Fréttablaðið - 01.04.2003, Page 8
8 1. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Evrópa
■ Lögreglufréttir
VIÐSKIPTI DeCode tilkynnti leið-
réttingar á uppgjöri sínu. Um er
að ræða leiðréttingu á tekju-
færslu vegna samnings við fyrir-
tækið Applied Biosystems. Við
leiðréttinguna lækka tekjur fyrir-
tækisin árið 2001 um rúmar 400
milljónir. Á árinu 2002 færast til
tekjur milli ársfjórðunga, en
heildarlækkun tekna er um 150
milljónir króna.
Tekjur fyrirtækisins á tímabil-
inu lækka því um rúman hálfan
milljarð vegna breytinganna.
Bragi Smith, sérfræðingur hjá
Búnaðarbankanum verðbréfum,
segir nokkuð um það að undan-
förnu að uppgjör hafi verið endur-
skoðuð. Í sumum tilfellum hafi
menn verið að fegra niðurstöður
uppgjöra, en í öðrum hafi fyrir-
tæki metið færslur rangt.
Sérfræðingar sem rætt var við
telja að þetta séu fremur nei-
kvæðar fréttir fyrir fyrirtækið.
Samningurinn við Applied Bio-
system átti að standa út þetta ár.
Fyrirtækin gerðu með sér sam-
komulag um að honum lyki um
síðustu áramót. Ljóst er því að
fyrirtækið fær ekki meiri tekjur
vegna þessa samnings. ■
UPPLÝSINGAR Forsætisráðu-
neytið segir í svari til
Fréttablaðsins að í ráðuneyt-
inu sé ekki að finna minnis-
punkta Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra vegna
fundar sem hann átti með
Hreini Loftssyni laugardag-
inn 26. janúar 2002. Ráðu-
neytinu ber samkvæmt
svarbréfinu ekki að halda
utan um slíka punkta eða
varðveita þá.
Fréttablaðið óskaði eftir
minnispunktum ráðherrans
frá Lundúnafundinum en nú
hefur ráðuneytið svarað er-
indinu með þeim orðum að
málið hafi aldrei verið rætt í
ráðuneytinu. „Upplýsingar
sem fram koma á þessum
fundi varða ekki mál sem er
eða hefur verið til umfjöllun-
ar hér í ráðuneytinu. Punktar
sem forsætisráðherra kann
að hafa fært hjá sér um efni
þessara viðræðna teljast því
ekki til þeirra gagna sem orð-
ið hafa til á grundvelli 23.
greinar upplýsingarlaga nr.
50/1996,“ segir í svarbréfi
ráðuneytisins. ■
DAVÍÐ
ODDSSON
Forsætisráðu-
neytið á ekki
minnispunkta
þá sem hann
skrifaði í
London í janúar
2002.
Forsætisráðuneytið:
Hefur ekki
punkta Davíðs
MEIRIHLUTINN HLYNNTUR ESB
Um 49 prósent Norðmanna eru
hlynnt inngöngu landsins í Evr-
ópusambandið en 38 prósent and-
víg, samkvæmt nýrri skoðana-
könnun þar í landi. Athygli vekur
að aðild að sambandinu nýtur
mun meira fylgis meðal karl-
manna en kvenna. Sömuleiðis rík-
ir mun meiri andstaða á meðal
íbúa á landsbyggðinni.
DAPURLEGUR ENDIR Á SKÓLA-
FERÐALAGI Unglingsstúlka lét líf-
ið og átján manns slösuðust þeg-
ar rúta fór út af hraðbraut og
valt skammt suður af Barcelona
á Spáni. Í rútunni voru 39 börn í
skólaferðalagi auk fjögurra kenn-
ara. Tíu manns voru lagðir inn á
spítala með alvarlega áverka.
MILOSEVIC AFTUR FYRIR RÉTT
Réttarhöldin yfir Slobodan Milos-
evic við stríðsglæpadómstólinn í
Haag hófust á ný eftir tveggja
vikna hlé. Milosevic var þegar
yfirheyrður um morðið á Ivan
Stambolic, fyrrum forseta
Serbíu, og vísaði hann ásökunum
um aðild að ódæðisverkinu alfar-
ið á bug. Lík Stambolics fannst í
síðustu viku eftir að hans hafði
verið saknað þrjú ár.
