Fréttablaðið - 21.09.2003, Qupperneq 4
4 21. september 2003 SUNNUDAGUR
Á að aðskilja ríki og kirkju?
Spurning dagsins í dag:
Hefur haustið tekið völdin?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
30,7%
54,9%
Nei
14,4%Veit ekki
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Gatnagerð í Kópavogi:
Bæjarráð hafnar opnu
útboði í Fagraþingi
SVEITARSTJÓRNIR Flosi Eiríksson,
bæjarfulltrúi minnihluta Sam-
fylkingar í Kópavogi, vill að bær-
inn upplýsi hvernig staðið var að
vali fjögurra verktaka sem fá að
taka þátt í lokuðu útboði um
gatnagerð í götunni Fagraþingi.
Eitt fyrirtækjanna, Klæðning
ehf., er í eigu Gunnars I. Birgis-
sonar, forseta bæjarstjórnar. Hin
fyrirtækin eru Loftorka ehf.,
Arnarverk ehf. og JVJ ehf. Um
er að ræða 300 metra götukafla
sem úthlutað hef-
ur verið lóðum
við.
Bæjarráð sam-
þykkti ósk fram-
kvæmdadeildar
um lokað útboð en
felldi tillögu
Flosa um opið út-
boð. Gunnar sat
ekki fundinn.
Í apríl á þessu
ári hafnaði bæjarráðið hins veg-
ar sambærilegri beiðni frá deild-
arstjóra tæknideildar bæjarins
að tillögu Flosa. Tæknideildin
vildi þá efna til lokaðs útboðs á
jarðvegsvinnu við félags- og bún-
ingsaðstöðu HK í Fossvogsdal.
Til að flýta verkinu yrði fjórum
tilteknum fyrirtækjum boðin
þátttaka. Þeirra meðal var
Klæðning ehf. Eftir að Gunnar
vék af fundi við afgreiðslu máls-
ins samþykkti bæjarráð tillögu
Flosa um að útboðið yrði opið. ■
Hætta ekki fyrr
en flautan gellur
BJÖRGUN Haukur Guðmundsson
hjá Íshúsi Njarðvíkur segir félag-
ið munu leggja fram tillögur sínar
um áframhaldandi björgun togar-
ans Guðrúnar Gísladóttur á fundi
sem norska strandgæslan hefur
boðað á mánudag.
„Þeir vilja ræða stöðu og lykt-
ir málsins. Við eigum að leggja
spilin á borðið
fyrir síðasta
áfanga. Við
reynum að
leggja þau
þannig fram að
fáum að ljúka
þessu,“ segir
Haukur.
Áætlanir um
björgun Guðrúnar Gísladóttur
hafa fram til þessa allar brugðist.
Í augnablikinu er lítið í gangi við
skipið. Haukur segir norska kaf-
ara, sem unnið hafi að björgun-
inni frá því í janúar, hafa þurft að
sinna verkefni fyrir Statoil. Þeir
séu væntanlegir til baka 26. sept-
ember.
Útgerðarfélagið Festi átti skip-
ið þegar það sökk í fyrrasumar.
Norsk yfirvöld eiga kröfu á Festi
um 120 milljóna króna greiðslu
fari svo að yfirvöldin láti lyfta
skipinu eins og þau hafa sagst
hugleiða að gera. Festi hefur ósk-
að eftir fundi með norskum yfir-
völdum á mánudag til að fá botn í
stöðuna. Ásbjörn Helgi Árnason,
útgerðarstjóri Festar, tjáir sig
ekki fyrr en eftir fundinn.
Haukur segir að fari svo að
norsk yfirvöld ákveði að fjar-
lægja skipið sjálf sé Íshúsið úr
myndinni. Kröfum yfirvalda
vegna björgunar verði beint að
Festi. Yfir 170 milljónir króna
sem þegar hafi verið settar í
verkið af björgunarmönnum tap-
ist. Kostnaður sé hins vegar orð-
inn á þriðja hundrað milljónir
króna. Skuldir séu því umtals-
verðar. Af skuldunum séu um 50
milljónir króna vegna kafara-
þjónustu. Köfurunum hafi þó
þegar verið greiddar 64 milljónir.
