Fréttablaðið - 09.04.2003, Side 24

Fréttablaðið - 09.04.2003, Side 24
9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR Kosningar eru eins og jólin. Ístað óþreyju og spennu van- stilltra barna kemur spenna van- stilltra stjórnmálamanna. Á sama hátt og fjölmiðlar fyllast af jóla jóla í desember, fyllast þeir af stjórnmálaþvargi á aðventu kosning- anna. Maður ætti að koma sér burt á þessum tímum. Silfur Egils var stútfullt af pólitík eins og vera ber, enda þátturinn þess eðlis. Kær- komin hvíld í þættinum var viðtal við Jón Karl Helgason um hápóli- tískt mál síns tíma. Bein Jónasar Hallgrímssonar. Ég verð að lesa þessa bók. Ég fór að hugsa um það hvort ekki þyrfti að fara að safna saman deilumálum sem hafa klof- ið þjóðina. Ég er viss um að sagan hefur farið ómjúkum höndum um mörg slík mál. Silfur Egils endaði reyndar fremur sérkennilega, þar sem skrúfað var niður í klið póli- tíkusa í miðjum klíðum og textinn rann eftir skjánum. Ég er ekki hissa á að Agli hafi þótt þetta snubbóttur endir. Hann mætti hins vegar hugleiða þetta sem möguleika í framhaldinu. Þetta kom ekkert svo illa út. Gaf manni bara tilfinningu fyrir því að Guðni, Guðmundur Árni og Pétur Blöndal myndu halda áfram að tuða um skatta og velferð til efsta dags utan manns eigin skynsviðs. Þannig mun þetta líka verða þar til klukkunum verður hringt 10. maí. ■ Við tækið HAFLIÐI HELGASON ■ var ekkert ósáttur við hvernig síð- asta Silfur Egils endaði. Það gaf ei- lífðartilfinningu. 21.00 Miðnæturhróp 21.30 Joyce Meyer 22.00 Life Today 22.30 Joyce Meyer Á Breiðbandinu má finna 28 erlendar sjónvarpsstöðvar sem seldar eru í áskrift og þar af eru 6 Norðurlandastöðvar. Að auki sendir Breiðbandið út flestar ís- lensku útvarpsrásirnar ásamt 10 erlendum tónlistarrásum með mismunandi tónlistarstefnum. 17.30 Sportið með Olís Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis. 18.00 Western World Soccer Show (Heimsfótbolti West World) 18.30 Meistaradeild Evrópu (Juventus - Barcelona) Bein út- sending frá fyrri leik Juventus og Barcelona í átta liða úrslitum. 20.40 Meistaradeild Evrópu (Inter - Valencia) Útsending frá fyrri leik Inter Milan og Valencia í átta liða úrslitum. 22.30 Sportið með Olís Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis. 23.00 Fastrax 2002 (Vélasport) Hraðskreiður þáttur þar sem öku- tæki af öllum stærðum og gerðum koma við sögu. 23.30 MAD TV (MAD-rásin) Geggjaður grínþáttur þar sem allir fá það óþvegið. Þátturinn dregur nafn sitt af samnefndu skop- myndablaði sem notið hefur mik- illa vinsælda. 0.15 Hot Orchid (Blómarós) Eró- tísk kvikmynd. Stranglega bönnuð börnum. 1.35 Dagskrárlok og skjáleikur 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Disneystundin 18.54 Víkingalottó 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.35 Kastljósið - X-2003 Í Kast- ljósinu verður fjallað um nokkur helstu baráttumálin fyrir kosning- arnar. Sjá nánari upplýsingar um kosningadagskrá Sjónvarpsins og Útvarpsins á vefslóðinni www.ruv.is/kosningar. 20.15 Ed (5:22) 21.00 At 21.30 Svona var það (25:27) 22.00 Tíufréttir 22.20 Handboltakvöld Sýnt verð- ur úr leikjum í undanúrslitum kvenna á Íslandsmótinu í hand- bolta. 22.40 Hamingjuleit (5:6) (Happiness) Meðal leikenda í þessum bresku gamanþáttum eru Paul Whitehouse, Fiona Allen úr Smack the Pony, Mark Heap og Johnny Vegas. 23.10 Stuttmyndadagar í Reykja- vík 2 Sýnt verður úrval erlendra mynda sem voru á dagskrá Stutt- myndadaga í Reykjavík í fyrra haust. 