Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 8
Það var spilað íslenskt Matador í gærsegir naglinn Steingrímur Ólafsson sem rekur eigin fréttastofu á Netinu. „Við borðið sátu menn sem hafa gaman af Mata- dori – og eru góðir í því, og spiluðu og spil- uðu þangað til í nótt þegar vinningarnir höfðu skipt um eigendur og eigendur skipt um vinninga. Í raun var þetta líklega mesti skiptidagur í íslensku viðskiptalífi síðan Sambandið hrundi, Thorsararnir misstu allt sitt og herinn kom með peningana til landsins, ekki endilega í þessari röð.“ Og hann á kollgátuna. Í vikunni nötraði og skalf viðskiptaheimurinn sem aldrei fyrr og talað er um að menn hafi verið að skipta á milli sín Kolkrabbagóssinu. Nokkur fyr- irtæki voru í deiglunni, þeirra á meðal Eimskip, Sjóvá-Almennar, Íslandsbanki, Landsbanki og Flugleiðir. Löngum predika markaðsmenn um mikilvægi þess að upp- færa heimasíður sínar reglulega og því at- hyglisvert að sjá hvað umrædd fyrirtæki eru með efst á baugi fréttasíðna sinna seinni part föstudags. Eimskip talar ekki um Matador né sviptingar í heimi við- skipta nema síður sé: „Eimskip ehf., dótt- urfélag Hf. Eimskipfélags Íslands, hlaut Starfsmenntaverðlaunin í dag. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin og veitti Ingimundur Sigur- pálsson, forstjóri Eimskipafélagsins þeim viðtöku.“ Ólafur Ragnar alltaf góður fyrir sinn hatt en hann er nú svo sem ekki á ferð þar sem stórtíðindi eru. Sviptinga sjást engin merki heldur á síðu Sjóvár-Al- mennra sem augljóslega standa í góðverk- um. Fyrsta frétt er: „Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Íþróttasamband fatlaðra hafa gert með sér samstarfssamning. Íþróttasamband fatlaðra hefur gegnt mjög viðamiklu starfi í uppbyggingu íþrótta fatlaðra hér á landi og gert fötluðu íþrótta- fólki kleift að sýna hvað í því býr.“ Þeir sem sjá um heimasíðu Íslandsbanka virð- ast betur með á nótunum: „Í kjölfar þess að Fjárfestingarfélagið Straumur hf. hefur eignast yfir 90% hlutafjár í Framtaki Fjár- festingarbanka hf. hefur stofnast skylda Straums til að gera öðrum hluthöfum Framtaks yfirtökutilboð og að auki hefur stofnast réttur Straums til innlausnar á öll- um þeim hlutum sem ekki eru nú þegar í eigu Straums. Straumur hefur ákveðið, í samráði við stjórn Framtaks, að krefjast innlausnar þeirra hluta sem útistandandi eru í Framtaki.“ Takk fyrir það en Lands- bankinn er rólegri í tíðinni. Svolítið svona eins og uppfærsla frétta á pressan.is. Ný frétt reyndar frá 17. þessa mánaðar en kannski ekki það sem menn voru að horfa til: „Þann 17. september 2003 hefst útboð á nýju hlutafé í Og Fjarskipti hf. (Og Voda- fone). Hluthafar í Og Fjarskipti hf. eiga rétt á því að taka þátt í útboðinu í hlutfalli við hlutafjáreign sína eins og hún var skráð í hlutaskrá félagsins í lok dags. 3. september 2003.“ Flugleiðir eru svo alveg úti á túni... eða kannski bara í sínu eins og vera ber: „Netsmellir. London & Glasgow 19.500. Kaupmannahöfn, Osló og Stokk- hólmur 20.900. Meginlandið 23.900. Skoða fargjöld.