Að sögn Hauks eru það hags-
munir allra að björgunarliðið fái
að halda áfram sínu verki:
„Annars tapa allir sem að
þessu koma sinni vinnu og pening-
um. Það er minn skilningur að það
sé sameiginlegt markmið okkar
og kafarafyrirtækisins að ljúka
verkefninu. Framlög sem áttu að
koma skiluðu sér ekki og það er
peningaleysið sem hefur stoppað
okkur. En við hættum ekki fyrr en
við erum flautaðir út af,“ segir
Haukur.
gar@frettabladid.is
Ný og skæð tölvuveira:
Swen@MM
erfiður
TÖLVUR Tölvuveiran Swen hefur á
nokkrum sólarhringum náð mik-
illi útbreiðslu. Um er að ræða
tölvuorm sem dreifist með tölvu-
pósti og á skjalaskiptasvæðum
eins og Kazaa, en pósturinn sem
viðtakandi fær virðist koma frá
Microsoft.
Veiruvarnarsérfræðingar
segja að Swen hafi svipaða eigin-
leika og SoBig-ormurinn, sem
varð útbreiddasti tölvuormur
sögunnar á örfáum vikum. Skað-
inn sem Swen veldur er að orm-
urinn virðist ræna ýmsum upp-
lýsingum sem er að finna á sýkt-
um tölvum. ■
Landsvirkjun sækir um
leyfi við Norðlingaöldu:
Umsóknin
send í ágúst
ORKUBÚSKAPUR Landsvirkjun hefur
sótt um leyfi iðnaðarráðuneytis-
ins til að virkja við Norðlingaöldu
þannig að lónhæð þar verði 568
metrar yfir sjávarmáli. Þetta
kemur fram í nýjasta tölublaði
Lögbirtingablaðsins.
Skeiða- og Gnjúpverjahreppur
hefur hafnað að lónhæðin verði
meiri en 566 metrar. Þorsteinn
Hilmarsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar, segir leyfisum-
sókn Landsvirkjunar reyndar
hafa verið lagða fram áður en
sveitarstjórnin tók ákvörðun sína
og áður en Landsvirkjun afréð í
kjölfarið að fresta framkvæmd-
um við Norðlingaöldu.
„Framkvæmdinni var frestað
en ekki hætt við hana og undir-
búningi er haldið áfram. Þetta er
gert með fullri vitund sveitar-
stjórnarmanna og annarra,“ segir
Þorsteinn.
Upplýsingafulltrúinn bendir á
að niðurstöðu setts umhverfisráð-
herra, Jóns Kristjánssonar, um að
heimila lónhæð í allt að 568 metr-
um hafi ekki verið áfrýjað: „Hvað
varðar mat á umhverfisáhrifum
er gild heimild fyrir þessari fram-
kvæmd í tíu ár.“ ■
EGILSSTAÐIR
Starfsmenn Impregilo eru farnir að venja
komur sínar þangað um helgar.
Heimsóknir starfsmanna
Impregilo til Egilsstaða:
Mikil
lyftistöng
EGILSSTAÐIR Sunnudagur er frídag-
ur fyrir flesta þá erlendu starfs-
menn sem starfa við Kárahnjúka-
virkjun. Fer þeim fjölgandi sem
sækja þá til Egilsstaða til tilbreyt-
ingar frá hversdagsleika vinnu-
búðanna við Kárahnjúka.
„Þetta er svo sannarlega mikil
lyftistöng fyrir samfélagið hér,“
sagði Olga Óla Bjarnadóttir, sem
rekur veitingastaðinn Café Niel-
sen. „Þeir hafa mikið komið hing-
að og hafa verið einstaklega kurt-
eisir og ég ber þeim góða söguna.“
Olga sagðist hafa ákveðið
vegna aukinna viðskipta að hafa
opið í vetur en það hefur hún ekki
gert í langan tíma. „Það er kominn
grundvöllur fyrir slíku í dag. Eitt-
hvað verða mennirnir að hafa fyr-
ir stafni þessa fáu frídaga sem
þeim áskotnast.“
Lögreglan á Egilsstöðum segir
að engin teljandi vandræði hafi
skapast við heimsóknirnar. „Ein-
hver pirringur hefur verið í ein-
staka mönnum en það hefur hvorki
verið mikið né alvarlegt,“ sagði
Jón Þórarinsson varðstjóri. ■
EYÐILEGGING
Fjöldi húsa eyðilagðist í strandbæjum
Norður-Karólínu en flestir íbúarnir höfðu
yfirgefið svæðið áður en fellibylurinn
gekk yfir.
Eyðileggingin blasir við:
Milljónir án
rafmagns
BALTIMORE, AP Hreinsunaraðgerðir
eru hafnar á austurströnd Banda-
ríkjanna þar sem fellibylurinn
Isabel gekk yfir. Enn er raf-
magnslaust á milljónum heimila
og er áætlað að viðgerðir muni
taka allt upp í viku. Staðfest
dauðsföll af völdum veðurofsans
eru orðin 23.
