Fréttablaðið - 01.04.2003, Side 6
6 1. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Bandaríkin
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.66
Sterlingspund 121.08
Dönsk króna 11.24
Evra 83.53
Gengisvístala krónu 120,54 0,34%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 422
Velta 5.455 milljónir
ICEX-15 1.419 -0,24%
Mestu viðskipti
Eimskipafélag Íslands hf. 492.755.219
Kaupþing banki hf. 393.124.233
Pharmaco hf. 189.537.000
Mesta hækkun
Framtak Fjárfestingarbanki hf. 2,82%
S.H. hf. 2,64%
Íslenskir aðalverktakar hf. 2,64%
Mesta lækkun
Vinnslustöðin hf. -4,55%
Pharmaco hf. -1,84%
Samherji hf. -1,61%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8018,2 -1,6%
Nasdaq*: 1350,9 -1,4%
FTSE: 3613,3 -2,6%
DAX: 2432,0 -3,5%
Nikkei: 8.280,1 -3,7%
S&P*: 853,0 -1,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Að opna bókhald stjórnmálaflokk-anna er nánast það sama og afnema
leynilegan kostingarétt að mati fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Hvað
heitir hann?
2Fyrrverandi framkvæmdastjóri Líf-eyrissjóðs Austurlands, fékk óvænt 25
milljóna króna starfslokasamning. Hvað
heitir hann?
3Albert Guðmundsson barðist fyrirhundahaldi á sínum tíma. Hvað hét
tíkin hans?
Svörin eru á bls. 29
LÖGREGLA Bæjarráð Kópavogs tel-
ur að lögreglan í bænum sinni
ekki þeirri skyldu sinni að stem-
ma stigu við því að stórum bílum
sé lagt ólöglega á bílastæðum
bæjarins.
Bæjarráð segir stórum bílum
til dæmis vera ólögleglega lagt
við Listasafnið og við leik- og
grunnskóla víða í bænum. Bæjar-
verkfræðingi hefur verið falið að
afla skýringa lögreglu.
„Það eru alveg hreinar línur að
ég viðurkenni ekki að við séum
ekki að sinna þessu,“ segir Jóhann
Magnús Hafliðason, varðstjóri í
Kópavogi.
„Við höfum sinnt þessu jafnt
og þétt með öðru. Það eru gerðar
skýrslur og gefnir út sektarmiðar
eftir eðli málsins. Vandamálið er
að það eru mjög fáir staðir í Kópa-
vogi sem þessir stóru bílar yfir
þremur og hálfu tonni mega í raun
vera á eftir klukkan tíu á kvöldin
til klukkan sex á morgnana. Sums
staðar mega þeir aldrei vera. Það
gildir til dæmis um Listasafnið,
þar sem nýlega hafa verið sett
upp bannskilti,“ segir Jóhann. ■
FLUTNINGABÍLL
Kópavogsbær er ósáttur við meint að-
gerðarleysi lögreglu vegna flutninga-
bíla sem lagt er ólöglega í bænum.
Bæjarráð Kópavogs segir ólöglega vörubíla óhulta fyrir lögreglu:
Lögregla segist sinna skyldum
Akureyri:
Keyrði um á
röngum bíl
LÖGREGLA Bíleigandi hafði sam-
band við lögregluna á Akureyri í
síðustu viku og tilkynnti að bíl
sínum hefði verið stolið. Lög-
reglan svipaðist um og fann bíl-
inn fljótt, þar sem honum var
ekið um götur bæjarins. Öku-
maður sagðist hafa fengið bílinn
lánaðan.
Hann sagði að illa hafi gengið
opna bílinn og prófaði hann því
næsta bíl við hliðina, sem var af
sömu tegund og gengu lyklarnir
greiðlega bæði í hurð og kveik-
ilás. Hann hélt þetta vera réttan
bíl og ók honum af stað í góðri
trú um að vera á réttum bíl. ■
STRÍÐ Í ÍRAK „Ég bjóst nú ekki við
að mæta í búðina aftur,“ segir
Alfreð Þorsteinsson, fráfarandi
forstjóri Sölunefndar varnar-
liðseigna. Í dag klukkan níu þarf
hann að opna búðina á ný. En
bara í dag. Fyrir misskilning
kom hingað til lands gámur sem
átti að fara til bandarískrar her-
deildar í Írak. „Ég hef nú ekki
náð að skoða innihaldið til fulls,
en mér sýnist kenna þarna ým-
issa grasa.“ Alfreð segir að yfir-
stjórn Bandaríkjahers í Kefla-
vík hafi haft samband við sig og
beðið sig um að selja úr gámin-
um. „Ég tjáði þeim að hér væri
búið að pakka niður sölukössum
og búið væri að loka bókhaldinu,
þannig að ég gæti þetta ekki.“
Alfreð segist þegar í stað
hafa haft samband við utanríkis-
ráðuneytið og niðurstaða þess
og yfirstjórnar hersins hafi ver-
ið að gefa dótið úr gáminum.
