Fréttablaðið - 13.09.2003, Side 37
38 13. september 2003 LAUGARDAGUR
Vikan hefur verið góð og ein-kennst af bókmenntum eins
og gefur að skilja,“ segir Einar
Már Guðmundsson rithöfundur
um vikuna sem nú er brátt á
enda. „Ég sótti eitt og annað á
Bókmenntahátíðinni auk þess
sem ég þurfti að undirbúa það
sem ég sjálfur þurfti að segja.
Og svo er alltaf gaman að hitta
höfunda sem maður hefur lesið
en kannski aldrei séð.“
Einar Már vill ekki gera upp á
milli þeirra útlendu höfunda
sem hann hitti á Bókmenntahá-
tíðinni en nefnir þó sænska rif-
höfundinn Mikael Niemi: „Hann
skrifar á sænsku en segist vera
með finnska sál. Sögur Niemi
eru svolítið villtar og ég mæli
eindregið með þeim,“ segir Ein-
ar Már og nefnir sérstaklega til
sögunnar Rokkað í Vittula. „Svo
var gaman að hitta Bill Holm en
ég þýddi ljóðin sem hann las hér
á hátíðinni. Lesturinn tókst vel
enda hafði ég vandað mig með
þýðingarnar.“
Einar Már segist ekki vera
með nýja bók fyrir jólin heldur
vinna í sínum málum til lengri
tíma litið:
„Annars var ég að ljúka við að
gera tvo texta fyrir Hljóma sem
út koma á nýrri skífu þeirra.
Þegar Gunnar Þórðarson kom að
máli við mig og bað mig um
þetta svaraði ég því til að ef
hann hefði komið með þessa ósk
þegar ég var tíu ára hefði liðið
yfir mig. Ég er þegar búinn að
heyra annað lagið. Engilbert
syngur það en hitt er á leiðinni
til mín. Textinn er þó klár,“ seg-
ir Einar Már, að vonum stoltur
yfir textum sínum fyrir Hljóma:
„Þetta er mikil upphefð,“ segir
hann. ■
Vikan sem var
EINAR MÁR GUÐMUNDSSON
■ sótti Bókmenntahátíðina í Reykjavík í vik-
unni eins og vera ber og lagði sitt af mörk-
um. Annars er hann nýbúinn að semja tvo
texta fyrir Hljóma og er stoltur af.
Textar fyrir Hljóma
DAVID THOMAS
Getur þulið upp 23 þúsund tölustafi
án þess að ruglast.
Hressir upp
á minnið
ÍSAFJÖRÐUR Ísfirðingar eiga von á
góðum gesti þar sem er David
Thomas en hann er heimsmethafi
Guinness í minnistækni og og
þykir með minnugustu mönnum í
heimi. David Thomas beitir
ákveðinni tækni við að muna
hluti og hefur hann meðal annars
unnið það afrek að þylja upp tæp-
lega 23 þúsund tölustafi án þess
að skeika eða ruglast. Þykir það
með eindæmum. David Thomas
kemur til Ísafjarðar á vegum
Junior Chamber og situr þar
landsþing félagsskaparins. Í leið-
inni býðst hann til að hressa upp
á minni Vestfirðinga. Fyrsta bók
David Thomas um minnistækni
kom út fyrr á þessu ári en David
hefur haldið námskeið víða um
heim, meðal annars hjá Marriott-
hótelkeðjunni. ■
EINAR MÁR GUÐMUNDSSON
Eyddi vikunni á Bókmenntahátíð í Reykja-
vík og hitti þar margt skemmtilegt fólk.
Það þarf ekki að koma neinum áóvart að hið týpíska laugar-
dagskvöld í lífi Henriks Baldvins
Björnssonar, söngvara og gítar-
leikara Singapore Sling, snúist um
það að fara út á lífið.
„Ég og vinir mínir förum vana-
lega á Sirkus eða 11 þar sem við
drekkum áfenga drykki og reykj-
um við sígarettur,“ segir Henrik.
„Maður mætir þangað kannski
svona um miðnættið.“
En fjörið byrjar ekki þar því
vanalega hefur Henrik eytt kvöld-
inu með vinahóp sínum sem sam-
anstendur aðallega af hinum liðs-
mönnum Singapore Sling. Þá
koma þeir sér fyrir heima hjá ein-
hverjum og hlusta á plötur,
drekka áfengi, reykja sígarettur
og hlæja.
