Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 21
21SUNNUDAGUR 21. september 2003 Að kvöldi dags 28. febrúar 1986yfirgáfu Olof Palme, forsætis- ráðherra Svíþjóðar, og eiginkona hans Lisbeth Palme íbúð sína við Vesterlånggatan í Gamla stan í Stokkhólmi. Þau voru á leiðinni í kvikmyndahúsið Grand við Svea- veginn og höfðu mælt sér mót við son sinn Mårten og unnustu hans. Þau tóku neðanjarðarlest frá Gamla stan að Rådmansgatan. Kvikmyndasýningin hófst klukkan 21.15 og lauk milli 23.05 og 23.10. Þegar Palme-hjónin komu út úr kvikmyndahúsinu kvöddu þau son- inn og unnustu hans og síðan gengu þau eftir Sveavegi til suðurs, fór yfir götuna og héldu áfram í áttina að gatnamótunum við Tunnelgötu (sem nú heitir Olof Palmes gata) en Tunnelgatan var göngugata. Þegar þau komu að gatnamótunum var klukkan um 23.21. Á götuhorninu var verslunin Dekorima. Þegar Olof Palme og Lisbeth Palme gengu framhjá Dekorima og að gatnamótunum steig fram mað- ur og hleypti af tveimur skotum úr Magnum-skammbyssu af gerðinni Smith & Wesson, hlaupvídd .357. Annað skotið hitti Olof Palme og varð honum að bana. Hitt skotið særði Lisbeth Palme. Skotmaðurinn hljóp síðan burt í austurátt eftir Tunnelgötu og upp tröppurnar að Malmskillnadsgatan. Frétt Sænska útvarpsins Þeir sem voru að hlusta á Sænska ríkisútvarpið aðfaranótt 1. mars 1986 gleyma því seint þeg- ar dregið var niður í tónlistarút- sendingu og þulur tók til máls: „Þið eruð að hlusta á næturútvarp Sænska ríkisútvarpsins. Klukkan er tíu mínútur yfir eitt og við höf- um... við gerum nú hlé á útsend- ingunni. Hér kemur fréttaútsend- ing frá fréttastofunni.“ Frétta- stefið er leikið og alvöruþungur fréttaþulur tekur til máls: „For- sætisráðherra Svíþjóðar, Olof Palme, er látinn. Hann var skotinn í kvöld í miðborg Stokkhólms. Olof Palme var skotinn við gatna- mót Tunnelgötu og Sveavegar og hann lést síðan á Sabbatsbergs- sjúkrahúsinu. Ríkisstjórnin hefur fengið fregnir af atburðinum. Kjell-Olof Feldt fjármálaráðherra og Ingvar Carlsson aðstoðarfor- sætisráðherra hefur verið til- kynnt um atburðinn og þeir stað- festa báðir að Olof Palme er lát- inn...“ Morðinginn ófundinn Morðið á Olof Palme hefur aldrei verið upplýst. Enginn veit hver eða hverjir stóðu að ódæðis- verkinu. Smáglæpamaður að nafni Christer Pettersson var handtekinn og ákærður fyrir morðið. Hann er „góðkunningi lögreglunnar“, þekktur smá- glæpamaður, eiturlyfjafíkill og drykkjusjúklingur. Undirréttur í Svíþjóð sakfelldi Christer Pett- ersson fyrir morðið, en hann var síðan sýknaður á æðra dómsstigi sem komst að þeirri niðurstöðu að vitnisburður Lisbeth Palme væri ekki nægilega áreiðanlegur. Lis- beth Palme hélt því fram að hún hefði séð Christer Pettersson þeg- ar hann hleypti af skotunum, en rétturinn taldi vitnisburð hennar ekki marktækan. Lögreglurannsókn í molum Sagan af hinni misheppnuðu lögreglurannsókn eftir morðið er orðin löng og flókin. Menn hafa bent á ótal mistök sem lögreglan gerði við rannsókn málsins, og sumir hafa sett fram ýmsar sam- særiskenningar, meðal annars þá kenningu að morðingja Palme hafi verið að finna innan sænsku lögreglunnar. Aldrei hefur þó tek- ist að setja fram neina sérstaka ástæðu sem