Fréttablaðið - 01.04.2003, Síða 4
4 1. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því
að ÁTVR verði lögð niður?
Spurning dagsins í dag:
Hverjar verða Íslandsmeistarar í körfu-
bolta kvenna?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
33,1%
66,9%
Andvíg(ur)
Hlynnt(ur)
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
MBA nám
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F/
SI
A
.I
S
H
IR
2
05
51
0
3.
20
03
Opinn kynningarfundur
þriðjudaginn 1. apríl kl. 17.15
í Háskólanum í Reykjavík.
22 mánaða MBA-nám við Háskólann í Reykjavík eflir
stjórnunar- og leiðtogahæfileika þína. Námið byggir á
sterkum tengslum við virta háskóla í Evrópu og gefur
nemendum kost á að sérhæfa sig í fjármálum,
mannauðsstjórnun og „Global eManagement“.
www.ru.is/mba
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Kefla-
víkurflugvelli rannsakar nú mál
karlmanns sem úrskurðaður var í
viku gæsluvarðhald á föstudag,
grunaður um að hafa aðstoðað
fjóra Kínverja við að komast ólög-
lega til landsins. Afla verður upp-
lýsinga um manninn hjá lögreglu-
yfirvöldum í Þýskalandi og Inter-
pol.
Rannsókn málsins hófst fyrir
viku í kjölfar komu fjögurra Kín-
verja til landsins með flugi frá
Osló. Kínverjarnir, tveir karlar og
tvær konur um tvítugt, sögðust
ætla að dvelja hér í nokkra daga.
Þau áttu bókað flug til baka 31.
mars. Fólkið framvísaði banda-
rískum vegabréfum. Við nánari
skoðun kom í ljós að ekkert þeirra
hafði fengið vegabréfsáritun inn á
Schengen-svæðið. Í fyrstu sagðist
fólkið fætt og uppalið í Bandaríkj-
unum. Breyttu þau síðan fram-
burði sínum og viðurkenndu að
vera frá Fujan-héraði í Kína. Þau
sögðust hafa farið frá Kína til
Hamborgar. Vegabréfin voru
keypt í upphafi ferðarinnar. Í
Hamborg áttu þau stefnumót við
mann sem hafði titlað sig „lög-
fræðinginn“. Kínverjunum var
sýnd ljósmynd af manni sem
hafði verið handtekinn á Kefla-
víkurflugvelli daginn áður við
komu frá Stokkhólmi. Báru þau
öll kennsl á hann sem „lögfræð-
inginn“ í málinu. ■
FRÁ LEIFSSTÖÐ
Að sögn eins Kínverjans átti maðurinn að
aðstoða hann við að sækja um hæli hér
á landi. Landar hans þrír kváðu tilgang
ferðar sinnar hafa verið að komast til
Bandaríkjanna. Fyrir flutninginn átti hvert
um sig að greiða 50-60.000 dollara.
Maður grunaðir um mansal:
Titlaði sig
„lögfræðinginn“
Fékk á sig heybagga:
Maðurinn
þungt
haldinn
SLYS Maðurinn sem slasaðist alvar-
lega við Nesbú á Vatnsleysuströnd,
eftir að rúmlega 200 kílóa heybaggi
féll á hann við Nesbú á Vatnsleysu-
strönd, liggur þungt haldinn á gjör-
gæsludeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss í Fossvogi. Er honum
haldið sofandi í öndunarvél. Maður-
inn, sem er á áttræðisaldri, gekkst
undir tvær aðgerðir í fyrradag.
Tildrög slyssins voru þau að ver-
ið var að afferma vörubíl þegar
heybagginn féll um þrjá metra nið-
ur á manninn. ■
VINCE BROOKS HERSHÖFÐINGI
Almennir hermenn verða ekki sendir til
Guantanamo.
Almennir hermenn:
Ekki til Gu-
antanamo
KATAR, AP Vince Brooks, hershöfð-
ingi í Bandaríkjaher, segir að
stjórnvöld hafi ekki uppi neinar
hugmyndir um að skilgreina
íraska stríðsfanga sem óvinveitta
vígamenn og vista þá í Guantana-
mo. Sú aðferð var notuð við fanga
sem voru teknir í Afganistan.
