Fréttablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 20
16 1. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR FÓTBOLTI Enska deildakeppnin hefst að nýju á laugardag eftir frí vegna landsleikja. Fram undan er lokasprettur sem lýkur sunnudag- inn 11. maí. Fréttablaðið spáir í botnbaráttuna í dag og baráttuna um meistaratitilinn í lok vikunnar. WBA og Sunderland eru í næst- um vonlausri stöðu en Leeds, Bolton og West Ham eru í mikilli fallhættu. Aston Villa og Birming- ham eru ekki óhult ennþá. Sunder- land og Bolton féllu með 40 stig árin 1997 og 1998 en síðustu fjög- ur árin hafa félögin í 18. sæti fengið 33 til 36 stig. Árið 2000 slapp Bradford City við fall með 36 stig en félögin í 17. sæti hafa yfirleitt þurft 40 til 42 stig til að halda velli í efstu deild. ■ SMITH OG BOWYER Alan Smith og Lee Bowyer fagna marki í landsleik. Þeir voru lengi samherjar hjá Leeds en Bowyer fór til West Ham í vetur. Leeds og West Ham eiga í baráttu um sætií úrvalsdeildinni við Bolton, WBA og Sunderland. STAÐA NEÐSTU FÉLAGA Leikir og stig Aston Villa 31 36 Birmingham 31 35 Leeds 31 34 Bolton 31 32 West Ham 31 30 WBA 31 21 Sunderland 31 19 Nýliðar í úrvalsdeild: Ólík örlög FÓTBOLTI Nýliðar í ensku úrvals- deildinni hafa jafnan átt erfitt með að laga sig að fótboltanum í deildinni. Manchester City, WBA og Birmingham unnu sér sæti í efstu deild í fyrra. Manchester City er í ágætri stöðu um miðja deild og Birmingham á góða möguleika á að halda sæti sínu. Hins vegar eru litlar líkur á því að WBA bjargi sér frá falli. Leicester, Ipswich og Derby féllu úr úrvalsdeildinni í fyrra. Leicester er á leið upp í úrvals- deildina að nýju og Ipswich á möguleika á að fylgja þeim þang- að. Derby er hins vegar skammt frá fallsæti. ■ Tvísýn staða Leeds Leeds United var stofnað árið 1919 á grunni Leeds City, sem var lagt niður sama ár. Leeds United lék fyrst í deilda- keppninni árið 1920. Félagið hefur leikið samfleytt í efstu deild frá 1990 og er eitt níu félaga sem hafa leikið óslitið í úrvalsdeildinni frá stofnun hennar árið 1992. Peter Reid var ráðinn fram- kvæmdastjóri Leeds 21. mars. Hann tók við af Terry Venables. Leeds var í efri hluta deildar- innar fram í miðjan nóvember en var komið niður í 16. sæti rétt fyr- ir jól. Leeds vann sig upp í 11. sætið um miðjan janúar en eftir fimm ósigra í röð er félagið í 16. sæti, aðeins fjórum stigum á und- an West Ham. ■ LEIKIR LEEDS UNITED 5.4. Charlton ú 12.4. Tottenham h 19.4. Southampton ú 22.4. Fulham h 26.4. Blackburn h 3.5. Arsenal ú 11.5. Aston Villa h Erfið dagskrá fram undan FÓTBOLTI Bolton Wanderers var stofnað 28. ágúst 1877 á grunni Christ Church FC sem var stofnað þremur árum fyrr. Félagið var gert að atvinnumannafélagi árið 1880. Bolton var eitt stofnfélaga ensku deildanna árið 1888. Besti árangur félagsins í deildinni er 3. sæti árin 1892, 1921 og 1925. Bolton sigraði í fyrsta bikarúr- slitaleiknum á Wembley árið 1923 og fylgdi því eftir árin 1926 og 1929. Bolton varð síðast bikar- meistari árið 1958. Árið 1995 lék Bolton til úrslita í deildabikarn- um. Reebok Stadium hefur verið heimavöllur Bolton frá árinu 1997 en félagið lék á Burnden Park í 103 ár. Völlurinn rúmar 27.879 áhorfendur en meðalaðsóknin í vetur er 22.909. Sam Allardyce var ráðinn framkvæmdastjóri Bolton í októ- ber 1999. „Stóri Sam“ lék með Bolton frá 1973 til 1980 og í stutt- an tíma árið 1985. Hann lék einnig með Sunderland, Millwall, Coventry City, Huddersfield Town og Preston North End. Gengi Bolton í vetur: Bolton hefur verið í 17. sæti deildarinnar frá öðrum degi jóla. Hæsta staða félagsins var 12. sæti eftir 1-0 sig- ur á Old Trafford í september. Bolton var í neðsta sæti um mán- aðamótin október og nóvember. ■ LEIKIR BOLTON 5.4. Man City h 12.4. Chelsea ú 19.4. West Ham h 21.4. Blackburn ú 26.4. Arsenal h 3.5. Southampton ú 11.5. Middlesbrough h West Ham á góðum skriði West