Fréttablaðið - 01.04.2003, Qupperneq 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
Háæruverðugur Blátoppur fékkdrottningarmeðferð og silki-
hanskanudd í beinni á Bláskjá um
helgina eftir grilljón prósenta kosn-
ingu sem keisari Blánefja. Hann
lýsti enn og aftur yfir mórölskum
stríðsstuðningi við vinaþjóðina í
villta vestrinu. Hann var staðfastur
og mildur og sagði að þegar staðan
væri orðin þannig að menn yrðu að
taka afstöðu með villta tryllta Bússa
eða slátraranum frá Bagdad þá
stæði maður að sjálfsögðu með vin-
um sínum. Hvað með þá sem vilja
taka afstöðu með siðmenningunni?
Hvar geta þeir skipað sér í lið? Auð-
vitað eru allir á móti stríði, í hjarta
sínu, hjalaði Blátoppur, annars væru
menn ekki mennskir, en það eru
ekkert margir að deyja, aðeins sára-
fáir úr vinaliðinu, fjórir eða kannski
fimm, bara eins og í bílslysi.
MAMMA, ef ég horfi á einhvern
ráðast á annan og geri ekkert, hvað
þá ef ég hvet hann til dáða og hrópa
áfram! áfram! er ég þá ekki beinn
þátttakandi í einelti og árásum?
spyr unglingurinn stóreygur og lítur
af sjónvarpsskjánum. Jú, það hefði
ég haldið, svarar móðirin. Af hverju
segir hann þá að við séum ekki beint
með í þessu stríði, bara óbeint?
LITLA þjóðin á landinu bláa er með
blóðugar hendur. Blóð rennur niður
stuðningslista fjörutíu þjóða, blóð
lítils drengs sem móðir heldur í
fangi sínu í vegarkanti skammt frá
Basra þegar útvarpsmenn BBC hitta
hana fyrir, blóð óbreyttra Íraka sem
óttast hið óþekkta ofursterka árás-
arafl og einnig blóð sautján ára
palestínsk unglings sem ísraelskir
hermenn skutu til bana um helgina
fyrir að kasta grjóti í brynvarinn
skriðdreka. Þar stunda vinaþjóðir
mörlandans morð í skjóli styrjaldar
í Írak.
ÞJÓÐIR á stuðningslista herstjórn-
ar í vestri bera ábyrgð. Því fylgir
ábyrgð að rita nafn sitt og vera á
víxlinum. Þar liggur í orði ábyrgð á
mannslífum og örlögum fólks.
Mórölskum stuðningi fylgir ábyrgð.
Það kennum við börnum okkar. Litla
þjóðin á landinu bláa, sem þrátt fyr-
ir allt er friðelskandi, er komin í
stríð og hrópar eins hátt og hún
mögulega getur af stríðslistanum
blóðuga: Áfram Ísland - fram í stríð-
ið. Hún er neydd til að hrópa, neydd
af mönnum sem eitt sinn voru
kjörnir til þjónustu við þjóð sína. ■
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
www.gunnimagg . i s
Blátoppur og
blóðugur listi