Fréttablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 2
2 1. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR Nei, ég stend með Atla. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, fylgdist með landsleik Íslendinga og Skota um síðustu helgi. Íslendingar töpuðu 2-1. Spurningdagsins Ellert, þarf að skipta um landsliðs- þjálfara? ■ Lögreglufréttir NÆST Á DAGSKRÁ: Framsaga: – Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar: Hver yrði staða Íslands innan ESB? Kosningamiðstöð VG, Ingólfsstræti 5, Reykjavík Þriðjudagskvöld 1. apríl kl. 20:30 Fundarstjóri: Katrín Jakobsdóttir RÉTTLÆTI 6. fundur Í SAMSKIPTUM ÞJÓÐA ÍSLAND OG EVRÓPUSAMBANDIÐ www.xu.is ÚTGÁFA 80 prósent kvenna á höfuð- borgarsvæðinu lesa eða fletta Birtu, tímaritinu sem fylgir Fréttablaðinu á föstudögum. Þetta kom fram í vikulegri skoðanakönn- un sem Fréttablaðið gerði á laugar- daginn var. 63 prósent karla á höf- uðborgarsvæðinu sögðust lesa eða fletta Birtu. Samanlagður lestur á Birtu á svæðinu er um 72 prósent. „Þessi könnun sýnir mjög góðar viðtökur fólks og eru langt framar okkar vonum,“ segir Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Frétta- blaðsins. „Könnunin var gerð þeg- ar þrjú tölublöð af Birtu höfðu komið út. Miðað við reynsluna af Fréttablaðinu má reikna með að lestur á Birtu eigi bara eftir að aukast.“ Gunnar Smári bendir á að lest- ur mælist oftast meiri í símakönn- unum en dagbókarkönnunum. Það muni þó ekki svo miklu að raski þeirri niðurstöðu að lestur á Birtu sé mjög mikill og þá einkum meðal kvenna. Lestur á Birtu á landinu öllu mældist 63 prósent; þar af 71 pró- sent hjá konum. „Fyrir auglýsend- ur merkir þetta að Birta nær við- líka lestri og stærstu dagblöðin en hefur hins vegar líftíma tímarita fram yfir þau,“ segir Gunnar Smári. Í könnuninni voru 600 manns spurðir og skiptust þeir jafnt á milli kynja og hlutfallslega milli kjördæma eftir mannfjölda. Spurt var: Lestu eða flettirðu Birtu, tímariti sem fylgir Fréttablaðinu á föstudögum? 99,8 prósent þátttak- enda svöruðu – 0,2 prósent neituðu að svara. ■ Sjálfstæðismenn í skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkur telja ekki hafa verið staðið við gefin loforð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, þáverandi borgar- stjóra, um að samráð yrði haft við nágranna um skipulag á Landssímalóð- inni í Grafar- vogi. Mikil and- staða hefur ver- ið meðal íbúanna við fyrirhugaðar byggingar á Landssímalóðinni. Sjálfstæðismenn segja ekki hafa verið komið nægjanlega til móts við íbúana. Þeir hafa stungið upp á því að málið verði leyst með því að minnka byggingarmagnið og skipuleggja útivistar- og íþrótta- svæði. Verktakinn fái sambæri- lega lóð í staðinn. Sjálfstæðismenn stóðu gegn því að nýtt skipulag lóðarinnar færi í auglýsingu eins og meiri- hlutinn hefur samþykkt. Reykjavíkurlistafólk segir skipulag lóðarinnar hafa breyst mikið frá fyrstu hugmyndum. Komið hafi verið til móts við íbú- ana varðandi umferðarskipulag og fleira: „Fjölbýlishús hafa verið lækkuð, byggingarreitir færðir til og unnið hefur verið að fleiri at- riðum til breytinga.