„Við verðum með söfnunar-
bauka frá Rauða krossinum og
samtökunum Læknar án landa-
mæra. Fólk getur því sett í
baukana það sem að því finnst
sanngjarnt. Fólk ræður því bara
sjálft.“ Hann reiknar með að
ekki muni taka langan tíma að
koma vörunum út.
Alfreð segist ekki vera búinn
að sjá allt innihaldið. „Þarna eru
hermannaklossar og hermanna-
föt, eitthvað matarkyns, tyggjó
og sælgæti. Eitthvað er þarna af
hjálmum og svo plástrar, sára-
bindi og þvílíkt. Innst í gámin-
um komu í ljós ísskápar og elda-
vélar. Þrjú eða fjögur stykki.“
Alfreð segir að herinn hafi
ekki talið svara kostnaði að
sækja gáminn og flytja hann til
Íraks. „Þar fyrir utan eru þetta
eyðimerkurbúningar sem her-
deildin hér hefur ekkert með að
gera.“ Alfreð segist ekki hafa
fengið nákvæmar skýringar á
því hvernig stóð á því að gámur-
inn barst hingað. „Eftir því sem
ég kemst næst þurfti að endur-
skipuleggja birgðaflutninga eft-
ir að Tyrkir lokuðu leiðinni til
Íraks sín megin. Þetta eru gríð-
arlegir flutningar og kannski
ekki skrýtið þótt eitthvað skolist
til.“
Sturla Sigurjónsson, skrif-
stofustjóri varnarmálaskrfstofu
utanríkisráðuneytisins, segir
þessa ákvörðun hafa verið tekna
eftir að búið var að ganga úr
skugga um að ekkert sem varð-
aði hernaðarleynd væri í gámin-
um. „Bandarísk hermálayfir-
völd töldu kostnað við að leið-
rétta mistökin of mikinn, auk
þess sem menn gera sér vonir
um að þetta stríð dragist ekki
um of á langinn.“ Hann sagði
ráðuneytið ekki vilja tjá sig að
öðru leyti um málið.
haflidi@frettabladid.is
ÚTKALL
Alfreð Þorsteinsson, fráfarandi forstjóri Sölunefndar varnarliðseigna, var kallaður út vegna
gáms sem villtist til Íslands. Fjölbreyttar vörur úr gámnum verða gefnar í dag.
Gefið úr stríðsgámi
Gámur á leið til bandarískrar herdeildar í Írak villtist til Íslands. Vörur úr gáminum verða gefnar
hjá Sölunefnd varnarliðseigna í dag. Þeir sem fá vörur úr gáminum geta greitt til hjálparstarfs.
RÉÐUST INN Í ÍBÚÐ Kona hafði
samband við Lögregluna í
Reykjavík á sunnudagsmorgun.
Tilkynnti hún að ráðist hefði ver-
ið á hana og íbúð hennar lögð í
rúst. Greinilegir áverkar voru
sjáanlegir og talsvert blóð um
alla íbúð auk þess sem allt var á
öðrum endanum. Konan sagði
konu og karl á miðjum aldri hafa
ráðist á hana inni í íbúðinni. Kon-
an sagðist ekki þekkja fólkið og á
endanum hefðu það farið út og
horfið á braut. Konan var flutt á
slysadeild.
RÖTUÐU EKKI AFTUR Ölið virðist
á tíðum leika menn grátt. Lög-
reglunni í Reykjavík barst til-
kynning á sunnudagsmorgun frá
tveimur mönnum. Höfðu þeir
skroppið út í búð og vantaði að-
stoð lögreglu að rata aftur til vin-
konu sinnar. Báðir voru mjög ölv-
aðir. Þá tilkynnti maður að hann
væri læstur úti en hygðist klifra
upp á vinnupall og skríða inn um
glugga. Vegna greinilegrar ölvun-
ar var hann beðinn um að bíða
eftir lögreglu. Þegar komið var á
vettvang sást til hans skríða inn
um glugga.
OFNEYSLA Á LANDA Tveir þrett-
án ára drengir voru fluttir með
sjúkrabíl á Landspítalann við
Hringbraut vegna ofneyslu á
landa. Lögreglan í Hafnarfirði
segir að eftir því sé tekið hversu
neysla unglinga á landa virðist
vera að aukast.
■ Lögreglufréttir
UMFERÐARSLYS Í KALIFORNÍU
Fimm létust og þrír eru alvarlega
slasaðir eftir umferðarslys á hrað-
braut í Kaliforníu. Ökumaður Van-
bifreiðar með 14 farþega innan-
borðs missti stjórn á ökutækinu á
113 kílómetra hraða. Farþegarnir
voru námsmenn á leið í klaustur
nærri Barstow. Ellefu þeirra voru
ekki í öryggisbeltum.