Fréttablaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 12
19. maí 2003 MÁNUDAGUR Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Bi llu nd Bi llu nd DANMÖRK Beint leiguflug me› ICELANDAIR 4. j ún í - 4 . se pt . 21 .6 52 21 .6 52 V er › fr á kr. á mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman. Innifalið er flug og flugvallarskattar. Ef 2 ferðast saman, 24.950 kr á mann. Takmarkað sætaframboð CASABLANCA, AP Yfirvöld í Marokkó telja að íslamskur öfgahópur tengd- ur hryðjuverkasamtökunum al- Kaída hafi staðið á bak við sjálfs- morðsárásirnar í Casablanca á föstudagskvöldið. Að minnsta kosti 41 maður fórst og á annað hundrað særðust þegar sprengjur sprungu á fimm stöðum í borginni, við menningarmiðstöð gyðinga, í kirkjugarði, á spænskum veitingastað, á hóteli og við skrif- stofu belgíska ræðismannsins. Á meðal þeirra sem létust voru þrett- án hryðjuverkamenn. Lögreglan í Marokkó hefur þeg- ar handtekið yfir 30 manns í tengsl- um við sprengjuárásirnar. Grunur leikur á að öfgasamtökin Salafia Ji- hadia hafi staðið á bak við tilræðin en þau eru talin eiga í samstarfi við al-Kaída. Allt bendir til þess að árásirnar hafi verið vandlega skipulagðar. Að sögn innanríkisráð- herra landsins skiptu hryðjuverka- mennirnir sér í fimm hópa og voru ýmist með sprengjur í bílum eða festar utan á líkama sinn. Einn mannanna lifði af og er nú í haldi marokkósku lögreglunnar. Þó flestir hinna látnu hafi verið Marokkóar virðist sem árásunum hafi fyrst og fremst verið beint að gyðingum og Spánverjum sem voru einhverjir helstu bandamenn Bandaríkjanna í stríðinu gegn Írak. George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur boðið yfirvöldum í Marokkó aðstoð við að hafa hendur í hári þeirra sem beri ábyrgð á ódæðis- verkunum. Hann sagði árásirnar enn eina sönnun þess að stríðinu gegn hryðjuverkum sé ólokið. ■ Á fimmta tug manna fórust í sprengjuárásum: Íslömsk öfgasamtök grunuð um ódæðisverkin BELGÍSKA RÆÐISMANNSSKRIFSTOFAN Skrifstofur belgíska ræðismannsins í Casablanca urðu fyrir töluverðum skemmdum þegar sprengja sprakk við veitingastað skammt frá. Tveir lögreglumenn sem stóðu fyrir utan bygginguna létu lífið og öryggisvörður særðist. ÖRVÆNTINGAFULLIR SYRGJENDUR Hópur marokkóskra kvenna mætir á Azerroes-sjúkrahúsið í Casablanca til þess að sækja jarðneskar leifar ástvina sinna sem fórust í hryðjuverkaárásunum á föstudagskvöldið. ÁSTVINUR KVADDUR Ættingjar og vinir eins fórnarlamba sprengjuárásanna í Casablanca á föstudagskvöldið safn- ast saman við kistu hins látna. Að minnsta kosti 28 óbreyttir borgarar fórust í árásunum. AP /M YN D IR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.