Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 17
ópusambandið býður upp á enn frekar.“ Rógur og dylgjur Þú ert ekki óumdeildur maður og fyrir einhverjum mánuðum var lögð fram vantrauststillaga á þig á fundi í Félagi íslenskra rafvirkja og þú sakaður um að vera ábyrgur fyrir skuldum og hafa gert samtök rafiðnaðarmanna gjaldþrota. „Það er vitanlega ljóst að mað- ur sem setur fram skoðanir sínar með ákveðnum hætti fær til baka svör og það er vel. Þetta eru starfshættir sem ég hef valið mér og mínir félagsmenn eru ánægðir með. Hvað varðar vantraustið var sú tillaga byggð á misskilningi. Það uppgötvaðist fyrir rúmu ári síðan að framkvæmdastjóri skóla, sem Rafiðnaðarsambandið rekur í samstarfi við atvinnurek- endur í rafiðnaði og starfar sem sjálfstæð eining, hafði dregið sér fé. Hann brást við með þeim hætti að fá menn í lið með sér og stilla upp Rafiðnaðarsambandinu og starfsmönnum þess sem söku- dólgi. Þessi hópur gekk mjög ötul- lega fram í að bera út alls konar órökstuddar dylgjur. Hann var meðal annars, svo einkennilegt sem það nú er, réttlættur með því að við hefðum líka dregið okkur fé hér í Rafiðnaðarsambandinu. Þessar sögur tóku flug eins og svo oft gerist í okkar samfélagi og eitt dagblað tók sig til og birti heilmikinn og rætinn greinar- flokk sem byggði á þessum gögn- um. Blaðið hafði ekki fyrir því að bera eitt einasta atriði undir okk- ur. Við höfðum samband við þá- verandi ritstjóra og báðum þá að fara varlega í þessu og bentum á nokkur atriði sem voru algjörlega tilhæfulaus. Því var svarað með því að birta frétt um að við hefð- um skoðað greinarnar og hefðum engar athugasemdir gert. Lög- menn okkar sögðu að hvort sem okkur líkaði betur eða verr mætt- um við ekki tjá okkur um málið þar sem ýmis atriði þess væru óljós og málið væri fyrir dómstól- um. Ég neita því ekki að það var erfitt að þurfa að sitja með hend- ur í skauti og geta ekki borið hendur fyrir höfuð sér. Þessi ein- staklingur hafði með snilldarleg- um hætti flækt bókhaldið, stofnað undirdeildir og fært peninga fram og til baka milli þeirra og miklir fjármunir höfðu lent í hans vasa. Við vísuðum öllu málinu til endurskoðenda og lögmanna og það tók þá langan tíma að greiða úr þessu og finna hversu mikið hann hafði í raun dregið sér. En sem betur fer lifum við í réttar- ríki þar sem ekki er hægt að bera sakir á menn fyrr en ljóst er hverjar þær eru. Á fundi í Félagi íslenskra raf- virkja var lögð fram vantrauststil- laga á mig sem var byggð á grunni frétta úr Dagblaðinu. Á þann fund mættu hagfræðingar og endur- skoðendur sem fóru ítarlega yfir málið og þær ásakanir sem höfðu verið bornar á mig. Niðurstaðan var sú að ég fékk fullan stuðning. Dómur í málinu féll síðastliðið vor. Í dómnum kom fram að ásakanirn- ar voru rangar. Þessi aumingjans maður, sem lenti í þeim hremming- um að villast á vösum, hefur örugg- lega valdið fjölskyldu sinni miklum sársauka. Hann hafði auk þess bor- ið þungar sakir á fyrrverandi sam- starfsmenn og vini. Hann var dæmdur til að endurgreiða fjár- munina. Mánuði síðar var haldið þing Rafiðnaðarsambandsins. Þá voru dómar fallnir og við gátum talað opinskátt um málið, lagt fram skýringar og sýnt fram á að það sem DV hafði birt væri uppspuni frá upphafi til enda. Ég fékk fullan stuðning á þinginu og margir af þeim sem höfðu trúað því sem sagt var hafa komið til mín og beðist af- sökunar á að hafa látið blekkjast. Við höfum einnig fengið mikið hrós fyrir að hafa haft þann styrkleika, og Rafiðnaðarsambandið þá félags- legu burði, að komast í gegnum þetta og að standa uppi sterkari en nokkurn tíma, þannig að það ríkir fullkomin samstaða innan Rafiðn- aðarsambandsins. En það verður að segjast eins og er að ég var orð- inn ansi þreyttur á tímabili, svo ekki sé meira sagt.