Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 13
13SUNNUDAGUR 21. september 2003 Landsbankinn eignaðist hlut Eimskipafélagsins í sjálfu sér að frumkvæði stjórnarfor- mannsins Benedikts Jóhannes- sonar. Bréfin eignaðist Eimskip þegar lending náðist í kapp- hlaupi Kolkrabbans og Kaup- þings Búnaðarbanka um Skelj- ung. Með réttu má því segja að Kaupþing Búnaðarbanki hafi rutt brautina fyrir Landsbank- ann og Samson. Yfirráð yfir hlutum Straums og Landsbank- ans hefðu því tryggt yfirráð yfir Eimskipafélaginu. Vandinn sem stóð eftir var sá að pattstaða var í Straumi. Meðan bankarnir náðu ekki saman um Straum var pattstaðan einnig í Eimskipafé- laginu. Hugmyndin að lausninni kom frá Straumi og forsvars- menn Sjóvár-Almennra og Ís- landsbanka komu hugmyndinni á framfæri við Landsbankann og Björgólf. Þremur sólahring- um síðar voru aðilar búnir að ná samningum um meginlínur á skiptingu eigna. Steinhólar voru vandræðabarn. Þar er í gildi samningur við Kaupþing eftir Skeljungsviðskiptin. Sá samn- ingur er til áramóta og niður- staðan var að taka Steinhóla út fyrir sviga, þannig að hvor aðili er með 25% í Steinhólum á móti Kaupþingi. Stjórnarformaður Eimskipafélagsins, Benedikt Jó- hannesson, vildi að Eimskip keypti Nesskip samhliða þess- um gjörningum. Þeirri hugmynd var hafnað. Þetta innlegg tafði endanlegan frágang málsins. Allir segjast hafa sigrað Þegar upp er staðið er hvor aðili um sig sannfærður um að hafa unnið þetta kapphlaup. Ís- landsbankamenn segjast hafa stöðvað Björgólf á þeim víg- stöðvum sem skiptu máli. Landsbankamenn segjast hafa tekið það út úr Kolkrabbanum sem þeir ásældust. Íslandsbanki hafi verið þiggjandi í málinu. Frá sjónarhóli hluthafa sem seldu frá sér Kolkrabbafyrir- tækin hafa menn innleyst ágæt- an hagnað á þessum hræringum öllum. Sé litið á þetta frá hreinu peninga- og viðskiptasjónarmiði eru allir ánægðir með jólapakk- ann sinn: „Einmitt það sem mig langaði í!“ er setning dagsins. Horfi menn hins vegar á mál- ið frá sjónarmiði valda og áhrifa hafa völdin flust frá fjölskyld- unum sem réðu Eimskipafélag- inu til Björgólfs og félaga. Bræðurnir Einar og Benedikt Sveinssynir fjárfesta með líf- eyrissjóðunum í Íslandsbanka. Hin hefðbundnu viðskiptavöld hafa riðlast. Glúrinn leikur Yfirtaka Íslandsbanka á Sjó- vá var frá sjónarhorni leikflétt- unnar býsna glúrinn leikur. Ís- landsbanki stækkar við þetta og til að ná völdum í Sjóvá-Almenn- um þarf fyrst að ná völdum í Ís- landsbanka. Bankinn er í dreifðri eign þar sem Lífeyris- sjóður verslunarmanna er stærsti hluthafinn. Samanlagt verðmæti þessara tveggja fyrir- tækja er um 73 milljarðar. Það þarf því verulega mikla fjár- muni til að ná ráðandi hlut í bankanum. Frá sjónarhóli rekstrar bankans eru hins vegar efasemdaraddir. Reynslan af sameiningu bankastarfsemi og skaðatrygginga er ekki góð. Margir eru því þeirrar skoðunar að varnarbarátta hafi fremur ráðið þessari ákvörðun en skýr og fastmótuð framtíðarsýn um rekstur félaganna. Bjarni Ár- mannsson, forstjóri Íslands- banka, og Einar Sveinsson, for- stjóri Sjóvár-Almennra, segjast sannfærðir um að sameiningin verði hluthöfum til góða. Árang- urinn velti á framkvæmdinni og þeir vísa í reynslu beggja fyrir- tækja í því að takast á við sam- einingar. Kaupþing Búnaðarbanki gagnrýndi upplýsingagjöf Ís- landsbanka í þessum viðskipt- um. Mat greiningardeilda Landsbankans og Kaupþings Búnaðarbanka er að hluthafar Sjóvár-Almennra séu að fá gott verð fyrir bréf sín. Gengi Sjó- vár-Almennra er 37 í þessum viðskiptum en mat greiningar- deilda er gengi um og undir 30. Ekki eru allir sammála því