Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 20
20 21. september 2003 SUNNUDAGUR Kenningar um Palme- morðið Sú staðreynd að morðingiOlof Palme er ekki enn fundinn hefur gefið ýmsum samsæriskenningum byr undir báða vængi. Margar þeirra snúast um að CIA, leyniþjónusta Bandaríkj- anna, hafi verið viðriðin málið. Í einni útgáfunni á hún að hafa leitað til Chile. Samkvæmt þeirri kenningu réði CIA tvo chileska leigu- morðingja til verksins, Michael Townley og Roberto Thieme. Blóði drifin herfor- ingjaklíkan í Chile hafði horn í síðu Palmes og hefði samkvæmt því verið fús að hjálpa vinum sínum í CIA við verkið. Michael Townley var í Bandaríkjunum þegar morðið var framið að sögn vitna, en Roberto Thieme var hins vegar staddur í Svíþjóð. Báðir voru þeir Townley og Thieme félagar í fasistahreyfingunni Patria y Libertad, fósturjörð og frelsi. Deildar meiningar eru um hvort Roberto Thieme hafi sjálfur skotið Palme eða fengið til þess annan aðila, ef til vill Christer Petters- son, en þó sennilega fremur mann sem handtekinn var vegna morðsins. Það var 32 ára gamall maður, sænskur smákrimmi, sem fluttist til Bandaríkjanna um leið og hann var látinn laus. Þar var hann myrtur skömmu síðar af lögreglumanni, sem sagt var að hefði grandað Svían- um í afbrýðisemikasti. Grunur beinist að George Bush Þeir sem vilja kenna CIA um Palme-morðið vekja at- hygli á því að George Bush eldri gekk til liðs við CIA snemma á sjötta áratug síð- ustu aldar. Hann var einn af skipuleggjendum hinnar mislukkuðu Svínaflóa-inn- rásar, þegar CIA hugðist steypa Castro af stóli. Palme var einn af fáum þjóðarleið- togum á Vesturlöndum sem hikuðu hvergi í stuðningi sínum við Castro, hvað svo sem Bandaríkjastjórn fannst um þann stuðning. Árið 1976 varð George Bush yfirmaður CIA, sem í hans stjórnartíð átti hlut að ýmsum málum sem ekki þoldu dagsins ljós. Þar á meðal telja margir að kenningin um „war for prof- it“, stríð í gróðaskyni, sé frá honum komin, en samkvæmt henni þótti ekkert athuga- vert að Bandaríkin högnuð- ust á því að selja báðum styrjaldaraðilum vopn þegar Íran og Írak áttust við. Sömuleiðis átti sér stað vopnasala til hinna and- kommúnísku Contra-skæru- liða í Níkaragva. Allar þessar grunsemdir fengu byr undir báða vængi þegar fyrrverandi CIA-mað- ur að nafni Gen „Chip“ Tat- um tók upp á því að leysa frá skjóðunni um þær aðgerðir sem hann vissi að CIA hefði tekið þátt í. Samkvæmt Tat- um var það hinn 32 ára gamli Svíi sem fyrr er getið sem var fenginn til að hleypa af skotinu sem ban- aði Palme. Það þykir einnig grunsamlegt að þessi Svíi skuli hafa fengið vegabréfs- áritun til Bandaríkjanna eft- ir að hann var látinn laus úr haldi sænsku lögreglunnar, en hann var þekktur of- stopamaður, hægrisinnaður öfgamaður með ýmsar rang- hugmyndir, og fór síðan pen- ingalaus til Bandaríkjanna þar sem honum var tekið opnum örmum. ■ Eins og Íslendingar eru Svíarhreyknir af því að höfuðstað- ur landsins sé friðsæl borg þar sem venjulegt fólk og jafnvel þjóðþekktar persónur geti farið allra sinna ferða án lífvarða og án þess að hafa áhyggjur af að verða fyrir aðkasti eða óþægind- um. Fyrir um það bil aldarfjórð- ungi var Karl Gústaf Svíakon- ungur úti að viðra hundinn sinn á gamlárskvöld og gekk þá fram á drykkjukonu sem hafði sofnað í snjóskafli