Fréttablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 28
ÁFANGI Tryggvi Gíslason, rektor Menntaskólans á Akureyri, hefur sagt starfi sínu við skólann lausu eftir liðlega þrjátíu ár. „Ég var skipaður skólameistari með for- setabréfi 14. júlí 1972 og er því síðasti skólameistarinn við störf sem þannig var skipaður,“ segir Tryggvi. Áður en Tryggvi tók við stöðu sinn kenndi háskól- ann í Bergen í Noregi en kenn- arar Mennta- skólans á Akur- eyri skoruðu á hann að sækja um stöðu skóla- meistara og varð hann við því. Í tíð hans við skólann hefur hann útskrifað margan mektarmanninn og -kon- una sem nú gegna áhrifastöðum í samfélaginu. „Ég trúi því að flestir nemendur séu þakklátir fyrir fóstrið. Skólinn er með sterkar hefðir og byggir á göml- um grunni en er framsækinn um leið. Táknrænt fyrir það er lagið sem stúlka úr skólanum flutti og sigraði með í söngvakeppni fram- haldsskóla. Hún var með fornt lag klætt í nýjan búning,“ segir Tryggvi. Tryggvi er málfræðingur að mennt. Hann hefur ekki hugsað sér að setjast í helgan stein held- ur hyggst hann vinna að sinni sérgrein, málfræði og bókmennt- um. „Síðan er ekki ólíklegt að ég skipti mér eitthvað af stjórnmál- um því mér sýnist ekki veita af því að koma einhverju viti í stjórnmálaumræðuna á Íslandi.“ Tryggvi segist lengi hafa verið bendlaður við Framsóknarflokk- inn en er ekki frá því að hann sé einn fárra eftir á landinu því hann hafi talið þá sem fylgdu flokknum að málum vera sósí- alista. „En ég er nú ekki alvar- lega þenkjandi á þessum sviðum, það sem ég fyrst og síðast ætla að snúa mér að eru fræðistörf, ráð- gjöf og kennsla,“ segir hann. Tryggvi segist hafa fest sér húsnæði á fegursta stað í Kópa- vogi þar sem útsýn er norður í land og til tunglsins. „Íbúð okkar er í háhýsi við Blásali og ég á ugglaust eftir að finna mig þar eins og Óðinn forðum sem sá um heima alla úr Hliðskjálfi. Eiginkona Tryggva er Mar- grét Eggertsdóttir grunnskóla- kennari og eiga þau sex börn og þrettán barnabörn. „Þau búa öll á höfuðborgarsvæðinu og það er ekki að ósekju sem við veljum að vera syðra,“ segir Tryggvi. Hann segir málfar og málrækt vera sitt hjartans áhugamál og oft hafi verið þörf en nú sé nauðsyn að láta til sín taka í þeim efnum. „Ég er svo ungur enn enda ekki nema 65 ára. Verkefnin eru næg fram undan og starfsorkan er eins og best verður á kosið,“ segir Tryggvi Gíslason skóla- meistari. ■ 28 1. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR ■ Áhugamálið mitt Jón gamli hefur ætíð verið af-skaplega latur maður. Um daginn lét hann t.d. prenta fyr- ir sig bænirnar sínar og hengdi þær upp á vegg í svefnherberg- inu sínu. Þegar hann háttar bendir hann alltaf á bænirnar og segir: „Drottinn, þú lest þetta bara...“ Pondus eftir Frode Øverli Með súrmjólkinni Persónan ■ Tryggvi Gíslason skólameistari lætur af störfum í sumar og hyggst flytja sig um set í Kópavog. Hann ætl- ar að koma sér niður þar sem hann hefur útsýn eins og Óðinn forðum sem sá um heima alla úr Hliðskjálfi. Samkeppnin er öllum opin. Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins velur þrjá vinningshafa. Nöfn verðlaunahafa verða tilkynnt á ársfundi ráðsins sem haldinn verður að Eiðum, Færeyjum, hinn 15. ágúst 2003. Vestnorræna ráðið áskilur sér rétt til að hafna öllum tillögum ef sýnt þykir að engin þeirra kemur til greina. Hannið og sendið inn tillögur að merki fyrir Barna- og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 1. verðlaun DKK 6.000 2. verðlaun DKK 3.000 3. verðlaun DKK 1.000 Tillögur skulu berast eigi síðar en 20. maí 2003 til Vestnorræna ráðsins, Austurstræti 14, 5. hæð, IS-150 Reykjavík, Ísland Barna- og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins, að upphæð 60.000 danskar krónur, voru fyrst veitt árið 2002, þegar Andri Snær Magnason og Áslaug Jónsdóttir hlutu verðlaunin fyrir Söguna af bláa hnettinum. Þá voru einnig tilnefndar færeyska bókin Kuffa eftir Brynhild Andreasen og grænlenska bókin Sialuarannguaq eftir Jörgen Petersen. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár og verða næst afhent á ársfundi Vestnorræna ráðsins sumarið 2004 sem fram fer á Grænlandi. Sigurvegarinn 2002: Sagan af bláa hnettinum www.vestnordisk.is vestnordisk@althingi.is Sími 563 0732 Fax 563 0735 Allar hugmyndir eru vel þegnar en vonast er til að merkið endurspegli á einhvern hátt barna- og unglingabókmenntir vestnorrænu landanna, Grænlands, Íslands og Færeyja. Merki bókmenntaverðlaunanna verður notað í margvíslegu samhengi til kynningar á verðlaununum, svo sem í auglýsingum, tilkynningum o.fl. TRYGGVI GÍSLASON SKÓLAMEISTARI Hann hefur útskrifað margan mektarmanninn og -konuna sem nú gegna áhrifastöðum í samfélaginu. Er ungur enn og starfsorkan næg „Ég ætla fyrst og fremst ætla að snúa mér að fræðistörf- um, ráðgjöf og kennslu. VERÐLAUN Heill bekkur í grunnskól- anum á Eskifirði hefur enn ekki komist til Færeyja þó svo hópurinn hafi unnið ferð þangað í ritgerða- samkeppni fyrir tveimur árum. Er kominn kurr í nemendahópinn vegna þessa enda vill hann ólmur komast út: „Einhverra hluta vegna hafa Færeyingarnir ekki getað tekið á móti okkur ennþá en þetta horfir allt til betri vegar. Málið er að leys- ast,“ segir Hilmar Sigurjónsson, skólastjóri á Eskifirði. „Það var nemandi í sjöunda bekk sem vann ritgerðasamkeppnina fyrir tveimur árum þannig að það verður að klára málið áður en börnin fara úr skól- anum,“ segir skólastjórinn. Það var Herdís Hulda Guð- marsdóttir sem sigraði í keppn- inni fyrir vefsíðu sem hún gerði um Færeyjar. Fyrir bragðið getur hún boðið öllum bekknum sínum til Færeyja – í fyllingu tímans. ■ ESKIFJÖRÐUR Grunnskólabörnin orðin langþreytt. Eskifjörður: Börnin komast ekki til Færeyja Hestamennska og tónlist eru mínáhugamál. Ég held að ég hafi verið tveggja vikna þegar ég fór fyrst á bak hesti,“ segir Lára Mar- grét Ragnarsdóttir alþingismaður. Lára segir að þegar hún hafi ver- ið lítil hafi faðir hennar haft hross- in í bakhúsi við Vesturgötuna þar sem þau bjuggu en síðan flutti fjöl- skyldan upp á Höfða, ekki fjarri þar sem Húsgagnahöllin stendur núna. Tónlistin er ekki síður áhugamál hjá Láru. Hún söng í kórum og hef- ur yndi af hvers konar tónlistar- flutningi. „Óperur eru mér helst að skapi og ég læt slíkan flutning helst ekki framhjá mér fara,“ segir Lára Margrét Ragnarsdóttir. ■ Alltaf þegar er farið í sólóin fara menn beint á mjóu strengina! díí... djáng... djááánngg... Ég er að spá í að koma af stað hreyfingu, „Varnarráði hinna gleymdu strengja“... hvað finnst þér? Mér finnst sumir hafa of mikinn tíma og þurfa að fá sér vinnu! Hvað kemur vinna gítar- sólóum við? Fylgjast með hérna! Gítarsóló á þykku strengina eru ógeðslega vanmetin!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.