Fréttablaðið - 09.04.2003, Qupperneq 19
19MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2003
15.00 Stöð 2
Spænsku mörkin. Sýnt frá mörkunum í
spænska boltanum.
17.30 Sýn
Olíssport. Fjallað er um helstu íþrótta-
viðburði heima og erlendis.
18.00 Sýn
Western World Soccer Show. Heimsfót-
bolti Western World.
18.30 Sýn
Meistaradeild Evrópu. Bein útsending frá
fyrri leik Juventus og Barcelona í átta
liða úrslitum.
19.15 Ásvellir
Haukar taka á móti Stjörnunni í undan-
úrslitum Esso-deildar kvenna í hand-
bolta.
19.15 Vestmannaeyjar
Eyjastúlkur taka á móti Valsstúlkum í
undanúrslitum Esso-deildar kvenna í
handbolta.
20.40 Sýn
Meistaradeild Evrópu. Útsending frá fyrri
leik Inter Milan og Valencia í átta liða
úrslitum.
22.20 Sjónvarpið
Handboltakvöld. Fjallað um úrslita-
keppnina í handbolta.
22.30 Sýn
Olíssport. Fjallað er um helstu íþrótta-
viðburði heima og erlendis.
23.00 Sýn
Fastrax 2002. Vélasport. Hraðskreiður
þáttur þar sem ökutæki af öllum stærð-
um og gerðum koma við sögu.
■ Hlaup
■ Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
6 7 8 9 10 11 12
APRÍL
miðvikudagur
Gerður Rún Guðlaugsdóttir úrÍR náði sínum besta árangri í
10 km götuhlaupi þegar hún náði
þriðja sæti á danska meistara-
mótinu í götuhlaupi í Svendborg
um helgina. Gerður, sem keppti
fyrir Amager AC, náði þriðja
sætinu á tímanum 36:46 mín í
mjög jafnri keppni.
Forráðamenn Fulham hafa vís-að á bug vangaveltum um að
Gianluca Vialli, fyrrverandi
knattspyrnustjóri Chelsea og
Watford, verði næsti stjóri
liðsins. Vialli sást á áhorf-
endapöllum fylgjast með Fulham
tapa fyrir Blackburn í fyrrakvöld
með fjórum mörkum gegn engu.
Daninn Peter Schmeichel,markvörður Manchester City,
hefur hug á að gerast knatt-
spyrnustjóri eftir að hann lýkur
ferli sínum á Maine Road. Samn-
ingur hans við City rennur út í
sumar og óvíst er hvað Schmeich-
el tekur sér þá fyrir hendur.
Knattspyrnusamband Evrópu,UEFA, rannsakar nú ummæli
Sir Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóra Manchester United, um að
sambandið hafi hagrætt drættin-
um í 8 liða úrslit Meistaradeildar-
innar. Talið er að Ferguson verði
sektaður fyrir athæfið.
Fabien Barthez, markvörðurManchester United, segist
hafa dreymt um það á sínum
yngri árum að leika með
Barcelona á Spáni. Hann segist
hins vegar vera afar sáttur á Old
Trafford og hafi lítinn áhuga á að
skipta um félag.
FÓTBOLTI Teddy Sheringham, fram-
herji Tottenham, segist hafa feng-
ið þó nokkur tilboð frá öðrum fé-
lögum sem óskað hafa eftir þjón-
ustu hans.
Samningur kappans við Lund-
únaliðið rennur út eftir þessa leik-
tíð. Komist liðið ekki í Evrópu-
keppni félagsliða er talið að Sher-
ingham þurfi að taka á sig launa-
lækkun ákveði hann að vera
áfram hjá Tottenham.
„Ég hef fengið tilboð frá öðrum
liðum og ég mun taka þau til at-
hugunar,“ sagði Sheringham. ■
SHERINGHAM
Líkurnar á að Tottenham nái Evrópusæti
eru ekki miklar. Liðið er í áttunda sæti úr-
valsdeildarinnar, sex stigum á eftir Liver-
pool, sem einnig er í baráttu um Evrópu-
sæti.
Teddy Sheringham:
Velur úr tilboðum
FÓTBOLTI Hagnaður Alþjóðknatt-
spyrnusambandsins, FIFA, nam
rúmum 6,5 milljörðum króna á ár-
unum 1999 til 2002. Þetta er mun
meiri hagnaður en gert hafði ver-
ið ráð fyrir í fjárhagsætlun sam-
bandsins.
Forsvarsmenn FIFA spáðu
stóru tapi í maí í fyrra vegna
gjaldþrots markaðsfyrirtækisins
ISL/ISMM sem var samstarfsaðili
sambandsins.
Sepp Blatter, forseti FIFA, var
ánægður með útkomuna og sagði
sambandið vera sterkara fjár-
hagslega en nokkru sinni fyrr. ■
BLATTER
Joseph S. Blatter, forseti FIFA, situr á bak
við HM bolta á blaðamannafundi í gær
þegar greint var frá hagnaðinum.
Alþjóðaknattspyrnusambandið:
6,5 milljarða hagnaður
ÍSINN SÓPAÐUR
Warwick Smith, fyrirliði skoska karlalands-
liðsins í curling, fylgist með liðsfélögum
sínum sópa ísinn í fyrstu umferð HM í
curling sem haldið er um þessar mundir í
Winnipeg í Kanada. Einbeitingin skein úr
andlitum þeirra félaga enda krefst íþróttin
mikillar nákvæmni og yfirvegunar.
HANDBOLTI Undanúrslit Esso-deild-
ar kvenna hefjast í kvöld. Deildar-
meistarar ÍBV fá Val í heimsókn
og bikarmeistarar Hauka leika
gegn Stjörnunni að Ásvöllum.
ÍBV vann alla deildarleiki sína
gegn Val í vetur með talsverðum
mun. Í byrjun mars unnu Eyja-
stúlkur 23-16 í Valsheimilinu og
höfðu áður unnið með 14 marka
mun í Eyjum í byrjun árs og með
tíu marka mun í Reykjavík í
október.
Stjarnan vann Hauka 25-20 að
Ásvöllum í lok september en
Hafnfirðingarnir unnu með fimm
marka mun í Ásgarði tveimur
mánuðum síðar. Um miðjan febrú-
ar léku liðin hörkuleik að Ásvöll-
um sem Haukar unnu 18-16.
Seinni leikir liðanna verða
laugardaginn 12. apríl og verði
þörf fyrir oddaleiki fara þeir
fram í Hafnarfirði og Eyjum
þriðjudaginn 15. apríl. Fyrsti úr-
slitaleikur Esso-deildarinnar
verður háður laugardaginn 26.
apríl. Félagið sem sigrar í þremur
leikjum verður Íslandsmeistari
og gætu úrslit ráðist fimmtudag-
inn 1. maí. Verði þörf fyrir fimm
leiki lýkur mótinu mánudaginn 5.
maí. ■
ESSO-DEILD KVENNA
Haukar leika gegn Stjörnunni að Ásvöllum í kvöld.
UNDANÚRSLIT
kvennaleikir 9. apríl kl. 19.15
Haukar - Stjarnan Ásvellir
ÍBV - Valur Vestmannaeyjar
Leikir 12. apríl kl. 16.00
Stjarnan - Haukar Ásgarður
Valur - ÍBV Valsheimili
Oddaleikir, ef þeirra verður þörf, fara
fram 15. apríl.
Esso-deild kvenna:
Undanúrslit
hefjast í kvöld