Ham United var stofnað árið 1900 á grunni Thames Ironworks sem var lagt niður sama ár, aðeins fimm árum eftir stofnun þess. West Ham lék fyrst í deildakeppn- inni árið 1919 en félagið hefur leikið samfleytt í efstu deild frá 1993. Besti ár- angur West Ham er 3. sæti í efstu deild árið 1986. Bikarmeistar 1964, 1975 og 1980. Lék til úrslita í deildabikarkeppnini árin 1966 og 1981. Félagið varð Evrópumeist- ari bikarhafa árið 1965 og lék til úrslita í keppninni árið 1976. West Ham hefur leikið á Upton Park frá árinu 1903. Völlurinn rúmar 35.500 áhorfendur en með- alaðsóknin í vetur er 33.369. Glenn Roeder hefur verið framkvæmdastjóri West Ham síðan um vorið 2001. West Ham hefur verið í botn- baráttunni í allan vetur. Hæsta staða félagsins var 14. sæti um miðjan október eftir 1-0 sigur á Fulham. Eftir þrjá sigra og eitt jafntefli í síðustu fjórum leikjum er West Ham nú í seilingarfjar- lægð frá Bolton og Leeds. ■ LEIKIR WEST HAM 5.4. Southampton ú 12.4. Aston Villa h 19.4. Bolton ú 21.4. Middlesbrough h 27.4. Man City ú 3.5. Chelsea h 11.5. Birmingham ú Stuttur stans eftir langa fjarveru FÓTBOLTI West Bromwich Albion var stofnað árið 1878. Félagið hét upphaflega West Bromwich Strollers en tók upp núverandi nafn árið 1880. WBA varð at- vinnumannafélag 1885. WBA var meðal stofnenda ensku deildakeppninnar árið 1888 en félagið leikur í efstu deild í fyrsta sinn síðan 1986. WBA vann efstu deild árið 1920, bikar- keppnina árin 1888, 1892, 1931, 1954 og 1968 og deildabikarinn árið 1966. WBA hefur leikið á The Haw- thorns frá árinu 1900. Völlurinn rúmar nú 26.712 áhorfendur en meðalaðsóknin í vetur er 26.230. Gary Megson var ráðinn fram- kvæmdastjóri WBA í mars 2000, fjórum mánuðum eftir að hann var rekinn frá Stoke City. Félagið var í fallhættu í 1. deild þegar Megson tók við en ári síðar kom hann WBA upp í efstu deild. Stjórnarformaður WBA hefur lýst því yfir að Megson haldi starfi sínu þó félagið falli um deild. WBA er ellefu stigum frá ör- uggu sæti þegar sjö umferðir eru eftir. Hæsta staða félagsins var 7. sætið um miðjan september eftir þrjá sigra í röð. WBA var komið í fallsæti rétt fyrir jól og hefur ver- ið þar síðan. ■ LEIKIR WBA 5.4. Middlesbrough ú 12.4. Everton h 19.4. Sunderland ú 21.4. Tottenham h 26.4. Liverpool h 3.5. Blackburn ú 11.5. Newcastle h Hörð fallbarátta í ensku úrvalsdeildinni Vonlítil staða Sunder- land Sunderland AFC var stofnað árið 1879. Félagið hét District Teachers’ Association Football Club fyrsta árið enda var félagið stofnað af kennurum við Hendon Board School. Sunderland varð atvinnu- mannafélag árið 1886. Gælunafn félagsins var lengi The Rokermen en því var breytt í The Black Cats eftir að Sunderland flutti frá Roker Park. Sunderland lék fyrst í deilda- k e p p n i n n i árið 1890 og lék í efstu deild til 1958. Félagið hefur leikið í efstu deild frá 1999. Meistarar árin 1892, 1893, 1895, 1902, 1913 og 1936. Bikar- m e i s t a r a r árin 1937 og 1973. Lék til úrslita í deildabikarkeppninni árið 1985. Sunderland lék á Roker Park í heila öld en Stadium of Light hefur verið heimavöllur félagsins frá 1997. Hann rúmar 48.300 áhorfend- ur en meðalaðsóknin í vetur er 36.121. Mick McCarthy tók við stjórn Sunderland 12. mars eftir að Howard Wilkinson var rekinn. Wilkinson var ráðinn til Sunderland í október þegar Peter Reid, núver- andi stjóri Leeds, var rekinn. Sunderland hefur verið í fall- sæti frá öðrum degi jóla og neðst frá fyrsta degi febrúarmánaðar. Hæsta staða félagsins í vetur er 11. sæti eftir jafntefli við Manchester United í lok ágúst. Sunderland var næstneðst um miðjan október eftir fimm tapleiki í röð. ■ LEIKIR SUNDERLAND 5.4. Chelsea h 12.4. Birmingham ú 19.4. WBA h 21.4. Man. City ú 26.4. Newcastle h 3.5. Aston Villa ú 11.5. Arsenal h SUNDERLAND Mick McCarthy tók við Sunderland í vonlítilli stöðu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.