HEILBRIGÐISMÁL Eigandi nektar-
dansstaðar í Reykjanesbæ sætir
harðri gagnrýni landlæknis fyrir
að auglýsa á heimasíðu sinni
brjóstastækkunaraðgerðir hjá
lýtalækninum Guðmundi Stefáns-
syni í Reykjavík.
„Þessi auglýsing er ólögleg og
það er spurning um smekklegheit-
in,“ segir Sigurður Guðmundsson
landlæknir.
Elmar Þór Magnússon, fram-
kvæmdastjóri nektardansstaðar-
ins Casino, segir á
heimasíðu sinni
plasticsurgery.is
(lýtalækningar.is)
að erlendar nektar-
dansmeyjar hafi
iðulega beðið hann
um að koma því í
kring að þær gætu
gengist undir lýtalækningar hér-
lendis.
„Aðalástæða þess að dansarar
vilja gangast undir lýtalækningar
á Íslandi er sú að íslenskir læknar
eru þekktir fyrir að vera þeir
bestu og öruggustu í heiminum.
Reyndar eru aðgerðirnar ódýrari
hér en nokkurs staðar annars
staðar í Evrópu,“ segir Elmar á
heimasíðunni.
Elmar segir að á þeim átta
mánuðum sem þjónustan hafi ver-
ið starfrækt hafi aðeins ein stúlka
á hans vegum komið gagngert til
landsins í því skyni að fara í að-
gerð. Aðrar stúlkur sem hann hafi
liðsinnt hafi verið dansarar á
Casino.
Að sögn Elmars hefur nafn
Guðmundar Stefánssonar nú ver-
ið tekið út af heimasíðunni. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
segir Guðmundur að nafn hans
hafi komið fram á heimasíðunni
að honum forspurðum.
Elmar segist ekki sjá hvað sé
ósiðlegt við að auglýsa ferðir til
lýtalækninga á Íslandi: „Það er
stöðugt verið að auglýsa lækn-
ingaferðir í Bláa lónið fyrir psori-
asis-sjúklinga. Þessir menn virð-
ast einfaldlega telja að lýtalækn-
ingar yfirhöfuð séu ósiðlegar. Ég
held að það fari mest fyrir brjóst-
ið á þeim að um er að ræða nekt-
ardansmeyjar,“ segir Elmar.
Sigurður landlæknir segir hins
vegar engu máli skipta hvaðan
sjúklingar komi; hvort um er að
ræða nektardansmeyjar eða lög-
fræðinga.
„En brotið er alveg skýrt. Við
höfum boðvald yfir lækninum og
höfum gert honum grein fyrir því.
Við höfum hins vegar ekkert yfir
þessum manni að segja. Ég reikna
þó með að þetta mál leysist far-
sællega,“ segir landlæknir.
gar@frettabladid.is
PLASTICSURGERY.IS
Á heimasíðu fyrirtækisins plasticsurgery.is eru leiðbeiningar á ensku um það hvernig eigi
að komast í lýtaaðgerð í Reykjavík. Á þriðja hundrað brjóstastækkanir eru gerðar árlega
hérlendis. Landlæknir hefur ekki upplýsingar um það hversu margar aðgerðanna eru á er-
lendum konum.
Súlukóngur miðlar
dönsurum sílikoni
Landlæknir segir auglýsingar á lýtalækningum tiltekins læknis vera
ólöglegar. Nafn læknisins hefur verið tekið út af heimasíðu sem
býður lýtalækningaferðir til Íslands.
■
Skiptir engu
máli hvort um
er að ræða
nektardans-
meyjar eða lög-
fræðinga.
LEIÐRÉTTING
DeCode hefur leiðrétt tekjur vegna samn-
ings. Tekjulækkun af völdum leiðréttingar-
innar er rúmur hálfur milljarður.
Leiðrétting á uppgjöri DeCode:
Hálfs milljarðs
tekjur hverfa
ÓTTAST UM SKÍÐAFÓLK Lögreglan
í Kópavogi var kölluð út um há-
degisbilið á sunnudag eftir að
skíðafólk í Bláfjöllum skilaði sér
ekki. Blint var á þessum tíma
vegna snjókófs, skyggni 1-2 metr-
ar. Talið var að einn úr hópnum
hefði farið fram af hárri hengju
eða hengiflugi og annars væri
saknað. Aðrir viðbragðsaðilar
voru einnig kvaddir til en fólkið
skilaði sér síðan fljótlega heilt á
húfi þannig að ekki kom til leitar.