“ ■ Þegar ég var á unglingsaldri laség bók sem D.H. Lawrence skrifaði á dánarbeði sínu og kall- aði Apocalypse. Síðan lánaði ég þessa bók eða týndi henni. Í það minnsta hef ég ekki séð hana síð- an. Ég gái stundum að henni í bókabúðum en hef ekki enn fundið hana aftur. Ein- staka sinnum nefni ég þessa bók í sam- tölum við menn en hef ekki enn rekist á mann sem hefur lesið hana. Kannski hefur minni mitt svikið mig og menn kannast illa við hana í endursögn minni. Sjálfsagt gæti ég pantað þessa bók á Amazon og fengið senda. En ég hef ekki látið verða af því ennþá. Ég er farinn að kunna vel við að hafa hana hálfgrafna í minninu og veit ekki nema ég yrði fyrir von- brigðum ef ég kynntist henni upp á nýtt. Sú hefur orðið raunin með margar bækur sem höfðu áhrif á mig þegar ég var barn og ungling- ur – jafnvel ungur maður. Ég er orðinn annar en þá og hef beygt alla reynslu mína frá þessum árum undir þarfir mínar í dag. Það má því vel vera að ég hafi um- skrifað þessa bók D.H. Lawrence í hausnum nokkrum sinnum og hún orðin eitthvað allt annað en höf- undurinn ætlaðist til. En þannig er lífið – eða í það minnsta ég. D.H. Lawrence lifði þá daga þegar menn voru enn spenntir yfir dauða Guðs. Hann gerði margt sem ekki þótti sómasam- legt og fannst hann hafa rétt á því. Líf hans er ekki síður fróðlegt en skrif hans. Hann skapaði eigið líf; reyndi að leysa sína lífsglímu á eigin forsendum fremur en með viðteknum undanbrögðum. En Lawrence var dauðlegur eins og aðrir menn og þegar hann lá bana- leguna reyndi hann að gera upp við Guð – en þó einkum kristnina. Þessi bók – Apocalypse – er þetta uppgjör. Tveir Jóhannesar D.H. Lawrence skiptir kristn- inni upp í tvær meginelfur og kennir aðra þeirra við Jóhannes guðspjallamann en hina við þann Jóhannes sem ritaði Opinberun- arbókina. Fram eftir öldum var því trúað þessir tveir væru sami maðurinn – en því trúir varla nokkur lengur. Lawrence velti því fyrir sér hvort það gæti verið að þetta væri sami maðurinn – að guðspjallamaðurinn hefði elst illa, orðið bitur, svekktur og hatrammur í ellinni – en gafst upp fyrir svarinu. Í raun skipti það ekki meginmáli. Eins og menn geta batnað í lífinu geta þeir líka versnað og fátt um það að segja. En Lawrence taldi að í þessum tveimur bókum væri upphafið að tveimur meginstefnum kristn- innar. Önnur væri byggð á sam- bandi hvers einstaklings við Guð þar sem Guð var leiðsögn manns- ins í leit að eigin verðleikum; kyrrð sálarinnar, tilvistarlegri sátt og jafnvægi persónuleikans. Þetta er leið sem fylgir mannin- um ævina á enda; í hvert sinn sem svar finnst vaknar ný spurn- ing. Það er eins og Guð vilji toga manninn áfram og fá hann til að gera sem best úr sjálfum sér; lífi sínu og sál. Á þessari leið er mað- urinn sjálfur vígvöllurinn; efinn er forsenda nýrra uppgötvana og innri átök eru óumflýjanleg. Þarna er Guð persónulegur – ekki aðeins vegna þess að hann fædd- ist í Palestínu á tilteknum degi – heldur vegna þess að hann á er- indi við persónu hvers manns og aðeins hana. Það er hans ríki og hann á ekkert erindi við önnur. Hin leið kristninnar byggir fremur á heimssögulegu plani. Þar fæðist Guð, er dæmdur og deyddur, rís upp og stígur til himna en mun koma aftur að dæma lifandi og dauða og byggja upp nýtt heimskerfi – ný Jerúsal- em mun síga niður af himnum og verða höfuðborg heimsins – en ekki fyrr en djöfullinn sjálfur hefur drottnað yfir veröldinni góða stund. Þessi úrslit eru fram undan; ekki aðeins fyrir mig og mína sál heldur allar sálir – ver- öldina alla. Við erum öll saman í stórri áætlun Guðs og niðurstaða hennar er skammt undan. Þá verða úrslitin kynnt og leikurinn flautaður af; hinir hólpnu munu njóta til eilífðar samvistar við Guð en hinir munu