Fréttablaðið - 09.04.2003, Page 18
FÓTBOLTI Juventus og Barcelona
hafa þrisvar áður mæst í Evrópu-
keppnum og hefur sigurvegarinn
alltaf komist í úrslitaleik keppn-
innar og tapað.
Juventus sló Barcelona út úr
Borgakeppni Evrópu haustið 1970
og tapaði fyrir Leeds í úrslitaleik
vorið eftir. Fimmtán árum síðar
vann Barcelona 2:1 samanlagt í
átta liða úrslitum Evrópukeppni
meistaraliða. Í úrslitaleiknum
tókst Börsungum hins vegar
aldrei að sigrast á Helmut
Ducadam, markverði Steaua frá
Búkarest, sem varði m.a. fjórar
spyrnur í vítakeppninni. Vorið
1991 vann Barcelona Juventus í
undanúrslitum Evrópukeppni
bikarhafa en tapaði úrslitaleikn-
um fyrir Manchester United.
Barcelona hefur gengið brösu-
lega í spænsku deildinni í vetur en
árangur félagsins í Meistaradeild-
inni á sér ekki hliðstæðu. Liðið
hefur unnið 13 af 14 leikjum sín-
um og hefur ekki fengið á sig
mark á þessu ári.
Juventus sigraði í sínum
undanriðli af öryggi og komst
áfram úr milliriðli eftir hörku-
keppni við Basel og Deportivo.
Ítalirnir hafa unnið fimm af sex
heimaleikjum sínum í Meistara-
deildinni í vetur.
Juventus verður án David
Trezeguet í kvöld og óljóst er
hvort Pavel Nedved leiki með.
Báðir meiddust í nágrannaslagn-
um við Torino um helgina.
Internazionale og Valencia
mætast í þriðja sinn í Evrópu-
keppni. Valencia hafði betur í
Borgakeppni Evrópu vorið 1962
en Inter vann í átta liða úrslitum
Meistaradeildarinnar 40 árum
síðar.
Leikir Internazionale og Val-
encia verða líka endurfundir Val-
encia og Hector Raul Cuper, sem
þjálfaði félagið með mjög góðum
árangri árin 1999 til 2001. Undir
stjórn Cuper komst Valencia
tvisvar í úrslitaleik Meistara-
deildarinnar en tapaði í bæði
skiptin. Rafael Benitez tók við
starfi Cuper sumarið 2001 og varð
Valencia spænskur meistari vorið
eftir. Benitez er sannfærður um
sigur Valencia á Inter og telur að
heimavöllurinn vegi þungt, rétt
eins og gegn Arsenal.
Valencia er taplaust á útivelli í
Meistaradeildinni í vetur. Félagið
lék gegn Basel, Liverpool og
Spartak Moskvu í undanriðli og
sigraði örugglega. Spánverjarnir
urðu líka efstir í milliriðli eftir
afar jafna keppni við Ajax,
Arsenal og Roma. Inter sigraði í
undanriðli eftir keppni við Ajax,
Lyon og Rosenborg en lenti í 2.
sæti á eftir Barcelona í milliriðli. ■
18 9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
GOLF Skotinn Colin Montgomerie
ætlar sér ekkert annað en sigur á
bandaríska Masters-mótinu í golfi
sem hefst á morgun. Honum hef-
ur gengið illa það sem af er þessu
ári og hefur aðeins komist áfram
úr niðurskurði á einu móti.
„Ég fer inn í öll mót staðráðinn
í að vinna, annars sé ég engan til-
gang í að vera þar,“ sagði
Montgomerie í viðtali við BBC.
„Ég hef augljóslega ekki byrjað
sérlega vel á þessu ári en vonandi
á ég enn eftir að sýna mitt besta.“
Montgomerie, sem er 39 ára
gamall, hefur aðeins einu sinni
lokið keppni á meðal tíu efsta
manna á Masters, eða árið 1998.
Hann hlakkar engu að síður mikið
til mótsins. „Það er eitthvað við
Masters sem er alveg einstakt.
Flatirnar eru óaðfinnanlegar,
áhorfendurnir styðja við bakið á
manni og það er virkilega góð til-
finning að ganga upp Magnolia
Drive á fyrsta deginum; andrúms-
loftið er einstakt.“
Montgomerie á von á því að
tveir efstu mennirnir á heimslist-
anum, Tiger Woods og Ernie Els,
verði í baráttunni um efsta sætið.
„Tiger er núverandi meistari og
er augljóslega sigurstranglegur,
en Ernie Els hefur byrjað frábær-
lega á árinu og því má ekki útiloka
möguleika hans.“ ■
MONTY
Colin Montgomerie hefur gengið illa á þessu ári. Ástæðan er m.a. bakmeiðsli sem hafa
hrjáð hann.
Colin Montgomerie:
Á eftir að sýna
sitt besta
BARCELONA
Argentínumaðurinn Javier Saviola hefur skorað sex af 29 mörkum Barcelona í Meistara-
deildinni. Barcelona leikur gegn Juventus í átta liða úrslitum keppninnar í kvöld.
INTERNAZIONALE
Leikmenn Internazionale fagna marki Al-
varo Recoba gegn Roma á laugardag.
FYRRI VIÐUREIGNIR BARCELONA OG JUVENTUS
1970-1971 Barcelona - Juventus 1:2 1:2
1985-1986 Barcelona - Juventus 1:0 1:1
1990-1991 Barcelona - Juventus 3:1 0:1
FYRRI VIÐUREIGNIR VALENCIA OG INTERNAZIONALE
1961-1962 Valencia - Internazionale 2:0 3:3
2001-2002 Internazionale - Valencia 1:1 0:1
Sagan ekki hlið-
holl Juventus
og Barcelona
Juventus leikur gegn Barcelona og Inter gegn Valencia í átta liða úrslit-
um Meistaradeildarinnar í kvöld.
AP
/M
YN
D
birta