Fréttablaðið - 13.05.2003, Side 10
10 13. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
ÞINGMAÐUR „Nóttin var löng og
spennandi og ef ég væri hamstur
væri ég búinn að fá hjartaáfall,“
segir Magnús Þór Hafsteinsson,
þingmaður Frjálslynda flokksins í
Suðurkjördæmi. Ekki er hægt að
segja annað en að kosninganóttin
hafi verið annasöm hjá Magnúsi.
Hann var kjörinn þingmaður og
kona hans Ragnheiður Runólfsdótt-
ir, sem á von á barni, fór á sjúkra-
hús og leit út fyrir að barnið væri
að koma í heiminn. Svo varð ekki og
nú er bara að bíða.
Magnús Þór segir baráttuna
hafa verið mjög skemmtilega, en
strembna. Hann segir leiðinlegt að
Margrét Sverrisdóttur hafi ekki
náð kjöri og það sé mikill missir.
Flokkurinn hafi þó unnið stórsigur
og hafi verið að styrkjast mjög á
landsvísu, Frjálslyndir séu komnir
til að vera.
„Stjórnarandstaðan vann þessa
orrustu. Nú á bara eftir að vinna
stríðið.“ Hann segir að sú tilfinn-
ing að hafa náð kjöri sé mjög góð.
Þegar búið er að vinna lengi og
hart að ákveðnu markmiði kemur
þó einhver tómleikatilfinning.
Magnús ætlar að hefja vinnu sína
sem þingmaður strax í næstu
viku. Ferðast og hitta fólk í sínu
kjördæmi og tala við það um
framtíðina. „Ég vil helst sjá okkur
komast í stjórn, við erum tilbúin
til að ræða við hvern sem er,“ seg-
ir Magnús Þór. ■
MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON
Frjálslyndir tilbúnir til viðræðna um stjórnarmyndun.
Magnús Þór Hafsteinsson alþingismaður:
Löng og
spennandi nótt
Menntaskólinn á
akureyri:
Nýr skóla-
stjóri ráðinn
SKÓLAMÁL Menntamálaráðherra
hefur skipað Jón Má Héðinsson í
embætti skólameistara Mennta-
skólans á Akureyri til fimm ára
frá 1. ágúst. Hann tekur við af
Tryggva Gíslasyni.
Jón Már hefur starfað við MA
frá árinu 1980. Hann var
áfangastjóri frá árinu 1990 til
1996 og frá árinu 1996 hefur
hann gegnt starfi aðstoðarskóla-
meistara. Sjö umsóknir bárust
um stöðuna. ■
LEIKSKÓLAR „Við afhentum Þorláki
Björnssyni, for-
manni leikskóla-
ráðs, undirskrifta-
lista sem við höfð-
um áður sent þegar
hann mætti á fund-
inn,“ segir Sigríður
Guðlaugsdóttir for-
eldri. 340 undir-
skriftir voru á list-
anum þar sem for-
eldrar kröfðust
þess að málið yrði
tekið upp að nýju og niðurgreiðsl-
ur til barna í einkareknum leik-
skólum yrðu auknar til jafns á við
niðurgreiðslur til barna í Leikskól-
um Reykjavíkur.
Sigríður segir að tæplega
fjörutíu foreldrar hafi mætt við
skrifstofur Leikskóla Reykja-
víkur þegar fulltrúar leikskóla-
ráðs mættu einn af öðrum. Þar
afhentu foreldrarnir fulltrúun-
um rós með snuði á. „Við vorum
að minna á að okkur er alvara og
sýna að við erum foreldrar en
ekki fólk í kosningabaráttu.“
„Í tilefni mótmælanna drógu
Sjálfstæðismenn fram sína fyrri
tillögu óbreytta og tekin var
óbreytt afstaða. Því fylgdu tvær
bókanir, annars vegar af hálfu
Sjálfstæðisflokks og hins vegar
af hálfu R-listans,“ segir Þorlák-
ur Björnsson, formaður leik-
skólaráðs. Hann segir að mót-
tökur sem þessar verði til þess
að málin verði hugsuð aftur.