og var að því komin að krókna. Konungurinn, sem var einn á kvöldgöngu með hundinn sinn, bjargaði lífi þessarar mann- eskju og engum þótti tiltökumál þótt þjóðhöfðinginn hefði verið að spóka sig úti á gamlárskvöld án lífvarða, enda voru þá liðin nær 200 ár síðan konungurinn Gústaf III var myrtur á grímu- dansleik í Stokkhólmi af ofstæk- isfullum og óánægðum aðals- manni. Fáum árum síðar vöknuðu þó efasemdir um að frægum persón- um væri óhætt að fara ferða sinna um borgina að kvöldlagi. Það var í lok febrúar 1986 þegar Olof Palme forsætisráðherra var skotinn til bana þegar hann var á heimleið með konu sinni Lisbeth eftir að þau hjónin höfðu brugðið sér í bíó nálægt miðbænum með syni sínum og unnustu hans. Og núna, nær tveimur áratug- um eftir Palme-morðið, var Anna Lindh utanríkisráðherra stungin til bana um hábjartan dag í Stokkhólmi. Hún hafði farið snemma úr vinnunni í utanríkis- ráðuneytinu í búðir með vinkonu sinni í miðborginni. Eitt ódæðisverkið enn í hinni friðsælu borg hefur vakið menn til umhugsunar um hversu friður- inn er dýrmætur og brothættur. thrainn@frettabladid.is Gústaf III, konungur Svíþjóðar,var staddur á grímudansleik í Óperuhúsinu í Stokkhólmi 16. mars árið 1792 skömmu eftir mið- nætti þegar grímuklæddur maður vék sér að honum og skaut hann í bakið. Konungurinn kastaði sér til hliðar og hrópaði á frönsku: „Ah! Je suis blessé. Ó, ég er særður.“ Grímumaðurinn lét sig hverfa í mannþröngina og hrópaði: „Eldur laus.“ En síðar kom í ljós að það var leyniorð samsærismanna og þýddi að konungurinn hefði verið veginn; einnig var ætlunin að skapa ótta við eldsvoða meðal gesta þannig að samsærismenn gætu horfið út í náttmyrkrið. Snarráður lögreglustjóri Lögreglustjóri ríkisins, Liljen- sparre, sem staddur var á grímu- dansleiknum, gaf þegar í stað fyr- irmæli um að loka öllum dyrum og útgönguleiðum. Síðan fyrir- skipaði hann öllum viðstöddum að taka niður grímurnar og nöfn þeirra voru skráð. Konungurinn var borinn upp til herbergja sinna í Óperuhúsinu og læknar voru kvaddir til. Hann var illa særður. Skotið hafði hæft hann í bakið, vinstra megin. Í danssölum hússins var síðan gerð vopnaleit. Tvær skammbyss- ur fundust og hafði nýlega verið skotið úr annarri þeirra. Einnig fannst nýbrýndur eldhúshnífur. Þegar gestir höfðu látið skrá nöfn sín var þeim leyft að fara. Við eftirgrennslan kom í ljós að byssurnar sem fundist höfðu tilheyrðu fyrrverandi höfuðs- manni í hernum sem hét Jakob Jo- han Anckarström. Lögreglumenn handtóku hann í rauða bítið um morguninn. Anckarström kannað- ist við að eiga vopnin og viður- kenndi strax við fyrstu yfir- heyrslu að hafa hleypt af skotinu. Blóðeitrun Gústaf III lifði í 13 daga eftir tilræðið. Hann lá á sjúkrabeði í Stokkhólmshöll og sinnti stjórn- unarstörfum. Hann var virðuleg- ur, mildur og fullur fyrirgefning- ar, þrátt fyrir miklar þjáningar. Skotið sem hæfði hann hafði ekki verið venjuleg byssukúla heldur hafði morðvopnið verið hlaðið ruslaskoti, járnbútum og ryðnögl- um sem læknar gátu ekki fjarlægt úr líkama konungs. Hann fékk mikla hitasótt og til að kæla kon- unginn voru gluggar á herbergi hans hafðir galopnir svo að ískalt var inni. Það hljóp illt í sárið, megn ódaunn gaus upp, og kon- ungurinn þjáðist meira og meira, en hann sagði aldrei æðruorð. Það