Fréttablaðið - 09.04.2003, Qupperneq 4
4 9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
Heldur þú að samkomulag náist um
framtíð Evrópska efnahagssvæðisins?
Spurning dagsins í dag:
Eiga stjórnmálaflokkarnir að hætta að
auglýsa í sjónvarpi?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
22,4%
63%
Nei
14,6%Alveg sama
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Innrásin í Írak/
Örfréttir
STJÓRNSÝSLA Valgerður Sverris-
dóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, hefur veitt Gylfa Gauti
Péturssyni, forstjóra Löggilding-
arstofu, tímabundna lausn frá
starfi. Ástæðan er sögð stórfelld
óreiða á bókhaldi og fjárreiðum
stofnunarinnar.
Máli forstjórans hefur verið
vísað til sérstakrar nefndar sem
sker úr um hvort Gylfi fá starfið
aftur eða hætti endanlega. Hann
heldur hálfum launum þar til
botn fæst í málið.
Þá hefur ráðherra skipt út öll-
um þremur stjórnarmönnum sem
setið hafa frá árinu 1999.
Vísað er til þess að fjarskipta-
kostnaður Löggildingarstofu hafi
verið óeðlilega hár og eignakaup
úr hófi. Dæmi séu um ýmsan
óeðlilegan kostnað, eignir hafi
týnst, launamál og bókhald hafi
verið í ólestri og risna og ferða-
og auglýsingakostnaður hafi ver-
ið óeðlilega hár.
Tryggvi Axelsson, deildar-
stjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytinu, tekur tímabundið við
forstjórastarfinu.
Gera á heildarúttekt á fram-
tíðarfyrirkomulagi verkefna
Löggildingarstofu og hvernig
þau eru fjármögnuð.
Sjálfur taldi Gylfi að hann
ætti í mesta lagi að fá áminningu.
Ekki væru skilyrði til brottvikn-
ingar. ■
LÖGGILDINGARSTOFA
Forstjórinn látinn fara.
Andmæli forstjóra Löggildingarstofu ekki tekin til greina:
Forstjóri rekinn og stjórn skipt út
Beiðni um pólitískt hæli:
Ofsóttir
vegna kyn-
hneigðar
CANBERRA, AP Tveir samkynhneigð-
ir karlmenn frá Bangladesh óska
eftir pólitísku hæli í Ástralíu á
þeim forsendum að þeirra bíði of-
sóknir vegna kynhneigðar sinnar í
heimalandinu. Að sögn mannanna
var þeim útskúfað úr samfélaginu
og fjölskyldum sínum þegar upp
komst um samband þeirra. Þeir
voru jafnframt grýttir og húð-
strýktir auk þess sem íslamskt
ráð í heimabæ þeirra úrskurðaði
þá réttdræpa.
Mennirnir tveir flúðu til Ástr-
alíu árið 1999. Beiðni þeirra um
pólitískt hæli var hafnað á tveim-
ur dómstigum en er nú komin
fyrir hæstarétt. Að sögn lögfræð-
ings þeirra snýst málið fyrst og
fremst um það hvort skilgreina
megi hömlur á frelsi til þess að
láta í ljósi kynhneigð sína sem of-
sóknir. ■
ALDREI MEIRI STUÐNINGUR Bret-
ar eru hlynntir innrás í Írak sem
aldrei fyrr. 56% segjast styðja
innrás í nýrri skoðanakönnun The
Guardian og hafa aldrei verið
fleiri. Andstæðingar innrásar hafa
aldrei verið færri, aðeins 29%.
FRÉTTAMENN FALLA Tveir frétta-
menn féllu fyrir hendi Banda-
ríkjamanna í gær. Annar lést
þegar skotið var á hótel þar sem
fréttamenn höfðust við en hinn
þegar skrifstofa al Jazeera-sjón-
varpsstöðvarinnar varð fyrir
sprengjuárás. Tveir pólskir
fréttamenn sluppu úr haldi írask-
ra hermanna sem höfðu tekið þá í
gíslingu.
EFNAVOPN FUNDIN Talsmaður
bandaríska hersins sagði frum-
athuganir á efni sem fannst í
íröskum herbúðum hafa leitt í
ljós að það mætti nota í hernaði.