Málið sé í ákveðnum farvegi og
stöðugri endurnýjun, en að
óbreyttu sé stefna R-listans sú
sama.
Sigríður segir að það hafi ver-
ið gífurleg vonbrigði að tillagan
hafi verið felld. Segir hún að
munur á niðurgreiðslunum sé
rúmlega tíu þúsund krónur og að
leikskólarnir séu ekki að bjóða
þeim upp á pláss. „R-listinn er
ekki að standa við kosningalof-
orð, lofað var að öll börn frá átján
mánaða aldri kæmust inn á leik-
skóla. Björk Vilhelmsdóttir sagði
í gær að öll tveggja ára börn
fengju leikskólapláss. Sjálf er ég
með tvö tveggja og hálfs árs börn
sem ekki eru komin inn. Ann-
aðhvort vita þau ekki hver staðan
er og eru að byggja á röngum
upplýsingum eða þau vilja hrein-
lega ekki sjá það. Við eigum eftir
að skoða hvert næsta skref verð-
ur en þetta er ekki niðurstaða
sem við sættum okkur við, það er
alveg ljóst,“ segir Sigríður Guð-
laugsdóttir.
hrs@frettabladid.is
KOMU TIL AÐ MINNA Á SIG
Foreldrarnir færðu fulltrúum leikskólaráðs rós með snuði.
Óbreytt afstaða
leikskólaráðs
Um fjörutíu foreldrar barna í einkareknum leikskólum mættu fyrir
utan fundarstað þegar leikskólaráð kom saman til að ræða mál þeirra.
Foreldrar eru ósáttir við niðurstöðu fundarins.
■
„Við eigum eftir
að skoða hvert
næsta skref
verður en þetta
er ekki niður-
staða sem við
sættum okkur
við, það er al-
veg ljóst.“
SVEITARSTJÓRNIR Landssíminn hef-
ur sent Hafnarfjarðarbæ form-
lega athugasemd vegna bókunar
skipulagsráðs um kapalkerfi fyr-
irtækisins í bænum.
Ráðið harmaði að Norðurljós
hf. gætu ekki dreift fjölvarpi sínu
um kerfi Landssímans í þeim
hverfum Hafnarfjarðar þar sem
bannað hefur verið að setja upp
útiloftnet. Loftnetabanninu var
síðan aflétt. Í bókuninni er harm-
að að Síminn hafi komið í veg fyr-
ir að allir aðilar á markaði hafi
getað notað dreifikerfið líkt og
áður en hann eignaðist það. „Það
er rangt að allir aðilar á markaði
hafi getað notað dreifikerfið á
meðan það var í eigu Rafveitu
Hafnarfjarðar, enda er flutnings-
getan í kerfinu takmörkuð,“ segir
í bréfi Landssímans. Þar segir
einnig að þegar fyrirtækið keypti
dreifikerfið í júní í fyrra hafi ekki
farið á milli mála hvernig það
hygðist haga rekstri þess:
„Síminn telur mjög ómaklegt
að sitja undir aðfinnslum úr
stjórnkerfi Hafnarfjarðarbæjar
vegna atriða sem gengið var frá í
fullu samráði við yfirstjórn bæj-
arins.“ ■
Síminn gerir athugasemd við bókun:
Ómakleg gagnrýni
FJÖLDI ÞEIRRA SEM HAFA
LÁTIST VEGNA ALNÆMIS
Á ÍSLANDI
1992 2
1993 8
1994 5
1995 3
1996 1
1997 1
1998 0
1999 1
2000 1
Heimild: Hagstofa Íslands
Svonaerum við
Undirbúningsnámskeið fyrir bóklegt próf á
dráttarvél verður haldið í Ökuskólanum í
Mjódd, Þarabakka 3, Reykjavík 24. maí
2003 frá kl 10:00 til
15:30 Undirbúningur
fyrir verklegt próf verð-
ur í samráði við nem-
endur.
Innritun
í síma 567-0300
Dráttarvélanámskeið
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M