Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 19
SUNNUDAGUR 21. september 2003 Margrét Rós Gunnarsdóttir eltir góða veðrið: Mögnuð upp- lifun á Jamaíka Maðurinn er... Maðurinn sem spurt var um áblaðsíðu 15 er Jakob Frí- mann Magnússon. Jakob hefur komið víða við og er sem kunnugt er foringi hljómsveitar allra landsmanna, Stuðmanna, sem ný- lega kom heim úr mikilli frægð- arför til Danmerkur. Þar rættist gamall draumur okkar allra að leggja Tívólí að fótum vorum. ■ Jakob Frímann Magnússon JAMAÍKA Er rómantísk ferðamannaparadís þó hún eigi sínar skuggahliðar en fátæktin þar er mikil og himinn og haf skilja á milli þeirra sem hafa minnst milli handanna og þeirra efnameiri. Nafn eyjunnar á rætur að rekja til indíánamáls og þýðir „vel vökvaður“. Kristófer Kól- umbus fann eyjuna árið 1494 og Spánverjar tóku að setjast þar að fljótlega eftir aldamót- in 1500. Borgin Santiago de la Vega var lengi höfuðborg eyjunnar en hún gengur nú und- ir nafninu Spanish Town. Næsta stopp Það eru svo margir staðir semmig langar að fara á en það má segja að mig hafi alltaf langað að fara eitthvert þar sem það er gott veður og þá eru það einhverjar girnilegar eyjar sem heilla mig mest. Eyjar í Karíbahafi, Fídjíeyj- ar og allt svoleiðis, það finnst mér allt vera alger draumur. Mér finnst ekki gott að vera í kuldan- um, ég vil bara vera í góða veðr- inu,“ segir Margrét Rós Gunnars- dóttir hjá Forever Entertainment. „Ég á svo aftur á móti líka eft- ir að ferðast almennilega um Evr- ópu og þó maður hafi komið á ýmsa staði er alltaf nóg eftir og mig hefur alltaf dreymt að keyra um Evrópu. Það er endalaust af fallegum stöðum í álfunni, sér- staklega í Suður-Evrópu.“ Margrét Rós nefnir Jamaíka einnig sem eftirsóknarverðan við- komustað en þangað fór hún á sín- um tíma í útskriftarferð og dvaldi þar í hálfan mánuð. „Jamaíka er alveg upplifun út af fyrir sig. Það er ekta staður sem maður ætti að fara til í brúðkaupsferðinni sinni. Hún er ótrúlega falleg og róman- tísk. Það er ótrúlega magnað að sjá hvernig fólk lifir á þessum stöðum. Öfgarnar á milli fátæktar og ríkidæmis eru ótrúlegar og fá- tæktin er svo rosaleg að maður trúir því varla. Maður hefur gott af því að upplifa svona gersam- lega allt aðra veröld. Svo langar mig líka að fara til Kúbu. Hún er einn af þessum spennandi stöðum sem mann langar að sjá. Ég hafði tækifæri til þess að skreppa til Kúbu þegar ég var á Jamaíka en greip það ekki. Mann langar til þess að sjá þetta allt saman, stöð- una eins og hún er þarna í dag, Kastrópakkann allan og allt það. Það er bara spurning hvort maður nái því.“ ■ MARGRÉT RÓS GUNNARSDÓTTIR „Jamaíka er alveg upplifun út af fyrir sig. Það er ekta staður sem maður ætti að fara til í brúðkaupsferðinni sinni. Hún er ótrú- lega falleg og rómantísk. Það er ótrúlega magnað að sjá hvernig fólk lifir á þessum stöðum.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.