Fréttablaðið - 13.05.2003, Qupperneq 16
ÞRIÐJUDAGUR 13. maí 2003
KÖNNUN, GALLUP Samkvæmt víð-
tækri könnun sem Alþjóðadeild
Gallup stóð fyrir í yfir 40 löndum
í heiminum finnst fáum veröldin
betri eða öruggari eftir stríðið í
Írak. Þvert á móti þykir
flestum sem þátt tóku
meiri líkur á hermdar-
verkum í heiminum.
Könnunin, sem tók til
ýmissa þátta varðandi
viðhorf íbúa heimsins
eftir Íraksstríðið, bendir
einnig til að fólki finnist
stjórn Bandaríkja-
manna helst til hernað-
arglöð.
Sameinuðu þjóðirnar fá skell
samkvæmt sömu könnun. Fólk
telur að þau hafi beðið talsverðan
hnekki fyrir afstöðu sína og að-
gerðir áður en stríðið hófst.
Einnig eru margir á
þeirra skoðun að Samein-
uðu þjóðirnar eigi að taka
virkari þátt í uppbygg-
ingu Írak en nú er til að
standa undir nafni.
Sú skoðun er líka út-
breidd að ekki komist
friður á í Miðausturlönd-
um fyrr en deila Ísraela
og Palestínumanna verð-
ur til lykta leidd. ■
Hildur Jónsdóttir:
Vantar
stuðning
Konur í öllum flokkum hafa haftmetnað til að bjóða sig fram en
virðast ekki fá nægan stuðning
innan síns flokks,“ segir Hildur
Jónsdóttir, jafnréttisráðgjafi hjá
Reykjavíkurborg.
Hildur segir að flokkarnir
mættu leggja meiri áherslu á hlut
kvenna á milli kosninga, ekki að-
eins rétt fyrir þær. Hún segir að á
sama tíma og jafnréttismál hafi
komið sterkt inn í kosningabarátt-
una hafi ekki tekist að tryggja
hlut kvenna. Flokkarnir mættu
vera meðvitaðri um að hlutur
kvenna í starfi flokkanna skiptir
miklu máli. Hún telur konur hafa
ekki minni áhuga, heldur hafi þær
ekki sama stuðning og karlarnir.
„Þeir koma oft úr ættum þar sem
hefð er fyrir þátttöku í pólitík og
næstum erfa þingsæti, það sama
virðist ekki vera uppi á teningn-
um hvað konur varðar. Þátttaka
kvenna í ungliðahreyfingum
flokkanna er mun minni en strák-
anna og þar er aðgengi þeirra oft
erfiðara. Allir flokkar lofuðu stór-
um breytingum í jafnréttismálum
og það verður gaman að sjá hvort
ungu mennirnir sem komust inn á
þing í þessum kosningum munu
vera ötulir talsmenn þess.“ ■
Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir:
Fyrirsjáan-
leg fækkun
Sigríður Dúna Kristmundsdótt-ir, prófessor í mannfræði, segir
fækkun kvenna á Alþingi hafa
verið fyrirsjáanlega vegna slaks
gengis þeirra í prófkjörum. Jafn-
vel gæti þurft að endurskoða
prófkjör í þessu tilliti eða nota
prófkjör samhliða annarri aðferð
við uppröðun á lista til að bæta
stöðu kvenna. Sigríður Dúna telur
konur alls ekki skorta vilja til
þess að taka þátt í stjórnmálum,
þrátt fyrir að stjórnmálin séu ekki
að öllu leyti kvenvinsamleg.
Hún vonast þó til að konur
muni bæta hlut sinn á komandi
árum. Karlmenn taki sífellt meiri
þátt í störfum heimilisins og
barnauppeldi. Löggjöf um rétt
karla til fæðingarorlofs sé mjög
mikilvæg í því sambandi.
Að lokum bendir Sigríður Dúna
á að fækkun kvenna á Alþingi ein-
skorðist ekki við þingflokk Sjálf-
stæðisflokksins. Engin kona hafi
verið kosin á þing fyrir hönd
Frjálslynda flokksins og af sjö
nýjum þingmönnum Samfylking-
ar séu fimm karlmenn. ■
KARLAR Í MIKLUM
MEIRIHLUTA Á ÞINGI
Þingflokkarnir gera konum
ekki nógu hátt undir höfði og
jafnrétti á Alþingi fer aftur.
SADDAM FARINN
Það virðist þó ekki
gera heiminn öruggari.
Skoðanakönnun Gallup:
Óttast hefndir