Fréttablaðið - 21.09.2003, Side 2
2 21. september 2003 SUNNUDAGUR
„Já. FH eyðilagði fyrir mér vikuna
en sem betur fer er vikan að verða
búin svo ég get horft jákvæðum
augum fram á næstu viku.“
Andri Sveinsson KR-ingur er bankaráðsmaður í
Landsbankanum og náinn samstarfsmaður Björg-
ólfsfeðga.
Spurningdagsins
Eyðilagði FH fyrir þér vikuna?
Veðurhamur getur
fellt laufþung tré
Mjög kröpp lægð gengur yfir með morgninum með slæmu veðri um
allt land. Hætta stafar af trjám sem enn eru fulllaufguð í ófreðinni jörð
og geta því rifnað upp með rótum.
VEÐUR „Þegar tré eru eins laufguð
og þau eru nú er mjög mikil hætta
á að þau láti undan veðurofsanum
og brotni,“ segir Theódór Her-
varsson veðurfræðingur.
Veðurstofan
hefur gefið út
stormviðvörun
um allt land en
búist er við að
veðrið geri orðið
hvað verst á
N o r ð a u s t u r -
landi. Steinunn
Árnadóttir garð-
yrkjufræðingur
segir að þegar
jörð sé ófreðin
og haldi ekki
eins vel við ræt-
urnar sé meiri hætta á að þung tré
láti undan og mesta hættan er á að
þau falli á bíla og girðingar og
valdi þannig skaða. Gömul tré eru
í hvað mestri hættu ef þau fá á sig
snarpar vindhviður.
Theódór segir að ef rigningin
breytist í slyddu nyrðra sé það
enn verra og þá verði tré enn
þyngri og meiri hætta á að þau
falli. Hann bendir á að hætta geti
einnig skapast af lausamunum og
öðru dóti sem fólk er með við hús
sín. Því ættu menn að ganga
tryggilega frá öllu. „Það er lítið
hægt að gera við stór tré í görðum
en þau get skapað hættu og valdið
skaða því þau taka í sig ótrúlega
mikinn vind. Ef menn vilja freista
þess að forða þeim er hægt að
stýfa þau eins og gert er í Noregi
á haustin. Það er mjög algengt og
þá eru greinarnar klipptar af en
trén jafna sig aftur að vori.“
Theódór vill hvetja fólk til að
vera ekki á ferðinni að ástæðu-
lausu í dag heldur halda sig innan-
dyra á meðan verðrið gengur yfir.
Hafþór Jónsson, deildarstjóri
hjá Almannavörnum ríkisins, seg-
ir að haft hafi verið samband við
almannavarnadeildir á landinu,
einkanlega á Austurlandi, og at-
hygli þeirra vakin á spánni. „Það
er í höndum almannavarnadeilda
á hverju svæði að gera ráðstafan-
ir í sinni heimabyggð. Það er
aldrei útilokað að veður geti vald-
ið skaða, einkum er norðaustan-
áttin slæm á ákveðnum stöðum
austanlands. Vegna landslagsins
þar getur gert staðbundið fárviðri
á einstaka stað,“ segir Hafþór
Jónsson, deildarstjóri hjá Al-
mannavörnum ríkisins. ■
Rannsókn á morði utanríkisráðherrans Önnu Lindh:
Skortir sannanir gegn grunaða
SVÍÞJÓÐ Lögreglan í Svíþjóð hefur
óskað eftir fleiri vísbendingum
frá almenningi í tengslum við
rannsókn á morði utanríkisráð-
herrans Önnu Lindh. Sænskur
karlmaður á fertugsaldri sem
grunaður er um morðið ætlar ekki
að reyna að fá gæsluvarðhaldsúr-
skurði héraðsdóms í Stokkhólmi
hnekkt.
Ekkert hefur fengist upp gefið
um niðurstöður DNA-rannsóknar
á lífsýnum sem fundust á morð-
staðnum en flest bendir til þess að
sænsku lögreglunni hafi ekki tek-
ist að afla nægilegra sannana
gegn hinum grunaða. Verjandi
mannsins heldur því fram að lög-
reglan hafi ekkert í höndunum
sem tengir skjólstæðing hans við
morðið. Hinn grunaði hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald
fram á föstudag en þó hafa engar
yfirheyrslur verið boðaðar á
næstu dögum.
