Fréttablaðið - 09.04.2003, Page 9
9MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2003
Tælenska ríkisstjórnin:
Í fæði hjá
föngum
BANGKOK, AP Fangar í Lard Yao
kvennafangelsinu í Bangkok voru
fengnir til að elda ofan í ríkisstjórn
Tælands eftir síðasta ríkisstjórn-
arfund. Venja er að ráðherrarnir
borði saman eftir fundi sína og
hafa þeir iðulega fengið sendan
mat frá hinum ýmsu veitingastöð-
um borgarinnar.
Eitt af verkefnum tælensku
fangelsisþjónustunnar er að kenna
föngum iðn til að starfa við að
fangelsisvist lokinni. Kvenfang-
arnir sem um ræðir hafa lagt
stund á matreiðslu. Forsætisráð-
herra landsins lýsti mikilli ánægju
með matseld fanganna. ■
HEILBRIGÐISMÁL Skortur er á hjúkr-
unarfræðingum og sérfræðingum
á heilbrigðissviði á stórt sjúkrahús
í Kaliforníu en ráðningastofan
STRÁ MRI sem hefur milligöngu
um ráðningar þangað.
Þá er mikil eftirspurn eftir
læknum til starfa hjá sjúkrahúsum
og heilsugæslustöðvum í Noregi
og Svíþjóð og lyfjaverksmiðja í
Noregi óskar eftir lyfjafræðingum
til starfa. Öllu þessu fólki eru boð-
in góð kjör. Í Bandaríkjunum mun
sjúkrahúsið meðal annars útvega
græna kortið og húsnæði.
Sigurður Örn Hallgrímsson,
ráðgjafi hjá STRÁ, segir að heil-
brigðisstarfsfólk hér á landi sé
mjög vel kynnt. „Í Bandaríkjunum
eru almennir hjúkrunarfræðingar
í öllum tilfellum háskólamenntað-
ir, því eru íslenskir hjúkrunar-
fræðingar eftirsóttir, einkum sér-
menntaðir. Laun eru mjög há og
ekki undir miðlungsforstjóralaun-
um,“ segir Sigurður Örn. Hann
segir að í gegnum árin hafi læknar
verið eftirsóttir á Norðurlöndum
en nú bjóðist betri kjör en oft áður.
Læknum bjóðist að ráða sig til
fjögurra vikna í senn og fái greitt
allt uppihald og flugferðir fram og
til baka. „Við höfum fengið fyrir-
spurnir og umsóknir sem við send-
um utan. Síðan er það á valdi at-
vinnurekenda að hafa samband,“
segir Sigurður Örn. ■
Íslenskir læknar og hjúkrunarfræðingar eftirsóttir:
Bjóðast forstjóralaun í USA
LÆKNAR UTAN Í FJÓRAR VIKUR
Þeir fá greitt allt uppihald og ferðir fram
og til baka auk mjög góðra launa.
Bankaránið í Hafnarfirði:
Meintur
ræningi
ber sig vel
BANKARÁN Nítján ára piltur sem er
í einangrun á Litla-Hrauni, grunað-
ur um að hafa framið bankarán í
Sparisjóði Hafnarfjarðar í byrjun
síðustu viku, hefur ekki viður-
kennt á sig glæpinn. Jón Höskulds-
son, lögmaður piltsins, segir hann
hafa unað gæsluvarðhaldsúrskurð-
inum á laugardag og því verði ekki
áfrýjað. Jón vildi ekki tjá sig um
rannsóknina. Aðspurður um líðan
þess grunaða segir Jón hann bera
sig vel og vera í furðugóðu ástandi
miðað við aðstæður. ■
MIKIL ÁNÆGJA MEÐ STJÓRNINA
Íbúar Kenía eru mjög ánægðir
með ríkisstjórn Mwai Kibaki,
samkvæmt nýrri skoðanakönnum
sem gerð var hundrað dögum eft-
ir að hún komst til valda. 72%
eru ánægð með störf stjórnarinn-
ar. Stjórnin hefur lofað víðtækum
umbótum.
BARIST VIÐ UPPREISNARMENN
Sérsveitir alsírska hersins um-
kringdu hóp grunaðra íslamskra
vígamanna og réðust til atlögu
gegn þeim. Ellefu grunaðir víga-
menn féllu og tveir stjórnarher-
menn að auki.
■ Afríka
BÝFLUGNAGER
Björgunarmenn komust ekki að flaki bíls-
ins vegna býflugnagers og urðu að klæðast
sérstökum fatnaði til þess að verja sig.
Flutningabíll valt:
Býflugur
umkringdu
bílflakið
FLÓRÍDA, AP Flutningabíll sem var
að flytja 80 milljónir lifandi bý-
flugna fór út af vegi og valt á
hraðbraut í Flórída með þeim af-
leiðingum að ökumaðurinn lést og
farmurinn slapp út. Conrad
Cramer, sem var á níræðisaldri,
lést samstundis en björgunar-
menn urðu að bíða í nokkra
klukkutíma eftir því að komast að
líkinu sökum býflugnagersins
sem umkringdi flak bílsins.
Starfsmenn frá fyrirtækinu
sem Cramer vann hjá voru kallað-
ir til og fönguðu þeir flugurnar
með því að svæfa þær með gasi. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T