Fréttablaðið - 01.04.2003, Page 22
Mick Hucknall, söngvari SimplyRed, er búinn að markaðsetja
sitt eigið vín. Hann á vínekrur við
rætur Etnu á Sikiley og hefur síð-
ustu ár verið að búa vínið til. Hann
hannaði sjálfur merkimiðann.
Hucknall vonast til þess að selja
meira en átta þúsund flöskur af
víninu í heimalandi sínu, Bret-
landi.
Duran Duran er búin að leggjaöll drög að endurkomu sinni í
sumar. Allir upprunalegu liðsmenn
sveitarinnar; Nick Rhodes, Simon
Le Bon, John Taylor, Andy Taylor
og Roger Taylor, taka þátt. Piltarnir
eru búnir að hljóðrita nýja plötu,
sem er sú fyrsta sem þeir gera allir
saman í sextán ár. Duran Duran
leggur af stað í heimsreisu í sumar
og má því búast við nýju æði. Box
sem inniheldur allar smáskífur
sveitarinnar frá upphafi er væntan-
legt í búðir. Sveitin hefur selt yfir
60 milljónir platna á ferli sínum.
Viðtal Barböru Walters viðleikkonuna Julianne Moore tók
óvænta stefnu á dögunum er talið
barst að ástríðufullum lesbíukoss í
myndinni „The Hours“.
Moore skýrði frá því
að það hefði ekki
verið neitt vand-
ræðalegt að kyssa
mótleikkonu sína
þar sem hún
hefði verið fal-
leg og lyktað vel. Þá bað Walters
leikkonuna um að sýna sér hvernig
svona kossar eru framkvæmdir og
kysstust stöllurnar í miðju sjón-
varpsviðtali.
Leikarinn Kirk Douglas segisthafa íhugað sjálfsmorð eftir
hjartaáfall sem hann fékk nýlega.
Hann segist hafa sett hlaðna byssu
upp í munn sér en að hann hafi
hætt við þegar hann braut tönn
sína með byssuhlaupinu. Eins og
áhorfendur Óskarsverðlaunanna
tóku örugglega eftir á Douglas
erfitt með að tala eftir áfallið. Fyr-
ir leikara hlýtur það að teljast
ókostur.
1. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Fréttiraf fólki
18
SPY KIDS 2 kl. 3.45 og 5.50 DAREDEVIL b.i. 16 kl. 3.40, 8 og 10.20 THE RING kl. 10.30 b.i. 16 ára
SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4
TWO WEEKS NOTICE kl. 6 og 8
TRAPPED b.i. 12 ára kl. 5.50, 8, 10.10
GULLPLÁNETAN m/ísl. tali kl. 4
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 12
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
Sýnd í lúxus kl. 8
Sýnd kl. 5, 8 og 10 b.i. 14 ára
kl. 6, og 8NÓI ALBINÓI
kl. 5.50 og 88 FEMMES
kl. 10.10ADAPTATION
kl. 8 og 10.30NOWHERE IN AFRICA
MAN WITHOUT A PAST kl. 6
NORRÆNIR BÍÓDAGAR
Sýnd kl. 4, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára
Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára
THUNDERPANTS kl. 4 og 6
25th HOUR kl. 8 og 10.10
4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 8 og 10.05
CHICAGO Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 10.30
SOLARIS b.i. 12 kl. 5.50 og 10.10
■ KVIKMYNDIR
Haukur Már Hrafnsson hefurverið kallaður „utangarðsmað-
ur“ í íslenskri kvikmyndagerð.
Jafnvel svo að honum var neitað
um umfjöllun í Myndböndum mán-
aðarins þegar kom að því að gefa út
frumraun hans „(Ó)Eðli“ á spólu
með þeim rökum að þá þyrfti að
„hleypa öllum að“. Sjálfur gat hann
ekki talið upp neinn annan sem stóð
í því að framleiða, leikstýra og gefa
út mynd sína sjálfur.
Önnur mynd hans „1. apríll“
verður frumsýnd um allt land í dag
og fer í almenna sýningu frá og
með morgundeginum. Þó ekki á
höfuðborgarsvæðinu. Frumsýning-
in í dag er einungis fyrir aðstand-
endur, vini og kunningja en svo
verða borgarbörnin að bíða fram til
14. eða 16. apríl til þess að berja
myndina augum.
„Mig langaði svona einu sinni til
þess að snúa ferlinu við,“ útskýrir
Haukur, sem er uppalinn á Höfn í
Hornafirði. „Ég upplifði það oft að
vera fastur úti á landi þegar eitt-
hvað skemmtilegt var að gerast í
Reykjavík. Það tók því ekki alveg
að keyra í fimm tíma til Reykjavík-
ur.“
Eins og titill myndarinnar gefur
til kynna gerist hún á hinum alþjóð-
lega gabbdegi sem er í dag. Hauk-
ur lýsir barninu sínu sem „íslensk-
um farsa“ og segir myndina gerða
til þess að kitla hláturtaugarnar.
Sagan byrjar snemma dags á sak-
lausu aprílgabbi sem fer alvarlega
úr böndunum. Í söguna fléttast svo
alls kyns persónur sem hafa áhrif á
framvinduna.