23.40 Kastljósið - X-2003 0.20 Dagskrárlok 6.58 Ísland í bítið 9.00 Bold and the Beautiful 9.20 Í fínu formi 9.35 Oprah Winfrey 10.20 Ísland í bítið 12.00 Neighbours (Nágrannar) 12.25 Í fínu formi (Þolfimi) 12.40 What about Joan (9:13) 13.00 I Dreamed of Africa (Dreymt um Afriku) Heillandi kvik- mynd um konu sem hefur nýtt líf. Kuki Gallman samþykkir að giftast Paolo, manni sem hún þekkir ekki mikið, flytjast með honum til Kenía og koma þar upp nautgripabú- garði. Í Afríku eru hættur á hverju strái og Kuki og fjölskylda hennar verða að gæta sín á hættulegum ljónum, eitruðum snákum og blóð- þyrstum ræningjum. Aðalhlutverk: Kim Basinger, Vincent Perez, Liam Aiken. Leikstjóri: Hugh Hudson. 2000. 15.00 Spænsku mörkin 16.00 Barnatími Stöðvar 2 17.40 Neighbours (Nágrannar) 18.05 Spin City (13:22) 18.30 Fréttir Stöðvar 2 19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður 19.30 Friends 3 (12:25) (Vinir) 20.00 Að hætti Sigga Hall (6:12) 20.30 Dharma og Greg (21:24) 20.55 Coupling (1:7) (Pörun)Steve 21.30 The Mind of the Married Man (7:10) 22.00 Crossing Jordan (6:25) 22.45 I Dreamed of Africa 0.40 Spin City (13:22) 1.00 Friends 3 (12:25) 1.25 Ísland í dag, íþróttir, veður 1.50 Tónlistarmyndbönd frá Popp TíVí 6.00 Little Monsters 8.00 Spy Kids (Litlir njósnarar) 10.00 Titan A.E. 12.00 Father of the Bride 14.00 Little Monsters 16.00 Spy Kids (Litlir njósnarar) 18.00 Titan A.E. 20.00 Father of the Bride 22.00 Original Sin 0.00 Sleepwalker (Svefngengill) 2.00 Lola rennt (Hlauptu Lola) 4.00 Original Sin 7.00 70 mínútur 16.00 Pikk TV 19.00 XY TV 20.00 Trailer 21.00 South Park 6 21.30 Crank Yankers 22.03 70 mínútur 23.10 Lúkkið 23.30 Meiri músík 17.45 Brúðkaupsþátturinn Já (e) 18.30 Innlit útlit (e) 19.30 According to Jim (e) 20.00 Guinness World Records 21.00 Fólk - með Sirrý Fólk er þáttur um allt sem við kemur dag- legu lífi Íslendinga og Fólki er ekk- ert mannlegt óviðkomandi; þar verður meðal annars rætt um tísku, heilsu, kjaftasögur, fordóma, mannleg samskipti auk þess sem málefni vikunnar verður að venju krufið til mergjar af sérfræðingum, leikmönnum og áhorfendum. 22.00 Law & Order Lennie Briscoe er töffari af gamla skólanum, lögga sem kallar ekki allt ömmu sína. Hann vinnur með hinum geðuga Reynaldo Curtis við að rannsaka glæpi, yfirheyra grunaða og herja á illmenni út um borg og bý. Jack McCoy saksóknari og aðstoðar- menn hans vinna síðan úr málun- um, sækja hina grunuðu til saka og reyna að koma þeim í fangelsi. 22.50 Jay Leno 23.40 Boston Public (e) 0.30 Dagskrárlok Sjá nánar á www.s1.is Stöð 2 21.30 Skjár 1 22.50 Jay Leno sýnir fram á keisarans nekt á hverju kvöldi er hann tog- ar þjóðarleiðtoga, frægt fólk og bara hversdagslega vitleysinga sundur og saman í háði. Síðan spjallar hann í rólegheitum um stjórnmál, kvikmyndir, sauma- skap og gæludýrahald við gesti sína sem eru ekki af verri end- anum, margverðlaunaðar stjörn- ur og stuðboltar. Þættinum lýkur yfirleitt á að síkátir söngvarar koma fram. Órar kvæntra karla, eða The Mind of the Married Man, er einn vinsælasti og mest umtal- aði myndaflokkurinn í Banda- ríkjunum. Aðalsöguhetjurnar eru félagarnir Micky, Doug og Jake, sem allir starfa hjá sama dag- blaðinu í Chicago. Þeir eiga fleira sameiginlegt, en allir eru fastir í hlekkjum hjónabandsins og segja farir sínar ekki sléttar. Í þætti kvöldsins eru kapparnir enn við sama heygarðshornið við afar misjafnar undirtektir eiginkvenna sinna. Doug fær það t.d. óþvegið þegar hann kaupir sér forláta Corvettu. Órar kvæntra karla Jólaplága í apríl Jay Leno ■ Ég fór að hugsa um það hvort ekki þyrfti að fara að safna saman deilumálum sem hafa klofið þjóðina.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.