Fréttablaðið - 22.09.2003, Page 1
nýr musso sport ● góð ráð
▲
SÍÐUR 16-17
bílar o.fl.
Jagúarinn hans
Kavanagh
Draumabíllinn:
● united og arsenal gerðu jafntefli
Enski boltinn:
▲
SÍÐA 21
Tilfinningahiti
í Manchester
● friðrik þór guðmundsson
Afmæli:
▲
SÍÐA 14
Ætlar ekkert
að gera
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 22
Leikhús 22
Myndlist 22
Íþróttir 21
Sjónvarp 24
MÁNUDAGUR
TÖPUÐU TUGUM MILLJARÐA
Jóhannes Jónsson í Bón-
us segir að aðgerðir lög-
reglu gegn Baugi, sem
urðu til viðræðuslita um
kaup á Arcadia, hafi
kostað félagið tugi millj-
arða. Sjá síðu 2.
SMÆRRI HLUTHAFAR GJALDA
Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við Háskóla
Íslands, telur að hagsmunum smærri hlut-
hafa í Eimskipi hafi verið fórnað til þess að
sættir næðust á milli Landsbanka og Ís-
landsbanka um eignarhald á fjárfestingar-
fyrirtækinu Straumi. Sjá síðu 2.
ALLIR MEÐ STRÆTÓ
Í tilefni loka evrópskrar samgönguviku
verður frítt í strætó í dag. Að auki verður
farþegum boðið að kíkja í bók á meðan á
ferð stendur. Sjá síðu 6.
STÓRSIGUR FRAMSÓKNAR
Framsóknarflokkurinn vann yfirburðasigur í
sveitarstjórnarkosningu í Búða- og Stöðvar-
hreppi. Flokkurinn fékk tæp 70% atkvæða
en Samfylkingin og óháðir tæp 30%. Einnig
var kosið um nafn á nýju sveitarfélagi og
var nafnið Austurbyggð valið. Sjá síðu 8.
MÁLSTOFA Í dag verður haldin rann-
sóknarmálstofa á vegum félagsráðgjafar-
skorar félagsvísindadeildar Háskóla Ís-
lands. Björg Kjartansdóttir félagsráðgjafi
mun kynna meistararitgerð sína í félags-
ráðgjöf en í henni er gerður samanburð-
ur á félagslegum réttindum innflytjenda í
Bretlandi og á Íslandi. Málstofan er hald-
in í stofu 202 í Odda kl. 1205.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
KULDABOLI Það heldur áfram að vera
kalt og hvasst á Íslandi í dag. Á eynni Krít
er hins vegar 27 gráða hiti og heiðskírt en
það er sennilega lítil huggun fyrir Frónbúa.
Það mun þó hlýna örlítið og lægja eftir því
sem líður á vikuna. Sjá bls. 6.
OFSAVEÐUR Hvassviðrið sem gekk
yfir landið í gær olli minni
skemmdum en óttast var. Mest fór
vindhraðinn í 30 m/s fyrir norðan
land en veðrinu hafði slotað að
mestu leyti um kvöldmatarleytið.
Alls voru 70
björgunarmenn að
störfum víða um
landið vegna veður-
ofsans. Bátur losn-
aði í höfninni á Hvammstanga og
rak stjórnlaust upp í varnargarð.
Mikill sjógangur gerði björgunar-
sveitarmönnum erfitt fyrir að
komast um borð og koma böndum
á bátinn en það tókst að lokum. Á
Sauðárkróki var rækjutogari ná-
lægt því að losna frá bryggjunni og
gekk mikið á þar sem öll tóg og vír-
ar slitnuðu margoft áður en tókst
að festa bátinn tryggilega.
Margir lentu í vandræðum í
kafaldsbyl og hálku á Holtavörðu-
heiði. Þar fóru margar bifreiðar
út af veginum og þurftu lögregla,
björgunarsveitir og starfsmenn
frá Vegagerðinni að koma fólki til
aðstoðar.
„Þetta var mjög slæmt á tíma-
bili,“ sagði Steinar Snorrason, varð-
stjóri hjá lögreglunni í Borgarnesi.
„Þarna var 25-30 metra vindhraði
og hitastigið við frostmark.
Skyggni var lítið sem ekkert og
varla sást á milli stika á veginum.“
Valgeir Elíasson, upplýsinga-
fulltrúi slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, sagði björgunarsveitir
víða hafa þurft að festa niður
lausamuni og aðstoða fólk en allt
hafi það gengið vel og björgunar-
sveitir hafi hætt sínum störfum
seinnipartinn í gær. „Það reyndist
erfitt að festa bátana á Hvamms-
tanga og á Sauðárkróki en þess
utan var helst um það að ræða að
festa lausamuni og aðstoða fólk við
að festa niður þakplötur og annað
slíkt sem hætta var á að gæti fokið.
Það var víða sem tilkynnt var um
slíkt en hvergi varð alvarlegt tjón
eða fólk í hættu.“
albert@frettabladid.is
22. september 2003 – 229. tölublað – 3. árgangur
SVÍÞJÓÐ Lögreglan í Stokkhólmi
leitar að sænskum síbrotamanni
á fertugsaldri í tengslum við
morðið á utanríkisráðherranum
Önnu Lindh. Annar maður situr í
gæsluvarðhaldi grunaður um
morðið.
