Fréttablaðið - 01.04.2003, Qupperneq 14
FÓTBOLTI „Þetta hafa verið afar
erfiðir sex mánuðir fyrir fyrir-
tækið og frammistaða okkar bæði
innan vallar sem utan hefur verið
óviðunandi,“ sagði Ridsdale í yf-
irlýsingu sinni.
„Taka þurfti erfiðar ákvarðan-
ir til að fá peninga vegna sölu
leikmanna og til að draga úr
kostnaði bæði innan og utan vall-
ar. Sú mikla gagnrýni sem ég hef
fengið hefur leitt til þess að ég
hef ákveðið að segja af mér sem
stjórnarformaður félagsins.“
Tap Leeds á síðari helmingi
síðasta árs jókst úr tæpum 1,7
milljörðum króna í rúman 2,1
milljarð króna. Til að bregðast við
slæmri fjárhagsstöðu ákvað Rids-
dale að selja marga af bestu leik-
mönnum liðsins, þar á meðal Rio
Ferdinand, Lee Bowyer, Robbie
Keane, Robbie Fowler og Jonath-
an Woodgate. Síðastnefnda salan
fór mjög í taugarnar á stuðnings-
mönnum Leeds enda var Wood-
gate uppalinn hjá félaginu og í
miklu uppáhaldi.
John McKenzie sagði á blaða-
mannafundi í gær að félagið gæti
þurft að selja fleiri leikmenn til
að draga úr skuldum. „Ég mun
líta á fjárhagsmálin en mun forð-
ast það í lengstu lög að selja leik-
menn.“ McKenzie sagðist jafn-
framt veita Peter Reid, nýráðnum
knattspyrnustjóra félagsins, fullt
frelsi til að stýra Leeds úr fall-
hættu, en liðið er í 16. sæti deild-
arinnar.
Ray Fell, formaður stuðnings-
mannafélags Leeds, var undrandi
á uppsögn Ridsdale. „Ég er mjög
undrandi. Fyrir nokkrum dögum
sagðist hann ekki vera á förum.
Ég held að margir áhangendur
liðsins verði ánægðir með ákvörð-
unina. Það hefur verið mikill
þrýstingur á Peter að segja upp.
Nú vonumst við eftir meiri
stöðugleika og því að geta einbeitt
okkur betur að fótboltanum.“ ■
1. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
29 30 31 1 2 3 4
MARS
Þriðjudagur
!"!# $%&'($%&')
14
George Burley, fyrrverandiknattpyrnustjóri Ipswich,
hefur verið ráðinn stjóri til
bráðabirgða hjá Derby County,
sem leikur í ensku 1. deildinni.
John Gregory, stjóri Derby, hefur
verið leystur frá störfum á með-
an á rannsókn stendur vegna
meintra mistaka hans í starfi.
Paolo Maldini, fyrirliði ACMilan, hefur framlengt samn-
ing sinn við félagið til 2005.
Maldini hefur sex sinnum orðið
ítalskur meistari og þrisvar Evr-
ópumeistari. Hann lék 501.
leikinn með Milan í síðustu viku.
Maldini hefur leikið fleiri lands-
leiki fyrir Ítalíu en nokkur annar.
■ Fótbolti
HANDBOLTI Haukar, sem tryggðu
sér deildarmeistaratitilinn í Esso-
deild karla um helgina, mæta
Frömurum í 8 liða úrslitum, sem
hefjast þann 8. apríl.
Valsmenn, sem lentu í öðru
sæti deildarinnar, etja kappi við
FH-inga, ÍR-ingar leika gegn
Þórsurum og Íslandsmeistarar
KA mæta HK.
Tvo sigra þarf til að komast
áfram í undanúrslit keppninnar. ■
HAUKAR
Haukar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn
um helgina með sigri á ÍR.
LOKASTAÐAN Í ESSO-DEILD
KARLA:
Lið L S
1. Haukar 26 41
2. Valur 26 39
3. ÍR 26 37
4. KA 26 37
5. HK 26 33
6. Þór 26 33
7. FH 26 32
8. Fram 26 31
9. Grótta KR 26 29
10. ÍBV 26 16
11. Stjarnan 26 16
12. Afturelding 26 13
13. Víkingur 26 6
14. Selfoss 26 1
Úrslitakeppni Esso-deildar karla:
Deildarmeistararnir mæta Fram
15.00 Stöð 2
Trans World Sport. Íþróttir um allan
heim.
