Fréttablaðið - 09.04.2003, Síða 17
17MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2003
NEW YORK, AP Bandaríski glæpafor-
inginn Vincent Gigante, einnig
þekktur sem Hakan, hefur gengist
við því að vera heill á geði. Eftir að
hafa reynt um margra ára skeið að
komast hjá réttarhöldum með því
að bera við geðveiki hefur hann
gengist undir dómssátt. Samkvæmt
henni ver hann þremur árum á bak
við lás og slá undir eftirliti yfir-
valda.
Hinn 75 ára Gigante hefur verið
í fangelsi frá 1997 fyrir fjárglæfra
og samsæri um morð. Þá var hann
dæmdur til tólf ára fangelsisvistar.
Hann hefði getað fengið 20 ára dóm
hefði hann ekki gengist undir
dómssátt.
Gigante hafði þóst vera geðveik-
ur frá því á áttunda áratugnum. Oft
mátti sjá hann í sloppi og náttfötum
gangandi um götur New York, tuð-
andi. Það varð til þess að hann fékk
viðurnefnið Tuðfaðirinn með vísan
til myndanna um Guðföðurinn.
Leynilegar upptökur sýndu þó að
hann væri við góða geðheilsu og
stjórnaði glæpagengi sínu. ■
BROOKLYN-BRÚIN Í NEW YORK
Lögreglumenn New York-borgar þurfa ekki að búast við því að ganga fram á glæpafor-
ingja í náttfötum gangandi um götur borgarinnar á næstunni.
Gekk um í náttfötum á götum úti í 30 ár:
Tuðfaðirinn
ekki geðveikur
Mæðrastyrksnefnd:
Úthlutun
vegna sum-
ardvalar
STYRKUR Úthlutun til barna frá efna-
litlum heimilum um sumardvöl í
Ævintýralandi að Reykjum í Hrúta-
firði hefst í dag. Velferðarsjóður
barna á Íslandi hefur nú öðru sinni
veitt Mæðrastyrksnefnd Reykja-
víkur tveggja milljóna króna fram-
lag til að styrkja börn til að komast
í sumarbúðir. Ásgerður Jóna Flosa-
dóttir segir að á síðasta ári hafi 96
börn komist í sumarbúðir KFUM
og K fyrir tilstuðlan Velferðarsjóðs
barna. Í sumar verði Ævintýraland
fyrir valinu. ■
Amnesty International:
Mannrétt-
indabrot í
Kongó
MANNRÉTTINDI Í yfirlýsingu frá
mannréttindasamtökunum Amn-
esty International er sérstaklega
vakin athygli á alvarlegum
mannréttindabrotum í Írak,
Kongó, Nepal og Tsjetsjeníu.
Yfirlýsingin var lögð fram á
fundi mannréttindanefnar Sam-
einuðu þjóðanna sem nú stendur
yfir í Genf í Sviss. Bendir Amn-
esty á að á meðan fjölmiðlar séu
fullir af fyrirsögnum um stríðið
í Írak standi annað stríð yfir í
Kongó. Þar séu mannréttindi
þverbrotin, fólk myrt og pyntað,
konum nauðgað og börn notuð í
hernaði. Ekki er lengra en vika
síðan tæplega 1.000 manns féllu
í fjöldamorðum. Ríkisstjórn
Kongó og SÞ samþykktu í gær að
hefja sameiginlega rannsókn á
atburðunum. ■
STJÓRNARSKRÁ Anders Fogh
Rasmussen, forsætisráðherra
Danmerkur, afhendir í vikunni
stjórnarskrána sem ýmsir hafa
talið að Kristján IX hafi afhent Ís-
lendingum á Þjóðhátíðinni á Þing-
völlum árið 1874. Ekki er þó að sjá
af heimildum að goðsögnin, sem
styttan af Kristjáni IX fyrir fram-
an stjórnarráðið hefur innblásið,
eigi við rök að styðjast. Styttan
fræga sýnir konung rétta fram
stjórnarskrána. Fræðimenn sem
Fréttablaðið ræddi við í gær
kannast ekki við heimildir sem
sýna fram á að taka eigi ímyndina
bókstaflega. Ekki er heldur
minnst á slíkt í bók Brynleifs Tob-
íassonar Um þjóðhátíðina 1874.
Guðmundur Hálfdanarson
sagnfræðingur, sem hefur skrifað
um þjóðernisvitund Íslendinga og
sjálfstæðisbaráttu á 19. öld, kann-
ast ekki við heimildir um að
stjórnarskráin hafi verið afhent
þegar konungur kom hingað en
þvertekur ekki fyrir það. „Stjórn-
arskráin var gefin út hálfu ári
áður en konungur kom hingað,“
segir Guðmundur og tiltekur að
konungur hafi fyrst og fremst
komið hingað í tilefni af þúsund
ára afmæli Íslandsbyggðar.
Sigurður Líndal lagaprófessor
bendir á að í frásögnum sem hann
hefur skoðað sé hvergi minnst á
að konungur hafi afhent Íslend-
ingum stjórnarskrá. Konungur
flutti ræðu þar sem hann sagðist
vona að stjórnarskráin yrði Ís-
lendingum til gæfu. Sigurður
bendir á að Grímur Thomsen, sem
bar hitann og þungann af Þjóðhá-
tíðinni á Þingvöllum, hafi þakkað
fyrir stjórnarskrána en af orða-
lagi hans er ekki svo að skilja að
hún hafi verið afhent þar. Ástæð-
una fyrir því að Grímur var í for-
svari segir Sigurður þá að hann
hafi áður starfað í dönsku utanrík-
isþjónustunni. „Hann var fyrsti
diplómatinn okkar.“
Ein kenning hefur verið nefnd
fyrir því að stjórnarskráin hafi
ekki verið afhent Íslendingum
heldur aðeins birt með konung-
legri auglýsingu. Hún er sú að hér
hafi enginn verið til að taka á móti
henni sem þætti heppilegur full-
trúi þjóðarinnar. Sigurður vill þó
ekki fullyrða um hvort sú kenning
sé rétt eða röng.
Íslendingar tengdu komu kon-
ungs strax við stjórnarskrána,
segir Gunnar Karlsson sagnfræð-
ingur og rifjar upp hluta kvæðis
Matthíasar Jochumsonar Stjórn-
arskrá fyrir Ísland: „Með frelsis-
skrá í föðurhendi, þig fyrstan kon-
ung Guð oss sendi“.
brynjolfur@frettabladid.is
STYTTA BYGGÐ Á GOÐSÖGN
Styttan fyrir framan stjórnarráðið sýnir
Kristján IX afhenda íslenskum stjórnarskrá
sína. Engar heimildir fundust um að Krist-
ján IX hafi afhent Íslendingum plaggið þó
að óneitanlega hafi hann sett Íslendingum
stjórnarskrá.
Engin gögn finnast um að Kristján IX hafi afhent Íslendingum stjórnarskrá eins og styttan af
honum fyrir framan Stjórnarráðshúsið gefur til kynna. Danski forsætisráðherrann afhendir ís-
lenskum stjórnvöldum stjórnarskrána í vikunni.
Minning byggð á goðsögn