Efnið verður rannsakað nánar.
Ef niðurstöður frumathugana
verða staðfestar er þetta fyrsti
efnavopnafundurinn frá því inn-
rás hófst.
EFNAVOPNA-ALI ALLUR Yfirmenn
breska hersins sögðu að lík Ali
Hassan al-Majid, hershöfðingjans
sem gekk undir nafninu Efna-
vopna-Ali, væri fundið. Talið væri
að hann hefði látist í loftárásum á
Basra síðasta laugardag.
RÍSIÐ UPP Arabar eru hvattir til
að rísa upp og beita sjálfs-
morðsárásum gegn ríkisstjórnum
sem styðja innrás Bandaríkjanna
og Bretlands í Írak. Hvatningin er
sett fram í hljóðrituðu ávarpi sem
sagt er vera frá Osama bin Laden.
BAGDAD, AP Stálbitar úr þremur
húsum lágu allt að hundrað metra
frá gígnum sem myndaðist þegar
fjórum risavöxnum sprengjum
var varpað á veitingastað þar sem
Bandaríkjamenn töldu sig hafa
heimildir fyrir því að Saddam
Hussein væri staddur. Gífurlegar
sprengingarnar rústuðu þremur
húsum og ollu skemmdum á að
minnsta kosti 20 húsum til viðbót-
ar. Hjálparstarfsmenn á vettvangi
töldu að allt að fjórtán manns
hefðu látið lífið.
Tvö lík höfðu fundist síðdegis í
gær. Annað var af ungum dreng,
hitt af ungri konu. Miðaldra móð-
ir hennar grét ógurlega þegar hún
sá lík dóttur sinnar grafið upp, en
missti loks allan mátt og féll til
jarðar. Engin leið var að vita
hvort Saddam Hussein hefði verið
á staðnum, hvort hann væri lífs
eða liðinn. Hafi hann verið í hús-
inu er hann næsta örugglega ekki
lengur á lífi.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti sagðist ekki vita hvort
Saddam Hussein væri lífs eða lið-
inn. Það væri þó ljóst að hann
væri að missa tökin á völdum.
„Kyrkingartakið sem ég hef sagt
Saddam hafa um háls írösku þjóð-
arinnar er að losna. Ég get ekki
sagt ykkur hvort allir fingurnir
hafi sleppt tökum en þeir eru að
losna frá hálsinum hver á fætur
öðrum.“ Bush hét því að stoppa
ekki fyrr en íraska þjóðin væri
frelsuð.
Írakar hófu gagnárás gegn
bandarískum hermönnum í
Bagdad í gær. Fjöldi hermanna
var sendur í rútum og flutninga-
bílum til að reyna að losa tök
Bandaríkjahers á mikilvægum
borgarhluta. Bandaríkjaher tók á
móti af fullum krafti, svaraði fót-
gönguliðinu með skriðdrekum og
loftárásum. Sprengingar, vél-
byssuskothríð og hljóðin úr her-
þotum sem flugu yfir vígvöllinn
heyrðust víða í höfuðborginni,
sem hefur látið á sjá eftir 20 daga
af stríðsátökum. Klukkustund eft-
ir að Írakar létu til skarar skríða
höfðu Bandaríkjamenn tryggt
stöðu sína.
Nálægt borginni náðu banda-
rískir hermenn Rashid-herflug-
vellinum á sitt vald. Yfirmenn
Bandaríkjahers sögðu töku flug-
vallarins mikilvæga. Með því
væri komið í veg fyrir að íraskir
ráðamenn gætu notað þá leið til
að flýja höfuðborgina, orð sem
heyrðust líka eftir töku alþjóða-
flugvallarins úti fyrir Bagdad. ■
RÚSTIR EINAR EFTIR SPRENGJUÁRÁS
Gífurlegar sprengingar eyðilögðu þrjú hús og ollu skemmdum á fjölda annarra. Óvíst er
hversu margir létu lífið. Ekki er vitað hvort Saddam Hussein var á staðnum eða ekki.
Sprengjum varpað
á Saddam Hussein
Bandarísk herþota varpaði sprengjum á veitingastað þar sem talið
var að Saddam Hussein hefðist við. Óvíst er um afdrif hans.
