Fréttablaðið - 13.05.2003, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 20
Leikhús 20
Myndlist 20
Bíó 22
Íþróttir 18
Sjónvarp 24
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
AFMÆLI
Grillar með
dótturinni
FÓLK
Drottningar
og dræsur
ÞRIÐJUDAGUR
13. maí 2003 – 108. tölublað – 3. árgangur
bls. 22 bls. 28
ÍÞRÓTTIR
Slagur ítölsku
stórliðanna
bls. 18
STJÓRNMÁL Framsóknarflokkurinn
og Sjálfstæðisflokkurinn hefja
stjórnarmyndunarviðræður í dag.
Þingflokkur Framsóknarflokksins
veitti Halldóri Ásgrímssyni, for-
manni flokksins, umboð til þess að
hefja formlegar viðræður á fundi í
gær og þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins veitti Davíð Oddssyni
umboð.
Davíð og Halldór
ræða saman
TÓNLIST Hulda Björk Garðarsdóttir
sópran, Davíð Ólafsson bassi og
Sesselja Kristjánsdóttir mezzó-
sópran flytja tónlist eftir Wolfgang
Amadeus Mozart ásamt Chalu-
meaux-tríóinu á tónleikum í Ís-
lensku óperunni. Tónleikarnir bera
yfirskriftina Mozart fyrir sex og
hefjast klukkan 20.
Mozart fyrir sex
HANDBOLTI ÍR-ingar taka á móti
Haukum í fjórða leik liðanna um
Íslandsmeistaratitilinn í handbolta.
Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir
Hauka og með sigri tryggja þeir
sér titilinn.
Úrslitin geta ráðist
FUNDUR Helga Jónsdóttir, borgarrit-
ari Reykjavíkurborgar, flytur inn-
gangserindi um samkeppnishæfni
opinbera geirans á hádegisfundi í
Háskólanum í Reykjavík. Fundur-
inn hefst klukkan 12.05.
Samkeppnishæfni
hins opinbera
STJÓRNARMYNDUN „Ég mun ganga
til þessara viðræðna með opnum
huga,“ sagði Davíð Oddsson, for-
sætisráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins, að loknum þing-
flokksfundi í gær. „Það var ein-
róma samþykkt að veita mér um-
boð til þess að tala við formann
Framsóknarflokksins um
stjórnarmynd-
un. Þingflokkur-
inn fól mér ekki
að setja Fram-
sóknarflokknum
nein ófrávíkjan-
leg skilyrði í
þessum viðræð-
um. Hins vegar
hefur hver og
einn þingmaður
tjáð sín áherslu-
atriði sem ég
hef skráð hjá mér og mun fara
með sem veganesti í þessar við-
ræður.“
Davíð segir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins einnig hafa farið
yfir mögulegar ráðherraskipting-
ar á þingflokksfundinum. „Þar
hafði hver maður sínar áherslur
líka,“ sagði Davíð, „þannig að
þetta verður ekkert létt eða auð-
velt.“
Hann segir það ekki sjálfgefið
að samkomulag náist milli flokk-
anna. „Reynslan sýnir að ótrúleg-
ustu mál geta dúkkað upp,“ segir
hann. „Ég hef ekki ennþá séð nein-
ar kröfur frá Framsóknarflokkn-
um og hann hefur ekki séð neinar
kröfur frá mér, eða áhersluatriði.“
Í ljósi þess að Sjálfstæðisflokk-
ur hafi tapað fylgi í kosningunum
og Framsóknarflokkur haldið sínu
segist Davíð aðspurður geta tekið
undir það að samningsstaða fram-
sóknarmanna sé ágæt og jafnvel
sterkari en síðast. „En fyrir fjór-
um árum voru sviptingarnar þær
að við unnum eitt þingsæti og þeir
töpuðu þremur. Við notuðum það
ekki til að gera kröfur um að við
fengjum fleiri ráðherrasæti. Það
voru að vísu tillögur um það í mín-
um flokki að það yrði gert. En ég
taldi það ekki vera uppskrift að
góðu samstarfi að strá salti í sár
eftir kosningar.“
Davíð segir ekkert vera útilok-
að þegar og ef kemur að því að
ræða um hver fái forsætisráð-
herrastólinn.