mati, því forsvarsmenn fjárfestingar- félaganna Afls og Atorku, þeir Margeir Pétursson og Þorsteinn Vilhelmsson, telja verðmætið meira og gagnrýna yfirtökuna. Þeir hafa keypt fleiri bréf í Sjó- vá-Almennum og eru komnir með um 17% hlut. Þessi mót- spyrna fellur í ágætan jarðveg Landsbankamegin og má túlka sem tákn þess að fleiri væringar gætu verið í uppsiglingu á hluta- bréfamarkaði. Upphaf en ekki endir Landsbankinn og Björgólfur Guðmundsson leggja áherslu á að niðurstaðan sem náðist í vik- unni sé upphaf en ekki endalok. „Við erum lifandi umbreyting- arfélag, komum öllu í gang. Við ætlum ekki að stjórna fyrir- tækjum heldur sjá til þess að hlutirnir gangi vel fyrir alla hluthafa,“ segir Björgólfur Guð- mundsson um þessi viðskipti. „Við erum tilbúin að koma inn þegar illa gengur. Þið getið bók- að það að við ætlum ekki að vera hér í útgerð og flutningastarf- semi.“ Það eru fyrst og fremst at- hafnir og áætlanir Björgólfs sem hrintu þessari skriðu við- skipta af stað. Hann neitar því ekki að tilfinningar hafi verið í spilinu í þessum viðskiptum og telur slíkt eðlilegt í miklum um- breytingum. Hann vill lítið gefa út um framhaldið. „Það skemmtilega við þetta er að það opnast svo margir möguleikar við þetta. Nú er bara að velja þann rétta,“ segir Björgólfur. Á sjó Víst er um það að ýmsir möguleikar opnast í kjölfar þessara viðskipta. Eimskipafé- lagið er í höndum Landsbankans og yfirlýsingar Björgólfs eru á þá lund að leysa upp eigna- tengsl. Fjárfestingarhluti Eim- skipafélagsins Burðaráss mun án efa gegna sama hlutverki fyrir Landsbankann í framtíð- inni og Straumur fyrir Íslands- banka. Þá stendur eftir skipafé- lag og útgerðarhluti. Lands- bankinn mun leita kaupenda að þessum eignum. Tvennt er hægt að gera við sjávarútvegsstoðina Brim: setja hana á markað í heilu lagi eða búta fyrirtækið í sundur og selja einingarnar; ÚA, Harald Böðvarsson og Skagstrending. Talið er að ekki væri erfitt að selja þessar ein- ingar. Grandi vildi Harald Böðv- arsson á sínum tíma og líklegt að sá áhugi sé enn fyrir hendi. Þorsteinn Vilhelmsson, sem gagnrýnt hefur kaup Íslands- banka í Sjóvá-Almennum, er fyrrverandi eigandi Samherja og með miklar fjárfestingar í greininni. Margir telja að hann hafi augastað á Skagstrendingi. Samherji hafði á sínum tíma áhuga á ÚA. Samherji þyrfti að endurskipuleggja kvótann sinn við slík kaup. Uppbygging fé- lagsins í frystihúsi á Dalvík kann einnig að benda til þess að áhugi þess hafi minnkað. „Við erum samfærðir um það að mik- ill áhugi sé á útgerðarhlutanum frá aðilum sem geta rekið þetta,“ segir Björgólfur. „Við erum ekki búin að ákveða neitt.“ Skipafélagið gæti reynst höf- uðverkur. Afkoma í flutninga- starfsemi hefur ekki verið góð. Margir eru efins um að hægt sé að ná miklu út úr þeim rekstri nema með mikilli fyrirhöfn. Björgólfur og Landsbankinn eru hins vegar tilbúnir í þá vinnu. Þar telja menn að hægt sé að bæta reksturinn verulega. Fyrsta skrefið er að setja nýja stjórn yfir félagið til að stýra öllum þeim breytingum sem fram undan eru. Byrjað er að velta upp nöfnum og einn þeirra sem nefndir eru til stjórnarfor- mennsku í Eimskipafélaginu er Gunnlaugur Sævar Jónsson, stjórnarformaður Trygginga- miðstöðvarinnar. Einn angi þessara breytinga er að skýrari tengsl eru nú á milli þriggja banka og þriggja tryggingafé- laga. Íslandsbanki og Sjóvá-Al- mennar, Kaupþing Búnaðar- banki og VÍS og síðast Lands- bankinn og Tryggingamiðstöðin. Í lausu lofti Flugleiðir eru áhugaverð eign sem hafnaði hjá Straumi. Straumur er fjárfestingarfélag og hugsunarhátturinn þar er svipaður og hjá Landsbanka- mönnum: