Fréttablaðið - 13.09.2003, Síða 30
FÓTBOLTI Franski miðvallarleik-
maðurinn Claude Makelele leikur
að öllum líkindum sinn fyrsta leik
fyrir Chelsea í dag þegar liðið fær
Tottenham í heimsókn í 5. umferð
ensku úrvalsdeildarinnar. Make-
lele var keyptur frá Real Madrid
fyrir skömmu og er búist við
miklu af leikmanninum í vetur.
Claudio Ranieri getur ekki stillt
upp sínu sterkasta liði þar sem
franski varnarmaðurinn Marcel
Desailly er meiddur en knatt-
spyrnustjórinn ætti þó ekki að
eiga í vandræðum með að finna
leikmenn til að fylla skarðið.
Miðvallarleikmaðurinn Steph-
ane Dalmat gæti einnig leikið sinn
fyrsta úrvalsdeildarleik fyrir
Tottenham en hann var fenginn að
láni frá Inter Milan.
Arsenal fær spútniklið
Portsmouth í heimsókn. Arsenal
er taplaust á toppi deildarinnar og
hefur fjögurra stiga forystu á
Englandsmeistara Manchester
United.
Portsmouth hefur sannarlega
komið á óvart það sem af er tíma-
bilinu en liðið kom upp úr 1. deild
í fyrra. Portsmouth er í þriðja sæti
deildarinnar með átta stig og hef-
ur á köflum sýnt snilldartilþrif.
Teddy Sheringham hefur farið
mikinn í liðinu og er markahæstur
í deildinni með fjögur mörk. Hann
var meðal annars útnefndur leik-
maður ágústmánaðar. Óvíst er
hvort Thierry Henry geti leikið
með Arsenal í dag en hann meidd-
ist í leik með franska landsliðinu á
miðvikudag.
Englandsmeistarar United
munu reyna að hefja sigurgöngu
sína á ný þegar þeir mæta
Charlton á útivelli. United tapaði
fyrir Southampton í síðustu viku,
en það var fyrsta tap liðsins í
deildinni síðan í desember í fyrra.
Enskir fjölmiðlar telja ekki lík-
legt að Jóhannes Karl Guðjónsson
verði í leikmannahópi Wolves, sem
mætir Southampton á útivelli. ■
31LAUGARDAGUR 13. september 2003
FÓTBOLTI Það skýrist í dag
hvort Þór eða Víkingur fylgi
Keflvíkingum upp í efstu
deild að ári þegar lokaumferð
1. deildar karla fer fram.
Víkingur er í öðru sæti
deildarinnar með 34 stig og
mætir Keflvíkingum í dag.
Þórsarar eru þremur stigum
á eftir en eiga leik við Leift-
ur/Dalvík, sem er þegar fallið
um deild.
Fari svo að Víkingur og
Þór verði jöfn að stigum eftir
leiki dagsins sker markatalan úr
um hvort liðið kemst upp. Víkingar
hafa þrettán mörk í plús fyrir leik-
inn en Þórsarar tíu. Ef lið-
in verða með jafna marka-
tölu eftir leiki dagsins
kemst liðið sem hefur
skorað fleiri mörk upp.
Þórsarar hafa komið
knettinum þrettán sinnum
oftar í netið en Víkingar.
„Við ætlum að klára
Íslandsmótið með sigri,“
sagði Milan Stefán
Jankovic, þjálfari Kefla-
víkur, þegar Fréttablaðið
ræddi við hann. „Ég býst
við að Þórsarar vinni Leiftur/Dal-
vík svo það ræðst af markatölunni
hvaða lið fylgi okkur upp.“ ■
STAÐAN Í 1. DEILD KARLA
Keflavík 17 13 3 1 51:15 42
Víkingur 17 9 7 1 28:15 34
Þór 17 9 4 4 41:31 31
Stjarnan 17 6 8 3 30:23 26
HK 17 6 3 8 27:33 21
Haukar 17 5 4 8 22:32 19
Njarðvík 17 4 6 7 31:35 18
Breiðablik 17 5 3 9 21:27 18
Afturelding 17 4 2 11 17:37 14
Leiftur/Dalvík17 3 2 12 21:41 11
Leikir sem hefjast klukkan 15
Þór - Leiftur/Dalvík Akureyrarvöllur
Keflavík - Víkingur Keflavíkurvöllur
Lokaumferð 1. deildar:
Víkingur eða Þór
upp um deild
Enska úrvalsdeildin:
Makelele í leikmannahópi Chelsea
CLAUDE MAKELELE
Leikur að öllum líkindum með Chelsea í
dag en hann kom frá Real Madrid fyrir
skömmu.
