Fréttablaðið - 09.04.2003, Side 8
9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
flugfelag.is
Börn 2ja-12 ára í fylgd með fullorðnum
greiða 1.833 kr. aðra leiðina
VOPNAFJARÐAR
3.000 kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Frá Akureyri til
ÞÓRSHAFNAR
3.000kr.
EGILSSTAÐA
6.400kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍSAFJARÐAR
5.600kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
3.000 kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
GRÍMSEYJAR
Frá Akureyri til
AKUREYRAR
5.600kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
9.-15. apríl
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
FL
U
2
08
29
04
/2
00
3
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Frá Akureyri til
Íslenskir skiptinemar:
Flúðu flensuna í Hong Kong
FARALDUR Tvö íslensk ungmenni
sem dvalið hafa í Hong Kong á
vegum AFS-samtakanna komu
heim til Íslands um síðustu helgi
vegna lungnabólgufaraldursins.
Petrína Ásgeirsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá samtökunum,
segir að ákveðið hafi verið af Al-
þjóðasamtökum AFS að senda alla
sem þar dvöldu á vegum samtak-
anna til síns heima. „Ástandið í
borginni var með þeim hætti að
ekki var talið verjandi að hafa ung-
mennin þarna lengur. Allt daglegt
líf var úr skorðum vegna farald-
ursins, skólar lokaðir og ótti fólks
við að veikjast vaxandi,“ segir hún.
Hong Kong er mjög þéttbýl og
margir um hvern fermetra. Far-
aldurinn virðist breiðast þar
nokkuð hratt út og segir Petrína
að eftir því sem hún best viti hafi
enginn sem tengdur var Íslend-
ingunum veikst. „Ungmennin sem
komu heim eru alveg einkenna-
laus og þeim var ekki gert að leita
læknis nema ef þau verði breyt-
inga vör.” ■
FRÁ HONG KONG
Lungnabólgufaraldurinn breiðist hratt út í
borginni og skólar að mestu lokaðir. Öll
ungmenni á vegum AFS í borginni voru
send til síns heima.
Skortur á tjáningar-
ríkri teikningu
Fjórir af helstu listfræðingum landsins hafa borið vitni í stóra málverka-
fölsunarmálinu. Þau eru öll sammála um að verkin séu fölsuð en sakborn-
ingar og verjendur þeirra telja vitnisburð listfræðinganna harla lítils virði.
FYRIR RÉTTI „Þetta er brotakennt og
klaufskt verk og móðgun að tengja
þetta höfundarverki Nínu
Tryggvadóttur,“ sagði Hrafnhild-
ur Schram listfræðingur fyrir
rétti í gær.
Hún var að tala um mynd sem
hékk lengi vel í híbýlum Skelj-
ungs. Þeir þar greiddu tæpa millj-
ón fyrir verkið
og Kristinn
Björnsson for-
stjóri bar fyrir
rétti að hann
væri hrifinn af
myndinni. Svona
getur smekkur
manna verið
misjafn og þetta
var meðal ann-
ars þráttað um í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær - smekk.
Áfram er réttað í stóra mál-
verkafölsunarmálinu og að undan-
förnu hefur hið listfræðilega mat
sérfræðinga ákæruvaldsins verið
lagt fyrir dóminn. Halldór Björn
Runólfsson, Kristín Guðnadóttir,
Júlíana Gottskálksdóttir og Hrafn-
hildur Schram hafa öll lokið vitn-
isburði sínum. Álit þeirra er sam-
dóma, þau telja verkin sem þau
hafa haft til rannsóknar fölsuð.
Þeir vörpuðu myndum á vegg máli
sínu til stuðnings þar sem sýnd
voru verk eftir listamennina sem
ekki eru véfengd.
Listfræðingarnir notuðu tungu-
tak sem telja má að sé dómsvald-
inu framandi. Hér eru örfá dæmi:
„Jón Stefánsson er frægur fyrir
að nota blæbrigðaríka liti sem
bjuggu yfir mjög vönduðum
núönsum,“ sagði Halldór Björn.
„Kraftmikil og tjáningarrík teikn-
ing er einkenni Svavars Guðna-
sonar,“ sagði Kristín. „Myndin
hefur ekki þennan heildarblæ sem
einkennir Júlíönu,“ sagði Hrafn-
hildur og „... þarna er ekkert verið
að vinna með litina. Engin form-
mótun á litrænan hátt heldur er
þetta þokukennd málun, enginn
metnaður og þetta líkist ekki Ás-
grími,“ sagði Júlíana.
V e r j e n d u r
drógu í efa fræði-
lega úttekt list-
f r æ ð i n g a n n a ,
bentu á að forsend-
urnar skiptu máli
og listfræðingarn-
ir væru áður búnir
að lesa skýrslu
Peters Bowers þar
sem segir að verk-
in séu fölsuð. Áður
hafði Júlíana sjálf
reyndar bent á að
það skipti máli því
hún hefði séð verk
eftir Svavar hjá
ekkju listamanns-
ins sem ekki stóð
undir þeim kröfum
sem gera má til
hans.
„Þetta er ein-
hvern veginn of
léttvægt. Stirð-
busaleg mynd-
bygging, ekkert samspil milli
forma, skortur á heildarsýn og lita-
valið takmarkað,“ sagði Júlíana
um eitt þeirra verka sem eignuð
eru Svavari og taldi af og frá að
hann væri svo „fígúratívur“. Verj-
andi Péturs Þórs Gunnarssonar lét
þá varpa á vegg einu þeirra dæma
sem Júlíana hafði áður notað, verk-
inu „Bergmál í skógi“, og spurði
hvort vitnið hafnaði því að þar
mætti greina verur? Júlíana sagð-
ist ekki sjá neinar verur, en sagði
jafnframt erfitt að hafna því að
einhver sjái eitthvað í þessu.
Myndlist byggi á upplifun og höfð-
ar til tilfinninga. „Þetta eru hug-
vísindi. Ég veit ekki til hvers er
ætlast af mér?“ Þá spurði verjand-
inn hvort niðurstöðurnar byggðu á
upplifun vitnisins og Pétur Guð-
geirsson dómari greip inn í og
spurði einfaldlega hvort Júlíana
gæti fullyrt með 100% vissu að
verkin væru ekki eftir Svavar?
Hún svaraði: „Ég tel að þau séu
ekki eftir Svavar.“
Jón H. Snorrason saksóknari
upplýsti um það í gær að hjá Rann-
sóknarlögreglu lægju á sjöunda
tug verka sem voru véfengd en
ekki var ákært fyrir.
jakob@frettabladid.is
GARÐVINNA
Hrafnhildur Schram segir þetta klaufskt verk og fjarvíddina í verk-
inu með ólíkindum. Óhugsandi að þetta sé eftir Nínu Tryggva-
dóttur. Skeljungsmenn voru ekki sammála þegar þeir keyptu
verkið fyrir rétt tæpa milljón í Gallerí Borg árið 1996.
HALLDÓR BJÖRN RUNÓLFSSON
Karlmaðurinn í hópi fjögurra listfræðinga sem að undanförnu hafa fjallað um verkin sem
eru fyrir dómi. Álit þeirra er samdóma: fölsun.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
„„Þetta eru
hugvísindi. Ég
veit ekki til
hvers er ætl-
ast af mér?“