Fréttablaðið - 13.05.2003, Qupperneq 9
9ÞRIÐJUDAGUR 13. maí 2003
Stökkpallur
í sólina!
Sí›ustu 90 sætin
fiú velur dagsetningu, bókar og grei›ir sta›festingargjald.
Vi› sta›festum svo gistista›inn viku fyrir brottför. Á stökkpalli
fær›u alltaf gistingu á 3ja e›a 4ra stjörnu gistista›.
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666
og hjá umbo›smönnum um land allt
Úrval-Úts‡n
Benidorm
4. og 11. júní
Mallorca
5., 12. og 26. júní
Portúgal
27. maí / 3. og 10. júní
Krít
27. maí / 2. og 9. júní
www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
10
26
05
/2
00
3
49.970 kr.
Aukavika: 12.500 kr.
Aukavika: 20.500 kr.
44.083 kr.*
*
Sta›grei›sluver›:
Sta›greitt á mann í eina viku m.v. 2 fullor›na
og 2 börn 2ja til og me› 11 ára í íbú›
m/1 svefnh. og stofu.
á mann m.v. 2 fullor›na í stúdio/íbú›.
Innifali›:
Flug, gisting, flugvallarskattar
og akstur til og frá flugvelli erlendis
og íslensk fararstjórn.
Sæstrengur yfir
Norðursjó:
Íhuga
samstarf
OSLÓ, AP Norska rafmagnsveitan
hefur lagt fram tillögu um að lagður
verði sæstrengur frá Noregi til
Bretlands til þess að tengja raf-
veitukerfi landanna. Kapallinn yrði
750 kílómetra langur og er áætlaður
kostnaður við framkvæmdina um
85 milljarðar íslenskra króna. Norð-
menn framleiða nánast allt rafmagn
með vatnsorku. Við venjulegar að-
stæður er um umframframleiðslu
að ræða en í þurrkum getur orðið
skortur. Markmiðið er að tryggja
Norðmönnum stöðugan aðgang að
rafmagni og gera þeim kleift að
flytja umframorku til Bretlands. ■
KAUPMANNAHÖFN, DR Danska risa-
fyrirtækið A.P. Möller hefur verið
beðið um að taka þátt í uppbygg-
ingunni í Írak að stríðinu afloknu.
Fyrst og fremst hafa Bandaríkja-
menn áhuga á reynslu A.P. Möller
í birgðahaldi, flutningum og olíu-
vinnslu.
Jess Söderberg, stjórnandi A.P.
Möller-samsteypunnar, segir fyr-
irtækið hafa mikla reynslu af olíu-
vinnslu úr kalkríkum jarðlögum
eins og þeim sem séu í Írak.
„Hvort við eigum að taka þátt
sem ráðgjafar eða taka þátt í hinni
eiginlegu olíuvinnslu er enn ekki
ljóst,“ segir Söderberg.
Danir tóku þátt í innrás Banda-
ríkjamanna og Breta í Írak með
því að leggja til ýmis hergögn.
Fljótlega eftir að Saddam Hussein
hafði verið steypt af stóli tilkynntu
bandarísk stjórnvöld að áður-
nefndar bandalagsþjóðir, ásamt
Áströlum, sem líka tóku þátt í inn-
rásinni, myndu sitja fyrir um upp-
byggingarverkefni í Írak.
Danskir fjölmiðlar segja að
ennfremur hafi verið haft sam-
band við ýmis önnur dönsk verk-
takafyrirtæki vegna Íraks. Þetta
séu fyrirtæki sem sérhæfð séu í
verkum á borð við vegagerð og
skolplagnir. ■
FRÁ PANTANAL
Stærsta votlendi jarðar á undir högg að sækja.
Áfall fyrir náttúruverndarsinna:
Stærsta votlendi
heims í hættu
BRASILÍA, AP Ferðalangar koma frá
fjarlægum stöðum eins og Japan
og Þýskalandi til að skoða fjöl-
breytt dýra- og plöntulíf á Pant-
anal-svæðinu í Brasilíu, stærsta
votlendi heimsins.
Gallinn er bara sá
að það koma ekki
nógu margir.
Fátækt hefur
verið landlæg á
svæðinu um langa hríð og íbúar
svæðisins hafa beðið og vonað að
með því að vernda svæðið og
viðkvæmt vistkerfið fyrir stór-
iðju og mengun mætti vekja
áhuga vaxandi hóps ferðamanna
sem sérhæfa sig í að heimsækja
ósnertar náttúruperlur heimsins.
Þeir eru hættir að bíða. Ferða-
iðnaðurinn, þrátt fyrir aukningu
á ferðamönnum, hefur ekki gefið
heimamönnum það sem vonast
var eftir og hróp eftir annars
konar iðnaði orðin hávær til að
létta slæmt atvinnuástandið.
