Fréttablaðið - 12.08.2003, Side 2

Fréttablaðið - 12.08.2003, Side 2
2 12. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR Það mætti vera hlýrra, en það kæmi enn frekar niður á heitavatnssölu. Helgi Pétursson er verkefnisstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, en hlýju veðri er kennt um að sala á heitu vatni hefur dregist saman. Spurningdagsins Helgi, er of heitt úti? ■ Lögreglufréttir Aðild útilokuð í núverandi stöðu Framkvæmdastjóri LÍÚ deilir ekki skoðun Franz Fischlers á því að möguleiki sé á því að Íslendingar geti tryggt hagsmuni sína innan nú- verandi kerfis ESB. Aðild færi okkur enga nýja möguleika. EVRÓPUUMRÆÐAN LÍÚ telur engin merki þess að hægt sé að hægt sé að finna lausn sem íslenskur sjáv- arútvegur sætti sig við innan nú- verandi reglna Evrópusambands- ins. Franz Fischler, sem fer með sjávarútvegsmál innan fram- kvæmdastjórnar ESB, segist þess fullviss að hægt sé að finna slíka lausn innan núverandi kerfis. Reglur ESB kveða á um að sam- bandið fari með forræði fiskimiða utan 12 mílna marka. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, telur reynsl- una af viðræðum um kolmunna- veiðar ekki benda til þess að óhætt sé að láta ESB eftir forræðið yfir fiskistofnunum. „Þá myndi fram- kvæmdastjórn ESB fara með samningsforræðið. Hverra hags- muna myndu þeir gæta? Það er úti- lokað eins og staðan er núna að við gætum fallist á forræði ESB. Þetta snýst um það hvort maður sjálfur gætir hagsmuna sinna eða einhver sem hefur aðra hagsmuni.“ Friðrik segir enga nýja mögu- leika opnast fyrir íslensk fyrirtæki með aðild. „Við höfum alla mögu- leika nú. Við metum samskiptin við Evrópusambandið og þjóðir þess mjög mikils. Það er grund- vallaratriði að við leggjum upp úr góðum samskiptum við það. Hags- munirnir eru hins vegar ólíkir. Það þarf ekkert að vera neikvætt við það.“ Friðrik segir breytingar í sjáv- arútvegsstefnu ESB skref í rétta átt. Íslendingar séu í mjög nánu og góðu sambandi við Evrópusam- bandið. „Ég er sannfærður um það að Fischler vinnur að þessum breytingum af heilindum.“ Hann bendir á að Fischler hafi sjálfur sagt að breytingarnar næðu ekki nógu langt, meðal annars vegna þess að þjóðir eins og Spánverjar hafi staðið gegn breytingum. „Þannig gerast kaupin á eyrinni og það er ekkert óeðlilegt við það að við getum ekki gengið inn undir þeim skilmálum.“ haflidi@frettabladid.is SJÁVARÚTVEGSMÁL Vestfirðingar undirbúa stórfund á Ísafirði vegna þess sem smábátamenn vestra kalla brotin loforð stjórn- arflokkanna. Guðmundur Hall- dórsson, formaður smábátafé- lagsins Eldingar, hyggst brýna stjórnarflokkana á því að standa við loforð um að tekin verði upp línuívilnun. Hann segir að ríkis- stjórnin eigi loforðum þessum líf sitt að þakka og sama mál geti kostað að hún falli. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður línumálið rætt utan dagskrár á ríkis- stjórnarfundi að frumkvæði Halldórs Ásgrímssonar utanrík- isráðherra. Málið er allt hið vandræðalegasta þar sem Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði fyrir kosningar að hann sæi ekk- ert því til fyrirstöðu að taka upp línuívilnun strax í haust. Þrátt fyrir að í stefnuyfirlýsingu rík- isstjórnarinnar sé tekið fram að auka skuli byggðakvóta og taka upp línuívilnun hefur Árni Mathiesen sjávarútvegsráð- herra stillt málum þannig upp að afnema beri byggðakvóta til að taka upp línuívilnun. Hann hefur sagt að ekki sé hægt að uppfylla loforð um línuívilnun nema með lagabreytingu og það geti því ekki orðið fyrr en á næsta fiskveiðiári. Sjávarút- vegsráðherra hefur sagt að hann hafi haft um þetta fullt samráð við Halldór Ásgrímsson. Kristinn H. Gunnarsson, flokks- bróðir Halldórs, hefur sagt að sjávarútvegsráðherra eigi að víkja ef hann geti ekki staðið við þetta loforð. Kristinn segist ekki munu standa að því að brjóta þessi loforð og hótar þannig að hætta stuðningi við ríkisstjórn- ina. ■ Rannsókn á dauða bresks vopnasérfræðings: David Kelly braut starfsreglur LUNDÚNIR, AP Vopnasérfræðingur- inn David Kelly átti að vera með- vitaður um það að honum væri ekki heimilt að ræða mál sem hefðu pólitíska þýðingu án sam- þykkis yfirmanna sinna hjá varn- armálaráðuneytinu, að sögn starfsmannastjóra ráðuneytisins. Richard Hatfield, sem kallaður var til yfirheyrslu vegna rann- sóknar á