Fréttablaðið - 21.09.2003, Page 34
■ ■ TÓNLEIKAR
16.00 Mozart fyrir sex. Óperu-
söngvararnir Hulda Björk Garðarsdótt-
ir, Sesselja Kristjánsdóttir og Davíð
Ólafsson flytja verk eftir Mozart ásamt
Chalumeaux-tríóinu í Laugaborg í
Eyjafjarðarsveit.
20.00 Á fyrstu tónleikum Kamm-
ermúsíkklúbbsins á þessu starfsári flyt-
ur Eþos-kvartettinn ásamt Þórunni Ósk
Marínósdóttur lágfiðluleikara og Monu
Sandström píanóleikara verk eftir Jón
Ásgeirsson, Mozart og Dvorak. Tónleik-
arnir verða haldnir í Bústaðakirkju.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjörn Egner sýnd á Stóra sviði
Þjóðleikhússins.
14.00 Lab Loki sýnir í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsinu barnaleik-
ritið „Baulaðu nú...“ Dagur í lífi Kristín-
ar Jósefínu Páls.
14.00 Lína Langsokkur eftir Astrid
Lindgren verður á Stóra sviði Borgar-
leikhússins.
17.00 Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjörn Egner sýnd á Stóra sviði
Þjóðleikhússins.
20.00 Grease í Borgarleikhúsinu.
21.00 Björk Jakobsdóttir flytur
einleik sinn, Sellófon, í Iðnó.
■ ■ LISTOPNANIR
14.00 Þýski myndlistarmaðurinn
Rolf Bier sýningu á verkum sínum í
GUK+ undir yfirskriftinni Hvernig er
hægt að lengja dvölina. Sýningin verð-
ur opnuð klukkan 14 í garði á Selfossi,
klukkan 16 í skúr í Lejre, Danmörku og
einnig klukkan 16 í eldhúsi í Bremen,
Þýskalandi. Rolf Bier verður sjálfur við-
staddur opnunina í Bremen. Sýningin
stendur til 2. nóvember.
■ ■ SKEMMTANIR
16.00 Rekstrarsjón með línudansi
á Hótel Borg. Kaffi og terta innifalið í
1.950 kr. aðgangseyri.
20.00 Caprí-tríó leikur fyrir dansi í
Ásgarði, Glæsibæ.
KK og Maggi Eiríks eru með tón-
leika á Kaffi Krók, Sauðárkróki.
Hljómsveitin Dans á rósum frá Vest-
mannaeyjum skemmtir á Odd-Vitanum,
Akureyri.
Blues Binns á Vídalín.
■ ■ ÚTIVIST
10.00 Dagsferð Ferðafélags Ís-
lands. Gengið verður á Botnssúlur nán-
ar til tekið á Syðstusúlu. Gangan hefst
við Svartagil og endar í Botnsdal. Áætlað
er að gangan taki 6 til 7 tíma, hækkun
1000 m. Fararstjóri Höskuldur Frí-
mannsson.
11.00 Safnaganga um miðbæ
Hafnarfjarðar. Lagt verður af stað í húsa-
göngu frá Smiðjunni Strandgötu 50 og
gengið á milli safnahúsanna í fylgd
Kristjáns Bersa Ólafssonar. Gangan er
í boði Byggðasafns Hafnarfjarðar.
■ ■ FUNDIR
13.30 Í tilefni af alþjóðadegi
Alzheimerssjúklinga gengst félag
áhugafólks og aðstandenda Alzheimer-
sjúkra og heilabilaðra á Norðurlandi fyrir
fræðsludegi á Akureyri að Skipagötu 14
í Alþýðuhúsinu, 4. hæð.
15.00 Í tilefni af alþjóðadegi
Alzheimerssjúklinga verður fundur í
húsi Pharmanor að Hörgatúni 2, Garða-
bæ. Andrés Ragnarsson sálfræðingur
flytur erindi og Soffía Egilsdóttir félags-
ráðgjafi ræðir um starfið. Spurt og spjall-
að undir hlöðnu kaffiborði.
■ ■ DANSLIST
Mæja, myndlistarkona, sýnir málverk
sín í Hitaveitu Suðurnesja í Hafnarfirði
en sýningin ber heitið Losti & Þrá. Sýn-
ingin er opin alla virka daga kl. 8-16.
■ ■ SÝNINGAR
Yfir bjartsýnisbrúna - Samsýning
alþýðulistar og samtímalistar nefnist
sýning sem Listasafn Íslands hefur unn-
ið í samstarfi við Safnasafnið á Sval-
barðsströnd við Eyjafjörð. Hér leiða sam-
an hesta sína tuttugu og fimm lista-
menn sem ýmist kenna sig við alþýðu-
list eða samtímalist. Sýningin verður í
Hafnarhúsinu til 2. nóvember.
Vögguvísur nefnist innsetning Bryn-
dísar Snæbjörnsdóttur og Mark Wil-
sons í Listasafni Reykjavíkur - Hafnar-
húsi, sem opnuð verður í dag. Sýningin
stendur til 2. nóvember.