LEIKIR DAGSINS:
Arsenal - Portsmouth
Blackburn - Liverpool
Bolton - Middlesbrough
Charlton - Man Utd
Chelsea - Tottenham
Everton - Newcastle
Southampton - Wolves
Enska 1. deildin:
WBA mætir
Ipswich
FÓTBOLTI West Bromwich Albion, lið
Lárusar Orra Sigurðssonar, mætir
Ipswich í ensku 1. deildinni í dag.
WBA er á toppi deildarinnar með
tólf stig en Ipswich er í botnbarátt-
unni með eitt.
Líklegt þykir að Paul Hart,
knattspyrnustjóri Nottingham For-
est, stilli upp óbreyttu liði frá síð-
ustu viðureign þegar Sheffield
United kemur í heimsókn. Það þýð-
ir að Brynjar Björn Gunnarsson
verður ekki í byrjunarliði Forest.
Heiðar Helguson verður ekki í
liði Watford sem mætir Millwall á
heimavelli þar sem hann er meidd-
ur. Watford hefur byrjað tímabilið
afar illa og er í næstneðsta sæti
með eitt stig. ■
Barnsley:
Toppslagur
FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson og læri-
sveinar í Barnsley mæta Port Vale
á útivelli í toppslag ensku 2. deild-
arinnar í dag. Barnsley er á toppi
deildarinnar með fjórtán stig en
Port Vale í því þriðja með þrettán.
„Þetta er mikilvægur leikur eins
og allir aðrir leikir,“ sagði Guðjón í
samtali við BBC. „Port Vale er með
gott lið og það mun reyna að fylgja
eftir góðum árangri.“
Þó nokkrir leikmenn Barnsley
eru meiddir. Isaiah Rankin getur
ekki leikið með og Dean Gorre,
Tony Gallimore, Anthony Kay,
Kevin Donovan og Lee Crooks eru
allir tæpir. Chris Lumdon kemur þó
inn í liðið á nýju eftir að hafa tekið
út leikbann. ■
Utandeildin í fótbolta:
Titilvörn
Riddarans
FÓTBOLTI Hvíti Riddarinn og FC Dið-
rik mætast í úrslitaleik Utandeild-
arinnar á gervigrasinu í Laugardal
í dag klukkan 18. Hvíti Riddarinn,
sem vann mótið í fyrra, tryggði sér
sæti í úrslitum með því að leggja
Hafnarfjarðarliðið CCCP að velli,
4-3, í hörkuleik. Riddarinn lenti
undir snemma leiks en náði að snúa
taflinu við og fara með sigur af
hólmi. FC Diðrik vann Elliða í hin-
um undanúrslitaleiknum 2-0. ■
KEFLAVÍK
Er komið upp.
FÓTBOLTI Franski miðvallarleikmað-
urinn Patrick Vieira segir það ekki
úti úr myndinni að hann leiki með
Manchester United seinna meir.
„Ég las einhvers staðar að
Manchester United hefði verið á
höttunum eftir mér í sumar,“ sagði
Vieira við franska fjölmiðla og
bætti við: „Það er allt hægt í boltan-
um svo hver veit hvað gerist.“
Stjórn Arsenal var á nálum í
sumar þar sem Vieira hafði ekki
endurnýjað samning sinn við liðið.
Hann lét þó undan að lokum og
skrifaði undir samning til ársins
2007. „Það hafa æ fleiri leikmenn
verið að skipta um lið. Ég hef ekki
yfirgefið Arsenal því mér líður vel
hér. En þó ég sé hamingjusamur nú
á aldrei að segja aldrei.“ ■
Patrick Vieira:
Útilokar ekki United