Fréttablaðið - 09.04.2003, Page 10
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Þetta leggst
ljómandi vel í okkur svo framar-
lega sem við höldum starfsemi
okkar fyrirtækis í bænum,“ segir
Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri í
Grindavík, um þær þreifingar sem
átt hafa sér stað
milli forsvars-
manna sjávarút-
v e g s r i s a n n a
Granda í Reykja-
vík og Þorbjarn-
ar Fiskaness í
Grindavík um að
fyrirtækin sam-
einist hugsan-
lega.
Verði af sam-
einingu fyrir-
tækjanna tvegg-
ja verður þar með til stærsta sjáv-
arútvegsfyrirtæki landsins.
Grandi er ívið stærra fyrirtæki en
Þorbjörn en Ólafur Örn bæjar-
stjóri segist aðspurður ekki hafa
neina ástæðu til að óttast að Reyk-
víkingarnir gleypi fyrirtækið.
„Það yrði jákvætt ef sameining
yrði til að styrkja stoðirnar á báð-
um stöðum. En við
myndum auðvitað ekki
taka því fagnandi ef
starfsemi okkar stærsta
fyrirtækis færi úr bæn-
um. Það gefur auga
leið,“ segir hann.
Bæjarstjórinn segir
að Grindvíkingar hafi
góða reynslu af samein-
ingum fyrirtækja, bæði
innan bæjarfélagsins og
við aðila annars staðar
frá. Þar beri hæst sam-
einingu Þorbjarnar og
Fiskaness, sem hafi gefist
afar vel. Þá sé Vísir með
höfuðstöðvar í Grindavík en
hafi verið að kaupa fyrir-
tæki úti á landi.
„Samherji keypti Fiski-
mjöl og lýsi á sínum tíma. Af
því er mjög góð reynsla og
þeir halda uppi öflugri
starfsemi hér, bæði í fisk-
eldi og bræðslunni. Hingað
til hefur reynslan því verið
góð. Ég á ekki von á því að
þeir Þorbirningar séu að fara út í
þetta til að flytja starfsemina úr
bænum,“ segir Ólafur Örn.
Grindvíkingar hafa yfir að ráða
yfir 30 þúsund tonna kvóta á
heimabátum. Bæjarstjórinn segir
að heimamenn hafi staðið þétt
saman í því að standa vörð um
hagsmuni bæjarins.
„Menn hafa staðið vörð um að
halda kvótanum hér í byggð og ég
á ekki von á að breyting verði á
því,“ segir Ólafur Örn.
rt@frettabladid.is
10 9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
FARALDUR Fyrir helgi undirritaði
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, að höfðu samráði við sótt-
varnaráð, breytingu á reglugerð
um skýrslugerð vegna smitsjúk-
dóma. Breytingin felst í því að
heilkenni alvarlegrar bráðrar
lungnabólgu (HABL) verður talið
til tilkynningaskyldra sjúkdóma
samkvæmt sóttvarnalögum. Til-
kynningaskyldir smitsjúkdómar
eru þeir sjúkdómar sem ógnað
geta almannaheill. Öllum þeim
sem telja sig geta verið með ein-
kenni sjúkdómsins er skylt að
leita læknis. Leiði læknisrann-
sókn í ljós að sjúklingur sé hald-
inn HABL er sjúklingi skylt að
hlíta fyrirmælum læknisins. Jafn-
framt er lækninum skylt að til-
kynna sóttvarnalækni um sjúk-
dóminn.
Enn er ekki vitað með vissu
hvað veldur HABL en talið er að
kórónaveira geti verið orsök sjúk-
dómsins. Á meðan ekki er hægt að
sýna fram á sjúkdóminn með
ræktun sýkils, eða með öðrum
rannsóknaraðferðum, er stuðst
við sjúkdómslýsingu sem þarf að
uppfylla ákveðin skilyrði.
Fjölmiðlar á Vesturlöndum
hafa verið að gera því skóna að
HABL megi líkja við Spænsku
veikina sem geisaði snemma á síð-
ustu öld. Haraldur Briem, sótt-
varnalæknir hjá Landlæknisemb-
ættinu, segir að heilkenni alvar-
legrar bráðrar lungnabólgu eigi
fátt sameiginlegt með Spænsku
veikinni sem dró sex milljónir
manna til dauða „Þessi bráðu
lungnabólgutilfelli eiga ekkert
skylt við inflúensu. Þetta er allt
annar sjúkdómur og ekki nándar
nærri eins smitandi. Það eina sem
kann að vera sameiginlegt er að
veikin leggst á fólk á öllum aldri
en Spænska veikin lagði hraust-
asta fólk að velli.“
Haraldur segir að menn telji að
þeir sem deyi af völdum HABL
séu veikir fyrir af öðrum undir-
liggjandi sjúkdómi. ■
LÍFEYRISSJÓÐIR Hrein raunávöxtun
Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja árið
2002 var neikvæð um 0,31%. Með-
altal hreinnar raunávöxtunar síð-
ustu 5 ára er 3,47% og 10 ára með-
altal er 5,19%.
