Fréttablaðið - 21.09.2003, Qupperneq 32
32 21. september 2003 SUNNUDAGUR
HÆTTI KEPPNI
Jón Arnar Magnússon hætti keppni á al-
þjóðlegu móti í tugþraut sem fram fór í
Talence í Frakklandi í gær. Jón Arnar lauk
fjórum greinum en hætti áður en að 400
metra hlaupinu kom.
Tugþraut
Enska úrvalsdeildin:
Chelsea á toppinn
Einn stærsti
leikur tímabilsins
Stórleikur á Old Trafford í dag þegar Manchester United og Arsenal mætast í ensku úrvalsdeild-
inni. Sol Campbell verður væntanlega ekki með og spurning með Roy Keane.
FÓTBOLTI Manchester United og
Arsenal eigast við í stórleik ensku
úrvalsdeildarinnar á Old Trafford í
dag. Arsenal er í öðru sæti deildar-
innar og hefur ekki tapað leik en
United er í þriðja sæti stigi á eftir.
Það verður á brattann að sækja
fyrir Lundúnaliðið eftir að hafa
verið niðurlægt af Inter Milan í
Meistaradeild Evrópu í síðustu
viku. Auk þess leikur Sol Campbell
líklega ekki með liðinu af persónu-
legum ástæðum og Ruud van
Nistelrooy, framherji United, er
staðráðinn í að skora enda langt um
liðið frá síðasta marki hans.
„Ég hef góða tilfinningu fyrir
leiknum,“ sagði Hollendingurinn
knái. „Mér finnst alltaf eins og ég
geti skorað í mikilvægum leikjum
og að fá Arsenal í heimsókn er einn
stærsti leikur tímabilsins.“
Van Nistelrooy hefur aðeins
skorað í einum af síðustu fjórum
leikjum United. Hann skoraði ekki
þegar liðið vann Panathinaikos 5-0 í
Meistaradeild Evrópu og komst
heldur ekki á blað þegar Holland
tapaði fyrir Tékklandi í und-
ankeppni Evrópumótsins. Á síðasta
tímabili varð hann markahæstur í
ensku úrvalsdeildinni og Meistara-
deild Evrópu.
Þótt hjarta varnarinnar vanti í
lið Arsenal eru leikmenn staðráðnir
í að sigra í dag. „Eftir slæman dag
eins og við áttum gegn Inter vill
maður fá næsta leik á eftir eins
fljótt og auðið er,“ sagði Patrick
Vieira, miðjumaður hjá Arsenal.
„Nú höfum við tækifæri til að sýna
hvað í okkur býr.“
Talsverð meiðsli eru í herbúðum
Manchester United. Fyrirliðinn
Roy Keane, Nicky Butt, Ole Gunnar
Solskjær og John O’Shea eru allir
tæpir vegna meiðsla auk þess sem
Paul Scholes er meiddur.
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, þarf að gera það upp
við sig hvort hann stilli Sylvain
Wiltord eða Dennis Bergkamp við
hlið Henry í framlínunni. ■
RUUD VAN NISTELROOY
Er staðráðinn í að skora í dag enda hefur
honum gengið illa að koma knettinum yfir
marklínuna.
FÓTBOLTI Bayern München og Bayer
Leverkusen skildu jöfn í sex marka
leik í gær. Michael Ballack, Roy
Makaay og Roque Santa Cruz skor-
uðu mörk Bæjara en Carsten
Ramelow, Francoaldo og Bastürk
skoruðu mörk Leverkusen.
Bræðurnir Bjarni og Þórður
Guðjónssynir komu báðir inn á sem
varamenn í lið Bochum sem gerði
jafntelfi við Herthu Berlín 2-2.
Stuttgart lagði Borussia Dort-
mund að velli með einu marki gegn
engu og tyllti sér þar með á topp
þýsku Bundesligunnar með fjórtán
stig. Leverkusen er í öðru sæti,
stigi á eftir Stuttgart, en Bayern
München er í því fimmta með ell-
efu stig.
Bochum er í tíunda sæti með
átta stig. ■
Handbolti:
Haukar fara
áfram
HANDBOLTI Íslandsmeistarar
Hauka í handknattleik tryggðu
sér sæti í Meistaradeild Evrópu í
gær þótt þeir töpuðu fyrir portú-
galska liðinu San Bernando
Aveiro 24-20, í síðari viðureign
liðanna í undankeppninni. Haukar
unnu fyrri viðureignina með
fjórtán marka mun, 37-23, og
komast því áfram.
Ásgeir Örn Hallgrímsson var
markahæstur Hauka en hann
skoraði fimm mörk.
Haukar mæta þýska liðinu
Magdeburg, spænska liðinu
Barcelona og Vardar Skopje frá
Makedóníu í riðlinum. Fyrsti leik-
ur Hauka verður gegn Barcelona
11. eða 12. október. ■
MARK
Michael Ballack skoraði fyrsta mark sitt í þýsku úrvalsdeildinni í gær.
Þýska úrvalsdeildin:
Sex marka leikur í Bæjaralandi
FJARRI GÓÐU GAMNI
Sol Campbell verður væntanlega ekki með Arsenal í dag þegar liðið mætir Manchester United.