Elín Hansdóttir myndlistarmaður,
sem útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands
nú í vor, sýnir nú verk sín í Gallerí
Dvergi, Grundarstíg 21, 101 Rvk. Sýning-
in, sem kallast „Big Bird“, er opin
fimmtudag til sunnudags kl. 17-19 og
stendur til 4.október“.
Sýningin UrmUll eftir listakonuna
Snjólaugu Guðmundsdóttur stendur
yfir í Listasafni Borgarness, sem er til
húsa í Safnahúsi Borgarfjarðar, Bjarnar-
braut 4-6, Borgarnesi. UrmUll er hand-
verks- og listíðasýning og eru öll verkin
á sýningunni unnin úr ull.
Sýningin Grasrót 2003 verður opn-
uð í Nýlistasafninu. Að þessu sýna verk
sín þau Arndís Gísladóttir, Baldur G.
Bragason, Birgir Örn Thoroddsen,
Birta Guðjónsdóttir, Bryndís E. Hjálm-
arsdóttir, Bryndís Ragnarsdóttir, Elín
Helena Evertsdóttir, Hanna Christel
Sigurkarlsdóttir, Hrund Jóhannesdóttir,
Huginn Þór Arason, Hugleikur Dags-
son, Magnús Árnason og Rebekka
Ragnarsdóttir. Sýningarstjórar eru
Dorothée Kirch og Erling T.V. Klingen-
berg.
Yfirlitssýning á verkum Júlíönu
Sveinsdóttur (1889-1966) stendur yfir í
Listasafni Íslands. Á sýningunni eru yfir
100 verk, málverk og vefnaður, sem
varpa ljósi á feril þessa merka brautryðj-
enda íslenskrar myndlistar. Sýningin
stendur til 26. október.
Bubbi, Guðbjörn Gunnarsson, skúlp-
túristi og Jóhann G. Jóhannsson, mynd-
listar- og tónlistarmaður eru með sam-
sýningu í Húsi málaranna, Eiðistorgi.
Sýningin stendur yfir til 28. september
og er opin fimmtudaga til sunnudags kl.
14-18.
Þrjár einkasýningar eru nú í Lista-
safni Kópavogs-Gerðarsafni. Helgi
Hjaltalín Eyjólfsson er í Austursal með
sýninguna Skraut/Kjöraðstæður þar
sem hann sýnir skúlptur- og ljósmynda-
verk. Sýning Katrínar Þorvaldsdóttur í
vestursal heitir Borðhald/Ef ég segi þér
hver ég er þá gleymir þú hver ég var.
Á neðri hæð safnsins opnar Olga Berg-
mann í samstarfi við stofnun Dr. B sýn-
inguna Náttúrugripasafn. Sýningarnar
standa til 5. október. Safnið er opið alla
daga frá kl. 11.00-17.00 nema mánu-
daga.
Vögguvísur nefnist innsetning Bryn-
dísar Snæbjörnsdóttur og Mark Wil-
sons í Listasafni Reykjavíkur - Hafnar-
húsi, sem opnuð verður í dag. Sýningin
stendur til 2. nóvember.
Í Sverrissal Hafnarborgar, menning-
ar- og listastofnunar Hafnarfjarðar,
stendur yfir sýning á málverkum Krist-
bergs Péturssonar. Sýningunni lýkur 6.
október.
Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Þórey
Rut Jóhannesdóttir sýna á Kjarvals-
stöðum í tengslum við listahátíðina List
án landamæra.
Ingiríður Ólafsdóttir sýnir textílverk í
Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar. Mið-mán 11-17 til 6. októ-
ber.
Sýning Ingu Jónsdóttur stendur yfir í
Ásmundarsal og Gryfju Listasafns ASÍ
við Freyjugötu. Sýninguna nefnir hún
Ryk. Í Arinstofu stendyr yfir sýning á
verkum Kristins Péturssonar og nefnist
hún Töfratákn.
Teikningar sjö til sextán ára barna í
Hafnarfirði og hugmyndir þeirra um
vinabæjarsamstarf Hafnarfjarðar og
Cuxhaven eru sýndar í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnarfjarð-
ar. Sýningin stendur til 6. október.
María Guðnadóttir er með mynd-
listarsýningu á Kaffi Expresso í Spöng-
inni Grafarvogi. Sýningin stendur frá til 7.
október.
Safn, samtímalistasafn á Laugavegi
37, er opið miðvikudaga til föstudaga frá
kl 14-18 en til 17 laugardaga og sunnu-
daga.
Sýningin „Safneignin og samtíminn“
í Listasafni Árnesingaer opin milli 14
og 18. Síðasti sýningardagur er á morg-
un. Aðgangur er ókeypis.
