Fréttablaðið - 01.04.2003, Page 30
Hrósið 26 1. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
BÍLAVIÐSKIPTI „Ég keypti bílinn af
strák sem ég þekki og treysti hon-
um. En svo fer þetta svona,“ segir
Ásgeir Ásgeirsson, starfsmaður á
bónstöð, sem missti bílinn sinn
óvænt í fyrrinótt í hendur yfir-
valda. Bíllinn er nú í Vökuportinu
uppi á Höfða vegna vangoldinna
stöðumælasekta: „Þetta er skuld
upp á 172 þúsund krónur þannig
að sektirnar eru meiri en bílverð-
ið. Ég keypti bílinn á 150 þúsund
krónur. Ég get aldrei leyst hann
út,“ segir Ásgeir, sem á engan hlut
að stöðumælabrotunum sem nú
hafa kostað hann bílinn. Ásgeir
segist hafa kannað og komist að
því að sektir sem þessar fylgi
bílnum en ekki eigandanum sem
beri í raun ábyrgð á þeim. „Selj-
andinn sagði mér að ekkert hvíldi
á bílnum en þó ég hefði fengið að
sjá veðbókarvottorð þá hefðu
stöðumælasektirnar ekki verið
þar. Hvað á maður að gera?“ spyr
Ásgeir og er verulega miður sín.
Bíllinn sem hér um ræðir er af
gerðinni Nissan Sunny og hefur
Ásgeir gert sér ferð upp í Vöku-
port til að virða hann fyrir sér. Á
milli þeirra er girðing sem verður
ekki rofin nema Ásgeir reiði fram
172 þúsund krónur. Og það er of
mikið í bílaviðskiptum sem þess-
um.
„Vörslusvipting sem þessi fer
ekki fram nema að undangenginni
nauðungarsölubeiðni. En hún get-
ur að sjálfsögðu komið fram eftir
að nýr eigandi hefur tekið við bíln-
um,“ segir Björn Ingólfsson,
framkvæmdastjóri Vöku, sem nú
er með Nissaninn í girðingunni hjá
sér. „Menn geta þó alltaf komist að
þessu með því að hringja einfald-
lega í bílastæðasjóð og spyrja
hvort einhverjar sektir hvíli á bíl
sem þeir hyggjast kaupa,“ segir
hann. „Þetta er ekki nógu sniðugt
og reyndar hábölvað þegar menn
lenda í. En hitt er ljóst að seljandi
er þarna ekki með hreinan skjöld.
menn vita vel af stöðumælasekt-
um sínum. Nógu mörg bréf berast
áður en gripið er til aðgerða.“ ■
ÁSGEIR VIÐ VÖKUPORTIÐ
Innan girðingar er Nissan Sunny sem hann
keypti án þess að vita af ógrynni stöðu-
mælasekta sem á honum hvíldu.
Lífsreynsla
■ Ásgeir Ásgeirsson keypti bíl af
kunningja sínum fyrir 150 þúsund
krónur. Í fyrrinótt var bíllinn hirtur og
fluttur upp í Vökuport vegna stöðu-
mælasekta fyrri eiganda upp á 172
þúsund krónur. Ásgeir stendur eftir
ráðþrota.
SIGURVEGARI Í sumarbyrjun 1987
kom Paolo Turchi hingað til lands
í helgarferð frá Lúxemborg. Hann
ætlaði aðeins að skoða landið en
hefur meira og minna verið hér
síðan. Hann kynntist nefnilega
konunni sinni þessa helgi og þess
vegna fengu sjónvarpsáhorfend-
ur að upplifa einhverja skemmti-
legustu stund sem íslenskt sjón-
varp hefur boðið upp á svo árum
skiptir þegar Paolo svaraði öllum
spurningum rétt í Viltu vinna
milljón? á sunnudagskvöldið og
vann sér inn fimm milljónir.
„Ég er frá Ancona á Ítalíu, við
Adríahafið rétt sunnan við Rim-
ini,“ segir Paolo, sem nú kennir
listir og menningu við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. Hann er með
meistarapróf í latínu og grísku og
hefur samið ítalsk-íslenska orða-
bók í tveimur bindum sem út kom
fyrir nokkrum árum: „Þá kenni ég
ítölsku í Mími-símenntun en þar
er konan mín verkefnisstjóri. Við
eigum því sameiginlegar kvöld-
stundir þar,“ segir Paolo en eigin-
kona hans er Sigríður Einarsdótt-
ir Laxness, barnabarn Nóbels-
skáldsins. Saman eiga þau tvö
börn; Ingibjörgu Elsu sem er
fjórtán ára og Jóhann, tólf ára.
