Fréttablaðið - 01.04.2003, Qupperneq 9
DÓMSMÁL „Dómurinn staðfestir
mín sjónarmið en Jón Baldvin og
Bryndís hafa auðvitað tækifæri
til að áfrýja,“ segir Jón Steinar
Gunnlaugsson hæstaréttarlög-
maður um þá niðurstöðu Héraðs-
dóms Reykjavíkur að Ríkisendur-
skoðun sé heimilt að afhenda fjár-
málaráðuneytinu gögn varðandi
afmælisveislu Bryndísar Schram
sem haldin var í fjármálaráð-
herratíð Jóns Baldvins Hannibals-
sonar í júlí 1988. Ásakanir komu
fram um að Jón Baldvin hefði
misnotað ríkissjóð til að greiða
vínföng sem voru í veislunni. Jón
Baldvin óskaði á þeim tíma eftir
því við Ríkisendurskoðun að
stofnunin færi yfir málið og lagði
fram gögn um veisluna. Ríkisend-
urskoðun taldi að ekkert óeðlilegt
hefði átt sér stað. Jón Steinar
Gunnlaugsson hæstaréttarlög-
maður óskaði eftir því við fjár-
málaráðuneytið með vísan til upp-
lýsingalaga að fá afrit af gögnum
Jóns Baldvins í framhaldi af
blaðaviðtali sem tekið var við Jón
Baldvin árið 2001.
„Jón Baldvin rifjaði upp þetta
mál í viðtalinu og bar mig sökum.
Ég óskaði þá eftir því við fjár-
málaráðuneytið að það afhenti
mér gögnin varðandi veisluna.
Jón Baldvin fór í mál til að fyrir-
byggja að ég fengi umrædd
gögn,“ segir Jón Steinar.
Hann segist nú bíða þess hvort
Jón Baldvin áfrýi málinu. Geri
hann það ekki sé væntanlega ekk-
ert því til fyrirstöðu að Ríkisend-
urskoðun afhendi fjármálaráðu-
neytinu gögnin og hann fái þau
síðan afhent.
Jón Baldvin Hannibalsson,
sendiherra og fyrrverandi fjár-
málaráðherra, segist enn ekki
hafa tekið ákvörðun um það hvort
hann áfrýi dómi undirréttar.
„Ég er að hugsa þetta mál í
samráði við minn lögmann,“ segir
Jón Baldvin. ■
JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON
Stefndi Ríkisendurskoðun til að afhenda
gögnin um afmælisveisluna.
9ÞRIÐJUDAGUR 1. apríl 2003
DAGVIST Ekki er víst að verði af
allsherjarlokun Leikskóla Reykja-
víkur. „Málið er í skoðun hjá leik-
skólaráði,“ segir Ragnhildur Erla
Bjarnadóttir, fjármálastjóri Leik-
skóla Reykjavíkur.
Ragnhildur segir leikskóla-
stjóra hafa lýst almennri sátt
meðal foreldra og ótrúlega fáir
hafi mótmælt lokuninni. „For-
eldrafélagið Börnin okkar hefur
þó lýst yfir óánægju með að leik-
skólum verði lokað frá því
snemma í júlí og fram yfir versl-
unarmannahelgi. Gerð var könn-
un meðal foreldra um sumarlok-
unina og hefur foreldrafélagið
beðið okkur að skoða niðurstöður
hennar fyrir næsta leikskólaráðs-
fund, sem haldinn verður 11.
apríl. Þá munum við sjá hversu
margir foreldrar hafa beðið um
annað fyrirkomulag.“
„Við erum að fara í gegnum
þetta og erum jafnvel að hugsa
lausnir fyrir þá foreldra sem ekki
eru sáttir. Ef ákveðið margir for-
eldrar í leikskóla eru á móti lok-
uninni gæti jafnvel komið til
greina að sá leikskóli yrði opinn
hluta tímabilsins,“ segir Ragn-
hildur. ■
Uppreisnarmenn:
Eyðilögðu
Pepsí-dósir
NÝJA-DELHÍ, AP Uppreisnarmenn úr
röðum kommúnista á sunnan-
verðu Indlandi brutust inn í
birgðageymslu bandaríska gos-
drykkjaframleiðandans Pepsí og
eyðilögðu þar þúsundir gosdósa.
Markmið skemmdarvarganna var
að mótmæla innrás Bandaríkja-
manna í Írak.
Uppreisnarmennirnir voru
vopnaðir og skutu viðvörunar-
skotum upp í loftið til þess að fæla
burt nærstadda áður en hafist
yrði handa. Þegar þeir yfirgáfu
svæðið hrópuðu þeir slagorð gegn
Bandaríkjamönnum og innrásinni
í Írak. ■
Danskir Írakar á leið í stríð:
„Munum
berjast með
Hussein“
ÍRAKSDEILAN Tveir Írakar með
danskan ríkisborgararétt, Ibra-
him og Ali, eru lagðir af stað til
Íraks til að taka þátt í stríði gegn
bandamönnum og verja fjölskyld-
ur sínar. Það stríðir gegn danskri
löggjöf og dönsku Írakarnir tveir
eiga yfir höfði sér refsingu í Dan-
mörku ef þeir snúa til baka.
Ibrahim og Ali sóttu um hæli í
Danmörku eftir Persaflóastríðið.
Hvorugur fylgir Saddam Hussein
að málum, en þeir segjast ekki
geta setið auðum höndum meðan
stríð geisar í gamla landinu. „Það
er ekkert sem réttlætir þetta
stríð,“ segja þeir.
Fjölmargir Írakar með nýtt
ríkisfang munu vera á leið til Írak
til að berjast með Hussein. ■
LEIKSKÓLI
Líf og fjör hjá börnunum.
Sumarlokun leikskóla Reykjavíkur:
Leikskólaráð
leitar lausna
Jón Steinar Gunnlaugsson vill afmælisnótur
úr veislu Jóns Baldvins:
Jón Baldvin
íhugar að áfrýja
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON
Vill ekki að ríkisendurskoðun afhendi gögn
varðandi afmælisveislu Bryndísar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI