Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 25
1944 og sat til dánardægurs árið 1952. Ásgeir Ásgeirsson sat í 16 ár (1952-1968), Kristján Eldjárn í 12 ár (1968- 1980) og Vigís Finnbogadóttir í ein 16 ár (1980-1996). Misjöfn nálgun Álitsgjafarnir nálguðust spurn- inguna út frá mismunandi sjónar- hornum. Margir hverjir báru aug- ljóslega takmarkaða virðingu fyrir forsetaembættinu meðan aðrir vönduðu mjög val sitt með það fyr- ir augum að leita eftir ákjósanleg- asta forsetaefninu. Einnig stóðu álitsgjafarnir frammi fyrir þeirri spurningu hvort Ólafur Ragnar Grímsson hygðist bjóða sig fram aftur. Þá breytast forsendurnar: Er ástæða til að skipta út? Þorir einhver gegn Ólafi Ragnari? Menn nálguðust því spurninguna út frá mismunandi for- sendum. „Mín tilfinning er sú að Íslend- ingar séu reiðubúnir að fylkja sér að baki einhverjum hófstillari manni en útbrunnum pólitíkusi,“ sagði einn álitsgjaf- anna. „Nú er þörf á því, líkt og þeg- ar Kristján Eldjárn kom fram á sínum tíma.“ Umdeilt embætti Þó svo að hinum ágætu álits- gjöfum Fréttablaðsins væri gert að undanskilja sitjandi forseta gátu margir ekki stillt sig um að nefna Ólaf Ragnar Grímsson. „Hann stendur sig ágætlega, og er MJÖG vel giftur. Búinn að hljóta ágætis starfsþjálfun.“ Og athyglisvert sjónarhorn kemur fram í þessum ummælum: „Best að nýta forsetana sem lengst og láta þá vinna fyrir kaupinu sem þeir halda áfram að fá eftir að þeir hætta. Það er allt of dýrt fyrir þjóðfélagið að vera með marga fyrrverandi forseta. Er Vigdís ekki með rúma milljón í eftirlaun? Ís- land hefur ekki efni á mörgum slíkum.“ Margir gátu ekki fengið sig til að nefna neinn. „Þegar honum hugnast að stíga niður af hæðum sínum ber að leggja þetta embætti niður. En bara þegar honum þóknast að hverfa aftur til jarðarinnar. Ég ætla engum að verða hans arftaki. Hann var alþýðusinni, ótrúlegt til þess að hugsa,“ sagði einn þingmaður Sjálfstæðis- flokksins. Og ótrúlega margir í þeim flokki voru þessarar skoð- unar og báðust undan því að nefna hugsanlega frambjóðend- ur einmitt á þessum forsendum. „Einhverra hluta vegna hef ég ama af forsetaembættinu. Tel reyndar best að leggja það nið- ur,“ sagði einn úr þeim ranni og var þar af leiðandi tregur til að taka þátt í bollaleggingum þar um. „Jafnvel þó Hannes Hólm- steinn gegndi því. Biðst því und- an.“ Umræddur Hannes Hólm- steinn segir í grein sem heitir „Forsetaembættið og þingræð- isreglan“ og birtist í Morgun- blaðinu í febrúar 2002: „[...] hvort ekki mætti fela forseta Alþingis þær skyldur, sem hvíla nú á herðum forseta. Þar skiptir ekki máli, að kostnaður af forsetaembættinu hefur tvö- faldast á fimm árum, frá 1995 til 2000, úr 50 milljónum króna 1995 í 131 milljón króna 2000, heldur hitt, að Alþingi er elsta og virðulegasta stofnun þjóð- arinnar, og væri því hæfilegur sómi sýndur með því.“ jakob@frettabladid.is 25SUNNUDAGUR 21. september 2003 ÁLITSGJAFAR OG STIGAÚTREIKNINGAR Leitað var til valinkunnra einstaklinga sem fylgjast vel með þjóðmálunum og þeir beðnir um að nefna til þrjá sem þeir geta séð fyrir sér í forsetaframboði að ári. „Kjörkössum“ var lokað þegar 24 höfðu skilað tilnefningum. Sá sem nefndur var í 1. sæti fékk 3 stig, 2. sætið gaf 2 og það þriðja 1 stig. Álitsgjafar blaðsins voru: Ari Matthíasson fram- kvæmdastjóri, Árni Steinar Jóhannsson garðyrkjumaður, Ásgeir Friðgeirsson rit- stjóri, Egill Helgason blaðamaður, Egill Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri, Frið- rik Weisshappel fjölmiðlamaður, Guðrún Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri, Gunn- ur Vilborg Guðjónsdóttir verslunarstjóri, Halla Helgadóttir, grafískur hönnuður, Halldór Bragason tónlistarmaður, Hall- dóra Geirharðsdóttir leikkona, Hrafn Jök- ulsson skákfrömuður, Jónatan Garðars- son dagskrárgerðarmaður, Kiddi Bigfoot, forstöðumaður og markaðsstjóri Norður- ljósa, Kristján Ari Arason framhalds- skólakennari, Kristján Þorvaldsson rit- stjóri, Pétur Óskarsson forstjóri, Salvör Gissurardóttir lektor, Sigurlaug Halldórs- dóttir flugfreyja, Silja Hauksdóttir kvik- myndagerðarmaður, Stefán Hjörleifsson tónlistarmaður, Úlfar Eysteinsson mat- reiðslumeistari, Þráinn Bertelsson rithöf- undur og Össur Skarphéðinsson alþing- ismaður. JÓN BALDVIN HANNIBALSSON „Þá yrði loks gaman á Bessastöðum. Jón er náttúrlega eldklár, skemmtilegur og mikill sjarmör og svo á hann konu sem myndi halda veisl- ur sem munað væri eftir. Sjónarsviptir að þeim í út- löndum.