“ Eigum að vernda norræna módelið Einhvern tíma varstu kenndur við Sjálfstæðisflokkinn. Hvar stendurðu núna í pólitík? „Ég kem úr gamalgróinni sjálfstæðisfjölskyldu. Ég vil halda því fram að sá Sjálfstæð- isflokkur sem við fylgdum byg- gði á norrænum kratisma. Ég tel mig vera norrænan krata. Vinur minn Árni Sigfússon fékk mig á sínum tíma á lista sjálfstæðis- manna í Reykjavík fyrir borgar- stjórnarkosningar. Við vorum í minnihluta eitt kjörtímabil en ég dró mig síðan í hlé eftir það kjörtímabil af því að ég vildi einbeita mér að því að sinna starfi mínu innan verkalýðs- hreyfingarinnar. Ég var flokks- bundinn sjálfstæðismaður þar til fyrir nokkrum árum. Ég gat ekki sætt mig við það þegar menn eins og Pétur Blöndal, Hannes Hólmsteinn og fleiri tóku að setja fram sín frjáls- hyggjusjónarmið og komu fram eins og þeir væru málsvarar sjálfstæðisfólks í landinu. Þetta eru sjónarmið sem ég get ekki látið bendla mig við og ég sagði mig úr flokknum, þegjandi og hljóðalaust, fyrir nokkrum árum. Sjálfstæðisflokkurinn verður að velja hvort hann er öfgakenndur hægri flokkur eða hægri miðjuflokkur. Flokkurinn getur ekki borið á borð sjónar- mið öfgakenndra hægri manna milli kosninga og skipt svo um hlutverk þegar að kosningum kemur og eignað sér síðan hægri krata og sagst vera að tala fyrir hönd þeirra. Hann er sannarlega ekki að gera það í mörgum málaflokkum.“ Á verkalýðshreyfingin í eðli sínu samleið með vinstri flokk- um frekar en hægri? „Íslensk verkalýðshreyfing er eins og norrænt sósíalde- mókratasamfélag. Það skiptir ekki máli hvort það er Rúmeni eða maður frá Reyðarfirði sem er í vinnu, báðir eiga að njóta sömu réttinda ef þeir vinna á Ís- landi og fara eftir sömu leikregl- um. Það er sama á hvaða ráð- stefnu maður kemur úti í heimi, alls staðar er litið upp til nor- ræna módelsins. Mér finnst skelfilegt að hlusta á íslenska menn sem gera lítið úr þessu samfélagi og hæðast jafnvel að því. Hvar í veröldinni er jafn mikill friður? Hvar í veröldinni býr fólk við sama öryggi og við búum við á Norðurlöndum? Hafa þessir menn aldrei farið til útlanda og séð hver munurinn er á norður-evrópsku samfélagi og öðrum samfélögum? Þetta er samfélag sem forfeður okkar byggðu markvisst upp alla síð- ustu öld og við búum við árangur þeirrar miklu vinnu. Mér finnst að okkur beri nákvæmlega jafn mikil skylda til að gæta þessa samfélags og að vernda Gullfoss og aðrar náttúruperlur.“ kolla@frettabladid.is 17SUNNUDAGUR 21. september 2003 Ég var flokksbundinn sjálfstæðismaður þar til fyrir nokkrum árum. Ég gat ekki sætt mig við það þegar menn eins og Pétur Blöndal, Hannes Hólmsteinn og fleiri tóku að setja fram sín frjálshyggjusjónarmið og komu fram eins og þeir væru málsvarar sjálfstæðis- fólks í landinu. Þetta eru sjónarmið sem ég get ekki látið bendla mig við og ég sagði mig úr flokknum, þegj- andi og hljóðalaust, fyrir nokkrum árum. ,, GUÐMUNDUR GUNNARSSON „Á Íslandi leika bankar og fjármagnsstofnanir of mikið lausum hala með ofboðslegum hagnaði. Samt erum við að borga margfalda vexti á við það sem þekkist annars staðar. Ef við förum inn í Evrópusambandið setjum við stjórnmálamenn okkar í þá stöðu að þeir verða að fara að vanda sig og geta ekki bara reddað hlutunum frá degi til dags.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.