“ Fulltrúar Reykjavíkurlistans segja möguleika á grænu svæði í tengslum við skólalóð á svæðinu. Nú fyrst sé það kynnt að flytja eigi barnaskólann og leikskólann yfir í stækkaðan Rimaskóla. Það bjóði upp á möguleika á útivistar- svæði. Engar mótaðar áætlanir liggi þó fyrir um það. Verði ekki af flutningi skólanna sé ekki hægt að koma fyrir útivistarsvæði. „Því miður hafa efndir ekki fylgt orðum hjá R-listanum í þessu máli og muna íbúar hverfis- ins vel eftir loforðaplaggi frá Ingibjörgu Sólrúnu sem dreift var í hvert hús fyrir síðustu kosning- ar þar sem því var lofað að „end- urskoða skipulag Landssímalóðar- innar í sátt við íbúa Grafarvogs,“ sögðu sjálfstæðismenn. Fulltrúar Reykjavíkurlista sögðu að unnið hafi verið að því að taka tillit til sem flestra málefna- legra sjónarmiða eins og lofað hafi verið í fyrravor: „Dylgjum um annað er vísað til föðurhús- anna.“ Þá sögðu sjálfstæðismenn að tillaga þeirra væri sett fram vegna þess að skipulagið hafi ekki verið unnið í sátt við íbúana eins og lofað var: „Það eru engar dylgj- ur – það er staðreynd.“ gar@frettabladid.is Bandarísk stórfyrirtæki: Sjötíuföld ársvelta ríkissjóðs NEW YORK, AP Verslunarkeðjan Wal- Mart Stores vermir efsta sætið á lista tímaritsins Fortune yfir stærstu fyrirtæki í Bandaríkjun- um. Við niðurröðun á listann er tekið mið af ársveltu allra fyrir- tækja á almennum hlutabréfa- markaði. Árið 2002 námu tekjur Wal-Mart um nítján billjónum ís- lenskra króna, sem er um sjötíu- föld ársvelta íslenska ríkisins. Í öðru sæti er bílaframleiðand- inn General Motors en fast á hæla GM koma olíurisinn Exxon og samkeppnisaðilinn Ford. Ofarlega á listanum má einnig finna tölvu- framleiðandann Hewlett Packard og flugvélaframleiðandann Boeing ásamt ýmsum fjármálastofnunum og olíufyrirtækjum. ■ Kerlingarfjöll: Lést í vélsleðaslysi ANDLÁT Maðurinn sem lést í vélsleðaslysi á laugardag hét Sveinn Magnús Magnússon, fædd- ur 1961 og til heimilis að Blómst- urvöllum 34 í Neskaupstað. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjá syni. Sveinn lést þegar vélsleði hans fór fram af gilbrún í Hvera- dal í Kerlingarfjöllum. ■ Konur á höfuðborgarsvæðinu: 80 prósent lesa Birtu Brigslað um svik á Landssímalóð Sjálfstæðismenn segja R-lista hafa svikið kosningaloforð Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur um að sátt yrði náð við nágranna Landssímalóðar um uppbyggingu svæðisins. R-listinn segist hafa komið til móts við íbúana. „Það eru engar dylgjur - það er stað- reynd. LANDSSÍMALÓÐIN Þessi lóð við Sóleyjarrima 1 í Grafarvogi veldur deilum meðal borgarfulltrúa. Upphafleg- um hugmyndum um uppbyggingu lóðarinnar hefur verið breytt. Sjálfstæðismenn telja ekki nóg að gert. Þeir vilja útivistarsvæði og að verktakinn fái lóð annars staðar. BANDARÍKJAMENN Í HINDIYAH Bandaríkjaher leitast við að tryggja sér brýr til að komast yfir Efrat-fljót. Barist suður af Bagdad ÍRAK, AP Bandarískar og íraskar hersveitir börðust harkalega 80 kílómetra suður af Bagdad í gær í þeirri orrustu sem hefur verið háð næst höfuðborginni. Banda- rískar hersveitir héldu inn í bæ- inn Hindiyah við Efratfljót. Sunn- ar í landinu héldu bardagar áfram við hina helgu borg Shíta, Najaf. Harðar loftárásir voru gerðar á Bagdad. Mikill fjöldi sprengju- flugvéla varpaði sprengjum að upplýsingaráðuneytinu og fjar- skiptasendum. Þrátt fyrir það héldu útsendingar áfram að því undanskildu að útsendingar sjón- varpsins féllu niður um þriggja tíma skeið. Al-Jazeera sjónvarps- stöðin sagði að fjögur börn hefðu látist þegar