glatast og þjást til eilífðar – og í þeirra hópi verður grátur og gnístran tanna og þagnar aldrei. Á banasænginni var D.H. Lawrence ekki aðeins að gera upp við Guð heldur ekki síður djöflana í eigin lífi. Og það er auðséð af bókinni að hann taldi þá ekki síður hafa birst í öðru fólki en í eigin sálarlífi. Og hann taldi sig þekkja þessa djöfla í öðru fólki og rakti þá til þeirrar hefðar kristninnar sem hann ken- ndi við Opinberunarbók Jóhann- esar. Í þeirri hefð bjó fólk við ei- líf sannindi og efaðist ekki. Það reyndi að breyta rétt en gat það náttúrlega ekki fremur en aðrar manneskjur. Maðurinn er ófull- komin vera – ef hann væri það ekki þyrfti hann ekki á Guði að halda. Þeir sem eiga líf sitt undir því að breyta rétt en geta það ekki leiðast því fljótlega til þess að bera sig saman við aðra. Þeir benda á hina augljósu syndara og spá þeim helvítisvist í trausti þess að þeir komist til himna út á samanburðinn. Og þar sem D.H. Lawrence hafði ekki hagað sínu lífi eftir forskrift sunnudagaskól- anna var bent á hann alla hans tíð. Hann var nánast gangandi dæmi um glataða sál. Bæði rétt og enginn milli- vegur En þrátt fyrir þetta uppgjör D.H. Lawrence við fjendur sína er niðurstaða hans síður en svo að- eins uppgjör við þá. Og í raun ekki aðeins uppgjör við kristnina eða Guð. Þau viðhorf sem D.H. Lawrence vildi rekja til Jóhannes- arguðspjalls annars vegar og op- inberunar Jóhannesar hins vegar birtast nánast í allri hugsun mannsins – meira að segja í tím- anum. Við skynjum tvenns lags tíma; annars vegar augnablikið og hins vegar þann tíma sem líður, og hvor um sig getur búið yfir sann- indum sem hinum er ómögulegt að fanga. Ef ég vakna að morgni og velti fyrir mér lífi mínu get ég fundið til sáttar með stöðu mína. Ég get leitt hugann að sárum at- burðum gærdagsins og samt verið sáttur. Eða þá hætt því og látið þessa atburði draga mig niður. Og horft til morgundagsins fullur kvíða – sama dags og ég hlakkaði til áður. Og allan tímann mun ég ekki vita hvort það voru atburðir gærdagsins og ókominn morgun- dagurinn sem breyttu viðhorfum mínum í augnablikinu eða hvort það var augnablikið sem endur- skrifaði gærdaginn og umbreytti væntingum mínum um morgun- daginn. Og þó. Líklega læri ég það með tímanum að ef ég er eitthvað, þá er ég sá sem lifir í augnablik- inu og það býr ef til vill ekki mik- ill sannleikur í tímanum sem líður – eða það minnir mig að D.H. Lawrence hafi viljað meina. Þegar til eru tveir ósnertanleg- ir sannleikar er ómögulegt að búa til einhverja samsuðu úr þeim og kalla milliveg. Og það er heldur ekki hægt að velja annan en hafna hinum. Við viljum til dæmis bæði fyrirgefa misindismönnum og refsa þeim. Við viljum hvorki búa í samfélagi sem er drifið áfram af hefndarhug og heimtar tönn fyrir hverja tönn og auga fyrir hvert auga né getum við sleppt öllum misgjörðamönnum lausum í trausti þess að þeir snúi til betri vegar. Marteinn Lúther kallaði átökin þarna á milli átök lögmáls og fagnarerindis; tvenns konar sannleika sem virðast ósættanleg- ir. Ríkisvæðing Samverjans Þessi átök eru saga allra til- rauna til að búa til mannúðlegt samfélag. Í mörg hundruð ár hafa þessar tilraunir að stóru leyti snú- ist um að finna milliveg; auka mannúð ríkisvaldsins. Í fyrstu vildu menn draga úr grimmd refs- inga og draga úr hefndarskyldu þess. Í stað þess að strekkja menn og brennimerkja og höggva