“ SKJALDARMERKI ÍSLANDS Eftir um það bil ár rennur kjörtíma- bil sitjandi forseta Íslands út. Hugs- anlega kemur til forsetakosninga. Atkvæði dreifðust mjög í þessari óformlegu könn- un og hér á eftir fara þeir sem hlutu eina tilnefningu en mis- mörg stig samkvæmt reglunni: Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra. „Þjóðlegur og fínn föðurlandsvinur“. Katrín Júlíus- dóttir þingmaður. „Ung kona sem kemur vel fyrir og ekki spillir að hún er einstæð móðir líkt og Vigdís Finnbogadóttir.“ Katrín Anna Guðmundsdótt- ir, talskona Femínistafélags- ins. „Bleikan tón takk!“ Magnús Eiríksson tónlist- armaður. „Ljóm- andi fulltrúi sem gæti tekið ramm- íslensk lög fyrir erlent tignarlið.“ Ólafur Jóhann Ólafsson rithöf- undur. „Ungur, glæsilegur og áreiðanlegur með flekklausa fortíð.“ Ómar Ragnarsson sjón- varpsmaður. „Fyndinn, skemmti- legur og þorir.“ Óskar Jónasson leikstjóri. „Getur töfrað fyrir er- lenda gesti og er með glæsilega konu sér við hlið sem hann get- ur sagað í sundur.“ Svanhildur Kaaber, lektor við Kennarahá- skólann. „Heimsborgari af guðs náð, vel gefin, tungumálamann- eskja...“ Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona. „Hún og Egill væru ákjósanlegt forsetapar.“ Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra. „Hann myndi drífa upp vefinn forseti.is.“ Jóakim Dana- prins. „Ganga alla leið og koma okkur upp konungi og drott- ingu.“ Jónína Bjartmarz þing- maður. „Virðist geta rökrætt við sjálfstæðismenn og haldið and- liti þegar þeir bulla hvað mest.“ Margrét Sverrisdóttir fram- kvæmdastjóri. „Ung, dugleg og framsækin“. Séra Pálmi Matthí- asson. „Opinn og getur talað við skoppara og pólitíkusa jöfn- um höndum.“ Valgerður Matth- íasdóttir sjónvarpsmaður. „Kemur afskaplega vel fyrir og vill hafa fínt í kringum sig.“ Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir alþingismaður. „Skelegg og að- laðandi kona sem á sér örugg- lega enga óvildarmenn.“ Þór- hallur Gunnarsson sjónvarps- maður. „Góður talandi, myndar- legur maður, mikill viskubrunn- ur og hefur glæsilega drottn- ingu sér við hlið.“ Árni Snævarr, fyrrum sjónvarps- maður. „Á lausu, ágætt ættarnafn.“ Birna Anna Björnsdóttir rit- höfundur. „Á eftir að verða forseti einn góðan veð- urdag, það er bara spurning hvenær.“ Edda Andrésdóttir sjónvarpsmaður. „Glæsileg kona, síbrosandi, fáguð og bræðir þá sem hún talar við.“ Guðrún Helgadóttir rithöfund- ur. „Var flott á þingi og rám reykingaröddin ber með sér vald.“ Katrín Fjeldsted læknir. „Sigld, menntuð í London, á mann sem er heimspekingur.“ Júlíus Vífill Ingv- arsson, fyrrum óperusöngvari og kaupsýslumaður. „Einhver ættar- laukurinn sam- kvæmt venju verður sendur fram og hann er sá.“ Magnús Oddsson ferða- málastjóri. „Embættismaður af lífi og sál. Þarf að losa ferða- þjónustuna við hann.“ Már Ör- lygsson tölvumaður. „Það er kominn tími til að bloggari hefj- ist til valda á Íslandi.“ Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona: „Hress og skemmtileg og algjör sómi af henni.“ Og Svavar Gestsson sendiherra. „Vanur maður og ákaflega vel máli far- inn.“ Önnur forsetaefni MARGRÉT SVERRISDÓTTIR Ung, dugleg og framsækin. BJÖRN BJARNASON Mynda drífa upp vefinn forseti.is. KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR Einstæð móðir eins og Vigdís. Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina í haust á hreint ótrúlegum kjörum til vinsælasta áfangastaðar Íslendinga. Sumarið er í blóma á Spáni fram í október og hér getur þú notið lífsins við frábærar aðstæður og nýtur traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Bókaðu strax og tryggu þér síðustu sætin í haust. Síðustu sætin í haust. Stökktu til Benidorm 1. okt. frá kr. 19.950. Verð kr. 19.950.- Flug og skattar, m.v. 2 fyrir 1 tilboð. Út 1. okt., heim 22. okt. Alm. verð kr. 20.950.- Sértilboð: 1. okt. 3 vikur Verð kr. 49.950.- Flug og gisting, m.v. 2 í stúdíó/íbúð. 1. okt. 3 vikur. Skattar innifaldir. Staðgreitt. Al- mennt verð kr. 52.450.- Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is dMunið Mastercard ferðaávísunina

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.