JÓN PÁLL EYJÓLFSSON
Besta laugin er í viðgerð núnaen það er gamla Sundhöllin í
Keflavík,“ segir Jón Páll Eyjólfs-
son leikari. „Þar lærði ég að
synda og þetta er mjög heimilis-
leg laug. Hún er alveg niðri við
sjó og sem gutti fór maður með
blautt hárið og lék sér í klettunum
fyrir aftan laugina.“ Jón Páll leik-
ur um þessar mundir í Grease og
íslenska gamanleikritinu Ráða-
lausir menn í Tjarnarbíói: „Á
milli leiksýninga dýfi ég mér
stundum í pottana í Laugardaln-
um.“
Bestalaugin
34 21. september 2003 SUNNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
18 19 20 21 22 23 24
SEPTEMBER
Sunnudagur N
útímamyndlist og alþýðulist
hafa löngum þótt andstæðir
pólar í myndlist og eiga fátt sam-
eiginlegt. Myndlistarmaðurinn og
safnstjórinn Níels Hafstein er
bjartsýnn maður og fer létt með
að brúa þetta óbrúanlega bil á
sýningu sem opnuð var í gær í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnar-
húsinu.
Á sýningunni gætir ýmissa
grasa. Þarna eru verk eftir marga
þekkta listamenn af yngri kyn-
slóðinni innan um algerlega
óþekkt alþýðufólk sem hefur ára-
tugum saman stundað list sína í
kyrrþey.
Níels á sjálfur hæg heimatökin
með að velja verk alþýðulista-
manna á sýninguna. Hann er for-
stöðumaður Safnasafnsins á Sval-
barðsströnd, þar sem hann hefur
markvisst sankað að sér verkum
eftir alþýðulistamenn víða um
land með stuðningi hins opinbera.
„Smám saman höfum við verið
að víkka út svæðið, fara meira inn
til dala og út af þjóðveginum. Oft
finnst fólki þetta ekki merkilegt
sem það er að gera,“ segir Níels.
„Margir verða furðu lostnir þegar
allt í einu bankar upp á hjá þeim
maður frá listasafni sem reiðir
fram fé og vill fá að kaupa af þeim
listaverkin.“
Hann segir þess dæmi að fjöl-
skyldur hafi kallað saman fund
um það hvernig eigi að bregðast
við manninum frá listasafninu,
sem er að gera at í gamla frænd-
anum.
Níels er ekki síður heima í nú-
tímalistinni og er meðal annars
einn af stofnendum Nýlistasafns-
ins.
Hann segir lærða myndlistar-
menn vera að nálgast æ meir jað-
arlist alþýðunnar.
„Þeir eru farnir að leita meira
til upprunans, taka fyrir þjóðsög-
ur og sagnir, minni og hefðir.“
Hann tekur samt fram að nú-
tímalistamenn séu ekkert að búa
til alþýðleg verk neitt sérstaklega
í þeim tilgangi að vera alþýðlegir.
„Þeir eru bara svona blátt áfram í
þessu eins og allir aðrir. Þess
vegna fannst mér kominn tími til
að alþýðulistin kæmi inn í svona
stórt rými þar sem hún mætti
lærðu listinni á jafnréttisgrund-
velli.“
gudsteinn@frettabladid.is
■ MYNDLIST
Yfir bjartsýnisbrúna
NÍELS HAFSTEIN
Teflir saman alþýðulist og nútímalist í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu.
Hasarmyndin Bad Boys komleikstjóranum Michael Bay
og leikurunum Will Smith og
Martin Lawrence á kortið. Bay
hefur verið að sprengja hluti í
tætlur fyrir framleiðandann
Jerry Bruckheimer síðan þá,
Smith hefur átt misgóða daga en
leiðin hefur legið stöðugt niður á
við hjá Lawrence. Það þarf því
engan að undra eð leikararnir
hafi viljað hverfa aftur til fortíð-
ar og endurtaka leikinn frá 1995.
Þeir sem kunnu að meta þá
mynd vita upp á hár að hverju
þeir ganga í Bad Boys II enda hef-
ur Bay ekki séð ástæðu til að
breyta formúlunni sem saman-
stóð af hrærigraut spennu og
gríns. Bay kann fátt annað en að
drepa fólk með látum, sprenging-
um, árekstrum, skotbardögum og
öðru slíku.
Sagan er þynnri og ófyndnari
en í fyrra skiptið og hafi einhver
neisti verið á milli aðalleikarana
árið 1995 er hann dauður nú. Bay
breiðir yfir þessa galla með því að
stíga allt í botn þannig að önnur
eins keyrsla hefur ekki sést í bíó
lengi. Þetta skilar tilætluðum ár-
angri framan af og maður unir
sæll við sitt þó maður viti varla
hvað sé í gangi. Bay gengur þó
því miður of langt og þegar Mi-
ami-löggurnar fara í herleiðangur
til Kúbu er manni öllum lokið. 147
mínútur af innihaldslausum
sprengingum, byssubardögum,
fáklæddum gellum og testó-
steróntröllum að hnykla vöðvana
eru bara of mikið af því góða.
Þórarinn Þórarinsson.
UmfjöllunKvikmyndir
BAD BOYS II
Leikstjóri: Michael Bay
Aðalhlutverk: Martin Lawrence, Will Smith
Of stór skammtur