Fréttablaðið - 13.05.2003, Síða 14
■ Lögreglufréttir
15ÞRIÐJUDAGUR 13. maí 2003
L J Ó S M Y N D A S T Ú D Í Ó
P É T U R P É T U R S S O N
STRÆTÓ STOLIÐ Strætisvagni var
stolið fyrir utan skiptistöðina við
Mjódd um miðnætti í fyrrinótt.
Vagnstjórinn hafði brugðið sér inn
í aðstöðu bílstjóranna en þegar
hann kom út skömmu síðar var
vagninn horfinn. Lögreglan fann
vagninn skömmu síðar við Dverga-
bakka, mannlausan og óskemmdan.
Þjófurinn er ófundinn.
ÁTTATÍU ÖKUMENN SEKTAÐIR Lög-
reglan í Kópavogi hafði afskipti af
á áttunda tug ökumanna vegna um-
ferðarlagabrota. Þrír ökumenn
voru kærðir vegna gruns um ölvun
við akstur, ríflega tuttugu vegna of
hraðs aksturs, fjórtán vegna þess
að þeir notuðu ekki öryggisbelti
við akstur og afgangurinn vegna
ýmissa umferðarlagabrota.
VIÐSKIPTI Hagnaður Baugs Group á
árinu 2002 nam 7,4 milljörðum eft-
ir skatta. Stærstan hluta hagnaðar-
ins má rekja til fjárfestinga Baugs
id í Bretlandi. Heildarvelta félags-
ins nam 52 milljörðum.
„Síðastliðið ár var að mörgu
leyti sérstakt. Baugur Group skil-
aði mesta hagnaði sem íslenskt
fyrirtæki hefur skilað á einu ári og
við erum ánægð með þann árang-
ur. Stærsti hluti hagnaðarins
myndaðist hjá Baugi id, sem náð
hefur framúrskarandi árangri í
starfsemi sinni sem er að mestu
leyti í Bretlandi. Þá er mjög
ánægjulegt að Baugur Ísland var
rekinn með hagnaði þótt enn sé
nokkuð í land með að afkoma á inn-
lendum rekstri geti talist viðun-
andi. Þá var afkoma hlutdeildarfé-
laga einnig með ágætum. Baugur
Ísland skilaði hagnaði á árinu.
Kostnaðaraðhald og aukin hagræð-
ing hafa skilað sér í bættri rekstr-
arafkomu,“ sagði Jón Ásgeir Jó-
hannesson, forstjóri Baugs.
Ekki var góð afkoma af öllum
rekstri Baugs, en hlutur félagsins í
tapi Bonus Stores í Bandaríkjunum
nam 1,6 milljörðum króna. Hluta
tapsins má rekja til kostnaðar við
lokun óarðbærra verslana. ■
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON
Baugur hagnaðist meira á síðasta ári en
dæmi eru um hjá íslenskum fyrirtækjum.
Baugur:
Mesti hagnaður
íslenskra fyrirtækja
Þorlákshöfn:
Tveir skorn-
ir með hnífi
LÖGREGLUMÁL Ráðist var á ungan
mann við Skálholtsbraut í Þor-
lákshöfn á sunnudagsmorgun og
hann stunginn í hendi með hnífi.
Árásarmaðurinn ók á Audi-
bifreið burt frá Þorlákshöfn en
þrátt fyrir leit fannst bíllinn
ekki. Sá særði var fluttur til
læknis og gert að sárum hans,
sem voru ekki alvarleg.
Á svipuðum tíma var ráðist á
annan mann í Þorlákshöfn og
hann skorinn í andlitið með
dúkahníf. Maðurinn er ekki al-
varlega slasaður en hann hefur
lagt fram ákæru og er málið í
rannsókn. ■
ÍRAK, AP/WASHINGTON POST Á einu
helsta olíusvæði Íraka, í kringum
Kirkuk í norðurhluta landsins,
eykst framleiðslan hægt og bít-
andi og er komin í 60 þúsund
tunnur á dag. Þótt það hljómi eins
og talsvert magn er það dropi í
hafið miðað við þær 850 þúsund
tunnur á dag sem framleiddar
voru fyrir stríð.
Það er margt sem hamlar því
að lífið komist aftur í sama horf og
það var fyrir íbúa Írak, hvað þá að
það lagist eins og fyrirætlanir
bandamanna stefna að, en án olíu-
peninga til að greiða fyrir herleg-
heitin er ólíklegt að árangurinn
uppfylli væntingar landsmanna.
Olían er þungamiðja Íraks og
án hennar væri landið í sömu
þrengingum og nágrannaríkið
Afganistan. Á meðan ekki næst að
koma framleiðslu á það stig sem
var fyrir stríðið er vonlítið að bæta
megi margs konar félagsleg
vandamál innan landsins. Jafnvel
þó að það náist innan tíðar hefur
það ekkert að segja nema að Sam-
einuðu þjóðirnar ákveði að lyfta
viðskiptabanninu sem verið hefur
á þjóðinni síðan í fyrra Flóastríði.
Þrátt fyrir að sá þröskuldur verði
yfirstiginn kemur til sögunnar það
vandamál að flestar olíuleiðslur
sem Írakar hafa notað til að flytja
olíu til annarra landa eru annað
hvort laskaðar eða ónýtar.
Það stendur eftir að loforð
bandamanna um uppbyggingar-
starf í Írak er háð því hversu
fljótt tekst að koma olíufram-
leiðslunni á rétt stig og fella við-
skiptabannið niður, en sú tillaga
liggur einmitt fyrir þjóðarráði
Sameinuðu þjóðanna. ■
Stríðsglæpadómstóllinn:
Vitnar gegn
Milosevic
SLÓVENÍA, AP Milan Kucan, fyrrum
forseti Slóveníu, mun bera vitni
fyrir hönd ákæruvaldsins í réttar-
höldunum gegn Slobodan Milos-
evic við stríðsglæpadómstólinn í
Haag.
Kucan hefur ítrekað verið yfir-
heyrður af rannsóknaraðilum á
undanförnum mánuðum. Búist er
við því að hann muni greina frá
atburðum sem áttu sér stað þegar
Júgóslavía klofnaði árið 1991. Þá
gegndi hann embætti forseta Sló-
veníu og var einn af leiðtogum
kommúnista þar í landi. ■
OLÍUVINNSLUSTÖÐ
Mikið verk óunnið áður en olían fer að flæða aftur.
Olían gegnir meginhlutverki:
Mikið verk óunnið í Írak
SLOBODAN MILOSEVIC
Mætir til réttarhalda í Haag.