flugskeyti sprengdi fimm hús í loft upp í lágtekju- hverfi í borginni. Geoff Hoon, varnarmálaráð- herra Bretlands, sagði að 8.000 íraskir hermenn hefðu verið teknir til fanga frá því innrásin hófst. ■ ■ Innrás í Írak/ Bardagar KÆRA Náttúruverndarsamtök Ís- lands hafa kært til umhverfisráð- herra ákvörðun Umhverfisstofn- unar um útgáfu á starfsleyfi fyrir álver Reyðaráls. Náttúruverndar- samtökin benda á að dreifingar- spá fyrir loftmengun hafi ekki legið fyrir þegar tillögur að starfsleyfi voru auglýstar. Þegar dreifingarspá lá hins vegar fyrir gat Reyðarál ekki uppfyllt þau skilyrði sem auglýst voru. Um- hverfisstofnun krafðist ekki bættra mengunarvarna þannig að skilyrðin yrðu uppfyllt heldur slakaði á settum umhverfismörk- um. Því eru skilyrði fyrir starfs- leyfi ekki í samræmi við mat á umhverfisáhrifum. Í kæru samtakanna eru þrjár kröfur, þ. e. aðalkrafa, varakrafa og þrautarkrafa. Aðalkrafan felur í sér að í starfsleyfi verði gerð krafa um vothreinsibúnað líkt og gert var ráð fyrir í því umhverfis- mati sem liggur til grundvallar framkvæmdinni. Varakrafan er að Umhverfisstofnun verði gert að leggja mat á hvaða tækni sé best til þess fallin að vernda alla þætti umhverfisins og að gert verði ráð fyrir þeirri tækni í starfsleyfi. Í þrautarkröfunni er farið fram á að Umhverfisstofnun verði gert að vinna starfsleyfið að nýju. ■ FRÁ REYÐARFIRÐI Náttúruverndarsamtök Íslands segja að Reyðarál hafi ekki getað uppfyllt auglýst skilyrði. Náttúruverndarsamtök Íslands: Kæra útgáfu á starfsleyfi Morðingi handtekinn: Vildi hefnd á Aröbum NEW YORK, AP Lögreglan í New York hefur handtekið mann sem grunað- ur er um að hafa ráðist með skipu- lögðum hætti gegn fólki af arabísk- um uppruna. Maðurinn játaði að hafa skotið fjórar manneskjur til bana og sært tvær til þess að hefna fyrir árásina á World Trade Center. Hinn grunaði hringdi í lögregl- una undir því yfirskini að hann hefði undir höndum upplýsingar um morðin en játaði á endanum að hafa sjálfur staðið á bak við ódæð- in. Flest fórnarlambanna voru frá Miðausturlöndum en á meðal þeirra sem létust var einnig karl- maður frá Gana og einn Rússi. ■ Stríð og ferðalög: Helst áhrif vestan hafs FLUG „Það eru óvissutímar í heiminum og þar af leiðandi í fluginu,“ segir Guðjón Arn- grímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, um áhrif stríðsins í Írak á starfsemi Flugleiða. Guðjón segir mikla deyfð hafa verið á ferðamannamark- aðnum í Bandaríkjunum, sem valdi því að dregið hafi úr bók- unum hjá þeim. „Við seinkuðum meðal ann- ars að hefja aftur áætlunarflug til New York sem féll niður í vetur. Við ætluðum að hefja flugið á ný um miðjan mars en byrjum það ekki fyrr en 7. apr- íl. Hvað varðar ferðamenn til Íslands lítur sumarið ágætlega út og Íslendingar virðast komn- ir í ferðahug. Stríðið virðist helst koma niður á flutningum okkar á fólki yfir hafið, milli Evrópu og Bandaríkjanna,“ segir Guðjón. ■ ÓVENJU MARGIR ÁREKSTRAR Sextán árekstrar urðu frá klukk- an tólf til sex í Reykjavík í gær. Flest urðu óhöppin þó á milli klukkan hálf fjögur og hálf sex, alls tólf. Engin skýring er á þess- ari árekstrahrinu, þar sem að- stæður voru góðar. Tafir urðu í austurborginni vegna þessa og fór mestur floti lögreglunnar í að leysa úr málunum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.