Eftir að hafa fylgt eftir fjölda
vísbendinga frá almenningi bein-
ist áhugi lögreglunnar nú einkum
að dæmdum glæpamanni sem ít-
rekað hefur verið ákærður fyrir
grófar líkamsárásir og fíkniefna-
brot, að því er fram kemur í
Aftonbladet. Manninum var gert
að sæta geðrannsókn fyrir um
það bil einu ári. Heimildarmaður
blaðsins segir að hann sé mjög
skapbráður og árásargjarn og því
komi sterklega til greina að hann
hafi framið morðið. „Hann gæti
hafa þekkt Önnu Lindh og skyndi-
lega orðið reiður út í hana af ein-
hverri ástæðu,“ segir heimildar-
maðurinn.
Lögreglunni hefur ekki tekist
að bera kennsl á manninn sem
sést á eftirlitsmyndavélum versl-
unarmiðstöðvarinnar þar sem
morðið var framið. Verið er að
afla frekari upplýsinga um
nokkra einstaklinga sem taldir
eru koma til greina. ■
Morð utanríkisráðherrans Önnu Lindh:
Rannsókn beinist að nýjum manni
TJÓN Á VINNUPÖLLUM
Verstu vindhviðurnar í Reykjavík feyktu þessum stöndugu vinnupöllum á nærliggjandi krana.
■
Varla sást á
milli stika á
veginum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
góð ráð frikka weiss ● lýsing
▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
Yndisleg
staðsetning
Æskuheimilið:
GUÐNI ÞORBERG THEÓDÓRSSON
OG SVAVA DÖGG MAGNÚSDÓTTIR
Guðni liggur illa særður á sænsku sjúkra-
húsi eftir hnífaárás þarlendra unglinga.
Íslendingur stunginn
af sænskum nýnasistum:
Rænulaus
í blóðpolli
LÖGREGLUMÁL Íslenskur karlmaður,
Guðni Þorberg Theódórsson, ligg-
ur illa særður á sjúkrahúsi í Karl-
stadt eftir hrottalega hnífárás
sænskra ungmenna. Sænska lög-
reglan segist hafa tvo pilta í haldi
vegna tilræðisins.
Að sögn Höllu Ólafar Krist-
mundsdóttur, sem er móðir unn-
ustu Guðna, Svövu Daggar Magn-
úsdóttur, fór Guðni út eftir mið-
nætti á föstudagskvöld. Með
Guðna voru sextán ára stjúpbróðir
hans og íslenskur vinur bróðurins.
„Þeir fóru út að ganga með hund-
inn og Guðni fór með,“ segir Halla.
Skammt frá heimilum þeirra
mættu Íslendingarnir unglinga-
gengi sem Halla hefur eftir dóttur
sinni að hafi verið nýnasistar.
Halla segir Guðna munu hafa
skipt sér af orðahnippingum sem
voru á milli stúlkna og drengja í
nýnasistagenginu. Íslensku pilt-
arnir tveir hafi þá dregið sig frá
hópnum:
„Svíarnir þoldu ekki að Guðni
væri að skipta sér af og stungu
hann. Guðni slapp en þeir náðu
honum og stungu hann meira og
börðu. Hann slapp aftur. Strákur á
skellinöðru varaði hann við að þeir
væru enn á eftir honum og hann
faldi sig inni í runna. Þá gáfust
þeir upp,“ segir Halla.
Að sögn Höllu röktu íslensku
piltarnir tveir blóðslóðina að
strætóskýli einu. „Guðni lá þar
rænulaus í blóði sínu. Annar strák-
urinn hringdi á lögguna og hinn
hljóp að ná í Svövu. Hún kom og
reyndi að fá Guðna til að vakna.
Hann opnaði augun og leit á hana.
Svo kom sjúkrabílinn,“ lýsir Halla.
Samkvæmt upplýsingum frá
sjúkrahúsinu í Karlstadt er Guðni
ekki í lífshættu eftir að hafa geng-
ist undir aðgerð. Halla segir Guðna
hins vegar hafa verið í lífshættu
áður en á sjúkrahúsið kom:
„Hann var stunginn tvisvar í
bakið og skorinn á hálsi. Hann var
líka stunginn rétt undir augað. Svo
nefbrotnaði hann og kjálkabrotn-
aði. Þeir ætluðu bara að ganga frá
honum,“ segir hún.
Bróðir Guðna fór utan í gær til
að vera við hlið þeirra. Svava og
Guðni, sem hafa búið í rúmt ár í
Karlstadt, hugðust flytja heim til
Íslands næsta laugardag. Guðni er
32 ára. ■
Óveður olli tjóni
og truflunum
Hvassviðrið sem gekk yfir landið olli minna tjóni en óttast var. Víða
þurfti að kalla til björgunarsveitarmenn til að festa lauslega hluti en
engin alvarleg slys urðu vegna veðurofsans.