„Við Jóhann fórum saman á
landsleikinn í Skotlandi í síðustu
viku. Strákinn langaði og mig líka.
Heimurinn er orðinn svo lítill að
það er ekkert stórmál að bregða
sér svona á milli. Þess vegna
skiptir ekki öllu máli hvort ég bý
á Íslandi eða á Ítalíu. Maður getur
bara farið þegar maður vill.“
Eins og sjónvarpsáhorfendur
urðu vitni að þá er Paolo víðlesinn
og fróður um íslensk málefni.
Spurningarnar sem hann fékk í
sjónvarpsþættinum voru flestar
af íslenskum toga og alls ekki auð-
veldar. Ekki einu sinni fyrir Ís-
lendinga:
„Ég hef ferðast mikið um land-
ið. Jafnvel meira sem margir Ís-
lendingar; ég held að ég sé búinn
að fara 40 hringferðir um landið.
En ég læt mér ekki nægja að ferð-
ast. Ég vil líka fræðast um sög-
urnar sem tengjast stöðunum og
hef lagt mig eftir þeim.“
Paolo er ánægður með að hafa
unnið fimm milljónir og ætlar að
njóta þeirra vandræðalaust: „En
ég er búinn að loka heimasíman-
um hjá mér,“ segir hann, búinn að
komast að því að þeir eru margir
sem vilja njóta milljónanna með
honum.
eir@frettabladid.is
Fær Davíð Oddsson fyrir að lofa
skattalækkunum og ætla að
standa við það.
Bíllinn hirtur vegna stöðumælasekta fyrri eiganda
Persónan
■ Paolo Turchi sló í gegn í Viltu
vinna milljón? um síðustu helgi og
vann hug og hjörtu þjóðarinnar með
einlægri framkomu. Sjaldan hafa
sjónvarpsáhorfendur fengið jafn
mikið fyrir sinn snúð og Paolo
reyndar líka.
PAOLO TURCHI FAGNAR SIGRI
Stöð 2 hélt honum veislu á veitingastaðn-
um Galileo í gær. Hér er sigurvegarinn
ásamt Sigríði Einarsdóttur Laxness og
börnunum Ingibjörgu Elsu og Jóhanni.
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Sements-
verksmiðjan er ekki byggð á sandi.
Imbakassinn
Ég verð að fara að hætta
þessu! Þetta er líka
þokkaleg skítafýla!
Vann 5 milljónir –
lokaði heimasímanum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Sögur af klámi og vændi hafajafnan þótt hin besta söluvara
og almenningur virðist aldrei fá
nóg af safaríkum sögum úr
skuggalegu næturlífinu. Það þyk-
ir því skjóta nokkuð skökku við
að DV og Stöð 2 skuli keyra á
fullu á umfjöllun um vændi, eró-
tískt nudd og leigu á BDSM söl-
um, þar sem fólk getur látið
hengja sig upp og flengja með
svipu gegn ákveðnu gjaldi, þegar
stórri fjölmiðlakönnun er nýlok-
ið. Markaðsþenkjandi spekingar
telja að það hefði verið sterkara
útspil að leyfa þessu efni að tröll-
ríða blaðsíðunum og öldum ljós-
vakans á meðan könnunin stóð
yfir, nema hér sé náttúrlega um
að ræða tilraun til að rífa upp
áhorf og lestur viðkomandi
miðla. Umsjónarmenn Íslands í
bítið hafa lofað því að „fletta
ofan af vændi“ og ættu að geta
rifið áhorfið eitthvað upp með
því. Þátturinn mældist að vísu
jafn stór og Ísland í dag sem er
sýnt á öllu kristilegri tíma, þan-
nig að þau Þórhallur Gunnarsson
og Jóhanna Vilhjálmsdóttir ættu
að geta verið nokkuð sátt við sitt.
Skólahald í Snæfellsbæ er heittum þessar mundir eftir að til-
lögur skólanefndar voru lagðar
fyrir bæjaráð í sveitarfélaginu.
Þar er gert ráð fyrir að grunn-
skólarnir í Ólafsvík, Hellissandi
og á Lýsuhóli verði sameinaðir.
Með því er stefnt að fjárhags-
legri hagræðingu og bættum ár-
angri í skólastarfi. Um það er full
samstaða en hitinn í kolunum
stafar af því að til stendur að
setja einn skólastjóra yfir skól-
ana þrjá þar sem fyrir voru þrír
skólastjórar. Eftir sem áður
verða aðstoðarskólastjórar í
hverjum skóla fyrir sig.
Fréttiraf fólki