„Við höfum rætt þau mál áður
og ég hef aldrei fengið þá flugu í
höfuðið að ég eigi forsætisráð-
herrastólinn og að hann sé
þinglýst eign mín,“ segir Davíð.
Hann útilokar ekki að setjast í
annan ráðherrastól. „Ég er ekkert
fyrir það að útiloka hlutina.
Reyndar hef ég sagt að dæmin
sýni það að það sé ekkert létt að
hafa gamlan forsætisráðherra í
ríkisstjórninni. En ég myndi
kannski vonast til þess að ég væri
það sveigjanlegur karakter að ég
gæti gert það.“
gs@frettabladid.is
Nánar á síðu 4.
KJARAMÁL Borgarstjóri og borgar-
fulltrúar fá drjúga launahækkun
eftir úrskurð Kjaradóms um laun
ráðherra og alþingismanna.
Laun borgarstjóra eru miðuð
við laun forsætisráðherra, sem nú
hækka um 141 þúsund krónur og
verða 871 þúsund.
Laun borgarfulltrúa eru 80% af
þingfararkaupi alþingismanna,
sem hækkar um 18,7%. Laun
borgarfulltrúanna verða nú 327
þúsund krónur.
Tveir borgarfulltrúar og einn
varaborgarfulltrúi eiga sæti á
næsta Alþingi. Þetta eru Björn
Bjarnason og Guðlaugur Þór
Þórðarson, borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokks, og Helgi Hjörvar,
varaborgarfulltrúi R-listans.
Björn situr í borgarráði og fær
sem slíkur 25% álag á borgarfull-
trúalaunin. Þau nema því 409 þús-
und krónum. Grunnlaun alþingis-
manns eru 437 þúsund krónur.
Samtals nema laun Björns fyrir
þessi tvö trúnaðarstörf því 846
þúsund krónum. Það er um 80 þús-
und krónum meira en óbreyttir
ráðherrar fá.
Guðlaugur Þór fær heldur
minna en Björn sem borgarfulltrúi
og er með 778 þúsund í heildina.
Laun varaborgarfulltrúans
Helga Hjörvar eru 212 þúsund
krónur á mánuði. Að viðbættum
þingmannslaununum verða laun
Helga 687 þúsund krónur.
Nánar bls. 6
„Ég hef
aldrei fengið
þá flugu í
höfuðið að ég
eigi forsætis-
ráðherrastól-
inn.
STA Ð R EY N D UM
MEST
LESNA DAGBLAÐIÐ
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003
22,1%
52,3%
61,7%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
REYKJAVÍK Vestan 5-10 m/s.
Léttskýjað og hiti 4 til 9 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 5-10 Skýjað 4
Akureyri 3-8 Skýjað 2
Egilsstaðir 5-8 Bjart 4
Vestmannaeyjar 5-10 Léttskýjað 8
➜
➜
➜
➜
+
+
Áhrif Kjaradóms á stjórnendur borgarinnar:
Borgarstjóri fær líka 140 þúsund
Davíð útilokar ekki
annan ráðherrastól
Formaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Framsóknarflokksins fengu umboð þingflokka
sinna til stjórnarmyndunar í gær. Davíð Oddsson forsætisráðherra útilokar ekki að
setjast í annað ráðuneyti.
LISTIR
bls. 25
Leggja
sál sína
í verkin
FÓLK
bls. 20
Datt í
beinni
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
DAVÍÐ ODDSSON
Formaður Sjálfstæðisflokksins fékk fullt umboð síns þingflokks til að hefja viðræður
við Framsóknarflokkinn.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Í þingflokki Framsóknarflokksins var sam-
þykkt mótatkvæðalaust að ganga til við-
ræðna við Sjálfstæðisflokkinn.