Fréttablaðið - 12.08.2003, Síða 29

Fréttablaðið - 12.08.2003, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 12. ágúst 2003 17 FRÁ VIÐEY Á gönguferð um Viðey í kvöld verður reynt að rölta í gegnum tveggja milljón ára jarð- sögu á tveimur og hálfum tíma. Viðey er gömul eldstöð JARÐFRÆÐI Eins og jafnan á þriðju- dagskvöldum er boðið upp á gönguferð um Viðey nú í kvöld. Að þessu sinni ætlar Ásta Þor- leifsdóttir jarðfræðingur að ganga með fólki um eyjuna og rekja jarðsögu hennar, sem lætur kannski lítið yfir sér en leynir því meir á sér. „Fyrir svona tveimur milljón- um ára var Viðey mikil eldstöð og þarna er að finna elstu berg á höf- uðborgarsvæðinu. Þarna eru gríðarlega fallegar stuðlabergs- myndanir,“ segir Ásta. „Í eina tíð var Viðey í raun og veru tvær eyjar sem tengdust í gegnum landmótun. Og nú er maðurinn farinn að hafa áhrif á landmótun eyjunnar. Eftir því sem uppfyllingar í Sundahöfn verða meiri þrengist sundið meir og nú þegar er farið að bera á landbroti í Viðey vegna þess.“ ■ TÓNLIST „Ég ólst upp í merkilegu umhverfi þarna í Laugarnesinu og við óvenjulegar aðstæður,“ segir Hlíf Sigurjónsdóttir fiðlu- leikari. Hún er dóttir Sigurjóns Ólafssonar myndlistarmanns. „Krakkarnir voru oft að hrópa að manni að pabbi vinni heima og það væru myndir af allsberum kellingum úti um allt hús.“ Síðar meir segist hún hafa lært að líta á það sem kost að hafa alist upp við þessar sérstæðu aðstæð- ur. „Um leið langar mann til þess að deila því með öðru fólki. Það er einmitt tilgangur þess sem maður gerir sem listamaður. Við skilum kannski ekki stórum arði í þjóðar- búið, en við breytum miklu um það hvernig fólki líður. Tilgangur listarinnar er að auðga manninn.“ Í kvöld ætlar Hlíf að halda tón- leika þarna á heimaslóðum sínum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Með henni spila þau Robert La Rue sellóleikari og Adrienne Kim píanóleikari, sem bæði eru frá New York. Hlíf kynntist þeim fyrir fjór- um árum þegar hún var þar í námi. „Þá kom í ljós að við höfðum lært á sömu stöðum, hitt sama fólkið og orðið fyrir sömu áhrif- um, en aldrei á sama tíma. En þetta gerði það að verkum að við smullum saman undir eins, sem gerist ekki oft. Þegar við æfum þurfum við voða lítið að tala sam- an. Það er eins og við hugsum alltaf það sama.“ Á tónleikunum í kvöld ætla þau að flytja verk eftir Jónas Tómasson, Dmitri Schostakovich, Benjamin Britten og Paul Schoen- feld. Hlín segir andrúmsloftið á tón- leikum í safninu vera afar nota- legt. „Vegna þess hve salurinn er lítill myndast svo mikil nálægð við áhorfendur, sem er mjög gott, ekki síst fyrir kammertónlist. Í stærri sölum týnist mikið af þess- um núönsum, sem er svo miklu auðveldara að koma til skila í svona litlum sal. Maður getur leyft sér að spila mjög veikt og vera með örlitlar styrkleika- breytingar, sem gengur ekki alls staðar.“ gudsteinn@frettabladid.is SMULLU SAMAN UNDIR EINS Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari, Robert La Rue sellóleikari og Adrienne Kim píanóleikari flytja verk eftir Jónas Tómasson, Dmitri Schosta- kovich, Benjamin Britten og Paul Shoenfeld í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. „Þurfum voða lítið að tala saman“ FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT Foreldrar - Stöndum saman Leyfum ekki eftirlitslaus unglingapartý. Síminn er opinn til kl. 22 alla daga Sími 515 7500 Smáauglýsingar

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.