Mikil eyðilegging blasti við
meðfram strönd Norður-Karólínu
þar sem brim og snarpur vindur
brutu bryggjur og skemmdu
fjölda húsa. Enn er verið að safna
upplýsingum um afdrif þeirra
4.000 íbúa á svæðinu sem ekki
fóru að ráðum yfirvalda um að yf-
irgefa heimili sín.
Vindhraði Isabel hafði fallið úr
rúmlega 40 metrum á sekúndu
niður í 13 metra þegar óveðrið
gekk yfir Kanada á föstudags-
kvöld. ■
Bill Clinton:
Afhjúpaði
minnismerki
SREBRENICA, AP Bill Clinton, fyrrum
Bandaríkjaforseti, afhjúpaði
minnismerki um átta þúsund mús-
lima sem myrtir voru í Srebrenica
af hersveitum Bosníu-Serba í júlí
1995. Fjöldamorðið er talið hið
versta í Evrópu frá lokum síðari
heimsstyrjaldar. Tildrög þess
voru mikill álitshnekkir fyrir
Sameinuðu þjóðirnar því Srebren-
ica var yfirlýst friðarsvæði undir
vernd hersveita á vegum SÞ. Hol-
lenskir friðargæsluliðar aðhöfð-
ust ekkert á meðan morðin fóru
fram. Þessi atburður í Srebrenica
varð til þess að augu heimsins
beindust í auknum mæli að ófrið-
arsvæðinu. Þeir sem lifðu af árás-
ina buðu Bill Clinton til athafnar-
innar vegna þáttar hans í lyktum
stríðsátaka á Balkanskaga í for-
setatíð sinni. ■
BORGARBYGGÐ BYGGI Á BIFRÖST
Rektor Viðskiptaháskólans á Bif-
röst hefur óskað eftir þátttöku
Borgarbyggðar í hlutafélagi um
byggingu rannsóknarhúsnæðis og
nemendaíbúða á Bifröst. Bæjar-
stjóra hefur verið falið að ræða
við rektorinn.
BORGARFJORDUR.COM Heimasíð-
an borgarfjordur.com hefur verið
opnuð. Þar er að finna kynningar-
vef sveitarfélaganna Borgar-
byggðar og Borgarfjarðarsveitar.
Leifar stærsta nagdýrs sögunnar:
Þriggja metra há rotta
LÍFRÍKI Leifar af stærsta nagdýri
sem uppi hefur verið hafa fund-
ist í Suður-Ameríku. Nagdýrið,
sem hefur hlotið latneska heitið
Phoberomys pattersoni, er talið
hafa verið tæpir þrír metrar á
hæð og sjö hundruð kílóa þungt.
Dýrið er talið hafa átt sér heim-
kynni í regnskógum í Venesúela
fyrir um átta milljónum ára. Til
samanburðar var hin útdauða
nagdýrstegund tíu sinnum stærri
en stærstu núlifandi nagdýr og
um tvö þúsund og fimm hundruð
sinnum stærra en venjulegar
rottur.
Vísindamenn segja að þar sem
Suður-Ameríka hafi lengst af ver-
ið aðskilin frá öðrum heimsálfum
hafi fjölbreytilegt lífríki þróast
þar fyrr um tíð, líkt og raunin er
með Ástralíu. Talið er að Suður-
Ameríka hafi tengst Norður-Am-
eríku fyrir um átta milljónum ára.
Þetta olli miklum breytingum á
plöntulífi og loftslagi og í kjölfar-
ið dóu margar dýrategundir út. ■
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
Fyrrverandi eigandi togarans Guðrúnar Gísladóttur, Útgerðarfélagið Festi, hefur óskað eftir
fundi með norskum yfirvöldum vegna ringulreiðarinnar í tengslum við björgun skipsins.
Festi er ábyrgt fyrir um 120 milljóna króna björgunarkostnaði kjósi norsk yfirvöld að gang-
ast fyrir því að skipið verði fjarlægt af hafsbotni.
Björgunarlið við togarann Guðrúnu Gísladóttur er boðað til norsku
strandgæslunnar á morgun. Norðmenn vilja sjálfir fjarlægja skipið.
Yfir 200 milljóna kostnaður tapast verði verkið tekið af björgunarliðinu.
RISANAGDÝR
Leifar af stærsta nagdýri sögunnar hafa fundist í Suður-Ameríku.
„Við eigum
að leggja
spilin á borð-
ið fyrir síðasta
áfanga.“
FLOSI
EIRÍKSSON
■ Borgarfjörður