Hart var barist í og við Bagdad.
BROTTVIKNING Valgerður Sverris-
dóttir viðskiptaráðherra segir að
ekki hafi verið undan því vikist að
taka þá ákvörðun að víkja Gylfa
Gauti Péturssyni, forstjóra Lög-
gildingarstofu, frá. „Við höfum
farið vel og ítarlega yfir þetta mál
í ráðuneytinu og komumst að
þeirri niðurstöðu að málið væri
það alvarlegt að ekki hafi verið
hjá því komist að víkja forstjóran-
um frá. Það er síðan nefndarinnar
sem skipuð er samvæmt lögum að
fara yfir málið og kveða upp
endanlega niðurstöðu.”
Valgerður segir að vissulega
hafi forstjórinn málsbætur þar
sem undirmaður hans hafi verið
mjög veikur. Það breyti hins veg-
ar ekki því að hann hafi ábyrgð
sem forstjóri og óreiðan sem átti
sér stað hjá Löggildingarstofu
hafi kostað skattborgara milljón-
ir. „Vissulega kom til greina að
veita áminningu því forsjórinn
hefur tekið sig á og ég býst við að
fjárreiður stofnunarinnar stand-
ist skoðun ríkisendurkoðunar
núna. Nefndin mun þá taka á því
og kveða upp lokaúrskurð,“ segir
Valgerður Sverrisdóttir. ■
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
Málið það alvarlegt að ekki
er undan því vikist að taka
þá ákvörðun að víkja Gylfa
Gauti Péturssyni tímabundið
frá störfum.
Viðskiptaráðherra um forstjóra Löggildingarstofu:
Hefur kostað skatt-
borgara milljónir
FJÁRVEITING TIL HJÁLPARSTARFS
Ríkisstjórn Íslands ætlar að veita 300 millj-
ónum til hjálparstarfs í Írak.
300 milljónir til Íraks:
Neyðin er
mikil
FJÁRVEITING Ríkisstjórnin samþykkti
að veita allt að 300 milljónum
króna til neyðaraðstoðar og upp-
byggingarstarfs í Írak. Þar af
verður 100 milljónum varið til
neyðar- og mannúðaraðstoðar, en
allt að 200 milljónum til uppbygg-
ingarstarfs í kjölfar átaka.
„Við fögnum þessari fjárveit-
ingu og að strax sé ljóst hversu
miklu á að veita í þetta,“ segir
Jónas Þórir Þórisson, fram-
kvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkj-
unnar, um fjárveitinguna sem rík-
isstjórnin samþykkti að veita til
hjálparstarfs. „Fyrst þarf að huga
að þeim sem eru sárir og hafa ekki
það sem nauðsynlegt er til lífsvið-
urværis. Huga þarf að skemmdum
á vatnsveitum og innflutningi á
sumum varningi sem hefur ekki
verið til staðar í tíu ár,“ segir
Jónas.
„Samkvæmt nýjustu upplýsing-
um sem ég hef frá Mozul og
Bagdad er neyðin mjög mikil hjá
mörgum. Eins og stendur er verið
að dreifa matvælum, sinna vatns-
veitum og safna saman hjálpar-
gögnum eins og hægt er. Þó vilja
ekki allir hjálp í neyð. Það eru
helst þeir fátækustu, sem voru
verst settir fyrir. Engin leið er að
sinna hjálparstarfi að viti fyrr en
sprengjurnar hætta að falla,“ segir
Jónas. ■
Selveiðiskip fast í ís:
Ægir fór til
hjálpar
SJÓSLYS Varðskipið Ægir fór í gær-
kvöldi til hjálpar norska selveiði-
skipinu Polarsyssel sem festist
160 sjómílur vestnorðvestur af
Ísafjarðardjúpi. Samkvæmt upp-
lýsingum Landhelgisgæslunnar
er aftanverður skrokkur skipsins
töluvert skemmdur og kom leki að
skipinu. Skipið átti um 500 metra
ófarna úr ísnum. Að sögn Gæsl-
unnar höfðu dælur vel undan
meðan skrúfu skipsins var ekki
kúplað inn. Skip voru í nágrenn-
inu og ekki talin hætta á mann-
skaða. ■