í spað voru fundnar upp leiðir til að taka menn af lífi á fljótlegan – og um- fram allt þrifalegan – hátt. Loks voru aftökur aflagðar í þeim hluta heimsins sem vill teljast siðaðast- ur. Aðbúnaður fanga var bættur og viss lágmarksréttindi viður- kennd. Ríkinu var kennt að fyrir- gefa og það veitti föngum reynslu- lausn. Ríkinu var líka kennt að fólk gæti breyst og ekki alltaf til hins verra. Það reyndi því að kenna föngunum eitthvað nytsam- legt í von um að þeir fengju nýja trú á lífið og gætu orðið nytsamir borgarar síðar meir. Þróunin hefur verið svipuð í öðrum deildum samfélagsins. Hlutverk ríkisvaldsins er ekki lengur aðeins það að setja samfé- laginu ytri mörk heldur ætlumst við til þess að það varðveiti einnig innri markmið þess. Við reynum að framkalla mannúð samfélagsins í gegnum ríkisvaldið. Því ber nú að gæta að heilsu borgaranna og holl- um lifnaðarháttum, setja mörk kurteisi í almenna umræðu og tryggja að þeim sé fylgt og því ber að viðhalda kristni og góðum sið- um, menningu og auðugu mannlífi, mannúð og samhjálp. Það er al- menn skoðun í samfélaginu að rík- inu beri að koma þeim til hjálpar sem liggja meiddir í vegkantinum – Samverjinn hefur þegar hjálpað þeim með skattgreiðslum sínum. Ílát fyrir mennskuna Fjendur D.H. Lawrence, sem sóttu fullvissu sína í Opinberunar- bókina, töldu sig þekkja muninn á réttu og röngu við allar hugsanleg- ar aðstæður. Og í sjálfu sér vildi Lawrence ekki deila við þá um hvernig fólk ætti að hegða sér við tilteknar aðstæður heldur miklu frekar getu þeirra til að ákvarða það. Hann vildi trúa að mannúð og mennska rúmaðist ekki í stærra íláti en einum einstakling og því væri tilgangslaust að ætla að smíða utan um hana stór kerfi boða og banna. Og ekki bara til- gangslaust heldur ómannúðlegt í sjálfu sér. Því fyrirferðarmeira sem slíkt kerfi væri, því líklegra væri að okkur gengi illa að móta og vernda mannúðina innra með okk- ur. Leið Opinberunarbókarinnar er einfaldlega miklu betri söluvara en leið Jóhannesarguðspjalls. Hún býður upp á skýrar og endanlegar lausnir á meðan hin er óráðin leið í óvissu. Það er því ekki að furða þótt D.H. Lawrence hafi fundist mannfélagið mótað af Opinberun- arbókinni og að fáir væru til að halda fram kostum annarra leiða. Dæmin sem hann tók í Apocalypse voru fæst úr sögu kirkju eða trúar heldur úr þeirri samfélagsmótun sem hann upplifði; þeirri deiglu sem kalla má upphaf nútímaríkis eins og við þekkjum þau á Vestur- löndum. Okkur hefur verið kennd goðsaga þessarar samfélagsmót- unar; umbreyting samfélags mið- alda í mannúðlegt velferðarríki nútímans – hina nýju Jerúsalem. Samkvæmt D.H. Lawrence er þetta hins vegar ekki leið að mannúð – heldur þvert á móti – og kuldinn og einsemdin, mannfyrir- litningin og grimmdin, depurðin og lífsflóttinn sem við skynjum í nútímasamfélögum Vesturlanda eru merki þess. ■ 8 21. september 2003 SUNNUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Getur ríkisvaldið borið mannúðina? Að uppfæra sína Matadorpeninga Smáa letrið ■ Það er almenn skoðun í sam- félaginu að rík- inu beri að koma þeim til hjálpar sem lig- gja meiddir í vegkantinum – Samverjinn hef- ur þegar hjálp- að þeim með skattgreiðslum sínum. Sunnudagsbréf GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um mannúð í samfélaginu, hjá ríkisvaldinu og einstaklingunum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.