Fréttablaðið - 19.05.2003, Qupperneq 11
11MÁNUDAGUR 19. maí 2003
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
S
PV
2
09
84
05
/2
00
3
hjá okkur
Vertu
Sérhver viðskiptavinur og allt sem tengist
fjármálum hans hefur meira vægi hjá SPV en hjá stórum fjár -
málastofnunum.
Njóttu þess að vera viðskiptavinur hjá SPV, öflugri fjármála-
stofnun sem stendur þétt að baki þér og veitir alhliða og
persónulega fjármála þjónustu.
Komdu til okkar og ræddu málin.
Vertu með í hópi ánægðustu viðskiptavina fjármálafyrirtækja
á Íslandi*.
Það er ekkert einfaldara en að flytja öll bankaviðskipti yfir til
okkar. Þú tekur ákvörðun og við sjáum um flutninginn.
* Skv. mælingum Íslensku ánægjuvogarinnar, en að henni standa
Gæðastjórnunarfélag Íslands, Samtök iðnaðarins og Gallup.
SPV - Borgartúni 18, Hraunbæ 119, Síðumúla 1; Þjónustuver, sími 5754100
EFNAHAGSLÍF Ísland hækkar úr ell-
efta sæti í það níunda í mælingu á
samkeppnishæfi ríkja þar sem búa
innan við 20 milljónir einstaklinga.
Skýrsluhöfundar komast að
þeirri niðurstöðu að skilvirkni
hvort tveggja hins opinbera og
markaðarins hafi aukist. Skil-
virkni hins opinbera skilar landinu
í sjöunda sætið en skilvirkni mark-
aðarins gerir enn betur og raðast í
þriðja sæti. Staða efnahagslífsins
fellur hins vegar úr 17. í 26. sæti,
einkum vegna laks vaxtar vergrar
landsframleiðslu og hárrar verð-
bólgu. Innviðir viðskiptalífsins
detta úr fjórða í níunda sæti og er
fundið að því að ekki sé lögð nógu
mikil áhersla á rannsóknir og þró-
un hérlendis.
Skýrslan er unnin af sviss-
neska viðskiptaháskólanum IMD í
59 löndum og í samstarfi við Há-
skólann í Reykjavík um fram-
kvæmdina hér á landi. Skýrslu-
höfundar segja að auka þurfi
fjölda þeirra sem öðlast háskóla-
gráðu, auka frumkvöðlamenningu
á öllum stigum menntakerfisins,
varðveita stöðugleika í hagkerf-
inu, hvetja til frekari fjárfestinga
erlendra aðila og auka framboð á
skilvirku fjármagni fyrir ný fyr-
irtæki. ■
SEÐLABANKINN
Spáir 1,9% verðbólgu á árinu.
Seðlabankinn:
Vextir
óbreyttir
EFNAHAGSMÁL Vextir Seðlabankans
standa óbreyttir eftir að bankinn
kynnti verðbólguspá sína. Bank-
inn spáir 1,9% verðbólgu á árinu,
litlu minni en áður var gert ráð
fyrir. Því er einnig spáð að verð-
bólga fari yfir verðbólgumarkmið
á fyrstu mánuðum ársins 2005.
Verðbólga var 2,2% í maí og hafði
aukist nokkuð frá áramótum.
Seðlabankinn spáir því að hag-
vöxtur verði 2,5% í ár, undir vexti
framleiðslugetu. Hagvöxtur á að
aukast á næsta ári og verða
3,25%. ■
Kjördæmabreyting:
Þingsæti
flutt suður
KOSNINGAR Landskjörstjórn stað-
festi flutning eins þingsætis úr
Norðvesturkjördæmi til Suðvestur-
kjördæmis á fundi sínum á föstu-
dag. Flutningur þingsætisins er lög-
bundinn þar sem kjósendur á bak
við hvern þingmann í kraganum
voru rúmlega tvöfalt fleiri en í hinu
víðfeðma Norðvesturkjördæmi.
Eftir breytinguna verða níu
þingmenn í Norðvesturkjördæmi
en 12 í Suðvesturkjördæmi og hver-
gi fleiri. Þá verða 72,7% fleiri kjós-
endur á bak við hvern þingmann í
kraganum en Norðvesturkjör-
dæmi. ■
Ísland í níunda sæti fámennari ríkja:
Samkeppnis-
hæfi eykst
FLEIRI LJÚKI HÁSKÓLANÁMI
Eitt af því sem skýrsluhöfundar benda á sem leiðir til að auka samkeppnishæfi
Íslands er að auka fjölda þeirra sem ljúka háskólanámi.