Í frétt sem birtist í Wash-
ington Post sagði að bandaríski
herinn væri farinn að safna sam-
an Írökum sem hefðu tekið þátt í
bardögum borgaralega klæddir
og kynnu að senda þá til Guant-
anamo. Brooks sagði ekkert slíkt
í gangi nú. Hann ítrekaði þó að
tekið yrði sérstaklega á hryðju-
verkum sem íraskir hermenn og
vígamenn gerðu sig seka um. Þar
tiltók hann að stuðningsmenn
Íraksstjórnar hefðu skotið
óbreytta borgara sem þeir hefðu
notað sem mannlega skildi. ■
REYKJAVÍK NORÐUR
Framsóknarflokkur
1. Halldór Ásgrímsson
Sjálfstæðisflokkur
1. Davíð Oddsson
2. Björn Bjarnason
3. Guðlaugur Þór Þórðarson
4. Sigurður Kári Kristjánsson
5. Ásta Möller
Samfylkingin
1. Össur Skarphéðinsson
2. Bryndís Hlöðversdóttir
3. Guðrún Ögmundsdóttir
4. Helgi Hjörvar
Vinstri grænir
1. Kolbrún Halldórsdóttir
Fellur af þingi
Katrín Fjeldsted, Sjálfstæðisflokki
Nýir þingmenn
Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisfl.
Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisfl.
Helgi Hjörvar, Samfylkingu
REYKJAVÍK SUÐUR
Sjálfstæðisflokkur
1. Geir H. Haarde
2. Pétur Blöndal
3. Sólveig G. Pétursdóttir
4. Guðmundur Hallvarðsson
5. Birgir Ármannsson
Samfylkingin
1. Jóhanna Sigurðardóttir
2. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
3. Mörður Árnason
4. Ágúst Ólafur Ágústsson
5. Einar Karl Haraldsson
Vinstri grænir
1. Ögmundur Jónasson
Falla af þingi
Jónína Bjartmarz, Framsóknarflokki
Lára Margrét Ragnarsdóttir, Sjálfstæðisflokki
Nýir þingmenn
Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki
Mörður Árnason, Samfylkingu
Ágúst Ólafur Ágústsson, Samfylkingu
Einar Karl Haraldsson, Samfylkingu
SUÐVESTURKJÖRDÆMI
Sjálfstæðisflokkur
1. Árni M. Mathiesen
2. Gunnar I. Birgisson
3. Sigríður A. Þórðardóttir
4. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
5. Bjarni Benediktsson
Frjálslyndi flokkurinn
1. Gunnar Örlygsson
Samfylkingin
1. Guðmundur Árni Stefánsson
2. Rannveig Guðmundsdóttir
3. Þórunn Sveinbjarnardóttir
4. Katrín Júlíusdóttir
Vinstri grænir
1. Jóhanna B. Magnúsdóttir
Fellur af þingi
Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki
Nýir þingmenn
Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki
Gunnar Örlygsson, Frjálslynda flokknum
Katrín Júlíusdóttir, Samfylkingu
Jóhanna B. Magnúsdóttir, Vinstri grænum
NORÐVESTURKJÖRDÆMI
Framsóknarflokkur
1. Magnús Stefánsson
2. Kristinn H. Gunnarsson
Sjálfstæðisflokkur
1. Sturla Böðvarsson
2. Einar Kristinn Guðfinnsson
3. Einar Oddur Kristjánsson
Frjálslyndi flokkurinn
1. Guðjón A. Kristjánsson
Samfylkingin
1. Jóhann Ársælsson
2. Anna Kristín Gunnarsdóttir
3. Gísli S. Einarsson
Vinstri grænir
1. Jón Bjarnason
Falla af þingi
Guðjón Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki
Árni Steinar Jóhannsson, Vinstri grænum
Nýir þingmenn
Anna Kristín Gunnarsdóttir, Samfylkingu
NORÐAUSTURKJÖRDÆMI
Framsóknarflokkur
1. Valgerður Sverrisdóttir
2. Jón Kristjánsson
3. Dagný Jónsdóttir
Sjálfstæðisflokkur
1. Halldór Blöndal
2. Tómas Ingi Olrich
Samfylkingin
1. Kristján L. Möller
2. Einar Már Sigurðarson
3. Lára Stefánsdóttir
Vinstri grænir
1. Steingrímur J. Sigfússon
2. Þuríður Backman
Falla af þingi
Arnbjörg Sveinsdóttir, Sjálfstæðisflokki
Nýir þingmenn
Dagný Jónsdóttir, Framsóknarflokki
Lára Stefánsdóttir, Samfylkingu
SUÐURKJÖRDÆMI
Framsóknarflokkur
1. Guðni Ágústsson
Sjálfstæðisflokkur
1. Árni Ragnar Árnason
2. Drífa Hjartardóttir
3. Guðjón Hjörleifsson
Frjálslyndi flokkurinn
1. Magnús Þór Hafsteinsson
Samfylkingin
1. Margrét Frímannsdóttir
2. Lúðvík Bergvinsson
3. Björgvin G. Sigurðsson
4. Jón Gunnarsson
5. Brynja Magnúsdóttir
Falla af þingi
Hjálmar Árnason, Framsóknarflokki
Ísólfur Gylfi Pálmason, Framsóknarflokki
Kjartan Ólafsson, Sjálfstæðisflokki.