„Ef við erum heima hjá Einari
gítarleikara verðum við vanalega
að hlusta á nýjustu plöturnar í
hans lífi sem hann hefur oftast
fengið sér í Ameríku. Ég er reynd-
ar búinn að hafa mjög mikil áhrif
á hann undanfarið og komið hon-
um inn á svona 60’s garage dót,
sveitir á borð við Suicide og aðrar
sem finnast ekki í plötubúðum hér
heima. Toggi bassaleikari smitaði
mig svo af áströlsku bylgjunni.
Sveitir eins og Crime & the City
Solution og fleiri.“
Henrik segir þó stundum gott
að hafa aukamann með í stofu-
veislunni og viðurkennir að oftar
en ekki fylgi kærusturnar með.
„Þær dýrka okkur alveg í tætlur.
Það er náttúrlega erfitt að vera í
kringum svona karlmenn eins og
okkur en stundum er nauðsynlegt
að fórna tíma og geðheilsu.“
Síðustu laugardagskvöld hef-
ur Henrik þó brugðið af vanan-
um. Síðustu helgi fór hann í sum-
arbústað ástamt kærustunni og
tveimur vinum. „Þar var borðað
kjöt, drukkið áfengi, reyktar sí-
garettur, hlustað á rokkabillí og
dansað. Ég reyndi á einhverja
vöðva sem ég nota ekki dags dag-
lega og fékk mjög miklar
harðsperrur. Ég held
að það hafi verið
Chuck Berry dans-
inn sem fór svona
með mig.“
Í kvöld verður
Henrik svo á Seyð-
isfirði þar sem
hann leikur með
hljómsveitinni
The Goddamn
Skunks. „Í henni
eru ég, Helgi og
Toggi úr Singa-
pore Sling. Við
spilum lög eftir
The Cramps og
fleiri. Svo mun
maður nátt-
úrlega skoða
þessa fallegu nátt-
úru. Það má al-
veg eins drekka
bjór og reykja
sígarettur þar
eins og annars
staðar,“ segir
Henrik og rýkur af
stað.
biggi@frettabladid.is
Laugardagskvöld
HENRIK BALDVIN BJÖRNSSON
■ segist gera mikið af því að drekka
áfengi og reykja sígarettur um helgar. Í
kvöld verður hann á Seyðisfirði ásamt
nokkrum félögum sínum.
ÁRNI SNÆVARR
Aftur kominn af stað.
Árni ráðinn
fundarstjóri
ÚTGERÐ Árni Snævarr hefur verið
ráðinn fundarstjóri á fjöldafundi
Smábátafélagsins Eldingar sem
efnt verður til á Ísafirði á morg-
un.
„Við fengum Árna til að spyrja
spurninga. Ekki veitir af,“ segir
Guðmundur Halldórsson, formað-
ur Eldingar, sem býst við þúsund
manna fundi.
„Ég á að vera fundarstjóri
þarna og taka við spurningum,“
segir Árni Snævarr en fundar-
stjórnin hjá Eldingunni er fyrsta
starfið sem Árni tekur að sér eftir
að honum var sagt upp störfum á
fréttastofu Stöðvar 2. Árni var
sem kunnugt er kjörinn frétta-
maður ársins á Edduhátíðinni í
fyrra. ■
Hún er brún, hnarreist með af-brigðum, mjög hágeng, með
fullkomin þokka og ljúfa lund,“
segir Helgi Björnsson leikari um
konuna sína. „Ég myndi vilja ríða
henni til fjalla og inn í nóttina og
koma aldrei til baka.“
■ Konan mín
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Anna Lindh.
Silvio Berlusconi.
Skjöldur Eyfjörð.
Augun
Þessi augu hafa víða horft. Ekki
síst yfir Flóann þar sem ku vera
víðsýnt. Í vikunni hafa þau litið
slétturnar í Mongólíu og fjöllin
þar að auki. Hver á augun?
(Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra.)
Sígarettur
og alkóhól HENRIKMun lík-legast seintverða boðið í
partí hjá Þor-
grími Þrá-
ins.