Fréttablaðið - 01.04.2003, Síða 13
■ Lögreglufréttir
13ÞRIÐJUDAGUR 1. apríl 2003
STOKKHÓLMUR, AP Flugumferðar-
stjórar á Arlanda-flugvelli í
Stokkhólmi segjast þjást af ógleði
og svima við störf sín vegna þess
að flugturninn hreyfist til í vind-
inum. Turninn, sem er 83 metra
hár, svignar um hátt í einn sentí-
metra í hvora átt þegar vindhrað-
inn nær fimmtán metrum á sek-
úndu.
Flugmálastjórn hafði ráðgert
að setja vatnstanka á þak turnsins
til þess að gera hann stöðugri en
hætti við þegar í ljós kom að
kostnaður við slíka framkvæmd
myndi nema um níu milljónum ís-
lenskra króna. Þess í stað hefur
verið ákveðið að starfsmenn sem
finna fyrir vanlíðan skuli sendir
niður á jarðhæð til að jafna sig. ■
ÓUPPLÝST SAKAMÁL „Niðurstaða
okkar er sú að í báðum tilvikum
hafi verið um íkveikju að ræða en
bæði málin eru óupplýst,“ segir
Hörður Jóhannsson yfirlögreglu-
þjónn í samtali við Fréttablaðið.
Um miðjan október á síðasta
ári varð stórbruni við Laugaveg
og annar meiriháttar bruni átti
sér stað að Fákafeni 9 í ágústmán-
uði. Hörður segir að ekki sé búið
að pakka þessum málum niður í
kassa en óneitanlega dvíni von
manna um að málin verði upplýst
eftir því sem lengra líður frá.
„Ef niðurstöður rannsókna
okkar og tilgátur reynast réttar
þá er hér um hreina og klára eyði-
leggingarhvöt að ræða. Við höfum
engar vísbendingar um að ein-
hver gæti hafa hagnast á þessum
bruna og hefðbundnar kenningar
um tryggingasvindl eiga ekki við í
þessu sambandi,“ segir Hörður.
Hjálmar Sigþórsson, deildar-
stjóri í tjónadeild Tryggingamið-
stöðvarinnar, segir óvenju alvar-
lega bruna hafi verið undanfarin
misseri. „Þetta hefur áhrif á ið-
gjöld, það segir sig sjálft. Þeim
mun meira tjón, þeim mun hærri
iðgjöld.“ Í ársskýrslu TM kemur
fram að árið 2002 hafi verið mesta
tjónaárið í sögu félagsins. Bók-
færð tjón voru 6.917 milljónir
króna samanborið við 4.912 millj-
ónir árið áður og hækkuðu um
40.8. Þar vegur reyndar
skipaskaði þungt á metum.
Hjálmar segir þessi mál gríðar-
lega erfið en þeir hjá tryggingafé-
laginu séu ekki rannsóknaraðilar
heldur sé það alfarið í höndum
lögreglu.
Fjöldi fyrirtækja var (og er)
við Fákafen 9 og að sögn Skafta
Harðarsonar, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins Gólfefni ehf. -
Teppaland, urðu þeir þar fyrir
heildarskaða upp á um 60 milljón-
ir króna. Skafti segir að fyrirtæk-
ið hafi verið tryggt hjá tveimur
tryggingafélögum, án þess að
hann vilji gefa upp um hvaða fyr-
irtæki sé að ræða, og er annað
þeirra búið að gera upp tjónið að
fullu og hitt er enn útistandandi.
Flutti fyrirtækið inn aftur strax
mánuði eftir brunann.
jakob@frettabladid.is
SUMARVINNA Frestur til að sækja
um störf hjá Götuleikhúsi og Jafn-
ingjafræðslu Hins hússins rennur
út á miðnætti í dag.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir,
framkvæmdastjóri Jafningja-
fræðslunnar, segir ungmenni á
aldrinum 17-25 ára geta sótt um.
Ekki eru gerðar menntunarkröfur
á umsækjendur, en mikilvægt er
að viðkomandi vilji læra og miðla.
„Við erum að leita að lífsglöðu
fólki sem ljómar,“ segir Ingibjörg.
Verkefnið stendur frá júní til
júlíloka og oftast færri sem kom-
ast að en vilja. „Nú er mikið at-
vinnuleysi, þannig að við tökum
hugsanlega fleiri inn, en okkur
vantar þrjá millistjórnendur í
fræðsluna, 12 leiðbeinendur og að
minnsta kosti 12 í Götuleikhúsið,“
segir Ingibjörg. ■
FÉKK SÁR Á HÖFUÐ Kona slasað-
ist töluvert þegar bíll, sem hún
var farþegi í, valt í Þrengslunum
um tvöleytið í gær. Hún var flutt
á sjúkrabíl á Landspítala – há-
skólasjúkrahús. Hún slasaðist á
höfði. Ökumaður bílsins var
einnig færður til skoðunar en
meiðsl hans reyndust mun minni.
FASTUR Á FRÓÐÁRHEIÐI Ökumað-
ur kallaði eftir aðstoð um fjögur-
leytið í gær þar sem hann var
fastur á Fróðárheiði. Björgunar-
sveitarmenn frá Ólafsvík og
Staðarsveit voru kallaðir til að-
stoðar. Ökumaðurinn hafði misst
stjórn á bílnum og hafnað utan
vegar. Mikil hálka var á heiðinni
og skafrenningur.
LÍFSGLÖÐ UNGMENNI
Jafningjafræðslan lagði land undir fót síð-
astliðið sumar. Nú er verið að auglýsa eftir
fólki til starfa fyrir sumarið.
Jafningjafræðsla og
Götuleikhús:
Vantar ungt
fólk sem
ljómar
Sjóveikir flugumferðarstjórar:
Flugturn á fleygiferð
GALLAÐ MANNVIRKI
Flugturninn á Arlanda-flugvelli var tekinn í
notkun á síðasta ári og nam kostnaður við
bygginguna yfir þremur milljörðum ís-
lenskra króna.
BRUNARÚSTIR VIÐ LAUGAVEG
Tveir stórbrunar frá síðasta ári eru enn óupplýstir en lögregla segir um íkveikju að ræða.
Brennuvargar
ganga lausir
Stórbrunar á síðasta ári, sem urðu vegna
íkveikju, eru enn óupplýstir. Ekkert sem bend-
ir til annars en að um skemmdarverk hafi verið
að ræða. Iðgjöld hækka í kjölfarið.