Myndin er að sögn Hauks ekki
jafn hrá og frumraunin var. „Það
eru himinn og haf á milli þeirra. Í
myndinni er gert grín að helling af
persónum úr íslensku þjóðlífi sem
við ættum öll að kannast við. Fólk
ætti samt að sjá að það sé sami
maðurinn á bak við báðar myndir.“
Sem betur fer fyrir Hauk hefur
hann Íslensku kvikmyndasam-
steypuna á bak við sig í þetta
skiptið. Ætli þeir hjá Myndbönd-
um mánaðarins neyðist því ekki til
þess að fjalla um þessa mynd þeg-
ar kemur að því að gefa hana út á
spólu? Utangarðsmaðurinn virðist
hafa fundið heimili. „Það er eigin-
lega ekki neinum að kenna að ég
sé úti á kanti. Það er enginn að ýta
mér þangað, ég er bara þar og það
er í góðu lagi. Það er mín sýn á
þetta að þetta sé bara gott fyrir
mig. Ég tel mig vera að sýna mót-
vægi við alla hina.“
Að lokum fær Haukur tækifæri
á það tjá sig um hvað honum finnst
um íslenska kvikmyndagerð: „Má
ég sleppa því að svara?“ spyr hann
og hlær.
biggi@frettabladid.is
Það þarf ekki að hafa mörg orð umNational Security enda býður
hún ekki upp á neitt sem hefur ekki
verið gert þúsund sinnum áður í
svipuðum myndum. Hún er dæmi-
gerð félagamynd og er auglýst sér-
staklega sem „félagamynd án félag-
anna“. Það er hins vegar eitthvað
sem þarf ekki að taka fram þar sem
slíkar myndir ganga einmitt út á það
að leiða saman tvo menn sem eiga
ekkert sameigilegt og hafa megna
andúð hvor á öðrum þar til vondir
menn þvinga þá til að snúa bökum
saman.
Formúlan hefur lifað góðu lífi
allt frá því Jack Lemmon og Walter
Matthau voru upp á sitt besta en
seinni árin hefur ekki þótt galið að
leiða saman svartan mann og hvítan
(48 Hours, Lethal Weapon, The Last
Boy Scout) með tilheyrandi áherslu
á kynjamisrétti.
Það er leikið á þessar nótur með
miklum látum í National Security en
Martin Lawrence mun seint geta
haldið uppi stuðinu í heilli mynd
eins og Eddie Murphy gerði forðum.
Hann er átakanlega þreytandi leik-
ari en hefur þó oft verið verri. Steve
Zahn (Out of Sight, Joy Ride) er hins
vegar mikill snillingur og klikkar
ekki í hlutverki hálfgerðs aula með
hjartað á réttum stað. Hann er það
besta við þessa grínspennumynd
sem nær hvorki að verða sérstak-
lega spennandi eða fyndin en verður
aldrei leiðinleg heldur.
Þórarinn Þórarinsson
NATIONAL SECURITY
Aðalhlutverk: Steve Zahn, Martin
Lawrence.
Umfjöllunkvikmynd
Tveir vinir og
fastir liðir eins
og venjulegaMeð sögunni „Y: The Last Man“stimplar höfundurinn Brian
K. Vaughan sig inn sem einn af
athyglisverðari nýliðum mynda-
sagnanna. Sagan segir í stuttu máli
frá því hvernig allar karlkyns-
skepnur jarðarinnar deyja skyndi-
lega, fyrir utan Yorick og apann
hans.
Heimsmyndin umturnast skilj-
anlega og lamast í fyrstu. Sér-
trúarsöfnuður sem trúir því að
Guð hafi drepið alla menn vegna
margra aldar ofríkis þeirra fréttir
af tilvist Yoricks og reynir allt til
þess að koma síðasta manninum
fyrir kattarnef. Móðir hans, sem
er þingkona, vill að hann aðstoði
vísindakonu eina í því að byggja
upp mannkynið á nýjan leik. Það
eina sem greyið hann Yorick vill er
kærasta hans, sem stödd er hinum
megin á hnettinum. Hugmyndin er
skemmtileg og ágætlega útfærð.
Þessi fyrsta bók leggur spilin á
borðið og gaman verður að fylgj-
ast með hvernig sagan þróast.
Það er þó ekki útskýrt nægilega
vel hvers vegna greyið Yorick er
svona mikilvægur fyrir kynstofn
manna? Jú, hann er eini karlmað-
urinn og þannig gangandi sæðis-
banki, en hvað varð eiginlega um
uppsafnaðar birgðir sæðisbank-
anna? Ætli það verði ekki útskýrt í
framhaldinu?
Birgir Örn Steinarsson
Y: THE LAST MAN - Unmanned
Höfundur: Brian K. Vaughan
Umfjöllunmyndasaga
Síðasti
karlpungurinn
Sáttur úti á kanti
Í dag er önnur mynd Hauks M. Hrafnssonar frumsýnd. Hún heitir „1. apríll“ og
fjallar um aprílgabb sem fer alvarlega úr böndunum. Landsbyggðin fær forskot á
því að sjá myndina.
1. APRÍLL
Myndin er frumsýnd í
dag á Ísafirði, Egils-
stöðum, Borgarnesi,
Hornafirði, Vestmanna-
eyjum, Neskaupstað,
Flúðum, Skagaströnd,
Raufarhöfn, Akureyri,
Keflavík og Reykjavík.
Með helstu hlutverk
fara: Davíð Örn, Júlíus
Freyr, Arnbjörg Hlíf,
Snævar Darri, Haukur
M, Linda Ásgeirsdóttir,
Þorvaldur Borgar, Ívar
Örn Sverrisson, Bryn-
dís Ásmundsdóttir,
Hilmir Steinþórsson,
Davíð Guðmundsson,
Villi Goði og Jón Mýr-
dal.
Laugavegi 32 561 0075
Pípulagnir
Örugg og
lipur
þjónusta
Sími
699 0100/
567 9929