Anna Lindh var borin til grafar
í Stokkhólmi í gær að viðstaddri
fjölskyldu og nánum vinum.
Framboð í Heimdall:
Boða
breytingar
STJÓRNMÁL Hópur tólf einstaklinga,
sem hefur í hyggju að gefa kost á
sér til setu í stjórn Heimdallar, hef-
ur sent frá sér fréttatilkynningu um
framboð sitt. Þar segir m.a. að fylgi
Sjálfstæðisflokksins hafi farið
minnkandi meðal ungs fólks og að
gera þurfi breytingar á starfi fé-
lagsins. Enginn þeirra tólf sem gef-
ið hafa kost á sér situr nú í stjórn
Heimdallar. Bolli Thoroddsen verk-
fræðinemi gefur kost á sér til for-
mennsku en tólf sitja í stjórn félags-
ins. Þeir sem bjóða sig fram með
honum hafa allir verið virkir í fé-
lagsstarfi í menntaskólum og há-
skólum. ■
LEIÐTOGAFUNDUR
Jacques Chirac Frakklandsforseti, Gerhard
Schröder, kanslari Þýskalands, og Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands, svara
spurningum blaðamanna að loknum leið-
togafundi í Berlín.
Sameinuðu þjóðirnar :
Gegni lykil-
hlutverki
BERLÍN, AP Leiðtogar Þýskalands,
Frakklands og Bretlands hafa
komist að samkomulagi um að
Sameinuðu þjóðunum beri að
gegna lykilhlutverki í endurupp-
byggingu Íraks. Þeir telja jafn-
framt æskilegt að völdin í landinu
verði sett í hendur heimamanna
eins fljótt og auðið er.
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, Jacques Chirac
Frakklandsforseti og Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, áttu
tveggja klukkustunda langan
fund í Berlín í gær. Markmið
fundarins var að jafna ágreining
þjóðanna þriggja varðandi Írak.
„Við lítum svo á að það sé hlut-
verk alþjóðasamfélagsins að gefa
Írökum möguleika á lýðræði og
stöðugleika,“ sagði Schröder þeg-
ar leiðtogarnir ávörpuðu blaða-
menn að loknum fundi. Þremenn-
ingunum tókst þó ekki að komast
að samkomulagi um það hvenær
eða með hvaða hætti bæri að
framselja völdin í hendur Íraka.
Þeir lögðu ekki fram neinar fast-
mótaðar tillögur varðandi endur-
uppbyggingu Íraks og játaði
Jacques Chirac að enn væru ýmis
ágreiningsmál óleyst. ■
Fíkniefnasmygl:
Enn í haldi
FÍKNIEFNASMYGL Mennirnir fimm
sem voru úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald vegna smygls á talsverðu
magni fíkniefna eru enn í haldi lög-
reglu. Rannsókn stendur yfir en
efnin fundust um borð í einu fragt-
flutningaskipi Samskipa.
Lögregla gefur ekki nánari upp-
lýsingar á meðan á rannsókn
stendur en fram hefur komið að
einn fimmmenninganna sé starfs-
maður hjá Samskipum. Einhverjir
þeirra hafa komið við sögu fíkni-
efnalögreglunnar áður. ■
FÓRNARLAMB SKOTÁRÁSAR
Aquila Al-Hashimi er eini meðlimur íraska
framkvæmdaráðsins sem gegndi embætti í
stjórn Saddams Husseins.
Meðlimur framkvæmda-
ráðsins í Írak:
Liggur al-
varlega særð
BAGDAD, AP Aquila al-Hashimi, sem
situr í framkvæmdaráði Íraks,
særðist alvarlega þegar menn
vopnaðir Kalashnikov-rifflum
hófu skothríð á bifreið hennar í
Bagdad. Þrír lífverðir al-Hashimi
særðust einnig í árásinni.
Al-Hashimi var skotin tvívegis
í kviðinn. Eftir að hafa gengist
undir skurðaðgerð á sjúkrahúsi í
Bagdad var hún flutt á bandarískt
hersjúkrahús til aðhlynningar.
Flest bendir til þess að árásin hafi
verið þaulskipulögð en ekki er vit-
að hverjir voru að verki.
