Fréttablaðið - 01.04.2003, Qupperneq 10
10 1. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Evrópa
VERKFÖLL „Ég efast um að þessi
ádrepa frá Alþjóðavinnumála-
stofnuninni haldi vöku fyrir þess-
um mönnum. En úrskurðurinn er
okkur sjómönnum eigi að síður
sérstakt ánægjuefni,“ segir Árni
Bjarnason, forseti Farmanna- og
fiskimannasambands Íslands,
vegna þeirrar niðurstöðu Alþjóða-
v i n n u m á l a -
stofnunarinnar
að ríkisstjórnin
hafi með tíðum
inngripum í
vinnudeilur sjó-
manna og út-
gerðarmanna
brotið lög.
Alþýðusam-
band Íslands
kærði lagasetn-
ingu íslenskra stjórnvalda, sem
bannað hafa verkföll sjómanna og
skikkað þá til að halda til veiða á
haf út án þess að hafa náð frjáls-
um samningum. Úrskurður stjórn-
arnefndar Alþjóðavinnumála-
stofnunarinnar, ILO, er sá að í
öllum aðalatriðum er fallist á
málatilbúnað og kröfugerð ASÍ og
endurtekin afskipti íslenskra rík-
isstjórna af kjarasamningsgerð í
landinu eru hörmuð. Niðurstaðan
er talin áfellisdómur yfir fram-
göngu ríkisstjórnar Íslands.
ASÍ kærði íslensku ríkisstjórn-
ina til Alþjóðavinnumálastofnun-
arinnar í árslok 2001. Kært var
fyrir meint brot á grundvallarsam-
þykktum ILO um réttindi frjálsra
verkalýðsfélaga nr. 87 og 98.
Í kæru ASÍ er á því byggt að lög
nr. 34/2001 sem sett voru á fiski-
menn í verkfalli hafi falið í sér
ólögmæt afskipti af starfsemi
frjálsra og löglegra verkalýðsfé-
laga og hafi þannig brotið gegn 1.
og 2. mgr. 3. gr. Samþykktar nr. 87
og gegn Samþykkt nr. 98. ÝÁ því
var einnig byggt, að jafnvel þó
ILO teldi að ríkisstjórninni hefðu
verið heimil afskipti af kjaradeil-
unni þá hafi lög nr. 34/2001 engu
að síður brotið gegn fyrrgreindum
samþykktum. Það hafi hún gert
þar sem hún hafi hvorki hvað
varðar undirbúning eða efnislegt
innihald mætt þeim kröfum sem
gera verður til slíkrar löggjafar til
þess að hún teldist lögmæt í skiln-
ingi samþykkta nr. 87 og 98. Jafn-
framt var bent á að sá gerðardóm-
ur sem lögin komu á fót uppfyllti
ekki þau skilyrði að geta kallast
gerðardómur í skilningi þar sem
aðilar áttu ekki aðild að skipun
hans. Að lokum hélt ASÍ því fram
að lögin hefðu gengið lengra en sú
meinta efnahagslega neyð sem
kjaradeilan skapaði hefði gefið til-
efni til.
Dómurinn er ekki einungis
felldur vegna setningar laga
34/2001 heldur einnig fyrir ítrek-
uð ólögmæt afskipti af kjarasamn-
ingum og lögmætum aðgerðum ís-
lenskrar verkalýðshreyfingar.
„Ég vona að stjórnarherrarnir
læri af þessu og úrskurðurinn
leiði til þess að við getum gengið
til samninga án þess að eiga endi-
lega von á því að það verði valtað
yfir okkur innan örfárra daga.
Það er mjög erfitt að semja í þeim
skugga að stjórnvöld grípi stöðugt
inn í deilurnar. Það virðist vera
komin hefð á þessi samskipti.
Vonandi leiðir þetta til þess að
takturinn detti úr hefðinni,“ segir
Árni.
rt@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Morðið á hinni ís-
lensku Lucille Mosco hefur vakið
hörð viðbrögð almennings í
heimaslóðum hennar í Pensacola í
Flórída. Kona að nafni Judy Dav-
idson krefst þess í lesendabréfi í
Pensacola News Journal að gefn-
ar séu skýringar á því að fyrrver-
andi eiginmaður Lucille, sem hafi
tvisvar brotið gegn endanlegu
nálgunarbanni, gat komist að
henni:
„Hvernig maður sem vakti
konu með því að leggja hníf að
hálsi hennar var frjáls ferða sinna
á skilorði eftir dóm frá í febrúar?“
Judy segir karlrembu hafa ráð-
ið ferðinni þegar Lucille leitaði
hjálpar gegn ofbeldi eiginmanns-
ins fyrrverandi:
„Lögreglan klappaði Lucille á
bakið og sagði henni að allt yrði í
lagi. En vitið þið hvað? Það er ekki
allt í lagi. Megi lögreglan, skil-
orðsfulltrúinn, dómarinn og
dómskerfið allt liggja andvaka
yfir þessu tilgangslausa morði. Ég
þekkti ekki Lucille Mosco en við
höfum tapað móður, dóttur, systur
og vini. Skömm sé Pensacola fyrir
að leyfa þessu að gerast,“ segir
Judy Davidson. ■
MINNINGARATHÖFN
Lucille Mosco var myrt 14. mars. Ættingjar
og vinir minntust hennar á heimili bróður
hennar í Pensacola. Lucille verður jarðsett
heima á Íslandi. „Skömm sé Pensacola fyr-
ir að leyfa þessu að gerast,“ segir Judy
Davidson í lesendabréfi til Pensacola
News Journal.