Hrein eign til greiðslu lífeyris
var í árslok 11.357 milljónir króna
og hækkaði um 430 milljónir á ár-
inu, eða um 3,9%. Verðbréf með
breytilegum tekjum voru 32,4%
af fjárfestingum, eignir í erlend-
um gjaldmiðlum 14,3% og hlutfall
óskráðra verðbréfa 6,4%.
Iðgjaldatekjur voru 459 millj-
ónir og jukust um 14,6% á milli
ára. Rúmlega 2.300 sjóðfélagar
greiddu iðgjöld til sjóðsins.
Lífeyrisgreiðslur voru 283
milljónir og hækkuðu um 17,3%.
Fjöldi lífeyrisþega var 769.
Samkvæmt tryggingafræði-
legu mati nema eignir sjóðsins
umfram áfallnar skuldbindingar
490 milljónum, eða 4,2%, en 1.945
milljónir vantar upp á til að mæta
heildarskuldbindingum, eða 9,1%
á móti 2,5% árið áður. Lakari
staða sjóðsins gagnvart heildar-
skuldbindingum felst einkum í
hærra mati á framtíðarskuldbind-
ingum.
Hrein eign séreignadeildar
þrefaldaðist næstum á árinu og
var 26,1 milljón í árslok en fjöldi
rétthafa er um 940. Enginn rétt-
hafi séreignadeildar hefur enn
sótt um að hefja úttekt á séreign-
arsparnaði. ■
LÍFEYRISGREIÐSLUR HÆKKUÐU
Iðgjaldatekjur voru 459 milljónir og jukust
um 14,6% á milli ára. Rúmlega 2.300
sjóðfélagar greiddu iðgjöld til sjóðsins. Líf-
eyrisgreiðslur voru 283 milljónir og hækk-
uðu um 17,3%.
Afkoma Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja:
Neikvæð
raunávöxtun
HARALDUR BRIEM
Nú er bæði læknum og sjúklingum skylt
að tilkynna landlækni ef grunur leikur á
HABL-smiti.
Heilkenni alvarlegrar bráðrar lungnabólgu:
Skylda að leita læknis
Grindvíkingarnir eru
óhræddir við Granda
Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri óttast ekki að sameining Þorbjarnar og Granda verði til þess að
bærinn missi spón úr aski sínum. Reynslan af sameiningum góð.
Reykjavík:
Færri ölv-
unarakst-
ursbrot
LÖGREGLUMÁL Ölvunaraksturs-
brotum hefur fækkað á fyrstu
þremur mánuðum ársins. Alls
hafa brotin verið 181, sem er
36% fækkun frá fyrri árum.
Hlutfallslega hefur brotum
fækkað mest í mars en minnst í
janúar. Þrátt fyrir það er fækk-
un brota í öllum mánuðum.
Sé fjöldi brota skoðaður með
tilliti til meðalfjölda ökumanna
sem teknir voru á dag í mánuð-
unum má sjá töluverða fækkun
árið 2003 í samanburði við fyrri
ár.
Lögreglan í Reykjavík hefur
haft uppi sérstakar aðgerðir til
að sporna við ölvunarakstri síð-
an í lok ársins 2002. Fram kem-
ur í tilkynningu frá lögreglunni
að verkefnið standi enn yfir og
feli í sér að halda uppi sértæk-
um aðgerðum á þeim tíma þegar
mest hefur verið um ölvaða öku-
menn. ■
FJÖLDI ÖLVUNARAKSTURS-
BROTA FYRSTU ÞRJÁ MÁNUÐI
ÁRANNA 2001 TIL 2003.
2001 2002 2003
Alls 270 290 181
Janúar 81 83 61
Febrúar 90 108 66
Mars 99 99 54
ÓLAFUR ÖRN
ÓLAFSSON
Hvergi smeykur.
„Ég á ekki
von á því að
þeir Þorbirn-
ingar séu að
fara út í þetta
til að flytja
starfsemina
úr bænum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
VIÐ HÖFNINA Í GRINDAVÍK
Bæjarstjórinn segir að góð reynsla sé af sameiningum.
NEYSLA ÓÁFENGRA DRYKKJA
Milljónir
1997 6.455
1998 6.821
1999 6.986
2000 7.522
2001 8.100
2002 7.836
Heimild: Hagstofa Íslands
Verðlag 1990.
2001: Bráðabirgðatölur.
2002: Áætlun
Svonaerum við