Kristján Pálsson, Óháðir
Nýir þingmenn
Guðjón Hjörleifsson, Sjálfstæðisflokki
Magnús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokki
Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingu
Jón Gunnarsson, Samfylkingu
Brynja Magnúsdóttir Samfylkingu
SKOÐANAKÖNNUN Fimm sitjandi
þingkonur og fjórir sitjandi þing-
menn falla í komandi kosningum,
samkvæmt samandregnum skoð-
anakönnunum Fréttablaðsins í
mars. Þrettán karlar og fimm
konur ná kjöri sem nýir þing-
menn. Alls setjast því átján nýir
þingmenn í haust, verði úrslit
kosninga í samræmi við kannan-
irnar.
Siv Friðleifsdóttir er sam-
kvæmt könnuninni eini ráðherr-
ann sem fellur í kosningunum.
Halldór Ásgrímsson er uppbótar-
þingmaður í Reykjavík norður, en
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir nær
ekki kjöri samkvæmt þessu. Litl-
ar breytingar þurfa að verða til
þess að hreyfa uppbótarsæti og
færa þannig til í hvaða kjördæm-
um flokkarnir koma fulltrúum
sínum að.
Af þingmönnum í framboði
sem falla koma fjórir frá Sjálf-
stæðisflokki og fjórir frá Fram-
sóknarflokki. Þá nær Kristján
Pálsson ekki kjöri samkvæmt
könnunum en hann hefur boðað
sérframboð í Suðurkjördæmi. Í
Suðurkjördæmi verður Guðni
Ágústsson eini þingmaður fram-
sóknarmanna í kjördæminu.
Hjálmar Árnason og Ísólfur Gylfi
Pálmason falla af þingi.
Reyndar þingkonur Sjálfstæð-
isflokksins ná ekki inn. Þær Lára
Margrét Ragnarsdóttir og Katrín
Fjeldsted féllu úr öruggum þing-
sætum í prófkjöri flokksins. Guð-
jón Guðmundsson fellur einnig af
þingi í Norðvesturkjördæmi, en
hann hefur átt sæti á Alþingi frá
1991.
Samkvæmt samandregnum
könnunum í mars fær Sjálfstæð-
isflokkurinn 23 þingmenn og
Samfylkingin 24. Framsóknar-
flokkurinn fær sjö þingmenn,
Vinstri grænir sex og Frjálslynd-
ir ná þremur. Samkvæmt könnun-
unum ná þeir Magnús Þór Haf-
steinsson og Gunnar Örlygsson
kjöri. Fyrir situr Guðjón Arnar
Kristjánsson.
Reykvíkingar eignast sam-
kvæmt könnuninni sjö nýja þing-
menn og eru það allt karlmenn. Í
Suðvesturkjördæmi koma inn
fjórir nýir þingmenn; tvær konur
og tveir karlar. Í Norðvesturkjör-
dæmi bætist ein kona í hópinn og
í Norðausturkjördæmi setjast
tvær nýjar konur á þing.
Í Suðurkjördæmi verða miklar
breytingar samkvæmt könnunun-
um. Þar koma inn fimm nýir þing-
menn, fjórir karlar og ein kona.
Þrír sitjandi þingmenn falla í
kjördæminu. Samfylkingin fær
helming þingsæta í kjördæminu
eða fimm þingmenn og eru þeir
allir kjördæmakjörnir.
Miðað við niðurstöðuna mun
meðalaldur þingmanna lækka,
þar sem töluvert af ungu fólki
nær kjöri.
Niðurstöðurnar eru byggðar á
fimm könnunum Fréttablaðsins í
mars. Í úrtakinu voru 3.000
manns og tóku rúm 65 prósent af-
stöðu í könnununum. ■
NÍU FALLA
Átján nýir þingmenn setjast á Alþingi í vor samkvæmt könnunum. Níu af þeim átján
þingmönnum sem hætta falla í kosningum.
Níu sitjandi þingmenn falla í kosningum samkvæmt könnunum Fréttablaðsins. Átján nýir ná
kjöri. Mestu sviptingarnar eru í Suðurkjördæmi, þar sem þrír þingmenn falla og fimm nýir setj-
ast á þing. Siv Friðleifsdóttir er eini ráðherrann sem fellur af þingi samkvæmt könnunum.
Átján nýir þingmenn í vor
ÞINGMENN SAMKVÆMT SAMANDREGINNI NIÐURSTÖÐU FJÖGURRA
KANNANA FRÉTTABLAÐSINS Í MARS