FÓTBOLTI Chelsea komst á topp
ensku úrvalsdeildarinnar í gær
þegar liðið lagði Úlfana að velli
5-0. Hernan Crespo kom inn á sem
varamaður í liði Chelsea og skor-
aði fyrsta mark sitt fyrir félagið.
Crespo bætti við öðru marki og
sáu Frank Lampard, Jimmy Floyd
Hasselbaink og Damien Duff um
hin þrjú. Eiður Smári Guðjohnsen
lagði upp eitt markanna og Jó-
hannes Karl Guðjónsson var í
byrjunarliði Úlfanna.
Eftir leikinn hló Claudio Rani-
eri, knattspyrnustjóri Chelsea,
að þeim vangaveltum að Sven-
Göran Eriksson tæki hugsanlega
við stöðu hans hjá liðinu.
Fulham kom í veg fyrir að
Manchester City kæmist á topp
deildarinnar þegar liðin skildu
jöfn 2-2 á Loftus Road.
Liverpool hélt áfram góðum
árangri og vann Leicester City
með tveimur mörkum gegn einu.
Michael Owen skoraði fyrra mark
Liverpool úr vítaspyrnu en Emile
Heskey það síðara.˚
Glenn Hoddle, knattspyrnu-
stjóri Tottenham, er orðinn valtur
í sessi eftir að lið hans tapaði 3-1
fyrir Southampton. Southampton
komst þar með í fjórða sæti deild-
arinnar. ■ HERNAN CRESPO
Skoraði fyrstu mörk sín fyrir Chelsea í gær.
Enska úrvalsdeildin
L U J T Mörk Stig
Chelsea 5 4 1 0 15:6 13
Arsenal 5 4 1 0 11:3 13
Man. Utd. 5 4 0 1 9:2 12
South. 6 3 3 0 8:3 12
Man. City 6 3 2 1 14:8 11
Liverpool 6 3 2 1 9:4 11
Birmingh. 5 3 2 0 6:2 11
Portsm. 6 2 3 1 9:5 9
Blackburn 6 2 2 2 14:12 8
Fulham 5 2 2 1 11:9 8
Aston Villa 6 2 1 3 7:10 7
Bolton 6 1 3 2 4:10 6
Leicester 6 1 2 3 9:9 5
Everton 5 1 2 2 8:10 5
Charlton 6 1 2 3 7:9 5
Leeds 6 1 2 3 6:12 5
Tottenham 6 1 1 4 5:12 4
Newcastle 5 0 3 2 5:7 3
Middlesbr. 5 0 1 4 4:12 1
Wolves 6 0 1 5 1:17 1
LEIKIR DAGSINS:
Middlesbrough - Everton
Man. Utd. - Arsenal
LÁRUS ORRI SIGURÐSSON
Var í liði WBA sem gerði jafntefli við
Crystal Palace í gær.
Enska 1. deildin:
WBA gerði
jafntefli
við Palace
FÓTBOLTI Lárus Orri Sigurðsson
var í liði West Bromwich Albion
þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við
Crystal Palace í ensku 1. deild-
inni. WBA var mun betri aðilinn í
leiknum en Crystal Palace náði að
jafna þegar skammt var til leiks-
loka.
Brynjar Björn Gunnarsson sat
á varamannabekknum þegar
Nottingham Forest tapaði fyrir
Crewe 3-1.
Heiðar Helguson var ekki í liði
Watford sem tapaði fyrir Wigan,
1-0. Heiðar er meiddur.
WBA er í þriðja sæti deildarinn-
ar með 16 stig, þremur minna en
topplið Wigan. Nottingham Forest
er í fimmta sæti en Watford í því
næstneðsta með fjögur stig. ■
Enska 2. deildin:
Jafntefli hjá
Barnsley
FÓTBOLTI Barnsley, lið Guðjóns
Þórðarsonar, gerði 1-1 jafntefli
gegn Swindon í gær í ensku 2.
deildinni. Swindon komst yfir í
leiknum í gær en Kevin Betsy
náði að jafna fyrir Barnsley í
seinni hálfleik.
Barnsley er í fimmta sæti
deildarinnar með sextán stig,
þremur stigum á eftir Port Vale,
sem er í toppsætinu. ■
Evrópumet í skák:
Hundrað
konur tefldu
SKÁK Evrópumet í fjöltefli kven-
na var sett í Ráðhúsi Reykjavík-
ur í gær þegar 102 konur mættu
til leiks og tefldu við Kvenna-
sveit Taflfélagsins Hellis.
Kvennasveitin hafði stefnt að því
að fá 50 konur en fjöldinn tvö-
faldaðist og urðu sumar frá að
hverfa.
Liðið vann allar skákirnar
nema þrjár; gegn Tinnu Gunn-
laugsdóttur leikkonu, Báru Bald-
ursdóttur sagnfræðingi og Jó-
hönnu Björg Jóhannsdóttur
nema. Engin skák endaði með
jafntefli.
Meðal þátttakenda voru Vig-
dís Finnbogadóttir, Magga Stína,
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
Þórey Edda Elísdóttir og Eva
María Jónsdóttir. ■