var blóðeitrun sem dró hann til dauða, og 29. mars 1792 lést Gúst- af III. Hann var 46 ára gamall. Samsæri Liljensparre lögreglustjóri var sannfærður um að um samsæri hefði verið að ræða. Við yfir- heyrslur kom smátt og smátt í ljós að hann hafði rétt fyrir sér. Um 40 manns voru handteknir, 14 voru ákærðir og margir þeirra voru dæmdir til dauða. Allir nema sjálfur morðinginn, Anckarström, voru síðar náðaðir. Anckarström var dæmdur til að þola húðlát og missa hægri hönd sína og höfuð. Hann var líflátinn 27. apríl 1793 og höfuð hans og hönd voru sett á stjaka við Skanstull-hliðið í Stokk- hólmi. Liljensparre lögreglustjóri þótti sýna mikið snarræði við rannsókn þessa hörmulega tilræð- is; hann hafði síðan alla þræði rannsóknarinnar í sínum höndum og þykir rannsókn hans enn þann dag í dag hafa verið dæmi um fyr- irmyndarviðbrögð hjá lögregluyf- irvaldi. Örlaganótt Örlaganóttin hófst þegar Gúst- af III kom í Óperuhúsið í Stokk- hólmi klukkan 8 um kvöldið, horfði á franska kómedíu, og snæddi síðan náttverð með nokkrum aðalsmönnum í her- bergjum sínum, áður en þeir mættu á grímudansleikinn. Meðan þeir sátu undir borðum barst konunginum nafnlaust bréf. Bréfið var á frönsku og enginn hafði undirritað það. Í því stóð að margir hefðu það í hyggju að vinna konunginum mein ef hann mætti á grímudansleikinn. Að loknum náttverðinum sýndi kon- ungurinn hirðmanni sínum, Essen baróni, bréfið. Essen bað konung- inn um að taka þessa viðvörun al- varlega. Konungurinn daufheyrð- ist við þeirri málaleitan. Milli klukkan 11 og 12 um kvöldið sat hann grímulaus í stúku sinni og horfði yfir danssalinn. Enginn gerði sig líklegan til að vinna hon- um mein, og það varð úr að kon- ungurinn hélt til herbergja sinna og fór í búning sinn og setti upp grímu. Síðan fór hann á dansleik- inn. Endurómur frönsku stjórn- arbyltingarinnar Eftir að hafa gengið um meðal gesta í fylgd með Essen fóru þeir fram í anddyrið um stund. Þegar þeir komu inn í danssalinn á ný sló hópur manna með svartar grímur hring um konunginn. Einn hinna svartbúnu grímumanna sló konunginn kumpánlega á öxlina og sagði á frönsku: „Góðan dag, fagra gríma.“ Í sömu andrá smeygði Anckarström sér aftan að konunginum og skaut hann í bakið. Þeir aðalsmenn sem að samsær- inu stóðu sáu í Gústafi III ímynd einræðis og einveldis sem þeim þótti illa samræmast nýtískuhug- myndum um aðra stjórnarhætti – hugmyndum sem voru innblásnar af óljósum fréttum um stjórnar- byltinguna í Frakklandi. ■ Morðið á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Sví- þjóðar, er ekki eina morðið á fyrirmönnum í Svíþjóð sem framið hefur verið. Enn á ný eru Svíar áminntir um að friðurinn er dýrmætur og brothættur. Morð í Stokkhólmi GÚSTAF III SVÍAKONUNGUR Myrtur af samsærismönnum á grímudansleik árið 1792. Samsærismennirnir voru sagðir undir áhrifum frá frönsku byltingunni. 16. mars 1792 Gústaf III myrtur á grímudansleik KONUNGSMORÐINGINN Jakob Johan Anckarström á leið á aftökustað. Höfuð hans og hönd voru sett á stjaka við Skanstull-hliðið í Stokkhólmi. Skotið sem hæfði hann hafði ekki ver- ið venjuleg byssukúla heldur hafði morðvopnið verið hlaðið ruslaskoti, járnbútum og ryðnöglum sem læknar gátu ekki fjarlægt úr líkama konungs. ,, M YN D /A P

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.