„Það er hreint kraftaverk að við
skulum yfir höfuð lifa,“ sagði
Maria Vernoque, sem rekur báta-
leigu í stærstu borg svæðisins,
Corumba, þar sem 90 þúsund íbú-
ar draga fram lífið á hvers kyns
braski.
Með jarðveg sem hentar land-
búnaði illa eiga íbúarnir fáa kosti
í stöðunni og náttúruvernd er
munaður sem þeir hafa ekki
lengur efni á. Þess vegna hafa
tillögur borgarstjórans, Jose
Osorio de Santos, vakið bjart-
sýni, en hann vill gera svæðið að
mekka iðnaðar í Brasilíu og byrja
á 3.000 km langri gasleiðslu sem
liggur frá Bólivíu, gegnum
Pantanal, til stórborgarinnar Sao
Paulo.
Náttúruverndarsinnar hafa af
þessu miklar áhyggjur. „Iðnaðar-
uppbygging hér myndi fljótlega
hafa áhrif á Pantanal-svæðið í
heild sinni vegna þess að svæðið
hefur ekkert afrennsli. Þetta er í
raun ein stór tjörn og spilliefni
myndu fljótlega safnast upp og
setja heimkynni 650 tegunda
fugla, 230 tegunda fiska, 1.000
tegunda fiðrilda og yfir 80 spen-
dýra í mikla hættu.“ ■
ALRÍKISLÖGREGLAN
Óttast að tjörn sé full af miltisbrandi.
Miltisbrandur finnst í tjörn:
Komnir á sporið
BANDARÍKIN, AP Bandaríska alrík-
islögreglan, FBI, skýrði frá því
að tjörn ein í Maryland-ríki gæti
verið menguð af miltisbrandi.
Kemur þetta í beinu framhaldi á
rannsókn á bréfum sem send
voru ýmsum aðilum fyrir tæp-
um tveim árum síðan en í þeim
voru miltisbrandsagnir sem
urðu fimm manns að aldurtila.
Segja talsmenn FBI að ein að-
ferð við að koma ögnum í umslag
án þess að viðkomandi sýkist
sjálfur sé að framkvæma verkn-
aðinn undir vatni og hefur það
leitt þá að þessari ákveðnu tjörn.
Til stendur að tæma tjörnina til
öryggis. ■
Hryðjuverkaárásirnar á Balí:
Fyrsti sakborningur fyrir rétt
INDÓNESÍA, AP Réttarhöld eru hafin
yfir fyrsta manninum af 33 sem
ákærðir hafa verið fyrir aðild að
sprengjuárásunum á Balí í októ-
ber á síðasta ári.
Amrozi bin Nurhasyim er gefið
að sök að hafa keypt sendiferða-
bílinn og sprengiefnið sem notað
var í árásunum. Ákæruvaldið hef-
ur undir höndum játningar frá
Amrozi og vitnisburði á annað
hundrað manna auk fjölda sönn-
unargagna. Ef ákærði verður
fundinn sekur á hann yfir höfði
sér dauðadóm.
Vonir er bundnar við það að
réttarhöldin verði til þess að upp-
ræta starfsemi hryðjuverkasam-
takanna Jemaah Islamiyah, sem
talin eru hafa staðið á bak við
árásirnar.
BEÐIÐ UM RÉTTLÆTI
Fjöldi fólks safnaðist saman fyrir utan lögreglustöðina í Denpasar á Balí til þess að biðja
æðri máttarvöld að veita hryðjuverkamönnum makleg málagjöld.
■
„Kraftaverk að
við skulum yfir
höfuð lifa. “
Verkfallsaðgerðir:
46.000 leggja
niður vinnu
SVÍÞJÓÐ Um 46.000 opinberir starfs-
menn í 60 bæjarfélögum í Svíþjóð
hafa hafið tveggja vikna langt verk-
fall. Á meðal þátttakenda í verkfall-
inu eru starfsmenn hreinsunar-
deilda, ræstitæknar og heilbrigðis-
starfsmenn. Ýmis þjónusta við al-
menning verður því skorin veru-
lega niður á meðan á aðgerðunum
stendur. Verkfallsmenn krefjast 5,5
prósenta launahækkunar en at-
vinnurekendur hafa aðeins boðið
þeim 3,2 prósent. Um helgina slitn-
aði upp úr samningaviðræðum og
segja samingaaðilar að ekki sé
grundvöllur fyrir því að taka þær
upp að nýju að svo stöddu. ■
ANDERS FOGH RASMUSSEN
Forsætisráðherra Dana og stjórn hans út-
deila nú verkefnum sem bandarísk stjórn-
völd vilja að Danir vinni vegna uppbygg-
ingar í Írak.
Þátttakan í innrásinni í Írak skilar árangri:
Dönsk fyrirtæki með í Írak