Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 37
SJÓNVARP Leikkonurnar Holly Valance og Kym Valentine, sem báðar leika í sápuóperunni Ná- grannar, eru ósáttar. Ástæðan er sú að fyrrum umboðsmaður Holly kærði hana fyrir samningsbrot. Umboðsmaðurinn Scott Michael- son, sem lék Brad Willis í Nágrönn- um, fékk reisupassann þegar Holly gerði plötusamning. Kym er lykilvitni í málinu því hún segir að Holly hafi sagt við sig að plötufyrirtæki hennar hefði beðið hana um að slíta samstarfi sínu við umboðsmanninn og að lögmaður þeirra myndi leysa úr lagaflækjunni. Þetta kemur sér mjög illa fyrir Holly sem heldur því fram að hún hafi ákveðið að reka kappann eftir að hafa þegið ráð frá mömmu sinni. Hún segir Kym hafa borið ljúgvitni í stúkunni, sem er glæpur. Scott á að hafa ítrekað ráðið Holly í ljósmyndatökur þar sem hún þurfti að vera fáklædd gegn vilja hennar og því einfaldlega ekki stað- ið sig í vinnunni. Hún segist þess vegna hafa ákveðið að leita annað. Scott vill fá 20% af gróða breið- skífu Holly sem seldist í bílförmum í Bretlandi. ■ SUNNUDAGUR 21. september 2003 37 Nágrannar þræta HOLLY VALANCE Segir Kym hafa logið upp á sig í vitnastúkunni. KYM VALENTINE Hélt því fram að Holly hefði logið upp á fyrrum umboðsmann sinn. MARIAH CAREY Söngkonan Mariah Carey hélt tónleika fyrir troðfullu húsi í Radio City Music Hall á fimmtudaginn var. Hér sést hún flytja eitt laga sinna. Leikarinn Mel Gibson fékkóvæntan stuðning á umdeilda mynd sína um síðustu daga Jesú Krists á föstu- dag. Það var ekki af verri endanum þegar um trúmál er að ræða því það voru yfir- menn Páfagarðs, höfuðstöðva kaþ- ólsku kirkjunnar, sem lögðu bless- un sína yfir myndina. Myndin, sem heitir „The Passion“, verður frumsýnd í apríl á næsta ári. Jennifer Lopezer víst ekki búin að afskrifa það að giftast leik- aranum Ben Af- fleck. Hún segist vilja bíða þar til hlutir róist niður og skoða þá málin í réttu ljósi. Það lítur því út fyrir að sagan enda- lausa missi ekki söguþráðinn al- veg strax. Vængur flugvélar The DixieChicks lenti á flugstöðvar- byggingu skömmu eftir að vélin lenti á flugvellinum í Glasgow á föstudaginn. Engan sakaði og stúlkurnar misstu ekki flugið við áreksturinn og mættu galvaskar upp á svið um kvöldið. Þær hafa þó alveg látið það ógert að skjóta á George W. Bush á tónleikum eftir vandræðin sem það olli þeim síðast. Kylie Minogue gefur út nýjabreiðskífu 17. nóvember. Fyrsta smáskífa plötunnar er að hluta til samið af Emilíu Torrini. Það heitir „Slow“ og kemur út tveimur vik- um fyrir stóru plötuna. Þar með komst Emilíana í feitt og þarf líklegast ekki að hafa áhyggjur af peningum næstu mánuði og ár. The Nep- tunes eru sagðir hafa samið nokkur lög á plötunni og hugsan- legt er að systir hennar Dannii Minogue syngi með henni dúett. Arnold Schwarzenegger hefurverið gagnrýndur fyrir að forðast það að hitta andstæðinga sína í kappræðum. Hann gefur þá skýringu að hann vilji ekki eyða tíma sínum í smávægilega hluti. Þess má geta að frambjóðendur til ríkisstjóra í Kaliforníu eru ansi margir og eiga fæstir þeirra raunhæfa möguleika á sigri eins og Arnold. Fréttiraf fólki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.