Al-Hashemi er ein þriggja
kvenna í íraska framkvæmdaráð-
inu sem skipað var af Bandaríkja-
mönnum og Bretum í júlí. Hún
var meðlimur Baath-flokksins og
vann í íraska utanríkisráðuneyt-
inu í stjórnartíð Saddams
Husseins. ■
Austfirðir:
Nýir fulltrú-
ar og nafn
KOSNINGAR Gengið var til kosninga
í gær í nýju sameinuðu sveitarfé-
lagi Búðahrepps og Stöðvar-
hrepps.
Bæði var kosið um lista í sveit-
arstjórn og nafn á nýja sveitarfé-
lagið. Úrslit lágu ekki fyrir þegar
Fréttablaðið fór í prentun í gær-
kvöldi. Þau verða kynnt í blaðinu
á morgun.
Tveir listar buðu fram: B-listi
Framsóknarfélaga Fáskrúðsfjarð-
ar og Stöðvarfjarðar og S-listi
Samfylkingar og óháðra.
Nöfnin sem kjósendum stóð til
boða að velja á sveitarfélagið
voru Austurbyggð, Búða- og
Stöðvarhreppur, Sjávarbyggð og
Suðurfjarðabyggð. ■
SÆNSK LÖGREGLUKONA
Lögreglumenn standa fyrir utan verslunar-
miðstöðina í Stokkhólmi þar sem Anna
Lindh var stungin til bana, til að taka á
móti vísbendingum frá almenningi.
Þyrlan sótti sjómann:
Tók tvisvar
bensín
ÚTKALL Þyrla Landhelgisgæslunn-
ar sótti slasaðan sjómann á haf út
um 50 sjómílur austnorðaustur af
Langanesi í gær. Hafði maðurinn
dottið illa en hann reyndist ekki
alvarlega slasaður.
Reyndist flugið erfitt vegna
veðurs. Varð þyrlan að lenda tví-
vegis til eldsneytistöku og var
hún því óvenju lengi á leiðinni. ■
HÆTTA Á AÐ TRÉ FJÚKI
Þessi myndarlega ösp fauk norður á Akureyri í gær. Hætta er á að tré falli í veðrinu í dag
þar sem þau eru enn laufguð og jarðvegur ófrosinn.
„ Það er
aldrei útilokað
að veður geti
valdið skaða,
einkum er
norðaust-
anáttin slæm
á ákveðnum
stöðum.
Elstu aspir brotnuðu á Akureyri:
Veður brjálað á Norðurlandi
HAUSTLÆGÐ Mjög kröpp og djúp
lægð gerði það að verkum að veð-
ur var mjög slæmt á Norðurlandi í
gær, einkum fyrri hluta dags. Á
Akureyri létu um tuttugu metra
háar aspir undan veðurofsanum og
bátar slitnuðu frá smábátabryggj-
unni en litlar skemmdir urðu að
öðru leyti af völdum veðursins. Að
sögn lögreglunnar á Akureyri var
eitthvað um að smáhlutir færðust
úr stað en engar meiriháttar
skemmdir urðu.
Ólöf Jónasdóttir, íbúi við Eyrar-
veg 25 á Akureyri, sagðist hafa
brugðið allnokkuð þegar yfir
fimmtíu ára gömul ösp í garðinum
hennar lagðist yfir glugga hússins.
„Tvær stórar greinar fóru af en
það brotnaði ekki ein einasta rúða.
Hún slitnaði ekki upp frá rótum en
tók eina birkihríslu með sér sem
brotnaði. Ég vissi bara ekki hvað
var um að vera, veðrið var alveg
hreint voðalegt í morgun en það er
farið að lægja aðeins núna,“ sagði
Ólöf í gærmorgun. Aspirnar eru
með þeim fyrstu sem gróðursettar
voru á Akureyri árið 1949 en vitað
er að fleiri aspir gáfu eftir í veð-
urofsanum í bænum.
Theódór Hervarsson veður-
fræðingur segir að í mestu hvið-
unum hafi vindhraðinn mælst
mest 24 metrar á sekúndu. „Á
Sauðanesi mældust 25 metrar á
sekúndu og þá erum við ekki að
tala um í hviðum heldur á sú mæl-
ing við um meðalvind. Hér syðra
komst vindhraði mest í 24 metra á
sekúndu í hviðum.“ ■
ÓLÖF JÓNASDÓTTIR
Öspin var gróðursett árið 1949. Ólöf sagði
að hún hefði lagst yfir alla glugga og
myrkvað inni en sem betur fer brotnaði
enginn gluggi.