eignast í félögum, gera á þeim breytingar sem leiða til aukinna verðmæta og selja þær síðan frá sér. Magnús Þorsteinsson, viðskiptafélagi Björgólfs og stærsti eigandi Atl- anta, hafði ekki áhuga á Flug- leiðum, að því er virðist og Landsbankamenn fullyrða. Fyr- ir fram var talið að Flugleiðir væru eign sem Björgólfur og Landsbankinn vildu fá. Ef Magnús og Atlanta hafa ekki áhuga á kaupum á Flugleiðum er aðeins einn kaupandi að félag- inu í augnablikinu svo vitað sé. Það er Bónusfjölskyldan. Jón Ásgeir Jóhannesson gerði Burðarási tilboð í Flugleiðir fyr- ir tveimur vikum á mun hærra gengi en félagið fór á til Straums. Samkvæmt heimildum var boðið upp á gengið sex en viðskiptin voru á genginu 5,35. Jón Ásgeir og tengdir aðilar eiga um 20% hlut í félaginu og eru samkvæmt heimildum til- búnir að kaupa á genginu 6,2. Hann telur sjálfur að miklir möguleikar séu á því að ná meiri arðsemi út úr rekstri félagsins, bæði með endurskipulagningu og sölu eigna. Straumur vill ekki útiloka neitt varðandi framtíð Flugleiða. Þar á bæ telja menn hins vegar skynsamlegt að láta tíma líða áður en frekari ákvarðanir verða teknar. Þar á bæ eru menn þess algjörlega fullvissir að þeir fái að vinna að rekstri Straums á við- skiptalegum forsendum. Ákvarð- anir varðandi Flugleiðir verði teknar þegar þar að kemur á for- sendum arðsemi og viðskipta. Bankar og lífeyrissjóðir Eftir atburði vikunnar er landslag viðskiptalífsins breytt. Ýmsir hafa áhyggjur af því að bankarnir séu farnir að ráða of miklu um framvindu viðskipta- lífsins. Þar skapist hætta á hagsmunaárekstrum. Þar fyrir sé sýn þess sem er í rekstri önn- ur en sýn þess sem höndlar með verðbréf og fjármálaþjónustu. Hættan sé sú að slagsíða mynd- ist í viðskiptalífinu þar sem fyr- irtækjasjónarmiðið víki fyrir verðbréfahugsun. Yfirlýsingar bankanna benda til þess að menn séu þar meðvitaðir um þessa hættu. Þar ætli menn sér að stýra umbreytingum en láta öðrum eftir að reka fyrirtækin til langs tíma. Lífeyrissjóður verslunar- manna er stærsti einstaki hlut- hafinn í Íslandsbanka. Það vek- ur hjá sumum spurningar um hversu stórir lífeyrissjóðir eiga að vera í einstökum fyrirtækj- um. Þar, sem og annars staðar, eru skiptar skoðanir. Þáttur Líf- eyrissjóðs starfsmanna ríkisins vekur athygli í atburðarás lið- inna vikna. Lífeyrissjóðurinn keypti og seldi bréf í átökunum og hagnaðist vel fyrir hönd um- bjóðenda sinna. Ljóst er af framvindu vikunn- ar að Björgólfur Guðmundsson er stærsta nafnið í íslensku við- skiptalífi. Hann mun setja mark sitt á þróun þess á komandi misserum. Björgólfur nýtur mikils meðbyrs. Yfir vötnum svífur samviskubit yfir Haf- skipsmálinu og menn fagna end- urkomu hans. Aðrir hluthafar sem tekið hafa þátt í fyrirtækj- um Björgólfs hafa náð góðri ávöxtun eigna sinna. Menn eru því tilbúnir að spila með honum. Þetta ásamt fjárhagslegum styrk hans gefur honum færi á að taka til hendinni á viðskipta- vellinum svo um munar. Nýtt landslag er orðið til í viðskipta- lífinu. Nú er að sjá hvernig verð- ur sáð og uppskorið á ökrunum. haflidi@frettabladid.is Það skemmtilega við þetta er að það opnast svo margir möguleik- ar við þetta. Nú er bara að velja þann rétta. ,, BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON Landbankinn og Björgólfur Guðmundsson leggja áherslu á að niðurstaðan sem náðist í vikunni sé upphaf en ekki endalok „Við erum lifandi umbreytingarfélag, komum öllu í gang. Við ætlum ekki að stjórna fyrirtækjum. Heldur sjá til þess að hlutirnir gangi vel fyrir alla hluthafa,“ segir Björgólfur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.