lögreglumenn hefðu átt að hafa til að myrða forsætis- ráðherrann. Ein kenningin snýst um að hægri öfgamenn í lögregl- unni hafi staðið á bak við morðið. Margar samsæriskenningar Fjöldamargar samsæriskenn- ingar hafa verið settar fram. Bent hefur verið á að Palme var mjög umdeildur maður og átti marga óvini. Ein kenningin fjallar um að leyniþjónusta apartheid-stjórnar- innar í Suður-Afríku hafi myrt Palme. Maður að nafni Eugene de Kock, sem áður var yfir dauða- sveitum Suður-Afríku, bar það fyrir rétti að Olof Palme hefði ver- ið drepinn vegna stuðnings hans við ANC, Afríska þjóðarráðið, og Nelson Mandela. Morðið hefði verið skipulagt af suður-afrísku leyniþjónustunni og gengið undir dulnefninu „Operation Long- reach“, og launmorðinginn Craig Williamson hefði unnið verkið. CIA og vopnasala til Íran Olof Palme átti fleiri óvini en hvítu stjórnina í Suður-Afríku. Skömmu áður en hann var ráðinn af dögum hafði hann talað um þá fyrirætlan sína að gera uppskátt um vopnasölu til Íran og sam- skipti sænska vopnaframleiðand- ans Bofors og bandarískra aðila. Vopnasala Bandaríkjanna til Íran átti síðar eftir að verða meirihátt- ar hneyksli sem skók ríkisstjórn landsins, en margverðlaunaður ofursti í hernum, Oliver North, tók á sig alla sök í því máli og stjórnin slapp með skrekkinn. Olof Palme hugðist taka upp vopnasölumálin á þingi Samein- uðu þjóðanna. Forseti Bandaríkj- anna á þessum tíma var Ronald Reagan, en varaforseti hans, sem vann náið með CIA hét George Herbert Walker Bush. Hann varð síðan forseti Bandaríkjanna árið 1988. Samsæriskenningin um CIA gengur einfaldlega út á að CIA, með samþykki eða að frumkvæði George Bush, hafi staðið á bak við Palme-morðið til að koma í veg fyrir óþægilegar uppljóstranir um vopnasölu Bandaríkjanna. William Colby var þá yfirmaður CIA og var talinn vera strengja- brúða þeirra Bush og Reagans. Engin lausn Því lengri tími sem líður frá morðinu á Olof Palme verður ólíklegra að sannleikurinn sjái nokkru sinni dagsins ljós. Ef til vill var Christer Pettersson morðinginn. Ef til vill skaut hann Olof Palme í misgripum fyrir annan mann sem hann átti sökótt við. Ef til vill var hann fenginn til verksins. Ef til vill tók hann þetta upp hjá sjálfum sér. Ef til vill var annar maður að verki. Ef til vill var um sam- særi að ræða. Eftir að Pettersson var látinn laus úr haldi og sýknaður af morðinu mun hann hafa játað á sig morðið við fleiri en eitt tæki- færi. Þar á meðal lét hann sænsk- um blaðamanni í té skriflega játningu. Sú játning hefur í sjálfu sér ekkert gildi því að engum dettur lengur í hug að trúa orði sem Pettersson segir um athafnir sínar kvöldið 28. febrúar 1986. ■ 10. september 2003 Anna Lindh stungin til bana FRÁ STOKKHÓLMI Göran Persson, forsætisráðherra Svía, við þinghúsið í Stokkhólmi, þar sem þeir sem vildu minnast Önnu Lindh höfðu skilið eftir blóm og kransa. Forsætisráðherra Svíþjóðar, Olof Palme, er látinn. Hann var skotinn í kvöld í miðborg Stokkhólms. Olof Palme var skotinn við gatnamót Tunn- elgötu og Sveavegar og hann lést síðan á Sabbatsbergs- sjúkrahúsinu. Ríkisstjórnin hefur fengið fregnir af atburðinum. ,, VETTVANGUR MORÐS Á þessum stað þann 28. febrúar 1986 var Olof Palme myrtur. Ódæðismaðurinn er enn ófundinn. 