Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 35
Þetta verður fyrir íslenskan al-þjóðamarkað,“ segir Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður, sem lagt hefur lokahönd á nýja hljóm- skífu sem væntanleg er á markað. Þar syngur Diddú öll lögin, sem Val- geir hefur gert við ljóð Jóhannesar úr Kötlum. Valgeir og Diddú störf- uðu sem kunnugt er saman í Spil- verki þjóðanna á árum áður og fer ekki hjá því að þessi plata beri þess merki: „Sum laganna teygja sig allt aft- ur til Spilverkstímans þannig að ég býst við að einhverjir eigi eftir að finna þar samhljóm,“ segir Valgeir, sem lýsir plötunni að öðru leyti sem lýriskri og kemur það heim og saman við fyrri afrek Valgeirs á tónlistarsviðinu, en hann var lengst af hinn melódíski hluti Stuðmanna: „Annars hefur mig alltaf langað til að skrifa skáldsögu en það er bara svo dýrt,“ segir Val- gerir aðspurður um næstu verkefni. ■ SUNNUDAGUR 21. september 2003 35 Valli og Diddú VALGEIR Endurnýjar gömul kynni. DIDDÚ Syngur fyrir Valgeir.  Berglind Björnsdóttir ljósmyndari er með einkasýningu á verkum sínum í Ís- lenska Grafíksalnum, Hafnarhúsinu. Berglind nefnir sýningu sína Hringrás og fjallar hún um hringrás lífsins á tákn- rænan hátt. Sýningin er opin fimmtu- daga til sunnudaga frá klukkan 14 til 18.  Box - ílát - öskjur nefnist sýning í sal Handverks og hönnunar í Aðal- stræti. Box ílát öskjur. Valin voru verk frá 27 aðilum á sýninguna, sem stendur til 12. október. Opið þri.-sun. 13-17.  Jóna Þorvaldsdóttir sýningu á ljós- myndum í Ljósfold í Galleríi Fold, Rauð- arárstíg 14 til 16. Listakonan nefnir sýn- inguna Þjóðsögu. Sýningin stendur til 5. október.  Pétur Gautur opnar sýningu á olíu- málverkum í Baksalnum í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14. Sýningin stendur til 5. október. Gallerí Fold er opið daglega frá kl. 10 til 18, laugardaga frá kl. 10 til 17 og sunnudaga frá kl. 14 til 17.  Opnuð verður sýning á verkum Guð- mundar Thoroddsen í sal SÍM, Hafnar- stræti 16. Guðmundur Thoroddsen myndlistarmaður lést árið 1996. Á sýn- ingunni verða nokkur verk sem hann vann að síðustu árin sem hann lifði.  Myndlistarkonan Claudia Mrugolski, sem málar undir nafninu Mobile, opnar sýningu á Kaffi Solon. Hún sýnir olíu- verk, sem eru skemmtileg blanda af æv- intýraheimi og litaskrúð - svolítið í anda hins fræga Klee. Sýningunni líkur 17. október.  Úr Byggingarlistarsafni, sýning á húsateikningum og líkönum íslenskra arkitekta verður opnuð í Hafnarhúsinu í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá stofun byggingarlistardeildar við Listasafn Reykjavíkur. Í safni deildarinnar eru varð- veitt söfn teikninga eftir ýmsa af merk- ustu frumherjum íslenskar byggingarlist- ar á 20. öld. Sýningin stendur til 2. nóv- ember. ■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ  Sýningunni „Safneignin og samtím- inn“ í Listasafni Árnesingalýkur í dag. Sýningin er opin milli 14 og 18. Aðgang- ur er ókeypis. ■ ■ FÉLAGSLÍF  Opið hús í Ljósheimum, Brautarholti 8. Ljósheimar er fræðslu- og heilunar- miðstöð þar sem fólk getur sótt fjöl- breytt námskeið og einkatíma hjá bæði innlendu og erlendu fagfólki. Kynnt verður vetrarstarf Ljósheima og boðið upp á prufutíma gegn vægu gjaldi. MARIKO MARGRÉT Besta brauðið er án efa aspas-stykkið í Bakarameistaranum í Suðurveri,“ segir hin frækna sjónvarpskona Mariko Margrét Ragnarsdóttir. „Bakarameistar- inn er víða í bænum og þegar asp- asstykkið er uppselt í Suðurveri hef ég oft lagt á mig að keyra alla leið upp í Mjódd. Ég hef líka gert margar tilraunir til að komast að hernaðarleyndarmálinu á bak við uppskriftina,“ segir Mariko, sem er komin í frí frá sjónvarpinu í bili en hún hyggst klára nám við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík í vor. Bestabrauðið ■ TÓNLIST Færðu réttan stuðning? Tölvustýrður botn sem tryggir hámarksstuðning og þægindi. Enginn er eins Bylting í svefnlausnum Klæðskerasaumuð lausn fyrir þig

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.