Fréttablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 1. apríl 2003                                                  ! "#$ "% & !  % "     ###  "% ! # ' (   ) %# # "#  "#                             !" ##  $%           #&&&'() *  +   ,        - . %     /         *  +   !      012    ##  $%   0013   $4  $#   5    . %     6    - . *  +   -      57  %     "##      2"" 012       ##  $%   2"" 00178     ##  $%   2"" 00019-   6:2 +  #    2"" 061;    $4  $#    2""     < =  %     2"" 5  5  %     $%#      !" 012       ##  $%   !" 00178     $4  $#   !" 00519-  ->5>     $4  $#   !" 00"1 8 $4  $#   !" 00019-   6:2 $  #$   &        ? .      ,>   *  +   ? 00<>,    $  *   ''      ) )01@ 8  < $  *   ) )001A    -> *  +   ' ( )      )5   1B 58       $4  $#   *      0   2 C *  +   +         6  . 019) ##  $%   6  . 0019) ##  $%  6  . 1A D  . $4  $#   6  . 12)  $  #$   ,  -!      ) ,1->       ##  $%   ) ,001:  5  *  +   6 16 ,< 8  ##  $%   9 <2 =     ##  $%   7 ->    )  %     +  ./          6   -> D)- " ##  $%   )" #   -> $  *   D>      1DD, *  +    0       9 D 0<  $4  $#   9 D 00<    ##  $%     1213       9 $$<$+  &  #E   900 $$<$+  #E  $4   ,4  5 -            +&  &      00 +&  &         06'      F  ->DG)E&<#$& E&<#E& $#&  4$     #&&&  DG)E&<#$% *      #&&&())  DG)E&<#E& *      #&&&F 0 " 2E&<#$+ *             15 FÓTBOLTI Gerard Houllier, knatt- spyrnustjóri Liverpool, ætlar að kaupa einn til tvo nýja leikmenn í sumar til að styrkja leikmanna- hóp sinn. Houllier eyddi stórfé fyrir þessa leiktíð þegar hann keypti þá El-Hadji Diouf, Salif Diao og Bruno Cheyrou. Hann segist ætla að halda aðeins fastar í budduna á þessu ári. „Ég held að við þurfum ekki að eyða miklum peningum í sumar. Við þurfum ekki fjóra eða fimm nýja leik- menn. Markmið mitt er að kaupa einn til tvo.“ ■ DIOUF El-Hadji Diouf var keyptur til Liverpool fyrir þessa leiktíð. Gerard Houllier: Einn eða tveir keyptir FÓTBOLTI Liechtensteinar eru sátt- ir við leik gegn Englendingum á laugardag. Þeir töpuðu að vísu 0:2 en flestir áttu von á verri út- reið. Michael Owen skoraði fyrra mark Englendinga en David Beckham það seinna beint úr aukaspyrnu. Heimamenn voru ekki sáttir við aukaspyrnuna. „Ég stökk upp með Owen í skallaein- vígi og hann lét sig detta,“ sagði fyrirliðinn Daniel Hasler. Mark- vörðurinn Peter Jehle sagði: „Englendingar bættu manni við varnarvegginn svo ég sá boltann of seint.“ ■ DAVID BECKHAM Beckham skorar gegn Liechtenstein. Aðrir á myndinni eru Kieron Dyer, Ronny Buechel, Fabio D’Elia, Michael Stocklasa, Martin Stocklasa og Daniel Hasler. Vonin um annað sætið úr sögunni Tap íslenska landsliðsins gegn Skotlandi í undankeppni EM var mörgum mikil vonbrigði. Fréttablaðið ræddi við nokkra valinkunna einstaklinga og spurði þá út í leikinn og markmið landsliðsins. Vanda Sigurgeirsdóttir: Þurfum tvo góða hálfleiki Mér fannst þetta mjög kafla-skiptur leikur. Seinni hálf- leikurinn var góður en fyrri hálf- leikurinn lélegur. Mér fannst þetta klaufaleg mörk sem hefði átt að koma í veg fyrir.“ Vanda telur að markmið íslenska liðsins um að ná öðru sæti í riðlin- um hafi verið raunhæft. „Miðað við stöðuna á heimslistanum og árangurinn á undan fannst mér í lagi að stefna á það. Við verðum jafnframt að gera okkur grein fyrir að þetta verður alltaf erfitt fyrir okkur, það er bara stað- reynd. Mér finnst að bæði karla- og kvennalandsliðið hafi náð ótrúlegum árangri miðað við höfðatölu og aðstæður. Þau eiga bæði heiður skilinn.“ Vanda telur 2. sæti riðilsins nú vera óraunhæft markmið. „Það ætti að vera þeirra áskorun að spila heilan leik á fullu, ekki bara hálfan leik. Þeir eiga að taka einn leik fyrir í einu og klára hann á fullu og sjá síðan hvað það gerir í lokin. Ég held að það sé vænlegra til árangurs.“ Logi Ólafsson: Jafntefli hefði verið viðunandi Fyrri hálfleikur var ekki nógugóður. Í seinni hálfleik jöfnum við og freistum þess að ná sigri. Við fengum færi sem nýttust ekki og svo hafði dóm- arinn ekki hug- rekki til að dæma vítaspyrnu.“ Logi Ólafsson telur að jafntefli í leiknum gegn Skotum á laugardag hefði verið viðunandi úrslit. „Leikur Íslands miðaðist fyrst og fremst við það að halda markinu hreinu og freista þess að ná góðum sóknum sem gæfu mark. Þegar við fáum á okk- ur mark eftir ellefu mínútur hryn- ja slík plön og þetta verður mun erfiðara.“ Logi var spurður um markmið Íslands í keppninni. „Atli segir að það hafi alltaf verið aðalmarkmiðið að halda Íslandi í þriðja styrkleika- flokki, allt fyrir ofan það væri bón- us. Það er ennþá möguleiki á að halda þriðja sætinu. Það eru enn 15 stig í pottinum, tveir leikir á móti Færeyjum eftir og einn gegn Lit- háen. Það væri hægt að vera með tíu stig eftir þessa leiki. Vonir um 2. sætið eru væntanlega fyrir bí.“ Eggert Magnússon: Krafa um þriðja styrk- leikaflokk Ég var náttúrlega ekki ánægðurmeð fyrri hálfleikinn en mér fannst seinni hálfleikurinn í fínu lagi og við áttum skilið að fá stig. Þegar við jöfnuð- um var ekkert að gerast hjá þeim. Auðvitað áttum við líka að fá víti. Það getur verið að þeir hafi átt að fá víti en þá áttum við að fá tvö víti. En það er mikið svekkelsi að ná ekki stigi úr þessum leik.“ Eggert játar því að vonin um annað sætið í riðlinum sé fyrir bí. „En ég held að það hafi ekki gerst í Glasgow. Það var frekar leikurinn heima við Skota. Þessi riðill er samt að spilast þannig að það er allt opið, en eins og staðan er í dag er maður ekkert að hugsa um ann- að sætið. Núna verðum við bara að halda sæti okkur í þriðja styrk- leikaflokki, það er algjör krafa.“ Eggert segir að Atli Eðvaldsson verði áfram landsliðsþjálfari. „Atli er ráðinn út þessa undankeppni og það er ekkert annað á dagskránni en að klára það verkefni. Síðan för- um við að huga að framhaldinu seinna á þessu ári.“ Evrópumeistarakeppnin 2004: Liechtensteinar sáttir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.