28. febrúar 1986 Olof Palme skotinn Klukkan 15.45 miðvikudaginn10. september 2003 gekk Anna Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, ásamt vinkonu sinni út úr húsakynnum sænska utanríkis- ráðuneytisins. Þeim fylgdi enginn lífvörður því að öryggislögreglan taldi ekki að nein hætta steðjaði að utanríkisráðherranum. Verslunin Filippa K í NK Vinkonurnar gengu inn um syðri inngang að Gallerian-versl- unarmiðstöðinni, gengu gegnum hana og komu við í versluninni Jackpot og gerðu þar innkaup. Síðan héldu þær áfram og fóru út úr Gallerian um aðalinnganginn og gengu út á Hamngatan, og fóru inn í vöruhúsið NK þar sem þær fóru í fyrsta rúllustiga upp á loft í verslunina Filippa K, klukkan rúmlega 16. Árásin Í fataversluninni Filippa K birtist allt í einu maður. Hann hrakti Önnu Lindh á undan sér nokkur skref, þvingaði hana síðan niður á gólfið og stakk hana með hnífi í líkamann, brjóst og hand- leggi. Síðan flúði maðurinn niður rúllustigann í áttina að sama inn- gangi og Anna Lindh og vinkona hennar höfðu komið inn um. Þar lýkur framburði vitna að því er sænska lögreglan sagði fjölmiðl- um sólarhring síðar. Karólínska sjúkrahúsið Lögregla og sjúkrabíll voru komin á vettvang innan 10 mín- útna. Ekið var með Önnu Lindh á Karólínska sjúkrahúsið og þangað kom hún klukkan 16.39. Þá var ut- anríkisráðherrann enn við með- vitund. Tekið var til við að gera að sárum hennar klukkan 17. Við að- gerðina kom í ljós að hún hafði hlotið mikil sár innvortis. Henni var gefið blóð og læknar lögðu sig fram við að bjarga lífi hennar og Anna Lindh var á skurðarborðinu langt fram eftir nóttu. Klukkan 4 að morgni hins 11. september töldu menn að tekist hefði að stöðva hinar innri blæðingar, en klukkan 4.30 um morguninn brá til hins verra. Lungun störfuðu ekki lengur og líðan hennar hrak- aði. Klukkan 5.29 að morgni fimmtudagsins 11. september andaðist Anna Lindh, utanríkis- ráðherra Svíþjóðar. Göran Persson forsætisráð- herra tilkynnti þjóðinni um andlát hennar klukkan 9.20 um morgunin og las þá upp tilkynningu frá rík- isstjórninni. Eftirlýstur maður handtekinn Klukkan 21.07 að kvöldi 16. sept- ember handtók sænska lögreglan mann sem er grunaður um verknað- inn. Hann situr nú í gæsluvarðhaldi í Kronobergsfangelsinu. Faðir mannsins og fleiri ættingjar báru kennsl á manninn og vísuðu lögregl- unni á hann eftir að fjölmiðlar höfðu birt myndir úr eftirlitsmyndavélum í NK-verslunarmiðstöðinni af hin- um grunaða. Maðurinn er 35 ára gamall og hefur langa sakaskrá vegna ofbeldisverka og þjófnaða. Hann er sagður hrifinn af nýnas- isma, er þekkt fótboltabulla, og hef- ur sjálfur lýst því yfir að hann sé „psýkópat“, eða geðvillingur. ■ FÓRNARLAMBIÐ Lögregla og sjúkrabíll voru komin á vettvang innan 10 mínútna. Ekið var með Önnu Lindh á Karólínska sjúkrahúsið og þangað kom hún klukkan 16.39. Þá var utanríkisráðherrann enn við meðvitund. Í fataversluninni Filippa K birtist allt í einu maður. Hann hrakti Önnu Lindh á undan sér nokkur skref, þvingaði hana síðan niður á gólfið og stakk hana með hnífi í líkamann, brjóst og handleggi. ,,

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.