að ýmis hættumerki eru á lofti og
reksturinn í óvissu. Tapið á tveimur árum nemur 448 milljónum króna. Viðbúið að
ríkið þurfi að yfirtaka ábyrgðir til að selja verksmiðjuna.
KÖRFUBOLTI Grindavík tekur á móti
liði Tindastóls frá Sauðárkróki í
undanúrslitum Intersport-deildar
karla í körfubolta. Búast má við því
að hart verði barist þar sem þetta
er oddaleikur um sæti í úrslitum.
Hverjir leika
til úrslita?
FUNDUR Stéttarfélag íslenskra fé-
lagsráðgjafa stendur fyrir morgun-
verðarfundi klukkan rúmlega átta á
Grand Hótel í Reykjavík. Yfirskrift
fundarins er „Bakhlið borgarinn-
ar“. Heimilisofbeldi er efni fundar-
ins að þessu sinni. Fyrirlesarar
verð Freydís Jóna Freysteinsdóttir
félagsráðgjafi, dr. Sólveig Anna Bó-
asdóttir guðfræðingur og Einar
Gylfi Jónsson sálfræðingur.
Bakhlið
borgarinnar
FYRIRLESTUR Í hádeginu mun Stefán
Ólafsson þjóðfélagsfræðingur
flytja fyrirlestur í hádegisfundaröð
Sagnfræðifélags Íslands og Borgar-
fræðaseturs. Erindið nefnist
„Reykjavík frá alþjóðlegum sjón-
arhóli“ og verður flutt í Norræna
húsinu.
Alþjóðaleg sýn á
Reykjavík
VIÐRÆÐUR Ekkert samkomulag
hefur náðst um greiðslur í þróun-
arsjóði Evrópusambandsins og
aðgang fyrir fiskafurðir vegna
stækkunar Evrópska efnahags-
svæðisins samhliða stækkun Evr-
ópusambandsins. Gert er ráð fyr-
ir að fundað verði út vikuna og
úrslit ráðist ekki fyrr en á föstu-
dag.
„Það hefur miðað eitthvað
áfram en þetta er samt á svipuð-
um nótum og verið hefur,“ segir
Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytis-
ins. „Þeir lýstu því betur yfir að
útspilið með þreföldun og sér-
stakt framlag frá Norðmönnum
er vel þegið en vilja heldur fá
eitthvað meira.“
Enn ber talsvert í milli í við-
ræðum um með hvaða hætti skuli
tekið á aðgangi fyrir fiskafurðir
vegna fríverslunarsamninga við
Austur-Evrópuþjóðir sem falla
niður við aðild þeirra að Evrópu-
sambandinu. „Þeir hafa ennþá
ekki boðið neitt nema kvóta í
fiskinum fyrir einstakar afurðir,
meðan við höfum viljað fá niður-
fellingu tolla, í það minnsta á lyk-
ilafurðir.“
Samningar þurfa að nást fyrir
föstudag ef takast á að staðfesta
stækkun Evrópska efnahags-
svæðisins á leiðtogafundi Evr-
ópusambandsins um miðjan mán-
uðinn. Takist það ekki er framtíð
EES-samningsins í óvissu. ■
SIGURVEGARI
Vann fimm
milljónir
bls. 26
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 73% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í FEBRÚAR 2003.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
febrúar 2003
18%
D
V
90.000 eintök
73% fólks lesa blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
þriðjudögum?
63%
79%
■
Alls eru ábyrgð-
ir Sementsverk-
smiðjunnar
utan efnahags
524 milljónir
króna.
ÞETTA HELST
Sjálfstæðismenn í borgarstjórnsegja Reykjavíkurlista hafa
svikið loforð sín við íbúa í Grafar-
vogi vegna skipulags Landssíma-
lóðar. bls. 2
Átján nýir þingmenn taka sætiá Alþingi í vor samkvæmt nið-
urstöðum skoðanakannana Frétta-
blaðsins í mars. Búið er að reikna
út hverjir ná inn og hverjir falla
af þingi. bls. 4
Eigandi nektardansstaða býðurerlendum nektardansmeyjum
sem vilja brjóstastækkun ferðir
til Íslands. bls. 8
MYRTIR ÍBÚAR SREBRENICA GRÁTNIR Fyrstu lík fórnarlamba þjóðernishreinsana í Srebrenica sem borin hafa verið kennsl á voru
jarðsett í gær í þorpinu Potocari nærri Srebrenica. Jarðneskar leifar 600 fórnarlamba Serba voru jarðsettar. Um 8.000 manns voru myrtir.
Fundað í viðræðum um EES út vikuna:
Miðar áfram á lokasprettinum