Morðið á Lucille Mosco í Flórída:
Almenningur
krefst skýringa
TÓKÍÓ, AP Japanski farsímafram-
leiðandinn NTT DoCoMo ætlar að
setja á markaðinn símtæki sem er
innblásið af farsíma myndasögu-
hetjunnar Dick Tracy. Tækið lítur
út eins og armbandsúr en sé ýtt á
tvo takka breytist það í venjulegt
símtól.
Síminn, sem vegur um 113
grömm, þykir fremur stórgerður
en að sögn talsmanns fyrirtækis-
ins tekur útlitshönnunin mið af
markhópnum, sem er kaupsýslu-
menn á þrítugs-og fertugsaldri.
Tækið mun kosta á bilinu
20.000 til 25.000 íslenskar krónur
og verður selt á Netinu. Þess ber
þó að geta að aðeins verður hægt
að nota símann í Japan. ■
ARMBANDSSÍMI
Nýi farsíminn frá DoCoMo kemur á mark-
aðinn í næsta mánuði. Gallinn er sá að að-
eins er hægt að nota símann í Japan.
Armbandsúr sem breytist í síma:
Innblásið af Dick Tracy
ÁRNI BJARNASON
Vonandi læra stjórnvöld af þessu.
Leiðtogi sjómanna
vonar að stjórnin læri
Alþjóðavinnumálastofnunin fellir dóm yfir ríkisstjórn Íslands og segir
hana hafi brotið lög með tíðum lagasetningum til að banna verkföll sjó-
manna. Forseti Farmannasambandsins fagnar úrskurðinum.
„Það er
mjög erfitt að
semja í þeim
skugga að
stjórnvöld
grípi stöðugt
inn í deilurnar.
SJÓMANNSLÍF
Sjómenn hafa um árabil ekki gert frjálsa kjarasamninga því ríkisstjórnin hefur ævinlega
sett lög og sent þá samningslausa á haf út.
STARFANDI FÓLK EFTIR ATVINNU-
GREINUM 2001 Í PRÓSENTUM
2001
Landbúnaður 1,5
Fiskveiðar og -vinnsla 12,1
Annar iðnaður 11,0
Orkuveitur 3,2
Byggingarstarfsemi 9,8
Verslun, veitingar og hótel 13,3
Samgöngur og flutningar 7,6
Önnur þjónusta 22,1
Opinber starfsemi 19,4
Heimild: bondi.is
MEIRIHLUTI HLYNNTUR ESB Um
49 prósent Norðmanna eru
hlynnt inngöngu landsins í Evr-
ópusambandið en 38 prósent
andvíg, samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun þar í landi. Athygli
vekur að aðild að sambandinu
nýtur mun meira fylgis meðal
karla en kvenna. Sömuleiðis rík-
ir mun meiri andstaða á meðal
íbúa á landsbyggðinni.
DAPURLEGUR ENDIR Á SKÓLA-
FERÐALAGI Unglingsstúlka lét
lífið og átján manns slösuðust
þegar rúta fór út af hraðbraut
og valt skammt suður af
Barcelona á Spáni. Í rútunni
voru 39 börn í skólaferðalagi
auk fjögurra kennara. Tíu
manns voru lagðir inn á spítala
með alvarlega áverka.
Svona erum við
FLESTIR STARFA VIÐ VERSLUN
OG ÞJÓNUSTU
35 prósent störfuðu við verslun og þjón-
ustu á Íslandi árið 2001. Fæstir störfuðu
hins vegar við landbúnað, eða aðeins 1,5
prósent, en voru 2,6 prósent árið 1990 og
er það þá fækkun um 1,1 prósent á ellefu
árum. Opinber starfsemi er viðamikill at-
vinnugeiri, þar sem tæplega 20 prósent
störfuðu árið 2001.
Innbrot:
Karl og kona
handtekin
LÖGREGLUMÁL Karl og kona voru
handtekin á Hellisheiði í gær-
morgun grunuð um innbrot. Lög-
reglunni á Selfossi hafði verið
tilkynnt um grunsamlegar
mannaferðir í Hrísmýri en þegar
hún kom á staðinn var fólkið á
bak og burt. Ekki komst parið þó
lengra en á Hellisheiði þar sem
lögregla stöðvaði bíl hjúanna og
reyndist hann vera fullur af þýfi.
Síðar kom í ljós að brotist hafði
verið inn í fyrirtæki við Unu-
bakka í Þorlákshöfn og tvö fyrir-
tæki við Eyraveg á Selfossi.
Fannst hluti varningsins í bíl
fólksins. Til stóð að yfirheyra
fólkið í gærdag. ■