Fréttablaðið - 19.05.2003, Side 39
MÁNUDAGUR 19. maí 2003
Gamlir og góðir MR-ingar semútskrifuðust 1973 voru með
mikinn 30 ára stúdentsfagnað á
laugardag. Þar gerðu margir þjóð-
kunnir menn
sér glaðan
dag. Páll Bald-
vin Baldvins-
son, Össur
Skarphéðins-
son, Mörður
Árnason, Karl
Valgarður
Matthíasson
og Tinna
Gunnlaugs-
dóttir. Hófst
fagnaðurinn snemma með því að
hópurinn gekk tvo tíma að MR-seli
ofan við Hveragerði þar sem skál-
að var í kampavíni af miklum móð.
Þaðan færðist gleðin í ýmis sam-
kvæmi víða um borgina en endaði
með miklum mannfagnaði á Grand
Hótel. Þar var aðalræðumaður
kvöldsins Guðmundur Þorsteins-
son hjá JPV forlagi. Þetta virðist
ákaflega vinstri sinnaður árgang-
ur. Þó munu margir íhaldsmenn
vera í hópnum. Þeir virðast hafa
lagt eitthvað annað en stjórn-
málavafstur fyrir sig.
Hafið eftir Baltasars Kormákshefur verið tekin til sýninga í
New York. Kvikmyndagagnrýnandi
New York Times fjallaði um mynd-
ina og segir hana annað hvort „grá-
glettna kómedíu þar sem gálga-
húmorinn veður uppi“ eða „eitt
bitrasta fjölskyldudrama“ sem hef-
ur ratað á hvíta tjaldið, allt eftir því
hvaða augum menn líta hana. Hann
segir subbulegt sjávarplássið full-
komlega á skjön við þá svölu ímynd
sem Ísland hefur í hugum kana.
Persónur myndarinnar eru sagðar
yfirgengilegar, kómískar og um
leið kvikindislegar. Þá minni geð-
veiki og sjálfseyðingarhvöt aðal-
persónanna gagnrýnandann einna
helst á persónur myndarinnar
Festen, og þær séu þess eðlis að
maður elski að hata þær og myndin
sé því líkleg til þess að ylja „öllum
mannhöturum um hjartaræturnar.“
Fréttiraf fólki
Stórsöngkona í heimsókn
TÓLEIKAR Nýsjálenska stórsöng-
konan Kiri te Kanawa mun
sækja Ísland heim í haust. Þessi
heimsfræga sópransöngkona
mun halda tónleika í Háskólabíói
þann 15. nóvember. Ferill te
Kanawa, sem fæddist á Nýja-
Sjálandi árið 1944, er einkar
glæsilegur. Það var hinn heimsk-
unni hljómsveitarstjóri Sir Colin
Davis sem kom auga á hæfileika
hennar þegar hún söng lítið hlut-
verk í óperu sem hann stjórnaði.
Árið 1971 söng hún hlutverk
greifynjunnar í óperu Mozarts,
Brúðkaupi Fígarós, í Covent
Garden. Þar með var hún komin
í hóp eftirsóttustu söngkvenna
heims. Fáar söngkonur þykja
fara betur með hlutverk
greifynjunnar. Íslenskir tónlist-
arunnendur geta því glaðst að fá
að hlýða á söng Kiri te Kanawa í
haust. ■
KIRI TE KANAWA
Hún er í hópi eftirsóttustu listamanna
heims. Í nóvember mun hún heimsækja
Ísland og halda tónleika.