sjálfsmorði Kellys, við- urkenndi að það hefði verið hluti af starfi sérfræðingsins að ræða við fjölmiðla. Hann sagði aftur á móti að það hefði komið sér á óvart að Kelly skyldi ekki hafa fylgt reglum um samskipti opin- berra embættismanna við fjöl- miðla sem meðal annars kveði á um að þeir megi hvorki ræða leynilegar upplýsingar né pólitísk mál. Kelly, sem starfaði sem ráð- gjafi bresku leyniþjónustunnar MI6 og varnarmálaráðuneytisins, hafði aðgang að leynilegum gögn- um eftir því sem við átti, að sögn Hatfield. Í frétt BBC um skýrslur bresku ríkisstjórnarinnar varð- andi vopnaeign Íraka var vitnað í Kelly sem háttsettan heimildar- mann innan leyniþjónustunnar. Ýmsir hafa sett spurningarmerki við þessa skilgreiningu og er staða Kellys því eitt af þeim atrið- um sem rannsóknin beinist að. ■ Skýrr yfirtekið: Opin kerfi ná 90% VIÐSKIPTI Opin kerfi hafa eignast 92,6% hlutafjár í Skýrr með kaupum á 19,5% hlut í gær. Þar með er fyrirtækið búið að ná þeim mörkum að afgangur hlut- hafa er skyldugur til þess að selja sinn hlut á verði yfirtökutil- boðsins. ■ LUNDÚNIR Lögreglan í Lundúnum hefur aukið viðbúnað sinn vegna viðvarana sem borist hafa frá Bandarísku alríkislögreglunni FBI um að hryðjuverkasamtökin al Kaída séu að skipuleggja árásir í borginni, að því er frá er greint í breska dagblaðinu The Independent. Verið er að þjálfa lögreglu- menn höfuðborgarinnar í því að bera kennsl á hryðjuverkamenn og bregðast við sjálfsmorðsárás- um. Samkvæmt upplýsingum FBI hefur liðsmönnum al Kaída fjölg- að verulega í Bretlandi og má bú- ast við því að þeir séu að undirbúa árásir í landinu. Fréttastofan AP greinir frá því að áformuð sé æfing í næsta mán- uði þar sem settar verða á svið sýkla- og efnavopnaárásir. ■ Hryðjuverk: Bretar í við- bragðsstöðu NEÐANJARÐAR Haldin verður æfing í næsta mánuði þar sem settar verða á svið hryðjuverkaárásir í neðanjarðarlestakerfi Lundúna. Orkuveita Reykjavíkur: Fimm pró- sent hækkun ORKUVEITAN Lagt verður til á stjórn- arfundi Orkuveitu Reykjavíkur í dag að verð á heitu vatni hækki um rúmlega fimm prósent og verð á raforku hækki um rúmt eitt pró- sent. „Eins og fram hefur komið hef- ur sala á heitu vatni dregist mjög verulega saman bæði á þessu ári og síðasta ári,“ segir Alfreð Þor- steinsson, formaður stjórnar Orkuveitunnar. „Það er tillaga for- stjóra fyrirtækisins að vegna þess- ara óvenjulegu aðstæðna hækki verð á heitu vatni um rúmlega fimm prósent og í kjölfar tveggja prósenta hækkunar Landsvirkjun- ar á raforkuverði núna 1. ágúst verður lagt til að verð á raforku hjá okkur hækki um rúmt eitt pró- sent.“ Sala á heitu vatni hefur dregist saman um 350 milljónir króna það sem af er þessu ári og er hlýindum kennt um. ■ Í DÓMSALNUM Hutton lávarður, sem situr fyrir miðri mynd, hefur yfirumsjón með rannsókninni á dauða Davids Kellys. ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Lagt verður til á stjórnarfundi Orkuveitunn- ar á morgun að verð á heitu vatni og raf- orku verði hækkað. DAVÍÐ ODDSSON Lofaði línuívilnun. ALLUR AF VILJA GERÐUR Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir Franz Fischler vinna af heilindum að breytingum á sjávarútvegsstefnu ESB. Hagsmunir Spánverja hafi hindrað að gengið væri lengra í umbótaátt. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /I N G Ó LF U R Vestfirðingar undirbúa stórfund vegna „brotinna loforða“: Ríkisstjórn fjallar um línuloforð Sprengisandur: Árekstur bifhjóls og bifreiðar SLYS Alvarlegt slys varð á Sprengisandsleið við Háöldu, um 12 kílómtra norður af Köldukvísl, um kvöldmatarleytið í gær. Að sögn lögreglu lentu bifhjól og bifreið í árekstri á blindhæð með þeim afleiðingum að ökumað- ur bifhjólsins hlaut opið beinbrot og missti töluvert blóð. TF-SIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti manninn og flutti hann á slysa- deild Landspítalans. Ekki fengust upplýsingar um líðan mannsins áður en blaðið fór í prentun. ■ DRENG BJARGAÐ FRÁ DRUKKN- UM Ungum dreng var bjargað frá drukknun í sundlaugini á Laugar- hóli í Bjarnarfirði. Lá drengurinn meðvitundarlaus á botni laugar- innar en með snarræði tókst gesti að blása lífi í hann. Var hann flutt- ur á sjúkrahús en var á góðum batavegi og áttu læknar von á að hann yrði útskrifaður fljótlega.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.