18.00 Sýn
Sportið með Olís. Fjallað er um helstu
íþróttaviðburði heima og erlendis.
18.30 Sýn
Meistaradeild Evrópu. Farið er yfir leiki
síðustu umferðar og spáð í spilin fyrir þá
næstu.
19.15 Grindavík
Grindavík tekur á móti Tindastóli í und-
anúrslitum Intersport-deildar karla í
körfubolta. Þetta er oddaleikur um sæti í
úrslitunum.
19.15 Fylkishöll
Fylkir/ÍR og Eyjastúlkur eigast við í 8 liða
úrslitum Esso-deildar kvenna í hand-
bolta.
19.15 Kaplakriki
FH mætir Stjörnunni í 8 liða úrslitum
Esso-deildar kvenna í handbolta.
19.15 Seltjarnarnes
Grótta/KR tekur á móti Haukum í 8 liða
úrslitum Esso-deildar kvenna í hand-
bolta.
19.15 Víkin
Víkingur mætir Val í 8 liða úrslitum
Esso-deildar kvenna í handbolta.
19.30 Sýn
Fastrax 2002. Vélasport. Hraðskreiður
þáttur þar sem ökutæki af öllum stærð-
um og gerðum koma við sögu.
20.00 Sjónvarpið
Íslandsmótið í handbolta. Bein útsend-
ing frá síðari hálfleik leiks í átta liða úr-
slitum kvenna.
20.00 Sýn
Trans World Sport. Íþróttir um allan
heim.
22.30 Sýn
Sportið með Olís. Fjallað er um helstu
íþróttaviðburði heima og erlendis.
0.30 Skjár 1
Mótor (e). Þáttur um mótorsport.
0.40 Sýn
Trans World Sport. Íþróttir um allan
heim.
BÁÐIR FARNIR
Peter Ridsdale, til vinstri, og Terry Venables, sem var rekinn sem knattspyrnustjóri Leeds
fyrir 11 dögum eftir aðeins níu mánuði í starfi. Ridsdsale hefur verið harðlega gagnrýnd-
ur af stuðningsmönnum Leeds fyrir slæmt gengi á leiktíðinni. Liðið er nú í fallhættu í
16. sæti úrvalsdeildarinnar.
Ridsdale sagði
upp hjá Leeds
Peter Ridsdale, stjórnarformaður Leeds, hef-
ur sagt upp störfum eftir sex ár við stjórnvöl-
inn. John McKenzie tekur við af Ridsdale.
NBA-deildin:
Tap hjá
Wizards
KÖRFUBOLTI Michael Jordan og fé-
lagar í Washington Wizards töpuðu
fyrir Denver Nuggets með 88 stig-
um gegn 72 í NBA-deildinni í körfu-
bolta í fyrrakvöld. Jordan skoraði
19 stig fyrir Wizards í leiknum.
Tapið kom sér afar illa fyrir
Wizards, sem á í harðri baráttu við
Milwaukee Bucks um eitt af átta
lausum sætum í úrslitakeppninni.
Seattle SuperSonics vann meist-
ara L.A. Lakers með 119 stigum
gegn 89. Ray Allen skoraði 32 stig
fyrir Sonics. ■
AP/M
YN
D
STACKHOUSE
Junior Harrington (til vinstri), leikmaður
Denver Nuggets, sækir að Jerry Stack-
house hjá Washington Wizards í leik lið-
anna í fyrrakvöld.
Pílukast:
Guðjón og
Hjördís sig-
urvegarar
PÍLUKAST Íslandsmeistaramótið í
pílukasti var haldið um helgina.
Keppt var í 501 í einmenningi
karla, einmenningi kvenna og tví-
menningi.
Í einmenningi karla varð Guð-
jón Hauksson Íslandsmeistari,
Þorgeir Guðmundsson í öðru sæti
og Ævar Finnsson í því þriðja. Í
einmenningi kvenna varð Hjör-
dís Rut Sigurjónsdóttir Íslands-
meistari, Jóna Holm vermdi ann-
að sætið og Þórdís Andersen það
þriðja.
Sigurður Aðalsteinsson og
Þröstur Ingimarsson báru sigur
úr bítum í tvímenningi. ■